Íslendingur - 28.09.1962, Qupperneq 8
sóknir árið um krin;
„Þorsteinsskáli eins og luxus-hótel44
Viðtal við Sigurjón L. Rist vatnamælingamann
ISÍÐASTLIÐINNI VIKU var Sigurjón L. Rist vatnamælinga-
maður á ferð hér í bænum, og náði þá tíðindamaður blaðsins
tali af honum og spurði frétta af starfinu.
Misjafnir gististaðir.
— Hve margir eruð þið við
þessar mælingar?
— Við erum fjórir við þær
núna.
— Hvernig ferðaútbúnað haf-
ið þið?
— Við höfum venjulega með
okkur tjöld, en höfum þó oftast
næturvist í bílunum. Stundum
Framhald á bls. 7.
MEÐAL fjölmai'gra Vestur-ís-
lendinga, sem komið hafa
„heim“ í sumar, er Páll Ingv-
arsson tilraunastjóri, og bar
hann að tilviljun að garði hjá
blaðinu, meðan hann stanzaði
nokkra daga hér í bænum.
Páll gerði þá grein fyrir sér, að
hann væri fæddur að Leysingja-
stöðum í Húnaþingi, sem er ná-
grannabær Þingeyra, og var
hinn þekkti hestamaður, hag-
Beztu síldvertíð fyrir
Norðurlandi lokið
Sigurjón L. Rist við fjallabíl sinn.
Rannsóknir á fallvötnum.
— Hve lengi hefur þú verið
í þessu starfi og á hvers vegum
er það rekið?
— Ég hef verið samfleytt 15
ár við vatnamælingarnar, en
þær eru framkvæmdar á vegum
raforkumálastjórnarinnar.
— í hvei-ju er starfið einkum
fólgið?
— í alhliða rannsóknum á
fallvötnum: vatnsmagni, aui’-
burði og öðrum eiginleikum,
svo sem ísalögum á vetrum. Að-
alverkefnin eru athuganir fyrir
ofan byggð eða inni í dalabotn-
um, einkum við stórárnar og
allt til upptaka þeirra í jöklum.
Og raunar fylgja þessu athug-
anir á jöklunum sjálfum, t. d.
hafa sameiginlegar rannsóknir
Jöklarannsóknafél. íslands og
Siglfirðingar sigruðu
ringa í bridge
BÆJAKEPPNI í bridge var
háð milli Siglfirðinga og Akur-
eyringa um sl. helgi á Siglu-
firði. Þrjár meistaraflokkssveit-
ir spiluðu fyrir hvorn bæ og
spilaðar voru 3 umferðir. —
Keppninni lauk með sigri Sigl-
firðinga, 6 vinningar gegn 3. —
Auk þessa keppti ein fyrsta
flokks sveit Akureyringa við
þrjár fyrsta flokks sveitir Sigl-
firðinga, og laulc þeirri keppni
einnig með sigri Siglfirðinga,
2 gegn 1.
Móttökur Siglfirðinga voru í
alla staði prýðilegar og ferðin í
heild mjög ánægjuleg, þó að
illa tækist til við spilamennsk-
una hjá sumum.
Akurey
(Ljósm.: St. E. Sig.)
vatnamælinganna verið gerðar
til að fá úr því skorið, hvoi't
jöklar á íslandi séu „arktiskir“,
þ. e. hvort vetrarfrostið helzt í
þeim allt árið, — eða hvort þeir
eru „tempraðir“, þannig, að
frost fari úr að sumrinu. Ur
þessu hefur fengizt skorið með
því að bora holur í jöklana, ca.
30 metra djúpar og fylgjast þar
með hitastigi á ýmsum tímum
árs. Og niðurstaðan er sú, að
síðla sumars er frostbylgja fyrri
vetrar horfin, og þá kemst leys-
ingavatn niður gegnum jökul-
inn, og er þetta m.a. ástæða fyr-
ir vexti í jökulsám seinni hluta
júlí og í ágústmánuði. Verða
því jöklar hér á landi að flokk-
ast undir tempraða jökla á því
hlýja skeiði, sem nú er ríkj-
andi.
Þjórsá og Jökulsá.
— Hvar hefurðu einkum
starfað í sumar?
— Mest við Þjórsá og Jökulsá
á Fjöllum, auk dýptarmælinga
á vötnum á Vestfjörðum. M. a.
settum við upp í sambandi við
rannsóknir á Jökulsá regnmæli
vio vegamotin sunnan Upptypp-
inga og Miðfells, en hann mælir
úrkomu allt árið. Æskilegt er,
að menn, sem þarna verða á
ferð, lesi á mælinn og skrifi í
gestabók Þorsteinsskála niður-
stöður aflesturs, enda er þar að
finna nauðsynlegar leiðbeining-
ar.
