Íslendingur - 02.10.1975, Page 2
LIÐ KA í HANDKNATTLEIK
Hörður hefur leikið í þrjú ár
með KA-liðinu, en áður hafði
hann leikið 15 leiki með Val.
Þá hefur hann leikið knatt-
spyrnu með Val í fimm ár og
á að baki sex landsleiki.
í samtali sem við áttum við
liann um síðastliðna helgi
sagði hann m. a.:
— Ég vona að KA-liðið
verði það gott að ekki komi til
þess að ég þurfi mikið að
leika með því í vetur. Auðvit-
að verð ég líka leikmaður, en
það eru vissir annmarkar á
að þjálfa og leika einnig með
liðinu.
Aðspurður um keppnina í
2. deildinni í vetur sagði Hörð
ur: — Þetta verður erfiður
vetur, bæði vegna þess að lið-
in eru nú með betri þjálfara
en oft áður og eins vegna þess
að þau hafa byrjað mun fyrr
æfingar en áður. Ég held að
það verði einkum þrjú lið sem
koma til með að bítast um
Þjálfari KA-liðsins er nú Hörð
ur Hilmarsson, 22 ára kennari.
KYNNT
Hörður Hilmars
son þjálfar KA
Meistaraflokkur KA í handknattleik 1975—1976: Aftari röð frá vinstri: Bjarni Ingvason, Sigurður Jónsson, Hermann Haralds-
son, Halldór Rafnsson, Jóhann Einarsson, Páll Kristjánsson, Haraldur Haraldsson, Sigurður Sigurðsson, Ævar Stefánsson, Þor-
leifur Ananíasson og Jón Hensley aðstoðarþjálfari. Fremri röð frá vinstri: Jón Emil, Sverrir Meldal, Jóhann Jakobsson, Ólafur
Haraldsson, Magnús Gauti, Guðmundur Lárusson, Stefán Arnaldsson og Magnús Þorvaldsson. Ljósm.: Jón Einar.
f dag kynnir fslendingur lið
Knattspyrnufélags Akureyrar
í handknattleik. Á síðasta
keppnistímabili náði liðið
mjög góðum árangri er það
hafnaði í öðru sæti 2. deildar.
Liðið hefur búið sig vel undir
komandi keppnistímabil, en
róðurinn verður eflaust þung-
ur. Lið Þórs verður kynnt á
sama hátt í næstu viku.
Hér fara á eftir nöfn leik-
manna og upplýsingar um þá:
Magnús Gauti Gautason,
markmaður, 25 ára rekstrar-
hagfræðingúr. Hefur leikið
með meistarafl. í þrjú ár en
sex ár með öðrum aldursflokk
um.
Ólafur Haraldsson, mark-
maður, 18 ára nemi. Er nú að
byrja með meistarafl. Lék síð-
astliðið sumar með 2. fl. KA í
knattspyrnu.
Ármann Sverrisson, 19 ára
menntaskólanemi. Hann er á
sínu fyrsta ári með meistarafl.
Lék síðasta sumar með meist-
arafl. KA í knattspyrnu og gat
sér góðan orðstír.
Bjarni Ingvason, 22 ára mat
sveinn. Hann er á fyrsta ári í
meistaraflokki.
Guðmundur E. Lárusson, 26
ára bankagjaldkeri. Hann hef-
ur leikið í fjögur ár með meist
araflokki.
Halldór Rafnsson, 26 ára tré
smiður. Hann hefur leikið 10-
ár með KA og þjálfaði hann
liðið síðasta keppnistímabil.
Þá lék hann með Haukum eitt
ár og einnig með ÍBA-liðinu á
sínum tíma. Tvö sumur lék
hann knattspyrnu. Halldór
varð íslandsmeistari í golfi I.
flokki árið 1970.
Haraldur Haraldsson, 19 ára
verkamaður. Hefur leikið með
meistarafl'. í þ'rjú ár. Haraldur
hefur einnig leikið þrjú ár
með meistarafl. KA í knattsp.
Haraldur Haraldsson, 20 ára
menntaskólanemi. Hann er á
fyrsta ári með meistarafl.
Hcrmann Haraldsson, 23 ára
bankastarfsmaður, hefur leik-
ið í sex ár með meistarafl.
Akureyrarmeistari í borðtenn
is. Leikið knattsp. og íshokki
til skamms tíma.
Hörður Hilmarsson (sjá ann
Texti og myndir:
JON EINAK
ars staðar á síðunni).
