Íslendingur - 25.06.1965, Page 8
40 ÞÚSUND MÁL TIL
HJALTEYRAR
Hjalteyri, 24. júní. Hingáð hafa
borizt rúm 40 þús. mál og
bræðslu lýkur á föstudag. Flutn
ingaskipið er komið til landsins
en dæla og skiixúm í lestar |
vexða sett í það í naestu vtku. Frá þjéðhátiðabeMuBHm á Akureyri 17. júní. Meiri mannfjöldi.hefur þar vart verið saman kominn áður. — Ljósm.: Karl Hjaltason.
FRÁ BÆJARSTJÚRN
Bænum berst stórhöfðingleg gjöf. - Afsal fyrir
Davíðshúsi - Kvöldsöluleyfi til 23.30 fellt
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI
sl. þriðjudag var lagt fram bréf
frá Stefáni Jónssyni eiganda
Elliheimilisins í Skjaldarvík,
þar sem han býður Akureyrar
bæ að gjöf jarðirnar Syðri- og
Ytri-Skjaldarvík, með allri á-
höfn búanna á jörðunum og véla
kosti, svo og Elliheimilisbygg-
inguna með þeim skilyrðum þó,
að þar verði rekið elliheimili á-
fram eða önnur líknarstarfsemi.
Hér er um að ræða stórhöfð-
inglegt boð, þar sem báðar jarð
irnar eru vel hýstar og myndu
ásamt elliheimilisbyggingunni
verða taldar nokkurra milljóna
virði, aniðað við söluverð og
byggingarkostnað húsa í dag,
auk þess sem bústofn og vinnu
vélar eru mjög mikils virði.
Samþykkt var í bæjarstjórn
með 11 samhljóða atkvæðum að
taka þessu höfðinglega boði, og
síðan gerð svofelld ályktun, sam
þykkt samhljóða:
„Jafnframt því að veita við-
töku framlögðu gjafabréfi flyt-
ur bæjarstjóm Akureyrar gef-
andanum, Stefáni Jónssyni
Skjaldarvík, beztu þakkir fyrir
þessa stór-rausnarlegu gjöf. Lýs
ir bæjarstjórn Akureyrar því
yfir, að hún muni veita eignun
um viðtöku 1. október n.k. og
verða við þeim óskum gefanda,
sem fram koma í gjafabréfinu".
í umferðamálum var samþykkt
að setja biðskyldumerki á horn
Brekkugötu og Strandgötu við
Landsbankahornið og Hafnar-
strætisumferð fengi íorgangs-
rétt fyrir Brekkugötu sem haft
hefur þann rétt áður.
Þá var á sama fundi skýrt frá
því, að borizt hefði afsal fyrir
húseigninni Bjarkarst. 6 (Dav-
íðshúsi), sem framkvæmda-
nefnd Davíðssöfnunar hefði af-
hent bæjarráði.
Það mál sem einna mest var
rætt, var um kvöldsöluleyfi
verzlana, þ. e. hve lengi fram á
kvöld skyldi leyfa að hafa opið.
Um þetta mál hafði bæjarráð
gert svofellda ályktun:
1. „Meirihluti bæjarráðs legg-
ur til, að reg.ur um afgreiðslu
tíma verz'ana á Akureyri
verði endurskoðaðar, og verði
þeirri endurskoðun lokið fyr
ir 1. sept. n.k. — Kosnir verði
3 bæjarfulltrúar í endurskoð-
unarnefnd ásamt bæjarfógeta
og bæjarstjóra.
2. Jafnframt leggur meiri hluti
bæjarráðs til, að þeim sem
hafa fengið útgefin kvöldsölu
leyfi, verði leyft að hafa op-
ið til kl. 23.30 á opnunardög-
um til 1. október n.k.“
Einn bæjarráðsmaður, Ingólf
ur Ámason, óskaði bókað, að
hann væri andvígur þessari af-
greiðslu málsins.
Út af þessu máli urðu nokkur
orðaskipti milli Ingólfs Árna-
sonar og Stefáns Reykjalíns, en
hann hafði á sínum tíma verið
mjög harður gegn veitingu
(Framhald á blaðsíðu 6).
„Fjallkonan", Steinunn Stefáns-
dóttir stúdent frá M.A. 17. júní,
flytur ávarp á Ráðhústorgi. —
Þjóðháiíðin á Akureyri 17. júní
Hátíðahöldin tókust hið bezta - Engin ölvun
HÁTÍÐAHÖLDIN hér á Akur-
eyri 17. júní fóru fram í ágætu
veðri og var þátttaka í- þeim ó-
venjulega mikil, einkum á í-
þróttasvæðinu. — Hófust þau
skömmu eftir hádegi á Ráðhús
torgi með leik lúðrasveita og
guðsþjónustu, er sr. Birgir Snæ-
björnssoh annáðist með söng
kirkjukórsins, Fjallkonan flutti
ávarp í ljóðum (Steinunn Síef-
ánsdóttir nýstúdent), Geysir
skemmti með söng, svo og Jó-
hann Konráðsson og Kristinn
Þorsteinsson.
