Íslendingur - 25.11.1965, Qupperneq 2
(Framhald af blaðsíðu 1.)
uðum með notkun hinna nýj-
ustu lyfja gegn sjúkdómnum.
Segja má, að berklar finnist
varla orðið á skýrslum sem dán-
arorsök. Það er þá helzt gamalt
fólk, sem verið hefur berkla-
veikt frá ungum aldri og hin
nýju lyf hrífa ekki á, en þó
komá þar til- aðrir meðvirkandi
sjúkdómar.
HEILSUVERNDARSTÖÐIN
— Hvað getið þér sagt okkur
af starfsemi heilsuverndarstöðv-
arinnar?
— Hún starfar reglulega, og
má segja, að aðsókn að henni sé
nokkuð jöfn. Berklavarnarstöð-
in hefur mjög lítið að gera nú
orðið hjá því sem áður var, en
eftirlit með þunguðum konum
og ungbörnum er talsvert mik-
ið, og hefur áreiðanlega veru-
lega þýðingu, þegar vel tekst
með starfsfólk stofnunarinnar
eins og hér.
LÚSIN BÚIN AÐ VERA
— Mættum við svo biðja um
fréttir af skólaskoðuninni?
Hvaða kvillar koma þar helzt
fram, og hvað líður þrifnaðin-
um?
— Skólaskoðunin er vaxandi
verkefni vegna fjölgunar skóla
og nemenda. En það get ég strax
sagt, að hún er orðin ánægju-
legri en á fyrstu árum mínum
hér, og þá fyrst og fremst fyrir
aukinn þrifnað, sem m. a. kann
að stafa af bættum lífskjörum
fólks og rýmra húsnæði. Það er
mjög mikilsverð framför í al-
mennum þrifnaði, að lús eðá fló
sést nú hvergi, sem við háðum
áður áratuga baráttu við með
seinfærum árangri. Kláði, sem
nokkuð bar á á stríðsárunum
1940—43, er nú algjörlega horf-
inn. Helztu líkamleg vandkvæði
ó skóla-æskunni nú eru sjóngall
- FRÁ SIGLUFIRÐI
ar, seni' eihkum ber á hér í
Menntaskólanum og þó raunar
miklu víðai^ en auk þess ber
nokkuð á hryggskekkju og ilsigi
hjá unglingum. Að öðru leyti
verður - að telja heilsufar og
líkamsþroska bárna og unglinga
hafa farið rrfjög batnandi á síð-
ari árum, og er það ánægjuleg
staðreynd.
-ÞANKABROT
(Frámhald af'blaðsíðu 4).
strax, ef mikið sér á dömunni:
Ólétt, einkunn 10.
Starfsaldur íslenzku konunn-
ar er þannig miklu lengri en
nokkurrar' annarrar kynsystur
hennar.
Það er einróma álit allra, að
íslenzka konan sé kvenna feg-
urst og jafnframt að hún noti
fegurð sína vel og sjálfri sér og
öðrum til yndisauka".
Gjafir eru yður gefnar, má
hér um segja.
Úr tillögu Jóns Ingimarsson-
ar í bæjarstjórn:
„En þar til varanleg lausn
fæst á þessu vandamáli, verði
eftirlit með öskuhaugunum auk
ið, og þess vandlega gætt, að
óþef og reyk leggi ekki frá haug
stæðinu....“.
Já, það er nú það. Með hverju
móti verður það gert?
A: Ég var að heyra að þú
værir hættur að drekka.
B: Já. Það er nokkuð til í því.
A: Og hvað kom til?
B: Efnahagsmál, fjölskyldu-
mál og heilbrigðismál.
„. . .. Þjóðmálaskoðanir og
tengdir við forráðamenn hafa
EKKI ÓSJALDAN skipt meira.
máli.... “
(Framhald af blaðsíðu 8).
þ. m., og vinna við hana um 40
manns. Smíðaðar eru um 500
tunnur á dag. Verkstjóri er
Rögnvaldur Sveinsson. Járn-
klætt stálgrindahús fyrir fram-
leiðslu verksmiðjunnar er ný-
lega fullbúið, en það á að rúma
um 80 þús. tunnur.
