Íslendingur - 25.06.1965, Side 2
RITSTJOR!
HREIÐAR JONSSON
AKUREYRINGAR voru í slak
ara lagi í leiknum við KR á
sunnudaginn, en lélegir voru
þeir alls ekki. KR-Iiðið er sterkt
og að auki voru þeir heppnir —
eða okkar menn slysnir, — ann
að markið, og það, sem úrslitum
réði, var næsta ódýrt, en ég
ætla, að það hafi einkum gert
út um leikinn. Ljóst var, hvílík
ur sjónarsviptir er að Jóni Stef-
ánssyni.
Leikurinn hófst með miklum
hraða, meiri en liðin réðu með
góðu móti við.
KR-ingar höfðu unnið hlut-
kestið og léku undan golunni á
suðurmarkið. Þeir voru þegar
meira í sókn, og á 7. mínútu
var Samúel (Jóhannsson, ekki
Gústafsson, eins og þrásinnis
má lesa í sunnanblöðunum. S.G.
er skíðamaður á ísafirði), vel
og þó naumlega. Andartaki síð-
ar fær Gunnar Felixson frið til
að skjóta, boltinn snertir varn-
armann lítillega og flýgur í
mark rétt innan við stöng.
Á 25. mín. tekur Valsteinn ■
horn mjög laglega, og boltinn
boppar á slánni. Nokkrar fleiri
homspyrnur í hálfleiknum, en
engin stórtíðindi. Akureyringar
sækja sig, en tekst ekki að jafna.
Síðari hálfleikur hefst með á-
kafri sókn Akureyringa, og nú
á sýnilega að jafna. Á 2. mín.
kemur gott skot frá Kára, en
Heimir ver. Fimmtu mínútu
tekur Valsteinn enn ágætt horn,
Kári upp og skallar, en hárs-
beridd utan við. KR-ingar ná
fyrsta upphlaupinu á 7. mínútu
en Samúel ver glæsilega. Enn
harðnar sókn Akureyringa og
Kári tekur hvert hornið á fætur
öðru, en vöm KR-inga er pott-
þétt. Og svo kemur slysið. Skot
ið er áleiðis að marki Akureyr-
inga. Samúel er í þann veginn
að grípa, en vindurinn hægir
ferð boltans, Samúel missir
HANDKNATTLEIKUR
KVENNALIÐ Völsunga frá
Húsavík í meistaraflokki kom í
heimsókn sl. sunnudag, og lék
einn leik við meistaralið ÍBA.
Fóru leikar þannig, að lið ÍBA
sigraði með 7 mörkum gegn 2.
Á þriðj udagskvöld fóru svo
tveir flokkar frá ÍBA til Húsa
víkur. Voru það 2. og meistara
flokkar kvenna, léku þeir við
lið Völsunga. Sigruðu Völsung
ar í 2. fl. með 4 gegn 1. Lið ÍBA
sigraði aftur á móti í meistara-
flokki með 5 mörkum gegn 2.
með 50%
hann fyrir fætur Baldvins mið
herja, og leiðin í mark er opin.
Að fá. þetta mark á sig eftir
12- mínútna sleítulitla sókn er
áfall, sem Akureyrarliðið þolir
ekki. Sóknin fjarar út, en KR-
ingar fara sér að engu óðslega
og vilja tryggja sér sigurinn. —
Þegar 5 mín. eru eftir tekst Bald
vin að brjótast í gegn og skora.
Var það ágæta vel gert, enda
mun hann nú einhver skæð-
asti miðherji á landinu. Akureyr
ingar þurftu þó ekki að þola 3:0,
því rétt fyrir leikslok var Val-
sieini brugðið nálægt KR-mark
inu. Magnús Jónatansson skor
aði örugglega, og fengu Akur-
eyringar þar svolitlar sárabæt-
ur. — KR-liðið var vissulega
betra og hefði að mínum dómi
átt að sigra með eins marks
mun. Liðið er mjög gott sem
heild og þá ekki sízt framlínan.
Af Akureyringunum var Val-
steinn beztur og sýndj afar
skemmtileg tilþrif, einkum í
fyrri hálfleik.
Eins og sjá má af stigatöfl-
unni eru liðin í 1. deild óvenju-
lega jöfn og geta Akureyringar
t.d. hvort sem er fallið niður
eða orðið íslandsmeistarar. Ætli
við greiðum ekki fremur at-
kvæði í síðari áttina. G.
Sí ldarverksmið j a mál
máianna á Dalvík
Spjallað við Einar Flygenring sveitarstjóra
17. júní mótið á Akureyri
Reynir Hjartarson vann afreksbikarinn
SEINNI hluti 17. júní mótsins
fór fram 17. júní og var þá liður
í hátíðarhöldunum. Reynir Hjart
arson vann bezta afrek mótsins,
hljóp hann 100 m á 11,5 sek sem
gefa 737 stig. Fyrir bezta afrek
er veittur Olíubikarinn, og er
þetta er í þriðja sinn, er Reynir
hlýtur bikarinn. Meðal góðs ár-
, angurs njá nefna hlaup sveitar
KA í 1000 m boðhlaupi.
ÚRSLIT:
100 m lilaup sek.
Reynir Hjartarson Þór 11,5
Þóroddur Jóhannss. UMSE 11,5
Spjótkast metrar
Ingi Árnason KA 52,81
Björn Sveinsson KA 46,60
Hástökk metrar
Jóhann Jónsson UMSE 1,65
Reynir Hjartarson Þór 1,65
Sig. V. Sigmundsson UMSE 1,65
1500 m hlaup mín.
Baldvin Þóroddsson KA 4,30,0
Vilhj. Björnsson UMSE 4,35,5
Reynir Hjartarson
1000 m boðhlaup min.
