Íslendingur - 04.04.1978, Qupperneq 7
Armann Dalmannsson
Fæddur 12. september 1894 - Dáinn 22. mars 1978
Ármann Dalmannsson er
sigldur. Við horfum á eftir
honum með söknuði, en við
vitum að hann hlýtur góðan
byr. Góð samviska, réttsýni
og góðvild fylla seglin og
fleyinu er stýrt styrkri hendi
hins hægláta og varkára
manns. Jafnan var Ármann
athugull og tillitssamur.
Ekki man ég þess dæmi að
honum brygðist bogalistin í
samskiptum okkar íþrótta-
manna. Ágæt greind bar
hann jafnan rétta leið í
hverju máli. Hann var vel
íþróttum búinn. í leikfimis-
tímum brá hann sér oft í
handstöðu eða gekk góða
stund á höndum af frábæru
öryggi. Jafnan var Ármann
hlýr og hýr og yljaði þeim; er
hann átti samskipti við.
Hann var mannræktar og
jarðræktar maður, vel sjá-
andi og farsæll, vinsæll og
virtur.
Við hjónin þökkum hon-
um samskiptin og samfylgd-
ina og biðjum honunt bless-
unar á nýjum slóðum.
Sigrúnu konu Ármanns,
börnum þeirra og öðrum
vandamönnum öllum vott-
um við dýpstu samúð.
Hermann Stefánsson.
Hlynur Snær Þormóðsson
Fæddur 26. desember 1975 - Dáinn 26. mars 1978
Kveðja frá afa.
Nú er s/itinn strengur,
stærstu gleði minnar,
ómar ekki /engur
angrið litar kinnar.
Hlyninn unga héðan
höndin dauðans knýr,
klökku hjarta eg kveð hann
kvö/ í hug mér býr.
Vorsins kynja-kraftur
kveikir líf og trú. -
Enginn kemur aftur
alveg sami og þú.
Styrkið
neyöarvamir
RAUÐA KROSS ISLANDS
Læriö skyndihjálp!
RAUÐI KROSS ISLANDS
HITAVEITA AKUREYRAR
AUGLÝSIR
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem
vottuðu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför litla sonar okkar og bróður
HLYNS SNÆS ÞORMÓÐSSONAR
Skarðshlíð 30d.
Guð blessi ykkur öll.
Elínborg Árnadóttir, Þormóður Einarsson
og börn.
Alúðar þakkir færum við öllum þeim, sem auð-
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför
bróður okkar
GUÐMUNDAR STEFÁNSSONAR.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á
lyfjadeild og b-deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri. Einnig þökkum við hjúkrunarfólki og
starfsfólki dvalarheimilisins í Skjaldarvík fyrir
góða hjálp. - Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Stefánsdóttir,
Hallgrímur Stefánsson, Jón Stefánsson
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir og blessunaróskir til allra þeirra,
sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna and-
láts og útfarar
AUÐAR PÁLMADÓTTUR
Hafnarstræti 91.
Eiginmaður, börn, tengdabörn, barnabörn
og systkini hinnar látnu.
Akureyrarkirkja
Feriningarguðþjónusta í Ak-
ureyrarkirkju nk. sunnudag
kl. 10.30. B. S.
Lögmannshlíöarkirkja
Fermingarguðþjónusta nk.
sunnudag kl. 13.30. Sóknar-
prestar.
Aðalfundur Kvennasambands
Akurcyrar
verður haldinn að Lóni Gler-
árgötu 34 sunnudaginn 16.
apríl n.k. og hefst kl. 13.30
stundvislega. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Að loknum fundi
verða veitingar og skemmti-
atriði í tilefni af 25 ára afmæli
K.S.A. Allirmeðlimiraðildar-
félaganna velkomnir meðan
húsrúm leyfir. Þátttaka til-
kynnist formönnum félaganna
fyrir 10. apríl. Stjórnin.
