Íslendingur


Íslendingur - 25.06.1965, Síða 1

Íslendingur - 25.06.1965, Síða 1
ÍSLENDINGUR í> L A1) SJALFSTÆÐISMANNA í NORÐURLA NI) S K J Ö R D Æ M Í EYSTRA 51. ÁRGANGUR . FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1965 . 25. TÖLUBLAÐ KÍSILGÚRFRAMLEIÐSLAN HEFST EFTIR 2 ÁR Undirbúningsframkvæmdir að hefjast hráefnagæði og framleiðslumögu leika áður. DAGANA 16.—19. júní var Magnús Jónsson fjármálaráðherra sladdur hér nyrðra, og er íslendingur náði tali af honum síðasta dvalardag hans hér, kvaðst hann hafa átt hingað tvö erindi, sem \rel hefði fallið saman: Að vera viðstaddur slit Menntaskólans á Akureyri á 25 ára stúdentsafmæli sínu og heimsækja Mývatns- sveit vegna fyrirhugaðra framkvæmda við kísilgúrverksmiðjuna. Og þriðja erindið hefði verið að lialda lýðveldisræðuna, sem hann hefði ekki kunnað við að neita beiðni þjóðhátíðarnefndar um, þar sem hann var staddur liér hvort sem var vegna liinna erindanna. Þá barst tal okkar að kísilgúr málinu og undirbúningsfram- kvæmdum í Mývatnssveit. — Austur að Mývatni fór ég til athugana vegna fyrirhugaðr- ar kísilgúrverksmiðju, og át-tum við Karl Kristjánsson alþingis- maður, sem er í stjórn „Kísil- iðjunnar hf.“ tal við landeigend ur þar um land og lóðir undir þau mannvirki, sem reisa þarf í sambandi við framleiðsluna. Gátum byggt verk- smiðjuna einir — Og hver er hinn erlendi að jli að stofnuninni? — Það er fyrirtækið John Manville í Bandaríkjunum, stærsti kísilgúrframleiðandi heims, og hafa viðræður við full trúa þess staðið yfir nokkurn tíma með hinum jákvæða ár- angri, en þær viðræður voru teknar upp eftir að hollenzka fyrirtækið AIME lýsti því yfir, að það treysti sér ekki til þeirr ar aðildar að byggingu og rekstri kísilgúrverksmiðju í félagi við íslendinga, sem upp- haflega var gert ráð fyrir. Og ég tel rétt, að það komi fram, að ástæðan fyrir því að leitað Mikið að gera hjá Ú.A. HEITA má, að það sem af er þessum mánuði hafi verið sleitu laus vinna í hraðfrystihúsi Út gerðarfélags Akureyringa, og hefur aflann borið svo brátt að, að orðið hefur að selja lítillega af honum til Dalvíkur. Landan- ir í júnímánuði eru orðnar 8 og tveir togarar væntanlegir næstu daga. Síðustu landanir eru þess ar: 18. júní Kaldbakur 144,9 tonn, 22. júní Harðbakur 114,9 tonn, og í gær kom Svalbakur með oa 180 tonn. var erlendrar aðildar að þessu fyrirtæki var ekki sú, að íslend- ingar hefðu ekki sjálfir og ein- ir getað komið verksmiðjunni upp heldur sú, að markaður fyr ir framleiðsluna er mjög þröng- ur, og hafa ýtarlegar markaðs- athuganir leitt í ljós, að reyn- ast mundi mjög erfitt og kostn- aðarsamt, ef ekki óviðráðanlegt fyrir verksmiðjuna, að byggja upp sjálfstætt sölukerfi með þeirri tækniþjónustu, sem óum flýjanlegt er talið að veita þurfi kaupendum vörunnar. Undirbúningur hefst í sumar —- Er ekki mikil þörf sérfræð inga við undirbúninginn. — Jú, en við höfum sjálfir átt á að skipa sérfræðingum til athugunar á botnleir Mývatns, þeim Tómasi Tryggvasyni jarð fræðingi og Baldri Líndal efna- verkfræðingi. — En auk þess dvelja nú þrír jarðfræðingar frá hinum erlenda meðeiganda til að kynna sér gæði hráefnis- ins, enda leggja þeir aldrei út í slík fyrirtæki, nema að þess eig in sérfræðingar hafi kynnt sér Ðæluprammi og leiðslur í sumar er gert ráð fyrir að pramminn,sem dæla á botnleirn um, verði fenginn á vatnið