Skarðið er nú lokað, en hefur
haldizt akfært lengur fram á
veturinn en oftast áður. Hér í
bænum er aðeins snjóföl og ak-
fært um hann allan.
Ung húsmóðir hér í bæ, Halla
Haraldsdóttir, hélt nýlega sýn-
ingu á mosaikmyndum og mál-
verkum í Æskulýðsheimilinu.
Var sýningin dável sótt og vakti
aðdáun þeirra, er sáu. S. F.
(Garðar Þorsteinsson í Mgbl.
17. nóv.)
Hvenær skyldu menn venjast
af því að'nóta þetta óþarfa orða
samband „ekki ósjaldan", sem
oft gefur annað í skyn en not-
andinn meinar, en nota í þess
stað „sjaldan" eða „ekki oft“?
Og í fréttum útvarpsins þann
hinn sama dag er sagt frá því,
að enn hafi menn úti í heimi
TÝNT LÍFI (tabt livet), og virð
ist útvarpið hafa sérstakt dálæti
á þessu danska orðasambandi,
þegar sagt er'frá mannsköðum,
í stað þess að menn .farast við
slík tækifæri (eSa-láta lífið, sem
er skárra en að týná því, s.b.
líflát).
FJALLVEGIR AUSTUR
UM ILLFÆRIR
FRÁ ÞVÍ UM miðja síðustu
viku hefur flesta daga snjóað
meira og minna í logni hér í bæ
og næsta nágrenni, en að því
er fréttir herma, hefur snjó-
koma verið minni í útsveitum
og einnig inn til dala. í fyrra-
dag gerði nokkurn kalda, og fór
þá lausamjöllin að hlaðast sam-
an í skafla og torvelda umferð.
í viðtali við yfirverkstjóra Vega
gerðar ríkisins hér í gærmorg-
un kvað hann allar samgöngur
á vegum í nágrenni bæjarins í
sæmilegu horfi og eins suður-
leiðina um Öxnadalsheiði. Hins
vegar væri stórum bílum, hvað
þá öðrum, illfært austur um,
hvort heldur sem farið væri um
Vaðlaheiði eða Dalsmynni.
Þá kvað hann vinnu vera
hætt Við Múlaveg, og síðustu
tækin þar flutt hingað í fyrra-
dag.
ELDUR í HÚSI
í FYRRADAG var slökkviliðið
kvatt að Lögmannshlíð 6 (Liltu
hlið) í Glerárhverfi vegna
íkviknunar. Var talsverður eld-
ur í húsinu, er að var komið, og
varð að rjúfa þakið til að kom-
ast fyrir hann.
Miklar skemmdir urðu á hús-
inu.
- KIRKJUAFMÆLIÐ
(Framhald af blaðsíðu 8.)
að Hótel KEA, en að henni lok-
inni hófst hátiðarsamkoma í
kirkjunni. Þar flutti formaður
sóknarnefndar, Jón Júl. Þor-
steinsson, ávarp, kirkjukórinn
söng, Jakob Tryggvason lék ein
leik á orgelið. Unnur Halldórs-
dóttir diakonissa flutti erindi
um líknarþjónustu í kirkjusöfn
uðum (en hún á að vígjast til
þjónustu í kirkjunni á sunnu-
daginn kemur), og Edvard Sig-
urgeirsson sýndi nokkra þætti
úr kvikmynd, sem hann er að
taka fyrir Akureyrarkirkju.
Lauk samkomunni með bæn og
blessun sr. Birgis Snæbjörns-
sonar.
I Ólafur Kvaran látinn I
ÓLAFUR KVARAN ritsíma-
stjóri í Reykjavík, lézt 19. þ. m.
í Landsspítalanum.
