Íslendingur


Íslendingur - 10.04.1964, Blaðsíða 4

Íslendingur - 10.04.1964, Blaðsíða 4
ÍSLENDINGUR BLAÐ SJÁLFSTÆPISMANNA í NORÐTJRLANÐSKJÖRDÆMI EYSTRA Kemur út hvern iöstudag. — útgefandi: KJÖHDÆMISHAÐ. — Ritstjóri og óbyrgSar- anaöur: JAKOB ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1, sími 1375. Auglýsingar og afgreiSsla: BJÖRGVIN JÚLÍUSSON, Helga-magra stræti 19, sími 2201. Skriistofa og afgreiSsla i Hafnarstræti 107 (útvegsbankahúsiS) III. hæS (innst). Sími 1354. Opið kl. 10-12 cg 13.30-17.30. Laugardaga kl. 10-12. Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri. Vinátta á völtum grunni TALSVERÐIR úfar gerast nú með Maó, einvalda Rauða- Kína og Krúsjeff, einvalda Sovétríkja Evrópu. Tala þeir ekkert blíðlega hvor um annan þessa síðustu daga. Mao sakar Krúsjeff um undanlátssemi og samningalipurð við kapitalistaríkin, en Krúsjeff Maó um sundrungarstarfsemi innan kommúnistaflokka sósíölsku ríkjanna. Fór hann m. a. þungum orðum um kínverska einvaldann í opinberri ræðu í Búdapest um helgina síðustu. Verður ekki annað af fregn- um ráðið en að fullkomin friðslit séu yfirvofandi milli hinna gömlu skoðanabræðra og vildarvina. Ekki er víst að öllum beri saman um ástæðuna fyrir ýf- ingum Maós, en vel má þó geta sér þess til, að þrengra þyki honum orðið um sig í Kína en Krúsjeff í Rússlandi með hið víðlenda strjálbýli í Norður-Asíu (Síberíu) ,til að taka við fólksfjölgun um langa hríð. Mundi hann vafalaust þiggja væna sneið þar af. Guli kynstofninn í Kína mun nema um 700 millj., eða miklum mun meiru en allur hvíti kynstofninn í hinni frjálsu Evrópu telst. Hugsi Maó sér að leita frekara olnboga- rúms vestur á bóginn, þarf hann lítt að horfa í mannslífin. Við höfum á löngu liðnum öldum fengið herskáan lýð úr austurhluta heims vaðandi yfir vestræn lönd, og enn getur sú hætta verið fyrir hendi. Gula hættan er engu betri en rauðu og brúnu hætturnar, sem við höfum kynnzt á þess- ari öld, og sent hafa tugmilljónir saklausra einstaklinga krókalaust inn í eilífðina. Úrskurður kjaradóms TALSVERÐUR ÚLFAÞYTUR hefur orðið í blöðum stjórnarandstöðunnar út af úrskurði Kjaradóms í launa- kröfum opinberra starfsmanna, þ. e. að þeir fengju nú eða frá s.l. áramótum 15% launahækkun ofan á hinar miklu hækkanir á síðasta ári, sem voru talsverðum mun ríflegri en hjá öðrum stéttum, enda höfðu starfsmenn ríkisins beðið lengur eftir leiðréttingu á launakjörum sínum en flestar aðrar stéttir. Vel má vera, að nokkrir lægstu launa- flokkarnir hafi of lág laun, enda breikkaði bilið milli hinna lægstu og hæstu í hinum fyrri úrskurði Kjaradóms, en höf- um við ekki yfirleitt talið, að við gerðum of lítinn mun á launum manna, sem leggja þyrftu á sig margra ára nám heima og erlendis til að rækja starf sitt sem skyldi og hinna, sem engu þyrftu til að kosta til undirbúnings þeirra starfi? T. d. hefur hvað mest óánægja verið meðal verkfræðinga og lækna um kjör þeirra, svo að þeir hafa margir haft við orð og sumir látið af því verða að leita atvinnu erlendis, þar sem meiri munur er gerður á kjörum þeirra og þess fólks, sem enga undirbúningsmenntun þarf til að skila sínu verki. Úrskurður Kjaradóms er sýnilega byggður á því, að hækkun á launum opinberra starfsmanna nú mundi leiða af sér ófyrirsjáanlegar víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags, sem ekki gæti endað nema á eina leið: algeru efnahagslegu hruni og glötuðu trausti út á við. Hinar miklu kauphækk- anir fjölmennustu stéttanna í vetur