Íslendingur - 15.08.1978, Side 1
31. TÖLUBLAÐ . 63. ÁRGANGUR . AKUREYRI . ÞRIÐJUDAGINN 15. ÁGÚST 1978
Þar mun gamli ungmennafélagsandinn svífayfir vötnunum
Hverjir geta skotið skjólshúsi yfir fjölskylduheimili Sólhorgar?
/'i'—'--..
3r VÖRUSALAN SR • HAFNARSTRÆT1104 • AKUREVRI
g. VERZLAR í / VÖRUSÖLUNNI
^fi-/____
N.k. sunnudag, 20. ágúst, verður haldin fjölskylduhátíð á íþrótta-
svæði U.M.F. Bjarma austan við nýju Fnjóskárbrúna. Tilefni þess-
arar hátíðar er 70 ára afmæli ungmennafélagsins, en það var stofn-
að haustið 1908.
Reynt verður að miða efni
hátíðarinnar við alla aldurs-
flokka, og markmiðið er að
hinn gamli ungmennafélags-
andi verði alls ráðandi. Margt
og fjölbreytt efni verður flutt.
Níu vistmenn
húsnæðislausir
9 vistmenn Sólborgar eru húsnæðislausir og algert
neyðarástand fram undan ef ekki tekst að fá handa
þeim húsnæði, segir í fréttatilkynningu frá stjórn
heimilisins. Ástæðan fyrir þessu er sú, að húsnæði við
Oddeyrargötu, þar sem íjölskylduheimilið hefur verið til
húsa, var selt, en í staðinn keyptar íbúðir í blokk. Þær
íbúðir eru ekki tilbúnar ennþá og vantar tilfinnanlega
húsnæði til að brúa bilið. Gerðar hafa verið margar
tilraunir til að fá húsnæði, en án árangurs. Hér er um að
ræða sjálfbjarga vistmenn, sem eru þægilegir í
umgengni. Beinir stjórn heimilisins þeirri ósk til þeirra,
sem hugsanlega hafa yfir að ráða húsnæði til leigu, að
hafa samband við heimilið.
Fréttatilkynningin fer í heild
hér á eftir:
Sumarið 1975 festi Vistheim-
ilið Sólborg kaup á húseign að
Oddeyrargötu 32 hér á Akur-
eyri. Þá um haustið hófst þar
rekstur fjölskylduheimilis fyrir
hluta af vistmönnum Sólborg-
ar, og um leið var hafinn nýr
þáttur í starfsemi stofnunarinn-
ar.
R .stur fjölskylduheimilis
fyrir vangefna var þá nýmæli
hérlendis, en víða í nágranna-
löndum okkar, sérstaklega á
Norðurlöndunum, hafði þegar
fengist mjög góð reynsla af
starfrækslu slíkra heimila. Það
er nú almennt viðurkennt, að
þessi lausn á vistunarvanda
vangefinna sé mun eðlilegri og
æskilegri en vistun á stórum
stofnunum. Kemur par margt
til. í fyrsta lagi verða einstakling
unum búin skilyrði til uppeldis
og mótunar sem líkjast mjög
þeim kjörum, sem hinn almenni
framhald á blaðsíðu 2.
ÞAÐ hefur löngum verið vinsælt hjá yngri kynslóðinni að bregða sér í hjólreiða-
túr á góðviðrisdögum, og þá þykir tilheyra að hafa með sér nesti. Þessa
snaggaralegu krakka hittum við á leiðinni í Kjarnaskóg á dögunum, en þangað
ætluðu þau til að njóta veðurblíðunnar og borða nestið sitt. Raunar kvörtuðu þau
undan veginum inn að Kjarnaskógi, sem þau sögðu að væri harður, holóttur og
erfiður yfirferðar á reiðhjóli. Lái þeim það hver sem vill.
og má þar nefna eftirfarandi:
Helgistund: Sr. Bolli Gústavs-
son, - hátíðarræða: Sigurjón Jó-
hannsson skólastjóri á Húsa-
vík, - söngur, hljóðfæraleikur,
leikþáttur og á milli atriða mun
Lúðrasveit Tónlistarskólans á
Akureyri leika. Einnig verður
farið í leiki, svo sem reiptog og
pokahlaup, en i lokin verður
stiginn dans þar sem hljóm-
sveitin HVER mun spila bæði
nýju og gömlu dansana. Hátíð-
inni verður svo slitið með varð-
eldi og flugeldasýningu.
