Íslendingur - 02.02.1967, Side 3
VÖRUSALAN A AKUREYRI
OPNAR NÝTT SNYRTIHUS
1 SÍÐUSTU VIKU var opnað í
Hafnarstræti 100 Snyrtihús
Vörusölunnar, sem er í senn
snyrtistofa og hárgreiðslustofa.
Húsakynni eru nýinnréttuð og
stofan er búin mjög góðum
tækjum.
í Snyrtihúsinu vinna tvær
stúlkur, Anna Lilja Gestsdóttir,
sem er snyrtisérfræðingur, og
Þórunn Pálsdóttir hárgreiðslu-
dama.
Þjónustan, sem látin er í té,
er margs konar. T. d. andlits-
böð með geislum, andlitsförð-
un, andlits- og líkamsnudd,
handsnyrting o. fl., þá hárklipp
ing, hárþvottur, háx-greiðsla og
lagning, hái-litun, hárkollu- og
lokkagreiðsla.
Þá selur Snyrtihúsið ýmsar
snyrtivörur frá Orlane, Ger-
manie Monteil, Pierre Robei't
og Jane Hellen, einnig hárkoll-
ur og lokka. Loks eru veittar
ýmsar leiðbeiningar.
é
AKUREYRI
GLÆSILEGIR VEITINGA-
SALIR . GÓÐ ÞJÓNUSTA
Opið fimnitudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
S J ÁLFSTÆÐISH ÚSIÐ
ÚRIÐ SEM ÖLLUM HENTAR
KULM
BJARNI JÓNSSON úrstniður
JÓN BJAUNASON úrsmiður AKUREYRI
Skipuleggjum
ierðir
endurgjaldslaust
M
Fyrir hópa
og
einstaklinga
LÖND O G LEIÐIR. Sími 12940
SIMI
11520
FRAMKOLLUN
KOPIERING
PEDROMYNDIR
Samvinnutryggingar 20 ára
Ný stjórn
Einingar
AÐALFUNDUR Verkalýðsfé-
lagsins Einingar á Akui-eyri var
haldinn sl. sunnudag. Björn
Jónsson var endurkjörinn for-
maður. Aðrir stjórnarmeðlimir
eru: Jón Ásgeii'sson, varafor-
maður, Rósberg G. Snædal, rit-
ari, Vilborg Guðjónsdóttir,
gjaldkeri, Björgvin Einarsson,
Mai'ta Jóhannsdóttir og Ingólf-
ur Árnason meðstjói'nendur.
í varastjórn eru: Gunnar Sig
tryggsson, Freyja Eiríksdóttir,
Björn Gunnarsson, Björn Her-
mannsson og Sigurpálína Jó-
hannsdóttir.
S AMVINNUTR YGGIN G AR
hófu bifreiðatryggingar í janú-
ar 1947 og eru því, um þessar
mundir, liðin 20 ár, síðan sú
starfsemi félagsins hófst.
Á þessu tímabili hafa Sam-
vinnufryggingar beytt sér fyrir
margvíslegum nýjungum og
breytingum á bifreiðatrygging-
um, sem allar hafa verið gerðar
með tilliti til hags hinna íjöl-
mörgu viðskiptamanna.
Hálf-Kasko.
Nú hafa Samvinnuti-yggingar
þá ánægju að kynna nýja teg-
und bifreiðati-yggingar, sem
nefnd hefur verið HÁLF-
KASKO, og er nýjung hér á
landi. Tx-ygging þessi er hentug
fyrir allar tegundir og gerðir
bifreiða.
Ti-yggingin bætir skemmdir,
sem verða á ökutækinu sjálfu
af völdum BRUNA — ÞJÓFN-
AÐAR — VELTU og/eða
HRAPS og auk þess RÚÐU-
BROT af hvaða orsökum, sem
þau verða.
Iðgjöld fyrir þessa nýju trygg
ingu eru sérlega lág, og um
verulega iðgjaldalækkun á
brunatryggingu bifreiða er t. d.
að ræða. Ái'siðgjald nokkurra
bifreiðagerða eru sem hér segir:
tryggingu.
Upphafið.
í ársbyijun 1947 voru hér
mun færri tryggingafélög en
nú, og höfðu þau flest stai-fað í
áratugi í sátt og samlyndi og
því lítið um samkeppni að í'æða
EINKABIFREIÐIR
FÓLKSBIFREIÐIR, gegn borgun
J EPP ABIFREIÐIR
VÖRUBIFREIÐIR, einka
VÖRUBIFREIÐIR, atvinnu
VÖRUBIFREIÐIR, gegn borgun
SENDIFERÐABIFREIÐIR
REIÐHJÓL með hjálparvél
DRÁTTARVÉLAR
ársiðgjald
frá kr. 850.00
— — 1.200.00
— — 850.00
— — 850.00
— — 1.000.00
— — 1.050.00
— — 950.00
— — 150.00
— — 450.00
Við undirbúning þessarar
tryggingar hefur verið leitazt
við að koma til móts við þá
mörgu bifreiðaeigendur, sem
ekki telja sér hag í því að hafa
bifreiðir sínar í fullri kasko
milli þeirra. Foi'ráðamcnn Sam
vinnutrygginga voru í upphafi
ákveðnir að gefa bifreiðaeigend
um kost á ýmsum nýjungum í
bifreiðatiyggingum, sem þá
höfðu rutt sér bi'aut ex-lendis,
svo sem hinu svonefnda afslátt
arkerfi (bónus), sem Samvinnu
tryggingar tóku strax upp og
valdið hefur byltingu í þessari
tryggingagrein hér á landh
Flest önnur tryggingafélög hafa
síðan tekið upp þetta kerfi, sem.
