Íslendingur - 31.03.1977, Side 8
Hagstæð
vöruskipti
í febrúar
Vöruskiptajöfnuður íslendinga
við útlönd varð hagstæður
um tæplega 800 millj. í febrú-
armánuði sl. Jöfnuðurinn varð
hinsvegar óhagstæður um
tæplega 1700 milljónir í janú-
ar, þannig að vöruskiptajöfn-
uðurinn er óhagstæður um
rúmlega 914 milljónir tvo
fyrstu mánuði ársins. í febrú-
armánuði i fyrra varð jöfnuð-
urinn óhagstæður um 800
millj. og þá var hann einnig
óhagstæður eftir svo fyrstu
mánuði ársins um tæplega
2.700 millj. Það verður þá að
hafa í huga, að meðalgengi
erlends gjaldeyris í janúar og
febrúar í ár, er talið 11.3%
hærra en það var á sama tíma
í fyrra.
Gjafir tíl
Geðdeildar
Gjafir og áheit, sem borist
hafa Geðverndarfélagi Akur-
eyrar.
1975
Áheit (Pálína Halldórsdóttir)
10.000. Áheit (Anna Kristjáns
dóttir) 5.000. Gjöf (Hallgrím-
ur Ingvarsson) 7.500. Gjöf
(Jórunn Guðmundsdóttir)
1.000.
1976
Gjöf (Anna Kristjánsdóttir)
1.000. Áheit (ónafngreint)
8.000. Áheit (Anna Kristjáns-
dóttir) 2.000. Gjöf (Pálmi og
Hjördís) 2.000. Gjöf til Geð-
fræðslu (,,S“) 5.000. Styrkur
(,,S“) 10.000. Styrkur (Guð-
borg Brynjólfsd.) 1.000. Áheit
(Sigurlaug J., Rvík) 4.000.
Félagið þakkar stuðning og
vinsemd.
Frumsýning LMA
,,8tríðinu4i
vel tekið
Sl. fimmtudag frumsýndi Leik
félag MA leikritið „Ó þetta er
indælt stríð“ undir leikstjórn
Þórhildar Þorleifsdóttur. Hús-
fyllir var á frumsýningunni
og leikendum vel tekið. Síðan
hefur „Stríðið“ verið sýnt á
Isafirði og á Akureeyri og allt
af fyrir fullu húsi og við góð-
ar undirtektir áhorfenda. Síð-
asta sýning verður í Samkomu
húsinu á Akureyri á laugar-
dagskvöldið og hefst hún kl.
20.30.
Atriði úr „Sköllóttu söngkonunni“. Jóhanna Birgisdóttir, Sóley Víglundsdóttir og
Bjarni Árnason. í hlutverkum sínum.
„Sköllótta söngkonan44
frumsýnd í Dynheimum
Á laugardaginn fruinsýnir leiklistarklúbbur, sem starfað
❖ liefur undanfarna 2 vetur á vegum æskulýðsráðs í Dyn-
heimum, Ieikritið „Sköllótta söngkonan“ eftir Ionesco.
Verður frumsýningin í Dynheimum og er Þórir Stein-
grímsson leikstjóri. Ionesco hefur sjálfur sagt um þetta
verk: „Sköllótta söngkonan er eina Ieikritið mitt, sem
hefur verið metið af gagnrýnendum, sem hreint grín, og
þá sem áður virðist mér grínið vera tákn þess óvenjulega,
og að mínu mati getur það aðeins risið upp úr litlausum
og Ieiðinlegum hversdagsleikanum.“
<►
< ►
❖
❖
Leiklistarklúbburinn hóf
starf veturinn 1975—’76 og
samanstendur hann af nem
endum í gagnfræða- og
menntaskólanum. Starfsem
in hófst með námskeiðs-
Söngskemmtun
í Hlíðarbæ —
Áhugafólk um söng og fé-
lagslíf í Glæsibæj arhreppi
stofnaði söngsveit Hlíðar-
bæjar haustið 1975. Síðan
hefur söngsveitin æft und-
ir stjórn Sigurðar Demetz
Franzsonar, en undirleik-
ari hefur verið Thomas
Jackman. Sl. sunnudag
heimsótti söngsveitin dval-
arheimilið í Skjaldarvík og
söng þar fyrir dvalargesti.
Annað kvöld, föstudaginn
1. apríl, mun söngsveitin
síðan yngja fyrir sveitunga
og nærsveitafólk og verður
það í félagsheimili þeirra,
Hlíðarbæ, sem áður var
þekíktara undir nafninu
„Kuðungur“, en þá var það
minna og lágreistara en nú
er.
