Íslendingur - 02.02.1967, Blaðsíða 8
Tsleimmngub
Fimmtudagur 2. íebrúar 1967.
KVÖLDVERÐAR-
FUNDUR VARÐAR
í KVÖLD
VÖRÐUR á Akureyri heldur
kvöldverðarfund í kvöld í Sjálf
stæðishúsinu, uppi, og hefst
hann kl. 19.30.
Magnús Jónsson fjáx-málaráð
herra ræðir stjómmálaviðhoi'f-
ið.
Magnús E. Guðjónsson flytur ræðu á bæjarstjórnarfundin-
um í fyrradag. Vinstra megin við hann er Jakob Frímanns-
son forseti bæjarstjórnar, en liægra megin Bragi Sigurjóns-
son bæjarfulltrúi.
Bæjarstjóraskipli á Ákureyri
- Valgarður Baldvinsson seítur bæjarsíjóri
ÁLFADANS í MÝVATNSSVEIT
UM NÝLIÐIN mánaðamót
Iét Magnús E. Guðjónsson af
störfum, sem bæjarstjóri á
Akureyri. Fór hann alfarinn
suður í gær. Á fundi bæjar-
stjórnar í fyrradag var hann
kvaddur, en kvöldið áður sat
bæjarstjóm hóf með honum
á Hótel KEA.
Þar sem kjörinn bæjar-
stjóri, Bjarni Einarsson,
losnar ekki úr starfi hjá
Efnahagsstofnuninni fyrr en
í aprílmánuði, hefur bæjar-
stjórn samþykkt að fela Val-
garði Baldvinssyni bæjar-
ritara að gegna bæjarstjóra-
störfum fyrst um sinn.
KÞ Björk 31. 1. 67
AÐ UNDANFÖRNU hefur ver
ið hér sæmilegt tíðarfar, úr-
koma sáralítil allan þennan
mánuð. Færð á vegum má heita
að verið hafi góð nú um þriggja
vikna skeið og jafnvel bifreið-
um ekið keðjulaust bæði til
Akureyrar og Húsavíkur. Þá er
einnig ágætt bílfæri eftir ísi-
lögðu Mývatni.
Siðastliðið sunnudagskvöld
var haldinn álfadansleikur í Mý
vatnssveit. Fór hann fram á svo
nefndri Stakhólstjörn hjá Skútu
stöðum. Kl. rúmlega 9 sást fiúð
og vegleg fylking álfa og ljós-
álfa eða alls um 60, með kóng
og drottningu í fararbroddi,
koma út úr borgunum með
kyndla í höndum og stefna á
danssvæðið úti á tjörninni. Var
þá snarlega kveikt í miklum
bálkesti sem komið hafði verið
fyrir þar. Mátti sjá í kestinum
m. a. tvo báta vei’ða eldinum að
bráð, sem áður höfðu gengið á
Mývatni, en voru nú búnir að
lifa sitt fegui-sta og því fórnað
á altari eldsins.
Miklar framkvæmdir á þessu ári
víða í Suður-Þingeyj arsýslu
mi
Jakob Trvggvason
skólastjóri sextugur
ÞANN 31. janúar sl, varð Jakob
Tryggvason skólastjóri Tónlist-
arskóla Akureyrar sextugur.
Hann hefur um langt árabil
vexið í fremstu röð í tónlistar-
lífi Akureyringa, en kunnastur
er ' hann fyrir starf sitt sem
oi-gelleikari Akuxeyrarkirkju
og kennslustörf sín.
ÍSLENDINGUR árnar Jakobi
Tryggvasyni allra heilla á þess-
um tímamótum.
Uppstillingarnefnd
starfaði á þriðjud.
Á ÞRIÐJUDAGINN kom
saman á Akureyri uppstill-
ingarnefnd Sjálfstæðisflokks
ins í Norðurlandskjördæmi
eystri, sem kosin var á síð-
asta Kjördæmisþingi, til þess
að gera tillögu um framboðs
lista við Alþingiskosningarn
ar í vor.
Þetta var fyrsti fundur
nefndarinnar og iafnframt
að líkindum sá síðasti, þar
sem alger samhugur ríkti
um þær uppástungur, sem
fram komu.
Tillaga uppstillinganefnd-
ar verður lögð fyrir Kjör-
dæmisráð strax og tök verða
á að ná því saman.
SUÐUR-ÞINGEYINGAR hafa
í mörg horn að líta á þessu ári
varðandi framkvæmdir. Auk
þess að standa í ýmsum venju-
legum framkvænidum til sjáv-
ar og sveita, er unnið að sér-
stökum stórframkvæmdum. —
Verulegur hluti af þeim er á
vegum Kísiliðjunnar h.f. eða í
sambandi við þær, en einnig er
verið að stækka Hótel Reyni-
hlíð, byggja frystiliús í Greni-
vík og loks mun standa til að
byggja nokkur íbúðarhús á vcg
um Laxárvirkjunar.
KÍSILIÐJAN II.F.