Jóhann Einarsson, 23 ára
stýrimaður, hefur spilað með
meistarafl. í þrjú ár.
Jóhann Jakobsson „Donni“,
23 ára rafvirkjanemi. Hann
hefur keppt fjögur ár með
meistarafl. Hann er vel þekkt-
ur úr knattspyrnunni en þar
hefur hann leikið í fimm ár
ýmist með ÍBA eða KA.
Jón Emil Ágústsson, 20 ára
bankastarfsmaður, hefur leik-
ið í eitt ár með KA, en þar áð-
ur með Dalvíkingum í þrjú ár.
Jón hlaut siifurverðlaun með
liði F. H. 2. flokki.
Magnús Þorvaldsson, 17 ára
nemi, er á fyrsta ári með
meistarafl. Á síðastl. sumri
keppti hann með meistarafl.
og 2. fl. KA í knattspyrnu.
Páll Kristjánsson, 18 ára
vélskólanemi, er á fyrsta ári
með meistarafl.
Sigurður Sigurðsson, 23 ára
húsasm.nemi, er á fyrsta ári
með KA. Sigurður hefur spil-
að í sex ár m. a. með Ólafs-
firðingum og Völsungum.
Stefán Arnaldsson, 17 ára
nemi, er á fyrsta ári í meist-
arafl. Lék á síðasta sumri með
fyrsta og öðrum flokki KA í
knattspyrnu.
Sverrir Mcldal, 18 ára tré-
■ sm.nemi, hefur leikið í tvö ár
með meistarafl.
Sigurður Jónsson, 18 ára
verkamaður, er á fyrsta ári
með meistarafl. Lék með 2. fl.
KA í knattspyrnu.
Þorleifur Ananíass. „Leibbi“
26 ára skrifstofumaður. Hann
er leikreyndasti maður KA.
Hann byrjaði 15 ára, þá
fyrst með ÍBA-liðinu en síðan
með KA. Leibbi varð annar
markhæsti leikmaður 2. deild-
ar á síðasta keppnistímabili,
sem er mjög góður árangur
hjá línumanni.
Ævar Stefánsson, 19 ára
verkamaður, er á sínu fyrsta
ári í meistarafl. Hann hefur
varið mark KA í meistara,
fyrsta og öðrum flokki í knatt
spyrnu á síðastliðnu sumri.
Hörður Hilmarsson.
fyrstu deildar sætið ÍR, KA og
KR. Ef til vill munu svo Þórs-
arar blanda sér inn í barátt-
una líka.
Spurning
vikunnar
Framhald af baksíðu.
kæru ef verðmerkingar yrðu
ekki komnar að þeim fresti
liðnum. Enn sem komið er
hefur enginn fengið kæru.
Þeir fáu sem enn eiga eftir að
verðmerkja hafa fengið okkar
samþykki og er ástæðan þá sú
að þeir eru að fara að skipta
um gluggaskreytingu og þykir
þá ekki taka því að merkja
vörurnar sem á að fara að táka
úr gluggunum.
Ég vil nota þetta tækifæri
til að lýsa ánægju minni yfir
viðbrögðum kaupmanna og
f jölmiðla sem hafa kynnt nýju
lögin rækilega fyrir neytend-
um. Hitt er svo annað mál að
mér finnst vanta ákvæði um
það hve stórir verðmiðarnir
eiga að vera. Ef örlítill miði
er settur á vöru í verslunar-
glugga eru margir sem alls
ekki geta lesið á þá. Þetta er
galli sem mætti leiðrétta með
því að setja föst ákvæði um
hvernig merkimiðarnir eiga að
vera.
Frá Lífeyrissjóðnum
Sameiningu
Sjóðsfélagar, það er í nóvember n. k., sem næst
verður úthlutað lánum. Þeir sjóðsfélagar, sem hug
hafa á lánum, þurfa að sækja um þau fyrir 31.
október n. k. og skila tilskyldum gögnum fyrir
sama tíma.
LÍFEYRISSJÖÐURINN SAMEINING.
Akureyringar —
Eyfirðingar
Höfum opnað SÖLUOP við verslun vora, þar sem
seldar verða allar vörur verslunarinnar.
Opið kl. 18,00 til 23,30, mánudaga til föstudaga.
Laugardaga kl. 12,00 til 23,30.
Sunnudaga kl. 10,00 til 23,30.
Kaupið allt á
sama stað
Sævar og
Bjarni hf.
KAUPVANGI V/MÝRARVEG. - SÍMI: 2-38-02.
2 - ÍSLENDINGUR