Íslendingur - 15.08.1978, Síða 4
Útgefandi:
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Dreifing og afgreiðsla:
Ritstjórn og afgreiðsla:
Ritstjórn sími:
Dreifing og auglýsingar:
Áskriftargjald:
Lausasala:
Prentgn / offset:
Islendingur hf.
Gísli Sigurgeirsson
Jóna Arnadóttir
Ráðhústorgi 9
21501
21500
kr. 1.000 á ársfjórðungi
kr. 100 eintakið
Skjaldborg hf.
Að stjórna landinu
Sólin skín, og jörðin ber ávöxt. Dag eftir dag aka
bændur ilmandi töðu í hlöður sínar, ótrauðir og
afkastamiklir. Landburður af fiski er í mörgum
verstöðvum. Menn njóta sigursins í landhelgis-
málinu og skynsamlegra friðunarráðstafana. Um
allt land er starfað að hverskonar smíðum og
iðnaði. Fram til þessa hefur hver nýt og vinnufús
hönd haft verkefni við sitt hæfi. Landið er gott.
Gróðurmoldin og fiskimiði eru gjöful. Takmarka-
lítil orka er í fallvötnum og iðrum jarðar. island er
framtíðarland.
Og það er öfundsvert hlutskipti að vera
íslendingur. Við búum við frelsi og frið. Við erum
stríðalin andlega og líkamlega. Við höfum meira
en nóg að bíta og brenna. Við erum hraust. Við
erum vel búin að verkfærum og tækjum.
En nú bregður svo undarlega við, að þeir menn,
sem fyrir skemmstu sögðust albúnir að stjórna
landi og lýð, ef þeir fengju til þess fylgi, virðast allt
í einu hafa misst áhugann á slíku eða þá kjarkinn til
þess. Nú eru þeir fleiri en vænst var sem skorast
undan því að stjórna þessu blessaða landi og
þessari dugmiklu þjóð.
Mesta athygli verkur, að sá flokkur, Alþýðu-
bandalagið, sem þjóðin gerði í fyrsta sinn
næstmestan að kjörfylgi, þó litlu nemi, hefuralveg
afþakkað umboð það, sem hann fékk, nema þá að
hann fái einn öllu ráðið. Alþýðubandalaginu stóð
til boða að mynda stjórn með helsta sigurvegara
kosningnanna annars vegar og stærsta flokki
þjóðarinnar hins vegar. Þessum kosti hafnaði
Alþýðubandalagið óséð, án þess svo mikið sem
prófa hversu stefnu flokksins hefði mátt koma
fram í þvílíku samstarfi. Alþýðubandalaginu var
einnig boðið upp á svokallaða vinstri stjórn. Það
tók þátt í málamyndaviðræðum, og brátt kom í Ijós
að þær voru aðeins sviðsetning til þess að fá betri
vígstöðu í áróðursstríði við Alþýðuflokkinn. Ekki
hafði Alþýðubandalagið heldur haft áhuga á að
mynda minnihlutastjórn með Alþýðuflokknum við
hlutleysi Framsóknar. Alþýðubandalagið taldi og
öll tormerki á myndun þjóðstjórnar.
Leitun mun vera á öðru eins ábyrgðarleysi og
bjálfahætti og ekki að undra, þótt Sighvatur
Björgvinsson, alþingismaður segir í Morgunblað-
inu að kjósendur Alþýðubandalagsins hefðu alveg
eins getað skilað auðu, enda eru nú verkalýðsleið-
togar flokksins teknir að klóra í bakkann þó seint
sé.
En því meira ábyrgðarleysi sem næststærsti
flokkur þjóðarinnar sýnir af sér, þeim mun þyngri
kvöð fellur á herðar hinna flokkanna að bregðast
ekki trausti kjósenda sinna. Óleyst vandamál
hrannast upp í stjórnleysi og við ætlumst ekki til
þess að leiðtogar okkar sitji með hendur í skauti
meðan Rómaborg brennur. íslenskt þingræði
verður nú að sýna mátt sinn, annars er það feigt.
Til hvers buðu menn sig fram til þings í síðustu
kosningum? Til hvers kusum við menn á bing í
síðustu kosningum? TIL ÞESS AÐ STJORNA
LANDINU EFTIR LEIKREGLUM ÞINGRÆÐISINS
og héldum að það yrði gert. Eða hvað. Eru þeir
menn kannski fleiri en við ætluðum í hópi sjálfra
þingmanna sem vilja þingræðið feigt og er ósárt
þó að Rómaborg brenni til ösku? Sé svo, ætti ekki
að saka þótt slíkir menn sætu utan ríkisstjórnar.