eins og flestum er kunnugt,
byggist á því, að menn fá vei'u-
legan afslátt af iðgjaldinu, e£
þeir valda ekki tjóni, og er
mönnum þannig mismunað eft-
ir hæfni þeirra í akstri. Afslátt-
ur þessi nemur nú stórum upp-
hæðum, sem varkárir ökumenn
og bifreiðaeigendur hafa sparað
á þennan hátt. Bónuskerfið hef
ur nýlega verið tekið til endur-
skoðunar, og fá nú gætnir öku-
menn allt að 60% afslátt a£
iðgjaldi ábyrgðartrygginga bif-
reiða sinna.
Heiðursviðurkenningar og ÖF-
trygging.
Ökumenn hafa verið heiðr-
(Framhald á blaðsíðu 6)
KJALXARINN
Kveðnir í kútinn
Fyrir viku síðan sló íslend-
ingur blekkingavopnin úr
höndum (Franxsóknarblaðs-
ins) Dags, sem hann var tek-
inn að beita einum saman í
umræðum um hæjarstjóra-
kjörið á Akureyri. Þetta gerði
íslendingur á þann hátt; í
fyrsta lagi, að skýra í höfuð-
dráttum lið fyrir lið afstöðu
Sjálfstæðismanna og gang
samningsumleitana, sem þeir
tóku þátt í, um þriggja flokka
samstarf; í öðru lagi, að reka
öfugt ofan í Dag makalaust
fleipur hans um málið.
Þetta tókst eins og efni
stóðu til. Það sannast á Degi
sl. föstudag. Þar er málflutn-
ingur hans um bæjarstjóra-
kjörið orðinn ýmist innihalds-
laus eða hallærislegur remb-
ingur. Rök hefur hann
e n g i n, aðeins getgátur og
fullyrðingar. Þar með viður-
kennir hann nauðugur mál-
efnalegt gjaldþrot sitt í þessu
máli.
Þeim mun fremur eru þess-
ar ófarir aðalmálgagns
hræðslubandalagsins nýja
átakanlegar, að í föstudags-
blaðinu er greinilegt að einn
af bæjarfulltrúum Framsókn-
ar hefur gengið fram fyrir
skjöldu, til þess að hjálpa upp
á sakirnar. En allt kemur fyr-
ir ekki. Hann á ekki heldur
neina heiðarlega vöm í mál-
inu.
Tvö skof framhjá
f stað þess að ræða kjama
ágreiningsins milli hræðslu-
bandalagsins nýja og Sjálf-
stæðismanna, launakjör bæjar
sljórans, breiðir Dagur á föstu
daginn úr tveim gömlum
lummum, sem hann og Fram-
sóknarmenn eru vanir að
leggja traust sitt á, þegar all-
ar eðlilegar bjargir eru þeim
bannaðar.
Annars vegar er því slegið
fram, að skýringin á afstöðu
Sjálfstæðismanna við bæjar-
stjórakjörið sé „sennilega“ sú,
að þeir hafi „lotið fyrirmæl-
urn að sunnan“. Hins vegar er
fjölyrt um óánægju kjósenda
Sjálfstæðisflokksins með sina
bæjarfulltrúa varðandi þetta
umtalaða mál.
Vitanlega er hvorug þess-
ara fullyrðinga í ætt við raun
veruleikann. En þær staðfesta
rökþrot Dags og jafnframt
hræðslubandalagsins.
„Vorblærinn”
Til gamans má skjóta því
hér inn í, að um „sunnan“-
lummu Framsóknar á Akur-
eyri gildir, að „það er tung-
unni tamast, sem hjartanu er
kærast‘. Þess er skemmst að
minnast, að fyrir skömmu
kom hingað til Akureyrar hóp»
ur ungra Framsóknarmanna
„að sunnan“, til þess að glugga
í plögg KEA og ýmissa fleiri
samvinnufyrirtækja. Á al-
mennum fundi, sem hópurinn
hélt á Hótel KEA í lciðinni,
sagði einn heimamanna í ræðu
(einn af samvinnufrömuðum
Framsóknar og bæjarfulltrúi í
uppbót), að heimsókn þessara
ungu rnanna væri „eins og
vorblær léki um bæinn“.