Hann var fæddur að Breiða-
bólsstað á Skógarströnd 5. marz
1897, sonur séra Jósefs Hjör-
leifssonar og konu hans Lilju
Ólafsdóttur. Ólafur var kvænt-
ur Elísabetu Benediktsdóitur,
er lézt árið 1958. Börn þeirra
eru Jón símritari á Brú í Hrúta
firði, Karl listmálari og Elísa-
bet gift Þorvaldi Garðari Kristj-
ánssyni alþingismanni.
Ólafur lauk gagnfræðaprófi á
Akureyri 1914. Lærði símritun
þar 1915 og gerðist símritari á
Seyðisfirði, en var skipaður
símastjóri á Borðeyri 1924 og
ritsímastjóri í Reykjavík 1928.
Þegar hann lézt hafði hann að
baki hálfrar aldar starf hjá
Landssímanum og er sá starfs-
aldur sjaldgæfur hjá starfs-
mönnum ríkisins.
Ólafur var einn af traustustu
starfsmönnum Lándssímans,
- SKÓLAHEIMSÓKN
(Framhald af blaðsíðu 8).
— Auk mín eru 7 fastir kenn
arar, 4 við barnafræðsluna og 3
við miðskólann. Auk þess tveir
stundakennarar. Kennaraskort-
ur er hér sem víðar, og hefur
lengi verið, og enn ekki unnt
að ráða það sem þyrfti af kenn-
urum með fullum réttindum.
— Og þú leggur í skólaferð í
skammdeginu. Er það ekki nokk
uð mikil bjartsýni?
— Nei, það held ég ekki. Það
má heita sumarfæri. Við vorum
3 tíma frá Blönduósi og hingað
með lítilli viðdvöl í Varmahlíð.
Vona, að nemendurnir hafi gott
gagn af för þessari, enda hópn-
um alls staðar vel tekið.
sem unnið hafa að þróun hans
á liðnum áratugum. Hann var í
eðli sínu hlédrægur maður, sem
ekki var um að trana sér fram,
en þeir, sem með honum unnu,
vissu, að hann fylgdi ætíð vel
eftir þeim málum, sem hann
taldi að fram þyrftu að ganga,
enda áthugull maður- og tillögu-
góður.
Með Ólafi er genginn einn af
elztu og beztu starfsmönnum
Landssímans og mun hans
lengi minnst af virium hans og
samferðamönnum.
Gunnar Schram.
DIESELVÉLASÝNING
DAGANA 20. og 21. nóvember
sl. héldu Dráttarvélar h.f. sýn-
ingu á Perkins dieselvélum í
bíla, báta og vinnuvélar. Á sýn-
ingunni, sem haldin var í húsa-
kynnum Véladeildar KEA, voru
sýndar ýmsar gerðir framan-
greindra dieselvéla.
Sölufulltrúi Dráttarvéla h.f.,
Vilhjálmur Pálmason, ásamt
deildarstjóra Véladeildar KEA,
Þórgný Þórhallssyni, gáfu gest-
um ýtarlegar upplýsingar um
vélarnar og Perkins-verksmiðj-
urnar, sem eru stærstu fram-
leiðendur heims á dieselvélum
í stærðunum 20—170 hestöfl.
Það, sem fyrir Dráttarvélum
h.f. Vakti, er umboðið var tekið
fyrir Perkins vélunum, var að
geta boðið hér á landi dieselvél-
ar, sem uppfylltu ströngustu
kröfur, sem gerðar eru til slíkra
véla, en sem jafnframt væri
hægt að bjóða á hagstæðu verði.
Dagleg framleiðsla Perkins
verksmiðjanna er 1500 vélar.
Verksmiðjurnar eru staðsettar í
Peterborough á Englandi.
JÖRÐ TIL SÖLU
GARÐUR II í Ólaísfirði er til sölu og laus til ábúðar.
Jarðliiti, rafmagn og silungsveiði. — Gott lán álivíl-
andi. Tækifæri fyrir félög. Upplýsingar hjá bfaðinu.
VÖKVASTÝRI
i THAMES TRADER
fyrirliggjandi.
FORD-UMBOÐIÐ
BÍLASALAN H.F.
GLERÁRGÖTU 24,
AKUREYRI
SÍMI 1-17-49
ÍSLENDINGUR