Íslendingur


Íslendingur - 01.05.1975, Síða 1

Íslendingur - 01.05.1975, Síða 1
15. TÖLUBLAÐ . 60. ÁRGANGUR . AKUREYRI . FIMMTUDAGINN 1. MAÍ 1975 VÖRUSALAN SR • HAFNARSTRÆTI 104-AKUREVRI vcí VERZLAR í / VÖRUSÖLUNNI í VORUSOLUNNI f. Gullskipið frumsýnt „Gullskipið“ eftir Hilmi Jó- hannesson verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar annað kvöld. Leikritið fjall- ar urn heimsókn tvö þúsund túrista, sem ætla að kynna sér „eðlilegt mannlíf í ís- lensku sjávarplássi" og at- burði og slysfarir tengt þess ari heimsókn. — Leikarar eru Gestur E. Jónasson, Arn- ar lónsson, Friðrik Stein- grímsson, Sigurveig Jóns- dóttir, Kristjana Jónsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Aðj- alsteinn Bergdal, Þráinn Karlsson, Árni Valur Viggós son og Kjartan Ólafsson. Leikstjóri er Eyvindur Er- lendsson, en leikmynd er gerð af Jóni Þórissyni, en hann er starfsmaður Leikfé- lags Reykjavíkur. Hilmir er Akureyringum Fengu 1. millj. Starfsmannafélag Slippstöðv- arinnar á Akureyri hefur fengið að gjöf 1 milljón króna frá fyrirtækinu með það fyrir augum að byggt verði sumar- liús fyrir starfsmennina. Gjöf- in verður formlega afhent þeg ar nýja mötuneyti Slippstöðv- arinnar verður vígt innan skamms. Ekki liefur enn verið ákveð ið hvar sumarbústaðurinn á að rísa, en nú er verið að kanna hvar land fæst og hvað hentar best fyrir starfsmenn- ina. Að sögn Ingólfs Sverris- sonar hjá Slippstöðinni er trú legt að keyptur verði tilbúinn trésumarbústaður og ætti pen ingagjöfin að ná langt í kostn að við kaup á honum. að góðu kunnur, þar sem áð-.*.' ur hefur verið sýnt leikrit£ eftir hann á sviði Samkomu-tj! hússins. Það var Sláturhús-S ið hraðar hendur. V Myndin hér að ofan er afY x Jóni Þórissyni leikmynda-Y , V teiknara við undirbunings-Y Y vinnu. Y Nýtt flugfélag stofnad á Akureyri Flugfélag Norðurlands og Flugleiðir stofnuðu formlega nýtt fyrirtæki í fyrradag, scm á að annast flug á ýmsum leiðum norðanlands. Flugleiðir eiga 35% hlutafjár í fyrirtækinu, en Flugfélag Norðurlands afganginn. Nýja flugfélagið tekur form- lega til starfa í dag, 1. maí, og mun það fljúga undir nafninu Flugfélag Norðurlands. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Sig urður Aðalsteinsson. Stjórn flugfélagsins skipa Jón E. Karlsson, Torfi Gunn- laugsson, ritari, og Einar Helgason formaður, en í vara- stjórn eru Jakob Frímannsson, Níls E. Gíslason og Jóhannes Fossdal. Endurskoðendur fyr- irtækisins eru Gunnar Helga- son og Skarphéðinn Magnús- son. Vélakostur flugfélagsins eru þrjár 10-farþega Beechcraft- vélar og ein 5-farþega sjúkra- flugvél. Ætlunin er að auka við vélakostinn innan skamms og í þessum mánuði verða gerð ar endurbætur á Beechcraft- vélunum. Nánar er sagt frá starfsemi Flugfélags Norðurlands á mið síðu blaðsins í dag. 15'/2 IVIILLJ. HAGNAÐIIR Rekstrarhagnaður Slippstöðvarinnar á Akureyri sl. ár nam um 15 V-2. milljón en liagnaðurinn árið áður var rúm ein milljón króna. Er stjórn fyrirtækisins ánægð með útkomuna fyrir sl. ár og tclur að rekstrargrundvöllur og fjárhagsstaða þess sé góð. í ársskýrslu stöðvarinnar segir að framtíðarhorfur Slipp stöðvarinnar byggist fyrst og fremst á þrennu, þ. e. efna- hagsstöðu fyrirtækisins, og rekstrarmöguleikum, í öðru