Íslendingur - 02.02.1967, Qupperneq 6
ORÐASKIPTI MILLIÍSLENDINGS
OG SETTS SKÓLAMEIST4RA M. A.
„Mishermi leiðréttu
„í 3. TBL íslendings, 26. jan.
segir í írétt frá Klúbb unga
fólksins að „Ástæðan fyrir því
að þátttakan hefur ekki verið
nægileg er sú, að settur skóla-
meistari M. A. hefur af ein-
hverjum ástæðum þvemeitað,
að gefa menntaskólanemendum
í heimavist útivistarleyfi eins
og þeir fengu í fyrra.“
Hér er um missögn að ræða,
sem ég tel skylt að leiðrétta.
Nokkru eftir að skóli hófst sl.
haust hringdi til mín maður
utan úr bæ og kvaðst vera for-
maður nefnds klúbbs. Fór hann
þess á leit, að heimavist skól-
ans yrði lokað seinna þau kvöld,
sem klúbburinn hefði skemmt-
anir, en venjulegur lokunar-
tími er 15 mínútum fyrir 11 á
kvöldin. Ég neitaði því að gefa
út slíka allsherjarreglu. Fannst
mér og eðlilegast, að slík ósk
kæmi frá nemendum sjálfum,
ef þeim væri áhugamál að
sækja skemmtanir klúbbsins. í
samtali er ég átti við nemanda
einn um þetta mál, sagði ég hon
um, að ég léti sömu reglur gilda
um skemmtanir þessa klúbbs
sem aðrar bæjarskemmtanir,
kvikmyndir og aðrar, að ef nem
endur vildu sækja þær gætu
þeir beðið um útivistarleyfi
hverju sinni, en slíkt leyfi veitti
ég ekki í eitt skipti fyrir öll all-
-------------\-------------■—
an veturinn, né léti heimavist-
ina standa opna þau kvöld leng
ur en ella. Skildi hann fullkom
lega.það sjóriarmið.
Til þess að fyrirbyggja allan
misskilning milli mín og nem-
enda skýrði ég þetta sjónarmið
á sal og lét þess þá um leið get-
ið „að ef-einhver félagsskapur
hér í bæ telur sér nauðsyn á
þátttökú nemenda M. A., er það
hans að laga funda- og sam-
kqmutírrTa sinn eftir húsreglum
skólans, en ekki skólans að
breyta sínum heimilisvenjum
e.ftir óskum félagsskaparins.
Það eru mörg félög hér í bæ,
og ef hvert og eitt skyldi finna
uþp á þvi sama í því efni og
orðið yrði við óskum þeirra, er
hætt við, að lítið yrði eftir af
skólareglunum að lokum.“
Ef nemendur hafa beðið um
útivistarleyfi til að sækja
skemmtanir áðumefnds klúbbs
hafa þeir fengið það umyrða-
og viðstöðulaust, en áhugi á
slíku virðist hafa verið mjög
lítill. Svo að það er eitthvað
annað en ,,bann“ mitt, sem veld
ur takmarkaðri aðsókn að
klúbbnum.
Hér er að visu ekki um merki
legt mál að ræða, en skylt er þó
að rétt sé hermt frá öllum mála
vöxtum.
Menntaskólanum á Akureyri
27. jan. 1967.
Steindór Steindórsson.“
r
Athugasemd Islendings
Blaðið þakkar settum skóla-
meistara MA, Steindóri Stein-
dórssyni, fyrir „leiðréttinguna“.
f tilefni af henni skal eftiríar-
andi tekið fram af hálfu 1S-
LENDINGS:
1) Eins og sjá má svart á
hvítu við samanburð á tilvitn-
un setts skólameistara í ÍS-
LENDING og „leiðréttingu"
hans, þá staðfestir hann fram-
burð blaðsins, — en leiðréttir
hann ekki. í fyrra gaf skóla-
meistari, Þórarinn Björnsson,
út „allsherjarreglu“ um að nem
endum í heimavist væri heimil
útivist til kl. 23.15 þau kvöld,
sem Klúbbur unga fólksins
starfaði. í ár neitaði settur skóla
meistari, Steindór Steindórs-
son, að gefa út sams konar
reglu, eins og hann tekur fram
í „leiðréttingunni“. Hins vegar
kvaðst hann fús, að taka til at-
hugunar í hvert sinn skriflegar
umsóknir þeirra nemenda, sem
óskuðu eftir að sækja skemmt-
anir Klúbbsins.