byggðust að verulegu leyti á meiri hækkunum til opinberra starfsmanna og áttu að koma til jafnvægis við þeirra nýju kjör. Hækkun á laun- um þeirra myndi kalla á nýjar kröfur annarra launastétta og þannig koll af kolli. Það er næsta broslegt, þegar Tíminn og Þjóðviljinn eru að tala um ,,dýrtíðarstefnu“ viðreisnarstjórnarinnar. Það gera þessi blöð á sama tíma og þau saka stjórnina um að halda niðri launum stéttanna í landinu. Bæði blöðin ráð- ast á Kjaradóm fyrir að hafa ekki gengið að 15% kauphækk- unarkröfum opinberra starfsmanna, og er þeim þó jafn- Hvað er að gerast? (NIÐURLAG) í sunnudagskálfi Tímans 20. okt. 1963 er birtur úttektar- reikningur bóndans í Víðidal, Sigfúsar Jónssonar. Okunnugt er um dagkaup á þeim tíma, og þess vegna farið eftir því, sem algengt mun hafa verið 10 ár- um síðar, eða 20 aura tíma- kaupi. Gengið er út frá 10 stunda vinnu 1883, en 8 stunda vinnudegi 1964. Varan frá 1883 umreiknuð í kílógrömm og verð lag eftir því. Verður samanburð- ur þessi að því leyti hagfelldari VlSNA BÁLKUR EGÓ hefur nýlega kveðið: Öll var Góa yfrið góð eins og greinir saga. Þetta væna, fríða fljóð, fléttaði grænt í haga. Ehunánuður grettur, grár greip sér úlpu hríðar, felldi í byrjun fárleg tár, fékk á baukinn síðar. Fagnar morgni hugur hlýr, heimur virðist fagur. Kvöldsins ró að baki býr bjartur, langur dagur. Og enn kvað hann: Hvað er ljósið lífsins duldu þrá, litlu blómi, sem vill þroska ná? Eins og manni trúin hjartahrein, hamingjan að bæta sérhvers [mein. Þá hefur Sigurður J. Gíslason gefið okkur upp nöfn á hinum ókunnu höfundum í síðasta vísnabálki. Fyrri vísan (Ég er þrotinn allskonar....) er eftir Natan Ketilsson (sjá sögu Nat- ans Ketilssonar), en hin síðari (Engin bönd ég á mér finn) eftir Theodoru Thoroddsen. I bálki þar áður var vísa (Þó að blási stundum strangt) eftir Hákon Hákonarson úr 20. rímu af Reimari og Fal, ort 1832, og önnur (Beri maður létta lund) úr Tímarímu Jóns Sigurðssonar Dalaskálds. nútíma manninum, að sleppt er aurum þeim, sem fram yfir eru krónutöluna í dagvinnukaup- inu. Verðlagið 1883 er sem hér seg ir: Rúgmjöl 18 aura. Baunir 26 aura. Bankabygg 26 aura. Hrís- grjón 32 aura. Kaffi, óbrennt 1.20. Sykur 84 aura. Kaffibætir 1,00. Hveiti 1,96. Rúsínur 1,00. Fyrir dagkaupið fékkst þá 11 kg. 100 gr. af rúgmjöli, af baun- um 7,692, bankabyggi 7,692, hrísgrjónum 6,250, kaffi, óbr. 1,538, sykri 2,38, kaffibæti 2 kg., hveiti 1,02, rúsínum 2 kg. (Dag- kaupið 10 stundir á 2 kr.). Verðlag 1964 er sem hér seg- ir: Rúgmjöl kr. 7,00. Baunir, %, 13,00. Bankabygg 6,70. Hrís- grjón 14,35. Kaffi, brennt, 63,00. Strásykur 19,25. Kaffibætir 28.20. Hveiti 7,50. Rúsínur 39,00. Fyrir dagkaupið fæst nú með 8 st. vinnu (dagkaup 257,68). Af rúgmjöli 36 kg. 714 gr. Baun um 19,769 kg, bankabyggi 38,358 hrísgrjónum 17,909 kg, kaffi- 4,079, strásykri 13,350, kaffibæti 9-J13 kg, hveiti 34,266, rúsínum 6,580 kg. Hver og einn getur nú gengið úr skugga um, hve miklu meiri dýrtíð herjaði land vort fyrir rúmum mannsaldri. Verðlag út- lendu vörunnar nú sýnir í raun og veru, að hér er engin dýrtíð. Ef menn annars vilja halda í dýrtíðardrauginn, er hann heimatilbúinn. Þjóðin hefir ekki viljað sníða sér stakk eftir vexti. En hvað um tímakaups- stund? Hún er ekki minna en því engan furða á, þótt verð- bólgumönnum vaxi ekki í aug- um, að krefjast lítillar 40% hækkunar á kaupi, einu sinni eða tvisvar á ári. Og hver er kominn til að segja, nema 20 þúsund % markið náist árið 2000. Nei asninn er kominn