Þá var gengið í skrúðgöngu
út á íþróttasvæði bæjarins, en
margt manna var þá komið í
brekkurnar og stúkuna ofan við
völlinn. Þar flutti Magnús Jóns
son fjármálaráðherra lýðveldis
ræðu, en Sigurður Guðmunds-
son (nýstúdent) minntist Jóns
Sigurðssonar. Lúðrasveit Akur
eyrar lék, ungar stúlkur sýndu
fimleika, síðari hluti 17.-júní
mótsins fór fram og blaðamenn
og leikarar kepptu í knatt-
spyrnu. Dýrasýning var sunnan
við íþróttasvæðið, sem börnin
sóttu hundruðum saman.
Sérstök barnasamkoma fór
fram á Ráðhústcrgi kl. 5—5,30
og almenn kvöldsamkoma á
sama stað að venju. Var þar
margt til skemmtunar og að-
sokn all-mikil. Að lokum var
dansað á torginu. Tókust hátíða
höldin hið bezta og sá vart ölv-
un á manni fremur en fyrri þjóð
hátíðadaga.
Formaður þjóðhátíðarnefndar
var Hermann Sigtryggsson
íþróttafulltrúi, og má hann vel
una sínum hlut.
75 ára tvíburar
Björk, 23. júní: Tíðin sl. viku
var mjög köld og þurrviðrasöm,
hitastig sérlega lágt suma daga
og við frostmark um nætur.
Grasspretta er mjög hægfara og
sláttur ekki almennt hafinn.
Hafnar eru framkvæmdir við
væntanlega kísilgúrverksmiðju.
Jarðýta er búin að grafa fyrir
dæluhúsi við Helgavog, og ver
ið er að jafna undir ,þar sem
leggja á leiðslur frá dælustöð-
inni að verksmiðjustað.
Áður hefur þess verið getið,
að tvíburasystkinin, Jón Gauti
Pétursson á Gautlöndum og
Hólmfríður Pétursdóttir á
Arnarvatni áttu 75 ára afmæli
þann 17. des. sl. Þann dag var
ekki hægt að koma þ.ví við að
mrnnast þess með samkvæmi,
en sl. sunnudag, 20. júní, buðu
þau systkinin Mývetningum,
svo og frændum, vinum og
venzlafólki til stór-glæsilegs
mannfagnaðar heima á Gaut-
löndum í tilefni þessara merku
tímamóta. Veitt var í geysi-
stóru tjaldi. Voru þær veitingar
allar með hinum mesta rausnar-
og myndarbrag. Til borðs munu
hafa setið um 300 manns. Fjöl-
margar ræður voru fluttar og
flestar vafalaust mjög góðar.
Þá var mikið sungið af hjartans
lyst undir öruggri og fimlegri
stjórn. Var þetta í alla staði hin
ánægjulegasta stund og þeim er
að stóðu til hins mesta sóma.
Mjög kom það fram hjá þeim,
er til máls tóku, hversu mikilla
vinsælda og trausts þau systkini
hafa notið meðal samferðafólks
ins, ekki aðeins hér í sveitinni,
heldur og víðar. Á Jón Gauta
hafa hlaðizt hin margvíslegustu
trúnaðarstörf, sem hann hefur
rækt af mikilli samvizkusemi.
Hann hefur m.a. verið oddviti
J Skútustaðahrepps í 46 ár og er
enn. Kvæntur var hann Önnu
Jakobsdóttur frá Narfastöðum
í Reykjadal, hinni ágætustu
konu, sem látin er fyrir allmörg
um árum. Eignuðust þau mynd
arleg og vel gefin böm, og eru
barnabörn þeirra nú orðin 10.
Jón Gauti hefur búið rausnar-
búi á Gautlöndum og bætt jörð
sína mjög, svo og hús. Hefur
nú sonur hans, Böðvar, tekið við
jörðinni.
Hólmfríður á Arnarvatni varð
síðari kona Sigurðar Jónssonar
skálds. Er hann látinn fyrir
nokkrum árum. Þau Sigurður
og Hólmfríður eignuðust mynd
arlegan hóp barna, og eru sum
þeirra orðin vel þekkt. Barna-
börnin eru nú fjölmörg orðin.
Hólmfríður á Arnarvatni er
mörgum kunn fyrir ágæt störf,
varðandi menningar- og félag-
mál kvenna. Hefur hún eflaust
oft orðið að fórna miklum tíma,
enda þótt hún hafi haft fyrir
stóru heimili að sjá. Ber að
þakka þeim systkinum, Jóni
Gauta og Hólmfríði fyrir ágæt
störf í þágu þessarar sveitar og
óska þeim og fjölskyldum þeirra
gæfu og gengis á ókomnum ár-
um. K.Þ.
SÓLTUNARSÍLD TIL
DALVÍKUR
SÍÐAST liðinn þriðjudag kom
Loftur Baldvinsson til Dalvík
ur með rúmar 200 tunnur og upp
úr því söltuðust 128 tunnur,
en afgangurinn var fluttur til
Hjalteyrar. Á miðvikudagskvöld
kom Hrönn með 60 tunnur til
söltunar og í gær, fimmtudag,
kom Þórður Jónasson með 1000
tunnur til söltunar á plön Sölt-
unarfélags Dalvíkur og Múla hf.
ÍSLENDINGUR
51. ÁRG. . FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1965 . 25. TBL.