Íslendingur - 27.08.1968, Síða 5
i wi 11 ii 1111 h 1111111111 ■ 111 í ei 111111111111111111111111111111111111111! 11111 m 1111
800 farþegar hafa nú þegar farið um Gríms-
eyjarfkigvöti á árinu, heimskautsbaugurinn og
fugiamergðin draga ferðamenn út í eyna.
ItHHHHIRtHHHttllttlllllllttlUlllltlllllllllMlllllilllllllllllllllllllllllllllllllllll
• Um miðjan ágústmánuð,
eða nú fyrir fáum dögum, höfðu
mn 800 farþegar fariö um Gríms-
eyjarflugvöll, en það er álíka
mikill f jöldl og fór um völlinn
allt síðasta ár. Vaxandi áhugi er-
lendra ferðamanna á Grímsey á
þama mikinn hlut að máli og
veðrið hefnr verið þeim hliðhollt
f sumar. Heimskautsbaugurinn
og fuglamergðin draga þetta fólk
á sumrin“, sagði Amgrímur.
„Það verður að hræða fuglana
upp um leið og lent er.“ Og
hann lét hreyflana vinna það
verk. Fuglamir þustu upp og
flugvélin lenti undir breiðurnar.
Það var austan kaldi en sól-
skin í eynni. Frakkamir stigu
út úr flugvélinni, þau voru vopn-
uð ljósmyndavélum. Örskammt
frá bænum á Bástrm, norður
Hann svaf fyrír norSan, hún fyrír sunnan
út í eyna. Og vist er um það,
að flestir eða allir fara ánægðir
til baka, hvorugt aðdráttaraflið
svfkur og móttökur á Básum,
nyrsta bænum í Grímsey, reka
skemmtilegan endahnút á skoð-
unarferðiraar.
• Um árabi'l hefur Norður-
ftag annast fastar flugferðir til
Grímseyjar og nú f sumar hefur
Flugfélagið Freyr tekið upp sér-
stakar skoðtmarferðir þangað út.
Fueyr hefur unnið nokkuð að
því nú þegar, að kynna þessar
ferðír hjá þeim áðilum, sem
flytja til landsins erlenda ferða-
menn. Árangurinn er nú að
koma f Ijós, þótt búast megi
vlð, að hann verði meiri, þegar
tfmar Ifða.
Fyrir réttri viku þáði ég boð
Freys um að fara með flugvél
félagsins til Grímseyjar, en
þangað fór hún með franskt par.
Það var Amgrímur Jóhannsson
flugmaður og einn af eigendum
Freys, sem ílaug vélinni og var
leiðsögumaður Frakkanna.
Til að sjá út af Þorgeirsfirði
reis Grimsey úr hafinu. Fáeinir
skýjahnoðrar héngu I nánd við
eyna, annars var bjart út af
Eyjafirði og Skjálfanda.
Úr fjarlægð virtist flugbraut-
in í Grlmsey hvítmáluð, eins og
stofuþil. Þama sáju fuglar i
þéttum heðum, hundruð eða
þúsundir. „Það þarf að nota sér-
stakar aðferðir til að lenda hér
undir enda flugbrautarinnar, era
tveir búkkar, gulmálaðir. Þvi
sem næst þar er norður-heim-
skautsbaugurinn. Það var engin
viðhöfn, þegar gengið var yfir
bauginn í þetta sinn, aðeins stutt
viðdvöl og Amgrimur skýrði frá
þvl, hvar við værum stödd.
Stundum eru útlendingamir full-
ir lotningar fyrir þessum stór-
merkjum og draga skó af fótum
sér á meðan gengið er yfir baug-
inn, og oftast fá þeir að heyra
■söguna frá því að gamli Bása-
bærinn var og hét, þar sem baug-
urinn lá f gégn um svefnstofu
prestshjónanna — og það í gegn
um sjálft hjónarúmið, hann svaf
fyrir norðan \bauginn, fen hún
fyrir sunnan. En nýi bærinn
stendur ömgglega allpr sunnan
við bauginn, þár er öllum hlýtt,
heimafólki og gestum þeirra, all-
an ársins hring. Það var ekki til
neins að leggja út í þessar
flóknu skýringar 1 þetta sinn.