Þessi óvenju stranga regla
setts skólameistara skapaði að
sjálfsögðu algera óvissu um
það, hvort heimavistarbúar
gætu tekið þátt í Klúbbstarf-
inu. Þar með var kipjit fótum
undan því, að þeir gætu staðið
að framkvæmd starfseminnar,
eins og í fyrra. Af því leiddi
svo aftur, að þeir hlutu að slitna
meira og minna úr tengslum
við Klúbbinn.
2) Settur skólameistari segir,
að „hér sé að vísu ekki um
merkilegt mál að ræða“. Af þess
um orðum hans liggur beint
við að álykta, að hann hafi ekki
lagt sig í framkróka við að
kynna sér málavöxtu og
ákvörðun hans sé vanhugsuð.
Það er verið að berjast við að
halda unga fólkinu frá sollin-
um, en þar er við ramman reip
að draga, þar sem m. a. mikið
framboð er af óvönduðum
skemmtunum. Þegar svo unga
fólkið sjálft skapar með eigin
framtaki fyrirmyndar skemmti
klúbb og rekur hann við beztu
hugsanlegar aðstæður, þá er
það ekkert ómerkilegt mál.
Er þess þá ógetið, að Klúbbur
unga fólksins var á meðan hann
naut skilnings skólameistara
tengiliður milli unga fólksins í
bænum og menntaskólanema,
sem engin vanþörf var né er á.
3) Að lokum vill ÍSLEND-
INGUR beina þeim vinsamlegu
tilmælum til setts skólameist-
ara, að hann taki þetta mál til
endurskoðunar í samráði við
forvígismenn nemenda sinna og
finni á því jákvæðari lausn.
Menntaskólinn hefur víst skyld
ur við bæjarfélagið, eins og rétt
gagnvart því. Ef. gagnkvæmur
ávinningur er af samvinnu
þeirra aðila, sem hér koma við
sögu, þá á ekki að loka fyrir
hann með rembihnút.
Ritstjóri.
- ÆYINTÝRAÞRÁIN DRÓ HANN TIL ÍSLANDS
r.n'i
(Framhald af blaðsíðu 5)
Nú, og svo ertu í Lundúna-
tríóinu?
— Já, við stofnuðum það
1964. Það er í fullu fjöri, nema
hvað við leikum að sjálfsögðu
ekki saman i vetur, þar sem
ég er staddur hér á Akureyri.
Einnig er cellóleikarinn heima
hjá sér í Ástralíu.
Hvers konar tónlist finnst
þér skemmtilegast að flytja?
— Verk gömlu meistaranna.
Ég hef mikið dálæti á franska
meistaranum Ravel. Þess
vegna fór ég til Parísar á sin-
um tíma og var þar eitt ár.
Ég dvaldi einnig tvö ár í
Brussel. Annars hef ég mest
verið heima í Englandi og far
ið þar um og þaðan í tónleika-
ferðir.
ertu ekki hrifinn af
electroniskri tónlist?
— Nei, hreint ekki.
Og nú ætlarðu að lofa Akur
eyringum að heyra frá þér.
Heldurðu að ykkur muni
lynda saman á tónleikunum á
þriðjudaginn.
— Ég vona það, sannarlega.
— herb.
Frá starfsemi ungteplarafélagsins á Siglufirði.
Ungtemplarafélag stofnað á Akureyri
SUNNUDAGINN 12. febrúar
verður stofnað ungtemplára-
félag hér á Akureyri. Kvöldið
fyrir verður starfsemi ung-
templara kynnt á dansleik,
sem ungtemplarar halda í AI-
þýðuhúsinu. Öllrnn ungling-
um eldri en 15 ára er heimill
ókeypis aðgangur — án áfeng
is.
Fyrir þá, sem ekki eiga þess
kost að mæta á kynningar-
kvöldið, skal hér reynt að lýsa
stuttlega starfi ungtemlara.
íslenzkir ungtemplarar
(ÍUT) er sjálfstæð deild á veg
um Góðtemplarareglunnar
(IOGT) hér á landi. Hliðstæð
samtök ungmenna hafa starf-
að á hinum Norðurlöndunum
um áratuga skeið, en eru að-
eins 9 ára gömul hér á landi.
Deildir ÍUT nefnast ungtempl
arafélög, og eru þau nú 10
talsins með um 100 félaga.
Oflugust eru félögin Hrönn í
Reykjavík og Hvönn á Siglu-
firði, en það eru þau félög,
sem beita sér fyrir kynningar
kvöldinu og stofnun félags
hér.
Inntökuskilyrði í ungtempl-
arafélag er, að viðkomandi
hafi náð 15 ára aldri og sam-
þykki bindindisheit félagsins.
Tóbaksbindindi er ekki áskil-
ið, en ungtemplarar hafa þó
beitt sér mjög gegn tóbaks-
notkun, svo sem með auglýs-
ingum.