— Aðalverkefnið?
— Það er að skrá vatnshæð
þeirra vatnsfalla, er við rann-
sökum, en þau eru um hundrað
að tölu víðs vegar um land. Þar
Nokkur skip lmekkja 19 ára gömlu aflameti
SÍLDARVERTÍÐINNI fyrir
Norður- og Austurlandi er nú
lokið, og var aflinn, sem að landi
barst á ca. 2V2 mánuði (til jafn-
aðar á skip) meh'i en nokkurn
tíma áður í sögunni.
Fram að þessu sumri átti Eld-
borgin frá Borgarnesi aflamet-
ið, 30356 mál, en það var sett
1943 og hefur staðið óhaggað
síðan, enda komu mörg síldar-
leysisár í röð eftir lok heims-
styrjaldarinnar, og var það
raunar ekki fyrr en í fyrrasum-
ar, að síldaraflinn tók að glæð-
ast að nýju. Nú í sumar hafa
a.m.k. 3 skip hnekkt gamla met-
inu: toppskipið Víðir II., með
32399 mál og tunnur, Höfrung-
ur II með 31542 og ÓlafurMagn-
ússon með 30917. Þó segja þess-
ar tölur ekki allan sannleika,
því að verðmæti aflans er til-
tölulega meiri hjá skipum, er
komu verulegu magni í söltun,
og er Víðir II. þar langt fyrir of-
an hin aflaháu skipin, en 1943
var engin söltun. Aflaverðmæti
Víðis II. er í sumar talið rúm-
lega 5.5 millj. kr„ en tveggja
hinna næstu 4.65 millj. kr. hvors
um sig.
Heildarafli hinna 224 skipa,
er þátt tóku í síldveiðunum var
talinn við síðustu athugun Fiski-
fél. 1.955.515 mál í bræðslu,
'375.429 tunnur í salt og 39122
tunnur í frystingu (beitu), eða
samtals 2.370.066 mál og tunnur
(í fyrra 1.557.000 mál og tunn-
ur). Meðalafli á skip er nú 10600
mál og tunnur, en alls veiddu
28 skip yfir 20 þús. mál, þar af
3 yfir 30 þúsund.
er komið fyrir síritandi mælum,
sem blöðin eru öðru hverju tek-
in úr til aflesturs, en mælingar
á rennslinu eru gerðar til að
ganga úr skugga um, hvað
rennslið er við hverja vatnshæð.
Á síðari árum hafa verið tekn-
ar í notkun reiknivélar, og hef
ég undanfarna vetur unnið að
því að koma upp úrvinnslukerfi
fyrir þær.
yrðingur og stói'bóndi, Jón Ás-
geirsson á Þingeyrum, afi Páls.
Páll kvaðst liafa farið vestur
til Canada fám árum fyrir
heimsstyrjöldina fyrri, og hefði
þá áður dvalizt um skeið í Skot-
landi. Heim til íslands hefði
hann ekki komið fyrr en í sum-
ar og væri orðinn stirður í mál-
inu, enda mjög lítið umgengist
íslendinga vestra.
Fám árum eftir vestui'kom-
una fluttist Páll til miðríkja
Bandaríkjanna, ætlaði til Nýja-
Sjálands, sem þó ekki varð af,
en lengst hefur hann búið í Cali-
forníu. Hann gekk í búnaðar-
skóla vestra (í Colorado) og
lagði stund á húsdýrafræði, fóð-
urfræði og grasrækt. Gerðist
síðar leiðbeinandi í þessum
greinum víðs vegar vestra, svo
sem í Kaliforníu, Utah, Texas,
Klettafjallaríkjunum ogMexico,
en aðalgreinarnar voru vín-
berja- og aldinrækt, fóðurjurta-
og grasrækt. Ennfremur baðm-
ullarrækt. Nær hálf öld er liðin
síðan Páll fór vestur, en hér
heima hefur hann einkum ferð-
azt um Suðurland, heimsótt til-
raunastöðvar þar og dvalið
nokkra daga í átthögunum í
Húnaþingi. Páll kvaðst kunna
vel við gamla fósturlandið og
geta vel hugsað til að ílendast
hér, ef aðstæður leyfðu.
\ Blaðherar óskast |
; Okkur vantar nokkra blað- 1
í bera nú þegar c'ða um mán- i
i aðaníót nk. Talið sem fýrst i
i við afgréiðslu hlaðsins. i
Séð yfir Akureyrarhöfn í lok síldarvertíðarinnar í haust. Sjaldan mun hafa sézt slíkur fjöldi skipa
hér í höfninni. (Ljósmynd: St. E. Sig.)
XLVIII. ARG. . FÖSTUDAGUR 28. SEPT. 1962
Vesfur-islenzkur tilrauna-
stjóri í heimsókn