lagi á áframhaldandi verkefn- um og í þriðja lagi fjármögn- unarmöguleikum fjárfestinga- sjóða þeirra sem lána til ný- bygginga og endurnýjunar skipa. OLAFSFJORÐIiR: Leitin að heita vatninu orðin bænum dýrkeypt Bor frá Orkustofnun er væntanlegur til Ólafsf jarðar í þessum mánuði til þess að dýpka bor- holu þá sem byrjað var á sl. haust, en hiti í henni reyndist 60 gráður á C. Er það mesti hiti í borholu, sem gerð hefur verið á Ólafsfirði. Er ætlunin að dýpka holuna niður í 1000 metra og eru 8 milljónir króna ætlaðar til verksins. Á sl. 4 árum hefur Ólafsfjarðarbær varið 14 millj. króna til leitar eftir heitu vatni, en árangur af leitinni hefur verið sama og enginn. í viðtali við bæjarstjórann — Hugsanlegt mun vera að í skýrslunni segir að reikn- ingar fyrirtækisins sýni að efnahagsstaða fyrirtækisins sé góð og skuldabirgðin vel við- ráðanleg. Með eðlilegum verk- efnum og þeirri nýtingu sem nú er á aðstöðunni í Slippnum eru rekstrarmöguleikarnir einnig góðir. Hins vegar þurfi að gera stöðinni kleift að ákveða verkefni lengra fram í Framhald á bls. 6. á Ólafsfirði, Pétur Má Jóns- son, kom fram að bærinn hef- ur ekki getað sinnt óskum fjölda manns urn hitun í fok- held hús og auk þess hefur hitaveitan alls ekki getað veitt þeirn sem hafa þegar hita- veitu fulla þjónustu. — Beri borunin ekki árang- ur er okkur mikill vandi á höndum, sagði bæjarstjórinn. Fiskurinn kláraðisf í gær Um liádegi í gær lauk vinnslu á íiski úr togaranum Slétt- baki í hraðfrystihúsi Útgerðar félags Akureyringa og hefur verkfallið á togurunum þá lamað alla starfsemi í'é- lagsins nema saltfiskvinnsl- una. Alls mn 450 manns vinna lijá Útgerðarfélagi Akureyr- inga, þar af eru rúmlega 100 manns í verkfalli. Að sögn Vilhelms Þorsteins sonar hjá Útgerðarfélagi Ak- ureyringa vinna um 120 kon- ur í frystihúsinu og hefur þeim öllum verið sagt upp nema 8 sem eru fastráðnar. Þessar 8 konur munu vinna við ýmis tilfallandi störf í frystihúsinu næstu viku, en hætta síðan ef verkfallið hef- ur ekki verið leyst þá. Upp- sagnarfrestur fyrir fastráðið starfsfólk er ein vika. leysa vandamálið með bygg- ingu toppkyndistöðvar en það er þó aðeins skammtímalausn enda ljóst að vandinn verður ekki leystur varanlega nema með auknu vatnsmagni. Einn- ig er erfitt fyrir fátækt sveit- arfélag að leggja til fjármagn á sama árinu bæði til borunar og kyndistöðvar, en hitaveit- an hefur algeran forgang hjá okkur eins og er ásamt hafnar framkvæmdunum. Fyrsta brunkeppnin í 15 ár Fyrsta opinbera keppnin í bruni síðan árið 1960 fór fram í Hlíðarfjalli um síð- ustu helgi. Keppnin tókst mjög vel og hefur Skíðaráð Akureyrar mikinn áhuga á því að reyna að endurvekja þessa keppnisgrein þar sem skíðalyftur og snjótroðarinn á Akureyri hafa skapað grundvöll fyrir æfingar og keppni í bruni. Brautin var í Reythólum og var hún um 3 km á lengd og hæðarmunur um 700 metrar. — Meðal keppenda voru flestir bestu skíðamenn landsins m. a. frá Akureyri, ísafirði og Reykjavík. — Á myndinni hér að ofan má sjá sigurvegarana í karlaflokki og kvennaflokki, þau Hauk Jóhannss. (lengst til hægri) og Margréti Vilhelmsdóttur. Með þeim á myndinni er Tómas Leifsson en hann varð nr. 3 í karlaflokki.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.