Íslendingur


Íslendingur - 27.11.1975, Blaðsíða 7

Íslendingur - 27.11.1975, Blaðsíða 7
Stöðvarhúsið fokhelt Framhald af forsíðu. Tjörvi Elíasson vélaverkfræð- ingur hafi verið ráðinn yfir- verkfræðingur virkjunarinn- ar,- Einar starfaði á sínum tíma við Kísiliðjuna. Eftir það fór hann til Englands til fram haldsnáms, en undanfarin ár hefur hann verið kennari við háskóla í Glasgow. Mun hann hefja störf hjá Kröfluvirkjun í byrjun desember. í lök samtalsins við Jón gat hann þess, að enn hefðu ekki komið fram nein vandamál sem ekki hefðu verið yfirstíg- anleg og vonaði hann að svo héldist. Sagði Jón að Kröflu- nefnd væri mjög virk og sam- starf nefndarmanna gott. Það væri takmark nefndarinnar að gera það sem hægt væri til að ljúka verkefninu á tilsettum tíma til hagsbóta fyrir norð- lendinga. g. s. Spurning vikunnar Framhald af baksíðu. stéttarstæðið og lokuðum skurðinum. Vegna dráttar sem varð á framkvæmdum bæjar- ins þarna var gripið til þess ráðs að breyta skipulaginu þannig að rafstrengurinn var líka settur í gangstéttarstæð- ið. Hefði þetta verið vitað frá byrjun hefði Síminn og Raf- veitan getað notað sama skurð og komist þannig hjá tvíverkn aði við uppgröft. En því miður var ekki svo í þetta skiptið. — Nú er hins vegar verið að leggja holræsin á vegum bæj- arins og eru þau lögð í skurð sem liggur milli gangstéttar- stæðisins og vegarins. Eftirlit með hundahaldi Framhald af miðsíðu. mínu. Það hefur meira að segja gengið svo langt að ég hef þurft að aka flækingshund um á lögreglustöðina þar sem þeir hafa verið teknir í vörslu lögreglunnar. Lögregian hefur tekið öllu minu „kvabbi“ sérlega vel og ég er alveg hissa hversu þolin- móð hún er í þessu máli því samkvæmt nýjustu reglum um hundahald ber lögreglunni ekki skylda til að aðstoða neitt í þessu máli. Mér var tjáð á lögreglustöðinni, að hunda- skatturinn, sem nú er 10 þús. kr., ætti að fara upp í laun handa gæzlumanni er hefði m. a. vandamál hundahalds í sínum verkahring. Ennfremur var mér sagt á lögreglustöð- inni að bæjarfógeti hefði ein- dregið sagt, að þetta starf væri alls ekki lengur í höndinn lög- reglu. Þegar ég svo hringdi í heilbrigðisfulltrúa og innti hann eftir þessu og þá einnig hvert ætti að snúa sér með þessi mál voru svörin á allt annan veg og heldur óljós, nema það, að öruggt væri að lögreglah ætti að sjá um þetta (lögreglan fær þó ekkert af hundaskattinum til umráða). Hvernig væri nú að hunda- eigendur tækju sig saman og gættu hunda sinna vel og stuðluðu með því að lausn þessa vandamáls úr því að of- annefndir aðilar geta það ekki? Anna María Jóhannsdóttir. KLEOPATRA með B-deild Tískuverslunin Kleopatra við Strandgötu á Akureyri hefur opnað nýja deild í versluninni, svokallaða B-deild. Þar verður á boðstólnum alls konar fatnaður á ungbörn og smáhlutir fyrir börn, en að- alálicrslan verður lögð á tæki færisfatnað. Tækifærisfatnað- urinn er aðallega innlend fram leiðsla. Til þessa hefur Kleopatra einungis verslað með kven- fatnað og hefur verslunin ver- ið opin síðdegis, en eftir til- komu B-deildarinnar verð- ur opið allan daginn. Eigend- ur Kleopötru eru Hjörleifur Hallgríms og Steinunn Ingólfs dóttir. Verkalýðsfélagið Eining: Fræðslu- fundur Föstudagskvöldið 28. þ. m. ræðir Bolli Thoroddsen hagræðingarráðunautur ASÍ um vinnurannsóknir, bónuskerfi og launaútreikning samkvæmt því á fundi í Þingvallastræti 14, kl. 20,30. Allir félagar í Einingu velkomnir, meðan húsrúm Ieyfir. FRÆÐSLUNEFND VLF. EININGAR. Z-' V' '* . ".'fT ' . V • BÆKUR Framhald af miðsíðu. Norðurlands. Er þeim skipt í fjóra flokka, I. Stór landslags- svæði, II. Strandlendi og eyj- ar, III. Votlendi og vötn og IV. Ýmsar landslagsminjar. Af stærri svæðum, sem SUNN leggur til að vernda sér staklega má nefna Bjarga- svæðið í V.-Hún., hluta Vatns- dals og Þings í A.-Hún. og hluta af Hegranesi í Skaga- firði. Leikfélag Akureyrar. Kristnihald undir Jökli Fimmtudag — uppselt. Föstudag — uppselt. Laugardag — uppselt. Sunnudag — uppselt. Næsta sýning þriðjudag. Miðasalan opin frá kl. 4— 6 alla daga. Pantaðir mið- ar óskast sóttir fyrir kl. 6 sýningardag. Seldir eftir það. - Sími: 1-10-73. LEIKFÉLAG AKUREYRAR. Vetrar- ævintýri í TÝRÓL Nú bjóðum við ferðir til ævintýraheima vetrar- íþróttanna í austurrísku Ölpunum, á einstaklega hagstæðu verði. Vikudvöl frá lcr. 48.260,00 — 2ja vilcna dvöl frá kr. 57.160,00. Innifalið í verðinu: Ferðir frá Akureyri, Gisting, Flugvallaskattar, Morgunverður og Kvöldverður. Hafið samband við söluskrifstofu okkar, Kaup- vangsstræti 4. — Símar 22005 og 22000 Flugfélag íslands Loftleiðir SPILAVIST Þriðja og síðasta umferðin verður spiluð í kvöld, 27. nóvember kl. 20,30 í Sjálfstæðishúsinu. Góð kvöld- og heildarverðlaun verða veitt! Að spilavistinni lokinni verður stiginn dans til kl. 1 e. m. Allir velkomnir! NEFNDIN. Ný íslensk pvjónabók Elin heitir ný íslensk prjóna- öllum geröum Gefjunargarns. bók, sem unnin er aö öllu leyti Stærö, verö og gæói bókarinnar hérlendis. eru svipuð og stærri prjónabóka á Elín birtir fjörutíu nýjar öðrum noröurlandamálum, sem uppskriftir, gerðar sérstaklega hér hafa verið notaóar um árabil. fyrir þessa bók, og fylgir lit- Gefjun hefur þessa útgáfu í mynd af hverri þeirra. Þar er þeirri von, að prjónabókin Elín megi aö finna flíkur á börn, unglinga bæöi örva til hannyrða og kveikja og fulloröna, mottur, teppi og nýjar hugmyndir listrænna kvenna púöa, prjónaö og heklað úr nær og karla, sem fitja upp á prjón. el m l 40 litprentaðar pijónauppshiftir ÍSLENDINGUR - 7

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.