Sveit KA 2,08,2
Sveit UMSE 2,09,2
Á DALVÍK þurfum við fyrst og
fremst . verksmiðju, er vinnur
bæði síld og annan siávarafla,
sagði Einar Flygcnring í viðtali
við Islending í gær. Hér eru nú
þrjú síldarplön, en ekki er þó
að búast við því, að mikil síld
berizt hingað til söltunar, þar
sem flytja verður allan úrgang
til Hjalteyrar og skipin geta
ekki landað öllum afla sínum
hér. Þessvegna er síldarverk-
smiðja mál málanna hér á Dal-
vík. — Þess má geta, að nú í
þessari viku er Gísli Halldórsson
verkfræðingur væntanlegur
liingað til að athuga alla stað-
hættj í sambandi við slíka verk
smiðju.
— Er mikið um framkvæmd
ir á Dalvík?
— Það er nú unnið að því að
Ijúka við átta íbúðarhús, en
byrjað hefur verið á tveim nýj-
um. Einnig er haldið áfram við
íþróttahúsið. Þá hefur komið
fram sú hugmynd að reisa hér
heimavistarskóla, sem yrði þá
fyrir næstu byggðarlög, en eng
in ákvörðun hefur verið tekin
enn.
SI. haust var borað eftir köldu
vatni og varð árangurinn mjög
góður. Ákveðið hefur verið að
reisa í sumar 250 tonna vatns-
tank og ef fjármagn -leyfir verð
ur einnig reist dælustöð og ann
ar útbúnaður, sem til þarf.
— Hvernig hefur verið um
atvinnu á Dalvík?
— Ástandið var mjög slæmt í
vetur vegna lélegra aflabragðá
fyrst og fremst, en þó. rættist
heldur úr, þegar leið fram á
vorið vegna hrognkelsaveið-
anna.
í sumar verða fjórir til fimm
bátar gerðir út á dragnótaveiðar
héðan og eru sumir þeirra þegar
byrjaðir. Afli hefur verið sæmi
legur, en töluvert mikið er af
flatfiski.
— Er ekki mikill áhugi á, að
iðnaður rísi upp á Dalvík?
— Jú, ég mundi álíta það
mjög æskilegt fyrir staðinn, en
nálægð hans við Akureyri veld
ur því, að við eigum erfitt upp
dráttar nema þá helzt í sam-
bandi við sjávarútveg og land-
búnað. Má í því sambandi benda
á, að öll mjólkurframleiðsla í
nágrenni Dalvíkur er nú flutt til
Akureyrar, þótt að ýmsu leyti
væri hagkvæmara að hafa
mjólkursamlag staðsett hér til
að komast hjá hinum miklu
mjólkurflutningum héðan og
svo hingað aftur til neyzlu. H.BI.
Hafíslnn fafði m nokkra daga
Vopnafirði 22. júní. Hér hófst
sildarbræðslan 9. júní, og hafa
þegar verið brædd um 60 þús.
mál, en hafíshroði tafði fyrir
um þriggja daga skeið, að skip
AKUREYRARMET í KRINGLUKASTI 39.62 m.
Á ÆFINGAMÓTI KA sl. mánu
dag setti Ingi Árnason, KA, nýtt
Akureyrarmet í kringlukasti,
39.62. Eldra metið átti Óskar Ei
ríksson, og var það 39,57 m sett
árið 1952. Kastsería Inga var
mjög góð, eða 5 köst yfir 38 m.
Á sama móti kastaði Ingi spjót
inu 46,70 m og hljóp 200 m á
24,5 sek. í sveinaflokki var hlut
skarpastur Halldór Matthíasson
KA, og kastaði hann kringlunni
31,24 (kv.kr.) og spjótinu 34,97
m. Ingi er þegar orðinn mjög fjöl
hæfur kastari og miklar líkur
til, að hann verði fyrstur Akur-
eyringa til að kasta kringiunni
yfir 40 metra.
Úr knattspyrnuleik blaðanianna og leikara á íþró-tasvæðinu 17. júní. Vilhjálniur, Ilalldór Blöndal
(á fjórum fótum), Jón Ing., Hafsteinn, (Jón Sam í milli þcirra). Aftast Gísli Jónsson. — Hættulegl
augnablik. Ljósm.: Karl Hjaltason.
kæmust hingað inn með tæki í
verksmiðjuna, er vantaði til
þess, að hún gæti hafið starf-
semi. Strax og hún gat tekið
til starfa fylltust þróarrými
hennar, og hefur síðan verið
brætt dag og nótt.
Söltun hófst sl. sunnudag, og
var þá saitað á 3 plönum, milli
5 og 6 hundruð tunnur. Voru
um 50% af þeirri síld, er hingað
bárust, söltunarhæft.
Hér hefur verkalýðsfélagið
auglýst eigin kauptaxta, sam-
hljóða þeim, er auglýstir hafa
verið í Neskaupstað og á Breið
dalsvík, og er unnið eftir þeim
taxta til að byrja með. Sj.
Saltað á Ólafsfirði
Ólafsfirði, 24. júní Fyrsta síld-
in lil söltunar kom til Ólafsfjarð
ar á þriðjudag og var það Sig-
urður Bjarnason, sem kom hing
að með 1200 mál. Af því voru
saltaðar 400 tunnur, en afgang
urinn fór í bræðslu. í gærkvöldi
kom ITeimir með 1200 mál og
var töluvert af því saltað, Þor-
leifur með 400 tunnur í salt og
í dag er verið að salta úr Ólafi
Magnússyni og Oddgeir.
í sumar verða starfræktar hér
þrjár söltunarstöðvar eins og að
undanförnu og hafa þær allar
fengið síld til söltunar.
ÍSLENDINGÚ?