Hátíðin mun hefjast kl. 14 -
og verður hún samfelld til kl. 21.
Veitingar verða veittar eins og
hver getur í sig látið, en einnig
verður gosdrykkja- og sælgætis-
sala.
Gamlir Bjarmafélagar og
burtfluttir Fnjóskdælingar eru
innilega velkomnir, og rétt erað
geta þess að aðgangseyrir er
enginn.
Formaður Ungmennafélags-
ins Bjarma í Fnjóskadal er
Hermann Herbertsson Sigríð-
arstöðum, en framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar er sr. Pétur
ÞöVarinsson Hálsi.
Íslendíngur
kemur nœst út þriðju-
daginn 19. september.
Efni þarf að hafa
borist fyrir 15. sept.
í leiðara fjallar Gísli
Jónsson um bjánaskap
Alþýðubandalagsins.
Á baksíðu er sagt frá
Bílaklúbbi Akureyrar,
sem á næstunni gengst
fyrir sandspyrnukeppni
og torfæruakstri. Þar er
einnig sagt frá þriðja
vinningshafanum í vin-
sældarkjöri blaðsins í
knattspyrnunni, minn-
ingarleiknum annað
kvöld og nætursölu,
sem ESSO-nestin hafa
sótt um.
Því
miður,
sumar-
frí
Fyrr í sumar vorum við búin
að lofa lesendum því, að fs-
lendingur tæki sér ekki sum-
arfrí. Því miður reynist ekki
unnt að standa við það lof-
orð. Við á ritstjórninni þurf-
um okkar frí eins og aðrir og
þar sem ekki reyndist unnt
að fá fólk til afleysinga, þá
sjáum við okkur ekki annað
fært en að fella niður út-
komu íslendings í 4 vikur.
Þetta er okkur ekki ljúft, því
t.d. sl. árfór íslendingurekki
í sumarfrí, en það er ekki um
annað að ræða nú. Þetta er
líka slæmt vegna þess, að ís-
lendingur hefur verið í stöð-
ugri sókn á undanförnum ár-
um, en allt síðan 1974 hefur
útbreiðsla blaðsins aukist
jafnt og þétt, jafnvel svo að
sumum ónefndum er farið að
verða um og ó. Þykir þeim
því tilheyra að dylgja um
upplag íslendings, sem hefur
vaxið úr tæplega tveim þús-
undum 1974, upp í 3.000 í
dag. En hvað um það, sum-
arfríið verður ekki umflúið,
en íslendingur kemur út að
því loknu, hress og endur-
nærður. Á meðan verða
menn að láta sér nægja Dag
og Norðurland, en geta þó
huggað sig við að bráðum
komi betri tíð, - með íslend-
ing. Bless á meðan.
Golf-
kennsla
Þorvaldur Ásgeirsson, goll-
kennari, mun kenna golf á Jað-
arsvellinum dagana 18. til 25.
ágúst á vegum Golfklúbbs Ak-
ureyrar. Geta nienn fengið
hvort heldur þeir vilja einka-
tíma eða leiðbeiningar í 2ja 3ja
manna hópum. Golfíþróttin
hefur notið vaxandi vinsælda á
undanförnum árum og er bvrj-
endum sérstaklega bent á að
notfæra sér þetta tækifæri.
íslendingur
Meðal efnis í blaðinu
f opnu er fjallað um yfir
standandi viðgerð á
Laxdalshúsinu, elsta
húsi bæjarins. Þar er
einnig fróðleg grein eft-
ir Helga Hallgrímsson,
grasafræðing, þar sem
hann fjallar um maura,
m.a. þá sem nú herja á
garða Akureyringa.
HF
2-3802 *Gf 1-9810
KAUPANGI
STÆRRI RUÐ
MEIRfl VflRUVflL - BETRI ÞJÚWUSTA
Fjölskylduhátíð
í Fnjóskadal