Starfsemi ungtemplara er
fjölbreytt. Á vetrum beita þeir
sér fyrir dansleikjum og
skemmtisamkomum ung-
menna auk annarrar vetrar-
starfsemi. Á sumrum eru
ferðalög og ýmis mót efst á
baugi. Síðastliðið sumar var
m. a. haldið í Reykjavík mikið
norrænt ungtemplaramót, sem
stóð heila viku og þótti takast
með miklum ágætum. Þar
voru mættir um 400 ungtempl
arar, þar af helmingurinn út-
lendingar, m. a. frá Tyrklandi
og Japan.
Næsta sumar eru þegar
ákveðin nokkur mót ungtepl-
ara hérlendis. Vormót ÍUT
verður haldið á vestanverðu
Norðurlandi eina helgi í júni.
Ársþing ÍUT verður á Siglu-
firði í júlí. í ágúst verður
Jaðarsmót ÍUT haldið, að
venju að Jaðri við Heiðmörk,
en þess má geta, að síðasta
Jaðarsmót sóttu hátt á annað
þúsund ungmenni.
Sumarið 1968 verður nor-
rænt ungtemplaramót í Sví-
þjóð, og er'þegar hafinn undir
búningur að þátttöku ís-
lenzkra ungtemplara í því
móti.
Akureyrsk æska! Verið
með frá byrjun í starfi ung-
templara hér í bæ. Mætið á
dansleikinn í Alþýðuhúsinu
laugardaginn 11. febrúar n. k.
og stofnfundinn 12. febrúar, og
þegar þið kynnizt starfi ung-
templara munuð þið sannfær-
ast um, að það er hægt að
skemmta sér án áfengis — og
það meira að segja mjög vel.
— jr.
- Samvinnutrygging-
ar 20 ára
(Framhald af blaðsíðu 3)
aðir fyrir góðan akstur og hafa
4655 hlotið viðurkenningu fé-
lagsins fyrir 5 ára öruggan akst
ur og 1648 viðurkenningu og
verðlaun fyrir 10 ára öruggan
akstur, en verðlaunin eru fólgin
í því, að ellefta tryggingarárið
er iðgjaldsfrítt. Stofnaðir hafa
verið klúbbarnir „Öruggur
akstur" víðs vegar um landið
fyrir frumkvæði Samvinnu-
trygginga, en þessir klúbbar
hafa það markmið að auka um
ferðaröryggi, fyrst og fremst í
heimahögum og almennt í sam
ráði við aðra aðila. í byrjun árs
1966 var tekin upp ný öku-
manns- og farþegatrygging,
sem var algjör nýlunda hér á
landi. Alvarleg slys hentu á $1.
ári, þar sem bætur voru greidd-
ar úr tryggingu þessari, og hef-
ur hún því þegar sýnt hversu
nauðsynleg hún er.
( Fr éttatilkynning )
- Framkvæmdaáætlim
Akureyrarbæjar
1967
(Framhald af blaðsíðu 1)
jarðvegsskipta þess vegna,
gangstétta og kantsteinalagn-
ingar kr. X;29tj:;000;.00, til undir
búriings gatna, sení ekki verða
malbiliaðar, kr. 2.950.000.00,
til holræsagerðar kr.
4.980.000.00 og í ýmis verk kr.
880.000.00.
Upptalning á fx-amkvæmd-
unum litur þannig út: Hrafna
gilsstræti frá Skólastíg að
Byggðavegi, malbikun 230 Im.,
undirb. stétta og kantsteina-
lagning; Laugai-gata, malbikr-
un 210 lm., kantsteinalagning;
Þingvallasti-æti frá Þórunnar-
stræti að Mýi'arvegi, undir-
bygging stétta, undii'b. götu
að hluta; Noi'ðui-gata frá Eyr-
arvegi að Hjalteyrax'götu, mal
bikun 350 lm., kantsteinalagn-
ing; Hamx-agerði og Kotár-
gerði, undirbúningur vegna
tengingar 160 lm.; Brekku-
gata og Byggðavegur, tenging,
púkkun og lagning holræsis
220 lm.; nýjar götur vestan
Mýrarvegar, undii'bygging og
lagning holræsa 340 ím.; Þór-
unnarstræti, fullnaðai'púkkun
frá Glerárgötu að Bjarkarstíg
580 lm.; holræsi norðan Gler-
ár, frá sjó upp að Lönguhlíð
980 lm.; holræsi við Iðnskóla,
100 lm.; holræsi sunnan Akur
gerðis, 250 lm.; aðalholi'æsi, í
Þórunnarstræti 310 Im. og í
Þingvallastræti 700 lm. Ýmis
verk ósundurliðuð.
ÍSLENDINGUR 6