Lifli skrækur
Frá og með síðasta tölublaði
er Alþýðumaðurinn genginn
undir jarðarmen Dags. Þykir
lítið hafa lagzt fyrir kappann
eftir mánaðar heilsubótar-
hvild. En auðvitað lá þetta í
hlutarins eðli, úr því að kratar
voru búnir að stinga „norð-
lenzku sókninni“ undir værð-
arvoð Jakobs.
Alþýðumaðurinn birtir
stubb um málefnaatriði, sem
liann segir krata hafa sett
fram sem skilyrði fyrir hlut-
deild sinni að bæjarstjórakjör
inu, og getur þess svona baka
til, að Framsókn hafi sam-
þykkt. Þetta eru nýjar fréttir
og vissulega að skömminni til
skárri en Bragi hafði að segja
á fundinum, þegar bæjar-
stjórakjörið fór fram.
Jafnframt tekur Alþýðu-
maðurinn upp baráttuaðferð
Dags í málflutningi um bæjar
stjórakjörið. Væri það að bera
í bakkafullan lækinn, að rek-
ast í því. Þó verður ekki kom-
izt hjá þvi, að leiðrétta cina
firru.
Alþýðumaðurinn segir, að
Pétur Bjamason verkfræðhig
ur, sem ráðinn var cftirlits-
maður með byggingu dráttar-
brautar, eigi að fá „lítið sem
ekki lægra kaup en bæjar-
stjórinn fær“. Það rétta er
hins vegar, að Pétur Bjarna-
son tekur laun skv. gerðar-
dómi um laun verkfræðinga,
nú 19.700 kr. á mánuði fyrir
dagvinnu, kl. 9—17, fær 3.000
kr, bílastyrk og einnig
greiðslu fyrir yfirvinnu skv.
sérstökum samnirigi, þegar
hún er unnin, þó ekki hærri
upphæð en 10 þús. kr. á mán-
uði. Það skakkar því eilitlu í
málflutningi Alþýðumanns-
ins, eins og aðalmálgagnsins.
Ik. x'Jjb', i -l. .Kl' I.Jb- ■ ■ iiL. I * J
Mergurinn málsins
Hræðslubandalagsblöðin
liafa nú gert all umfangsmikla
tilraun til að steyta göm í
sambandi við hið fræga bæjar
stjórakjör hér á Akureyri, en
islendingur hefur lagt spilin
svo skýrt á borðið, að enginn
fer í grafgötur um eðli máls-
ins. Mergur þess er sá einn,
að ágreiningur varð á viðræðu
stigi milli flokkanna þriggja
um kjör bæjarstjóraefnis,
vegna þess að launakröfur
þess reyndust allt aðrar en
reiknað hafði verið með.
Áður en það kom í Ijós,
höfðu tveir flokkanna gert
samþykktir um að kjósa ein-
mitt það bæjarstjóraefni og
gátu því ekkcrt við kröfunum
sagt, nema svíkja hann um
stuðning. Sjálfstæðisflokkur-
inn hafði hins vegar enga sam
þykkt gert og ádráttur umi
stuðning við bæjarstjóraefnið
var byggður á fyrirliggjandi
upplýsingum, sem reyndust
síðan alrangar.
Það var þvi sjálfgert, að
Sjálfstæðismenn cndurskoð-
uðu afstöðu sína ofan í kjöl-
inn, þcgar grundvellinum var
kippt undan vilyrði þeirra.
Þeir gerðu það og þegar í stað
og tilkynníu forseta bæjar-
stjórnar afstöðu sína daginn
eftir að liin breyttu viðhorf
komu í Ijós, eða fjórum dög-
um íyrir bæjarstjórakjörið.
Þetta vom skýrar línur.
Ágreiningurinn reis út af því,
hvort samþykkja ætti að
greiða bæjarstjóranum áður
umtöluð laun, 40—41 þús. kr.,
eða ganga að kröfum hans um
a. m. k. 49 þús. kr. laun á mán
uði, sem engan veginn vom
þó bundnar við að fara ekki
enn hærra. Val stóð skyndi-
lega á milli þessara kosta, það
voru breytt viðhorf. Sjálf-
stæðismenn tóku þann kost-
inn, að standa ó upphaflegum
grundvelli og hafna hinmn
stórauknu kröfum með áhang
andi hættu ó glundroða i öll-
um launamálum bæjarfélags-
ins. Hraeðslubandalagið valdi
scinni kostinn, en með því við
urkenndu Framsókn og krat-
ar, að hafa hlaupið á sig með
fyrirfram loforði um stuðning
við bæjarstjóraefnið og bitu
svo höfuðið af skömminni með
því að halda fremur við það
loforð en hafa hagsmuni bæj-
arfélagsins á hrcinu.
Um þetta ágreiningsatriði
hræðslubandalagsins og Sjálf
stæðisflokksins og eftirleikinn
af beggja hálfu stendur mat
bæjarbúa.
3 ÍSLENDINGUE