og leiðslur lagðar úr honum í land, fyrst 500 m. leiðsla að dælustöð í landi og síðan 3000 m. leiðsla að verksmiðjuhúsinu, en dælu- stöðin verður reist við svonefnd an Helgavog í landi Reykjahlíð ar. Er þegar farið að grafa fyrir húsinu. í haust er ráðgert að dælingin geti hafizt, en á næsta sumri bygging verksmiðjuhúss- ins, og gæti þá framleiðsla haf- izt sumarið 1967. Gert er ráð fyrir 12 þús. tonna ársfram- leiðslu en tillit tekið til stækk- unarmöguleika við byggingu verksm iðj unnar. Suniarbúðir KFUM og K við Hólavaln þ.m. að viðstöddu fjölmenni. Eyjafirði voru vígðar 20. Ljósm.: G. P. K. Sumarbúðir vígðar SUMARBÚÐIR KFUM og K við Hólavatn í Eyjafirði voru vígðar sl. sunnudag í fögru veðri og að viðstöddu meira fjölmenni en búðirnar rúmuðu. Vígsluathöfnin hófst með sálmasöng, síðan bauð Björgv- in Jörgensson kennari, formað- ur KFUM á Akureyri, gestina velkomna og lýsti dagskrá. Frú Sigríður Zakaríasdóttir flutti bæn, frá Hanna Stefánsdóttir (form. KFUK) stutt ávarp og þakkaði gjafir, er heimilinu höfðu borizt. Þá flutti Björgvin Jörgensson erindi og lýsti þar fyrirhuguðu starfi sumarbúð- anna, en Helga Magnúsdóttir úr Reykjavík söng sálm, og milli dagskráratriða v’oru sálma lög sungin. Þá fluttj sr. Bjarni Jónsson vígslubiskup aðalræðuna við þessa athöfn og vigði staðinn, en gestir risu úr sætum á með- an hann flutti vígsluorðin. Að vígslu lokinni tóku ýmsir gestir til máls, og afhentu sum ir gjafir, en að lokum var sezt að kaffidrykkju í boði eigenda sumarbúðanna. Gerðu alltaf eitthvað, sem þú tekur ekki peninga fyrir”, sagði skólam., Þórarinn Björnsson, við skólaslit MENNTASKÓLANUM á Akureyri var slitið i 85. sinn í Akureyr- arkirkju 17. júní sl. þar sem athöfnin rúmaðist ekki á Sal. — Að þessu sinni voru brautskráðir 92 síúdentar, cn þrír eiga ólokið prófum, 49 úr máladeild en 46 úr stærðfræðideild. — Kennarafund- ur samþykkti í vetur áskorun til ríkissíjórnar og Alþingis um úr- bætur og fjárframlag á næstu fjárlögum og hefur menníamálaráð- herra tekið mjög vel í það mál og skipað nefnd til að gera tillögur um staðseíningu húsa á skólalóð M.A. Hér er ekki rúm til að rekja ræðu skólameistara, Þórarins Björnssonar, sem skyldi, enda hefur hennar verið getið ýtarl. annars staðar, heldur verður stiklað á stóru: í vetur voru í skólanum 452 nemendur í 17 deildum, þar af Frá Reykjahlíð við Mývatn. Hverfjall í baksýn. Á þessum slóðum verður hin fyrirhugaða kísilgúr- verksmiðja. Ljósm.: Karl Hjaltason. í 3. bekk 140 í 5 deildum. Stúlkur voru 153 eða náiega V2 nemenda. Akureyringar voru 107, aðrir Norðlendingar 136, af Vestfjörð um 57, Austurlandi 46, Reykja- vík og nágrenni 45, af Suður- landi 33 og Vesíurlandi 24. Flest ir nemendur voru úr þorpum og kaupstöðum, en mjög fáir úr sveitum. í heimavist bjuggu 175 og 280 borðuðu í mötuneytinu. Áætlað ur kostnaður (fyrir fæði og þjónustu) var 1800 kr. á mánuði fyrir pilt og Va minna fyrir stúlku. Um 100 nýnemar hafa sótt um heimavist, en aðeins verður unnt að taka 40. Fastakennarar voru 15 að skólameistara meðtöldum og (Framhald á blaðsíðu 6). Danska úrvalið leikur á Ák. A LAUGARDAGINN verður knattspyrnuleikur milli sjá- lenzka úrvalsliðsins og í. B. A. háður hér á íþróttavellinum, en ekki var enn ákveðið, hvenær hann hæfist, þegár blaðið fór í prentun.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.