Skíðagönguferð eftir Þor-
valdsdal
Ferðafélag Akureyrar efnir til
skíðagönguferðar eftir Þor-
valdsdal laugardaginn 8. apríl
kl. 10. Þátttaka tilky'nnist í
síma 23692 á föstudaginn frá
kl. 19 21.
Blaðabingóið
Fyrstu tölur í blaðabingói
Knattspyrnudeildar KA: B 10
- I 27.
Samkomur í Fíladclfíu
Fíladelfía Lundargötu 12. Op-
inber samkoma verður á
fimmtudaginn 6. apríl kl.
20.30. Ræðumaður verður
Garðar Ragnarsson. Aðeins í
þctta eina sinn. Svo eru sam-
komur hvern sunnudag kl.
20.30. Allir hjartanlega vel-
kornnir. Fíladelfía.
IJjálpræðishcrinn
MAJOR ANNA ONA heim-
sækir Akureyri og talar á sam-
komurn Hjálpræðishersins,
sem hér segir: Föstudag 7.,
hermannasamkoma, laugar-
dag 8. almenn samkoma; kl.
20.30 báða dagana, og sunnu-
dag kl. 17.00. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Aðalfundur Sjálfsbjargar
Aðalfundur Sjálfsbjargar á
Akureyri og í nágrcnni verður
haldinn að Bjargi laugardag-
inn 15. apríl kl. 14.00. - Dag-
skrá: Venjulcg aðalfundar-
störf og önnur mál. Mætið vel
og stundvíslega. - Stjórnin.
Hitaveitan
Framhald af bls. I.
plóginn við að gera hitaveituna
að veruleika og bað forseta
bæjarstjórnar, Stefán Reykja-
lín, að gangsetja dælu til merkis
um það, að Hitaveita Akureyr-
ar væri formlega tekin til starfa.
Síðan töluðu Stefán Reykja-
lín, Bjartmar Kristjánsson,
Gunnar Thoroddsen, Jakob
Björnsson og Gunnar A. Sverr-
isson, hitaveitustjóri, sem lýsti
framkvæmdum og framtíðar-
áætlunum. Ræða Gunnars
Thoroddsen er birt í heild á bak-
síðu blaðsins í dag.
Gunnar
Framhald af baksíðu
getur náð niður á svo mikið
dýpi. Árangurinn varð sá, að
grunnur var lagður að hita-
veitu Akureyrar.
Ég minnist ágæts fundar 10.
september 1975 með formanni
hitaveitunefndar, Ingólfi Árna
syni, og Stefáni Stefánssyni,
bæjarverkfræðingi, um þessar
jarðboranir og annan undir-
búning undir hitaveitu fyrir
Akureyri, sem og ánægjulegra
samskipta iðnaðarráðuneytis-
ins við Helga Bergs, bæjar-
stjóra, og aðra ráðamenn Ak-
ureyrar um þetta mál fyrr og
síðar.
Ég flyt ykkur öllum, sem
unnið hafið að þessu merka
framfaramáli, Akureyrarbæ
og Akureyringum, þakkir og
árnaðaróskir. En þjóðin öll
nýtur góðs af þessu glæsilega
og gagnsama mannvirki.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í lagningu 8. áfanga dreifikerfis
Hitaveitu Akureyrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu
Akureyrar, Hafnarstræti 88b, frá og með 4. apríl
1978.
Tiiboðin verða opnuð á skrifstofum Akureyrar-
bæjar, Geislagötu 9, Akureyri, mánudaginn 17.
apríl 1978 kl. 14.00.
HITAVEITA AKUREYRAR. ^
-kynning
í kvöld kl. 20 kynnum við pípulagningamönnum
og öðrum tæknimönnum Akureyrar Danfoss
hitastilliventla í Lóni, félagsheimili Karlakórsins
Geysis, Glerárgötu 34.
Á morgun, miðvikudag, verða sölumenn okkar til
kynningar og upplýsinga um Danfoss hitastilla
fyrir almenning að Hótel KEA, Gildaskála.
HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
Einkaumboðsmenn fyrir Danfoss á íslandi
ISLENDINGUR - 7