Íslendingur - 23.06.1966, Qupperneq 7
5% afslátfur af útsvörum
- Góður árangur á
námskeiði almanna
(Framhald af blaðsíðu 1.)
lok, persónufrádráttur skv. lög
um. Við ákvörðun eigna til út-
svars var gildandi fasteignamat
þrefaldað. Útsvör 1.500.00 kr.
og lægri voru felld niður skv.
lögum.
Þegar útsvörunum hafði
þannig verið jafnað niður, voru
þau öll lækkuð um 5%, en í
fyrra þurfti að hækka þau um
15%. Er því um að ræða veru-
legar hagsbætur fyrir útsvars-
greiðendur á Akureyri að þessu
sinni frá fyrra ári.
Hér á eftir fer skrá yfir þá,
sem bera hæst útsvör á Akur-
eyri í ár:
Eftirtaldir aðilar bera útsvör
yfir kr. 100.000.00.
EINSTAKLINGAR:
1. Leó F. Sigurðsson
kr. 443.700.00
2. Alfreð Finnbogason
kr. 266.800.00
3. Baldvin Þorsteinsson
kr. 253.700.00
4. Trausti Gestsson
kr. 197.700.00
5. Jóhann Hauksson
kr. 163.400.00
6. Valtýr Þorsteinsson
kr. 153.800.00
7. Gunnar Þorsteinsson
kr. 147.700.00
8. Steindór Kr. Jónsson
kr. 139.300.00
9. Jóhannes Baldvinsson
kr. 133.100.00
10. Ólafur Jónsson
kr. 123.500.00
11. Eggert Ólafsson
kr. 120.800.00
Peningakassar
margar stærðir.
Járn- og glervörudeild
12. Brynjólfur Kristinsson
kr. 114.900.00
13. Oddur Carl Thorarensen
kr. 104.500.00
14. Jónas Traustason
kr. 104.300.00
15. Baldur Ingimarsson
kr. 104.200.00
16. Árni Magnús Ingólfsson
kr. 103.500.00
17. Magnús Þorsteinsson
kr. 101.800.00
18. Ragnar Malmquist
kr. 100.400.00
FÉLÖG:
1. Slippstöðin h.f. kr. 692.000.00
2. Útgerðarfélag KEA h.f.
kr. 477.100.00
3. Kaupfélag Eyfirðinga
kr. 399.400.00
4. Brjótur s.f. kr. 205.800.00
5. Súlur h.f. ki;. 194.600.00
6. Amaro h.f. kr. 175.200.00
7. Möl og sandur h.f.
kr. 159.200.00
8. Plasteinangrun h.f.
kr. 122.000.00
9. Bólstruð Húsgögn h.f.
kr. 100.300.00
- TIL ÁSKRIFENDA
(Framhald af blaðsíðu 8).
íslendingur vill af þessu til-
efni benda velunnurum blaðs-
ins á, að fjárhagsleg efling þess
á hverjum tíma er grundvöllur
traustrar og fjölbreyttrar út-
gáfu. Áskriftagjöldin eru annar
megin tekjuliður blaðsins.
Áskrifstargjaldið í ár er 200
krónur. Hins vegar væri mikill
hagur í því, að þeir sem vilja og
geta, greiddu hærri upphæð.
Slík framlög stuðla beint að
vandaðra og efnismeira blaði.
GOLPKEPPNI
LAUGARDAGINN 25. júní
verður háð hin svonefnda
Micky’s Cup golfkeppni, og
hefst keppnin kl. 1.30 e. h.
Leiknar verða 18 holur með %
forgjöf. Útdráttur fer fram 5
mínútum fyrir auglýstan tíma
og eru keppendur hvattir til að
mæta í síðasta lagi þá.
Kappleikjanefnd G. A.
ORÐSENDING
TIL BIFREIÐAEIGENDA
Hér með tilkynnist háttvirtum viðskiptavinum vor-
uni, að frá og með 1. júlí 1966 verður tekin upp algjör
staðgréiðsla á vinnu- og varahlutasölu á verkstæðum
vorum.
B.S.A. VERKSTÆDI H.F. - BAUGUR H.F.
JÓHANNES KRISTJÁNSSON H.F.
LÚÐVÍK JÓNSSON & CO. - ÞÓRSHAMAR H.F.
Systir mín,
margrét jónsdóttir,
sem andaðist að Kristneshæli 18. jt. m., verður jarð-
sungin Irá Akureyrarkirkju laugardaginn 25. Jt. m.
kl. 1.30 e. h.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
' Ingileif Jónsdóttir.
varna
(Framhald af blaðsíðu 5.)