inn í efnahagsherbúðir þjóðarinnar. Hversu auðvelt verður að koma honum þaðan, verður framtíð íslands að skera úr um. Ef til vill verður það ekki fyrr en skrifstofumeyjarnar standa aft- ljóst og hverjum meðalgreindum manni, hvað þar hefði á eftir komið, enda báðum stjórnarandstöðuflokkunum Ijúft að vinna þar að, ef með því gæti hillt undir vonir um stjórnarstóla á ný. En kauphækkunarstefna stjórnarandstöð- unnar er réttnefnd verðbólgustefna, svo sem hagkerfi okkar er háttað. Tíminn og Þjóðviljinn (Frjáls þjóð jarmar gjarn- an með) eru því að snoppunga sína skjólstæðinga, þegar þeir minnast á dýrtíðarstefnu. Óðaverðbólga er það, sem þessir herrar þrá af öllum huga, — ekki fyrir það, að slíkt sé þjóðinni fyrir beztu, heldur pólitískri framtíð þeirra um nokkurt tímabil, og er þó hætt við, að dæmið sé skakkt reiknað. Fyrr eða síðar áttar verulegur meirihluti launþega sig á því, að krónufjöldinn er ekki fyrir ötlu, heldur verð- mæti hvers penings er hann hefur hánda á milli á hverjum tíma. an við kýrrassana með reku í hendi (samanber útvarpsérindi formanns B.F.Í., eftir utanför- ina frægu), eða gerfilýðræði verði komið á, sem skipar sér, af ótta, um einn kosningalista. Vonum að guð forði frá því, en hjálpi oss inn á aðrar götur. Og hvað sannar betur en samþykkt frumvarp allra þingflokkanna, um launakjörin handa þeim sjálfum, að þingfulltrúunum gengur betur að sameinast um sín eigin mál, en hin svokölluðu þjóðmál. Af hverju þetta stafar, verður hver að hafa sína skoð- un. Hins vegar engin goðgá að vekja athygli þeirra á þessu, ef ske kynni, að þeir glöggvuðu sig á því, bæði á þingi og utan þinghúsveggj anna. Eitt með kynlegustu fyt-irbær- um, sem bæði eru gerð heyrin- kunn í útvarpi og lesa má um í blöðum, er hækkun fjárlaga frá ári til árs. Stjórnin fær oft óþvegin orð í eyra, fyrir þessa óspilunarsemi, hjá andstæðing- unum. Þó leitast þeir við með tillögum sínum og frumvörpum, oft og iðulega, að hækka svo ýmsa gjaldaliði á fjárlögunum, að þau hljóta að marghækka, ef allar þær fjárveitingar, sem þeir: fara fram á, yrðu samþykktar. Aldrei má fella neitt niður til gjaldalækkunar, og ekki bæta við nýjum fjáröflunarleiðum fyrir ríkissjóðinn. Þegar svo er komið, er, eing og þingmenn stjói-nax-andstöðunnar . ha.fi í raun og veru ekkert meint með því, sem þeir notuðu til um- vöndunar. Sjá þó allir heil- 16100% hærri en 1883. Það skal skyggnir menn, að þegar ríkis- sjóðnum er ætlað að standa straum af síauknum kostnaði, til hins og þessa, að á móti þui-fa að koma tekjur einhvers- staðar frá. Margar milliþinga- nefndir gefa ekki fljóttekinn gróða, en þær geta komið við gjaldadálkinn. Séi-hver stjórnar- andstaða líkist blindum manni. Hann gerist djarfmæltur vegna þess, að hann sér ekki áhrif orða sinna. Andstaðan ófyrir- leitnari af því að hún ber enga ábyi-gð á framkvæmdavaldinu, en sýnir kjósendum sínum á sér fallegu hliðina. Menn láta oft glepjast af því, sem fallegt er. „Oft er flagð undir fögru skinni“ o. s. frv. Á margt fleira mætti drepa, sem gefur efni til athugunar. Að þessu sinni verður látið stað ar numið. Hitt gefur auga leið, og gleður samferðamanninn, að fleirum vii’ðist ástandið ískyggi legt, samkvæmt erindum út- vai-psins: „Um daginn og veg- inn,“ undanfarnar vikui-. Vér högum oss eins og millj- ónaþjóð, þótt höfðatalan nái ekki enn 200 þúsundum. Og margir sjá að slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. E. G. Ó. ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.