Föstudaginn 15. apríl er
síðan fyrirhugað að halda
almenna söngsikemmtun í
Hlíðarbæ og daginn eftir
er ætlunin að hleypa heim
draganum og syngja að
Breiðumýri í Reykjadal.
í X
:\ - V
KV"'V
U
haldi og voru Þórir Stein-
grímsson og Saga Jónsdótt-
ir leiðbeinendur.
Um vorið var síðan frum
sýnt leikritið „Höfum við
gengið til góðs. . . eftir
Þóri og Þorstein Þorsteins-
son, kennara, en það leik-
rit hafði þá verið sett upp
í Vogaskóla í Reykjavík við
mjög góðar undirtektir og
met aðsókn. Akureyringar
sýndu leiklistarklúbbnum
og sýningunni ekki mikinn
áhuga, því miður. Það varð
þó ekki til að draga móð-
inn úr hópnum og í haust
hóf hann starfsemina á ný
af fullum krafti.
Þar kom, að stofna þurfti
nýjan klúbb, vegna mikill-
ar ásóknar í þann sem fyr-
ir var. Er hann venjulega
kallaður „yngri-deild“. Hef
ur sá klúbbur stundað nám
skeið og á Andrésar-Andar
leikunum, er haldnir voru
nýlega, fluttu meðlimir
kil úbbsins skemmtiatriði á
kvöldvöku í Skíðahótelinu.
Leikklúbbarnir hafa æft
einu sinni í viku í vetur, á
mánudögum, yngri klúbbur
inn fyrir kvöldmat en sá
eldri á eftir. Æfingar hafa
þó verið mun tíðari að und
anförnu vegna uppfærslu
„söngkonunnar”. Krakkarn
ir ráðast ekfci á garðinn þar
sem hann er lægstur, með
því að ráðast í þetta verk-
efni, en frumsýningin verð
ur í Dynheimum á laugar-
daginn eins og áður sagði.
I
Létt og lífleg
efnisskrá hjá
„GOÐA66
Karlakórinn Goði hyggst
halda söngskemmtanir víða
um Norðurland á næstunni.
Þegar hefur verið ákveðið að
syngja í Skjólbrékku föstudag
inn 1. apríl, Freyvangi laugar
daginn 2. apríl og hefjast
skemmtanirnar kl. 21. Síðan
mun kórinn syngja í Sjálf-
stæðiShúsinu fimmtud. 14.
apríl kl. 20.30.
Karlakórinn Goði var stofn
aður haustið 1972 og eru kór-
félagar úr fjórum hreppum
austan Vaðlaheiðar. Kórinn
hefur aðsetur og æfingar í
Stóru-Tjarnarskóla.
Frá upphafi hefur téfckneski
hljómsveitarstjórinn Robert
Bezdek stjórnað kórnum. Vet-
urinn 1975—6 dvaldi Robert í
heimalandi sínu og lá starf-
semi kórsins niðri þann tíma.
í haust fékk kórinn Robert aft
ur til starfa og hófust æfingar
1. október, en síðan hefur ver-
ið æft tvisvar í viku.
Söngskrá kórsins er af létt-
ara taginu og bólar lítið á hin-
um „klassisku" karlakórslög-
urn. Á efnisskránni má finna
tékknesk, pólsk, júgóslafnesk
og ítölsfc þjóðlög, ásamt negra
söngvum, syrpu úr „The
Sound of Music“ og eitt lag
er að finna eftir Oddgeir Krist
jánsson, en mörg fleiri lög eru
á efnissfcránni. Þá syngur
kvartett með kórnum og einn-
ig trio. Grímur Vilhjálmsson,
Erlingur Vilihjálmsson, Hreinn
Vilhjálmsson, Sigurður Árna-
son og Helgi R. Einarsson leika
undir á orgel, harmonikku,
trommur og guitara.
Varla f ullfrískur
irnaður
Ein'hverntíma sagði ágætur,
ónefndur læknir, að eftir því
sem fleiri heilsugæslustöðvar
og sjúkrahús væru byggð, því
fleiri yrðu veikir. Læknirinn
virðist hafa haft lög að mæla,
því í 1. tbl. „Smávegis“, sem
er blað starfsmannaráðs FSA,
má finna m. a. eftirfarandi
klausu: „Lækningarannsóknir
hafa tekið svo miklum fram-
förum, að nú finnst varla nokk
ur fullfrískur maður“!
GARDlNUBRAUTIR
Tréstangir og allir fylgihlutir
íbúðin, Tryggvabraut 22
Norðlendingar!
Sumaráætlun ÚRVALS
er komin
Ferðaskrifstofa Akureyrar
Ráðhústorgi 3