þjálfari hjá lögreglunni í
Reykjavík, Sigurður E.
Ágústsson fulltrúi hjá Slysa-
varnafélagi íslands, Bjarni
Bjarnason brunavörður frá
Slökkviliði Reykjavíkur, en
hann starfar einnig á vegum
Almannavarnanefndar Reykja
víkur, og lögreglumennimir
Jónas Bjarnason og Tómas
Hjaltason frá lögreglunni í
Reykjavík. Leiðbeinandi á
námskeiðinu var hr. Hans
Jacobsen svæðisstjóri dönsku
almannavarnanna á Borgund
arhólmi og fv. skólastjóri al-
mannavarnaskólans í Tinglev !
á Jótlandi, sem áður var
nefndur.
Námskeiðið hófst 6. þ. mán.
og hefur þannig staðið í 9
daga. Kennt var daglega fíá
kl. 9 að morgni til kl. 5 síð-
degis. Námsefni, sem tekið
var til meðferðar, var í stór-
um dráttum þetta: 1. Slysa-
hjálp, sjálfshjálp og sjúkra-
flutningar. 2. Brunavarnir og
slökkvitækni. 3. Árásarvopn
og áhrif þeirra. 4. Geislavirkni
og kjarneðlisfræði. 5. Tækni
og stjórn björgunarstarfa. 6.
Hlutverk björkunarsveita. 7.
Kennslutækni og skipulag
þjálfunar. 8. Erindi: Lög um
almannavarnir, sem lögreglu
stjórinn í Reykjavík flutti.
Skipulag danskra almanna-
varna, sem hr. H. Jacobsen
flutti, auk þriggja annarra er-
inda, sem hann flutti, sem
kennsluþátt á námskeiðinu.
Kennsla fór fyrst og fremst
fram með munnlegum flutn-
ingi efnis, með myndaskýr-
ingum og sýningu kvikmynda.
Verklegum æfingum og sýni-
kennslu var beitt, þar sem því i
var við komið, sérstaklega á
sviði slysahjálpar og við
slökkvistörf. .. .
Til námskeiðsins er stofnað
I samræmi við ákvæði laga
um almannavarnir frá 29. des.
1962, að Skrifstofa Almanna-
vama skuli annast kennslu
yfirmanna og leiðbeinenda.
Námskeiðið er því liugsað sem
námskeið fyrir kennara. . . .
Uppbygging almannavarna
hér á landi er enn á frumstigi,
og við erum i öllum þáttum
þessara mála að vissu leyti
byrjendur. Við vitum eigi
liver viðliorf manna eru til al-
mannavarna innan ramma
þeirra laga, sem um þæil
gilda. Uppbyggingin hlýtur að
byggjast á þátttöku sem
flestra og starfið vcrður að ná
til þjóðarinnar allrar. Nám-
skeið sem þetta er liður í
kynningarstarfi, jafnframt því
megin markmiði að þjálfa
menn til ákveðinna starfa. Við
vitum ekki hvert framliald
verður á starfi okkar. Við vit-
úm hins vegar að þessum mál
um verður að sinna fyrr eða
síðar, vegna þess að þau fela
í sér öryggisþörf, hliðstæða
fjölmörgum þáttum félags- og
öryggismála, sem nútima þjóð
félag telur mikilvæga og
nauðsynlega... . “
Auglýsið í íslendingi
Auglýsingasíminn er
1-13-54
Einhuga samstaða um kjaramálin
(Framhald af blaðsíðu 1).
„Sameiginlegur fundur hér
aðsnefnda bænda, haldinn í
Bændahöllinni í Reykjavík 20.
júní 1966, telur, að bænda-
stéttin eigi skýlausan rétt til
að fá fullt grundvallarverð fyr
ir afurðir sínar, samkvæmt
lögum um Framleiðsluráð og
fleira. Fundurinn skorar á
stjóm Stéttarsambands bænda
og Framleiðsluráð, að gera
þær kröfur til ríkisvaldsins, að
það tryggi bændum þennan
rétt. Fundurinn lítur svo á, að
innvigtunargjald það, sem
lagt hefur verið á ,mjólk, sé
svo tilfinnaplégt, ‘að báehda-
stéttin geti ekki undir því ris-
ið, og gerir því þær kröfur, að
gjald þetta verði fellt piður',
Hins vegar verði verðjöfnun-
arsjóði tryggðar nægilegar
tekjur til útjöfnunar. Bendir
fundurinn á eftirfarandi leið—
ir:
1. Útsöluverð á nýmjólk
verði hækkað til þess að 'mæta
verðlækkun á smjöri.