Gert er ráð fyrir að uppbygg-
ing verksmiðju Kísiliðjunnar
h.f. við Mývatn haldi áfram af
fullum laafti og að verksmiðjan
taki til starfa seint á árinu.
Þá er gert ráð fyrir að
skemma verði byggð í Húsavík,
á nýrri uppfyllingu við höfnina,
fyrir sama fyrirtæki.
Ennfremur munu verða
byggð 10 íbúðarhús við Mý- .
vatn á vegum Kísiliðjunnar h.f.,
en bygging þeirra er nú í út-
boði.
KÍSILVEGUR
Kísiliðjan h.f. kemur einnig
við sögu í vegamálum sýslunn-
ar. Fyrirhugað er að leggja nýj
an veg milli verksmiðjunnar
við Mývatn og Húsavíkur, sem
verður útflutningshöfn kísil-
gúrsins. Er þetta mjög veruleg
framkvæmd, sem nú er í út-
boði.
IIÓTEL REYNIHLÍÐ
í vetur hefur verið unnið við
talsverða stækkun á Hótel
Reynihlíð. Er sú viðbygging
komin undir þak. Þar verða
gestaherbergi með böðum og
veitingasalur, einnig verða eld-
hús, anddyri og snyrtiherbergi
stækkuð. Stefnt er að því að
ljúka framkvæmdum fyrir vor-
ið.
FRYSTIHÚS I GRENIVÍK
Eins og sagt hefur verið frá í
fréttum, eru Grenvíkingar að
byggja lítið frystihús, sem mið-
að er við að taki afla af bátum
þeirra. Er ætlunin að það verði
fullgert á þessu ári.
ÍBÚÐARHÚS VIÐ LAXÁ
Þá hefur heyrzt, að boðin
verði út í ár bygging þriggja
íbúðarhúsa fyrir Laxárvirkjun.
Uppstillingarnefnd Sjálf-
stæðisflokksins. Talið frá
vinstri: Kristján Þórhalls-
son, Ingvar Þórarinsson,
Ólafur Ágústsson, Gunn-
ar Níelsson, Sigvaldi Þor-
leifsson, Snorri Ólafsson,
Vésteinn Guðmundsson, Jón
G. Sólnes, Árni Jónsson,
Gísli Jónsson, Ásgrímur
Hartmannsson, Friðgeir
Steingrímsson, Páll Þór
Kristinsson og Eggert
Davíðsson.
(Ljósm.: —herh.)
Tóku nú álfarnir að dansa og
syngja nokkra stund við undir-
leik harmoníku, að mér heyrð-
ist úr mannheimum. Þá fór nú
betur að heyrast og sjást í ýms-
ar all ófrínilegar kynjaverur
svo sem Grýlu, Leppalúða,
Kölska, Móra og fleiri. Voru
þeir að glettast við álfana og
létu öllum illum látum. Margir
hörðu gaman af slíku, ekki sízt
yngra fólkið.
Óhætt er að segja að þessi
álfadansleikur tókst með ágæt-
um og var góð tilbreytni. Ég er
þess fullviss að áhorfendur
skemmtu sér mjög vel. Veðrið
var all gott um kvöldið, úrkomu
laust en nokkur austan strekk-
ingur. Áhorfendur voru margir.
Álfakóngur var Hallgrímur
Jónasson en drottning Bjarn-
fríður Valdimarsdóttir. Full-
yrða má að ekki hefði verið
hægt að koma þessum álfadans
leik á nú, ef búningarnir hefðu
ekki fengizt að láni, enda þótt
(Framhald á blaðsíðu 5)
Leikfélag Öngulsstaðahrepps:
Svefnlausi
brúðguminn
11
rr
w
í KVÖLD frumsýnir Leikfélag
Öngulsstaðahrepps leikritið
„Svefnlausi brúðguminn“, eftir
Arnold & Bach. Sýningin verð-
ur í Freyvangi.
Þetta er gamanleikur í þrem
þáttum. Þýðing er eftir Sverri
Haraldsson. Leikstjóri er Jó-
hann Ögmundsson.
Hlutverk í leikritinu eru 12.
Leikendur eru Helgi Baldurs-
son, Ólöf Tryggvadóttir, Ragn-
heiður Snorradóttir, Hrefna
Hreiðarsdóttir, Lárus Ingólfs-
son, Úlfar Hreiðarsson, Guðríð-
ur Eiríksdóttir, Þuríður Júlíus-
dóttir, Birgir Þórðarson, Ing-
veldur Hallmundsdóttir, Sigur-
lína Hreiðarsdóttir og Sigurður
Snæbjörnsson.
ÁRSHÁTÍÐ
SJÁLFSTÆÐIS-
FÉLAGANNA
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélag-
anna á Akureyri verður í Sjálf
stæðishúsinu laugardaginn 18.
febrúar n.k. og hefst kl. 19.
Mjög verður vandað til hátíð
arinnar og er Sjálfstæðisfólki
því bent á, að tilkynna þátttöku
næstu daga í símum 11354 eða
11094, til þess að tryggja sér
aðgang.