þvl Frakkarnif skildu sáralítið
í enskri tungu, sem er alþjóða-
mál Freysmanna í Grimseyjar-
ferðum.
Fuglabjörgin em mest norðan
við bauginn. Það kólnaði til
muna, en samt var haldið að
björgunum. Og þar gaf á að líta,
þótt varptlminn væri liðinn og
flestir ungar orðnir fleygir. Ur-
mullinn var óskaplegur. Þegar
við komum á bjargbrúnina flugu
fuglar úr holum og af sillum,
loftið varð eins og þar væri
skæðadrífa. Fáeinir ungar
treystu sér ekki til að yfirgefa
æskustöðvamar. Það mátti næst-
um teygja sig til þeirra. Fugla-
hljóð, björt og dimm, sjávarnið-
ur, bátshljóð, annars ósnortinn
náttúran og óravítt hafið.
Eftir hálftíma skothríð af
myndavélum var haldið heim að
Básum í kaffi. Þar ræður ríkjum
Alfreð Jónsson oddviti, sem er
innfiuttur, en unir sér vel. Sem
oddviti er Alfreð sveitarstjóri
og hann annast einnig alla flug-
umsjón og greiðasölu fyrir gesti
Grímseyinga, auk þess sem hann
rekur búskap.
Það era veizluföng á borðum,
eins og alltaf á Básum. Franska
parið ræðir sín á niilli, Guð veit
hvað. Við Arngrímur ræðum við
Alfreð og snáðann Alfreð yngri,
sem er aðeins tveggja ára gam-
all, en veit það og margt fleira.
Að svo húnu er stigið um borð
i flugvélina.
Svona einfalt var það. En á
Akureyrarflugvelli steig franska
parið ánægt frá borði, eitt sól-
skinsbros. Merci. Merci.
Ég notaði að sjálfsögðu tæki-
færið og innti Alfreð á Básum
frétta. Hann kvað hafa sæmi-
lega fiskazt í sumar, einkum þar
sem gæftir hefðu verið góðar.
Stigið frá borði á Grímseyjarflugvelli, skammt frá Básum og norð-
ur-heimskautsbaugnum. Franska parið og Arngrímur Jóhannsson
flugmaður.
Heyskapur væri hins vegar lítill
enn, enda ekkert sprottið.
Hafnarframkvæmdum, sem
stóð til að ráðast í á árinu, var
frestað til næsta árs, en þá á að
gera verulegt átak í hafnarbót-
um, enda er höfnin lffæð Gríms-
eyinga, eins og geta má nærri,
og á þeim er ekkert fararsnið.
Ibúunum hefur fjölgað á und-
anförnum árum. Þeir eru nú 94
talsins og Grimseyingar stefna
að því, að þeir verði orðnir 100
árið 1970. „Það er þegnskylda,
að standa við það“, segir Al-
freð.
Og hvers vegna skyldi það
ekki geta staðizt, verður manni
á að hugsa. Grlmsey er orðin í
þjóðbraut, vegna flugsins, á 7 og
hálfum mánuði hafa farið 800
farþegar um flugvöllinn þeirra,
eða sem svarar þvl, að hver
Grímseyingur hafi farið rúmlega
9 sinnum um flugvöllinn. Og svo
er sjónvarpið á næsta leiti. En
fiskimiðin umhverfis Grímsey
eru gullkista þeirra og höfnin
lifæð. Hana á að bæta á næsta
ári.
— herb.
AUGLÝSINGIN ER LEIÐ NÚTÍMANS TIL
AÐ VEKJA ATHYGLI NEYTENDANNA
— AUGLÝSINGSMI ÍSLENDINGS 11354
5 ÍSLENDINGUR