2. Afurðalán úr Seðlabank-
anum og viðbótarlán úr við-
skiptabönkunum verði aukin
í samræmi við afurðalán sjáv-
arútvegsins.
3. Unnið verði að því, að fá
útfltningsuppbæturnar hækk-
aðar.
4. Landbúnaðurinn fái hag-
ræðingarfé, til þess að skipu-
leggja framleiðslu sína á sem
hagkvæmastan hátt.
Ákveður fundurinn að
kjósa sex manna nefnd, til
þess að leita samninga við rík
isstjórnina um lausn málsins
ásamt stjórn Stéttarsambands
ins og Framleiðsluráði.
Fáist ekki viðhlítandi niður
staða þessara mála við stjórn-
arvöldin, skorar fundurinn á
VOGUE
RAFFINERAD
STRUMPELEGANS
NYLONSOKKAR
sænsk gæðavara — fást í
VERZLUNIN SKEMMAN
Sími 1-15-04
stjórn Stéttarsambandsins, að
boða til sérstaks fulltrúafund-
ar samtakanna, til þess að
taka ákvörðun um sölustöðv-
un landbúnaðarvara eða aðrar
aðgerðir."
i
NEFNDARKOSNING.
Að loknum fundi með Fram
leiðsluráðinu kaus héraðs-
nefndafundurinn nefnd þá,
sem gert var ráð fyrir í álykt-
uninni. Er hún þannig skipuð:
Af Suðurlandi þeir Ölver
Karlsson á Þjórsártúni, Sig-
urður Sigurðsson á Syðra-
Langholti, af Vesturlandi Guð
mundur Ingi Kristjánsson á
Kirkjubóli, af Norðurlandi
vestra Pálmi Jónsson á Akri,
af Norðurlandi eystra Stefán
Valgeirsson í Auðbrekku, af
Austurlandi Friðrik Sigurjóns
son í Ytri-Hlíð í Vopnafirði.
Jafn margir varamenn voru
kosnir.
BLAÐAMANNAFUNDUR.
Héraðsnefndirnar héldu
blaðamannafund í gær, þar
sem ofangreindar og ýmsar
fleiri upplýsingar komu fram
um málnefni bænda og funda
höldin. Þar höfðu orð fyrir
bændum þeir Stefán Jasonar-
son í Vorsabæ, Guðmundur
Ingi Kristjánsson á Kirkju-
bóli og Hermóður Guðmunds
son í Nesi.
Talsmennirnir sögðu, að
enginn fjöldafundur hefði ver
ið haldinn meðal bænda í land
inu, þar sem jafn sterk sam-
staða hafi verið og á þessum
fundum. Skýrðu þeir frá því,
að yfirleitt væru bændur ugg
andi um að ef innvigtunar-
gjaldið héldist, mundi það
valda mjólkurskorti innan tíð
ar, því kýr yrðu þá skornar
niður í haust í stórinn stíl. Til
þess mætti ekki koma, enda
væru slikar sveiflur öllum
aðilum til skaða. Því yrði að
leysa málið með samvinnu og
skilningi.
SKRÁ
um vinninga í Ilappdrátti Há-
skóla íslands í 6. ílokki 1966:
10.000.00 kr. vinningar: 7050,
12057,12097,13913, 31599, 31690.
5.000.00 kr. vinningar: 1625,
4329, 10137, 10203, 13781, 13788,
14043, 24905, 33193, 33199, 43090,
43906, 44821, 44828, 48277, 48857,
52129.
1.500.00 kr. vinningar: 208, 537,
3368, 3838, 4336, 5010, 5215,
5385, 5662, 5928, 6566, 6885,
7254, 8244, 8520, 9199, 11878,
11881, 11899, 13254, 13388, 13633,
13647, 14257, 14389, 14391, 15228,
15563,16100, 16912, 17317, 18216,
19052, 19591, 19910,19911, 20502,
21946, 22078, 22131, 23016, 23020,
23552, 23556, 23569, 24004, 24014,
25945, 27219, 29040, 30537, 31148,
31561, 33158, 40591, 41787, 41791,
43312, 43322, 43921, 44736, 44742,
44886, 46817, 47473, 48263, 48274,
48298, 49099, 49275, 51728, 52588,
53240, 53818, 53934, 53970, 54733,
57903, 59563.
Birt án ábyrgðar.
7 ÍSLENDINGUR