11.8.78 G.J.
Unnið að viðgerðinni ú Laxdalshúsi qf fuHum krafti
HUSIÐ REYNDl
MJÖG ILLA FAl
- Heita mátti að fótstykki hússins vœri algerlega horfit
Viðgerð á Laxdalshúsi, elsta húsi Akureyrar, er nú í fullum gangi og
er stefnt að því að loka húsinu fyrir veturinn, þ.e. klæða það að
utan, gera við þakið og negla fyrir glugga. Það er Sverrir
Hermannsson, smiður, sem sér um verkið, en ásamt honum vinna
við smíðarnar Jón Árnason og Helgi Hallsson, en handlangari er
Óli Valur, sonur Jóns.
Að sögn Sverris var húsið
mjög illa farið, sérstaklega
undir steinkantinum, sem
steyptur var með húsinu að
neðanverðu fyrir lOOáraafmæli
Akureyrarkaupstaðar 1962.
Stoðir og fótstykki mátti heita
horfið, sagði Sverrir, en ofan til
var húsið ekki eins illa á sig
komið. Þó er klæðningin undir
járninu á þakinu ónýt, en ekki
er mikill fúi í skarðssúðinni,
sem þar er undir.
• Þá var ekki
hlaupið í
nœstu búð
Þegar steinkanturinn var
brotinn utan af húsinu kom r
ljós, að mikið vatn var undir
húsinu. Reyndist vera þar kjall-
ari að sunnanverðu, en vatnið
kom úr biluðu inntaki í húsið.
Sagði Sverrir að sér virtist húsið
nokkuð vel byggt miðað við
aldur. Grindin væri þó gerð úr
heldur lélegu efni, en klæðning-
in væri góð, cn það verður líka
að taka mið af því, að á þeim
tíma, sem húsið var byggt, þá
var ekki hlaupið út í næstu búð
eftir efni.
Sverrir hefur fengist mikið
við viðgerðir á gömlum húsum.
Hann hefur t.d. unnið að
viðgerð á Túliníusarhúsinu
ásamt félögum sínum og nú
hefur hann tekið að sér viðgerð
á Grundarkirkju, sem er orðin
illa farin. Sagði Sverrir gömlu
húsin standa fyrir sínu, mörg
hver byggð úr góðum viðum, en
mörg dæmi væru þess að
naglarnir væru orðnir tærðir,
jafnvel gersamlega horfnir, svo
með ólíkindum væri hvernig
gömlu húsin tylldu saman. Að
lokum gat Sverrir þess, að
tilfinnanlega vatnaði gamlar
myndir af vesturhlið Laxdals-
hússins og ein vantaði mynd
af austurhliðinni, þar sem dyrn-
ar sæjust greinilega.
Viðgerðin á Laxdalshúsinu er
gerð samkvæmt sérstakri sam-
þykkt bæjarstjórnar, en stjórn
húsfriðunarsjóðs hefur í reynd
haft umsjón með framkvæmd-
unum. Erviðgerðinfjármögnuð
með tekjum sjóðsins, svo langt
sem þær ná, en það sem upp á
vantar hefur bæjarsjóður
ábyrgst.
• Oft hefur verið
þétt setinn
bekkurinn
í Laxdalshúsi
Viðgerðin á Laxdalshúsi er
framkvæmd í samráði við Þjóð-
minjasafnið og hafa þeir Hjör-
leifur Stefánsson, arkitekt og
Hörður Ágústsson verið við
úttekt á húsinu. Verður lögð
áhersla á að færa húsið í sitt
upprunalkega horf, eftir því
sem frekast er unnt, samkvæmt
gömlum lýsingum, teikningum
og myndum. Húsið er langelsta
húsið á Akureyri, það eina sem
uppi stendur frá I8. öldinni,
byggt 1795. Húsið er kennt við
Eggert Laxdal, sem var faktor
hjá Gudman kaupmanni á
Akureyri, og bjó lengi í húsinu.
Hins vegar var það upphaflega
byggt fyrir starfsfólk annars
kaupmanns, sem starfaði á
Akureyri fyrir aldamótin 1800.
Húsið hefur lengi verið í eigu
Akureyrarbæjar, sem hefur
leigt það út. Var oft mannmargt
þar, jafnvel fjórar stórar fjöl-
skyldur, cn hægt var að skipta
húsinu í fjórar íbúðir. Þær voru
hins vegar litlar og hefur því oft
verið þétt setinn bekkurinn í
Laxdalshúsi.
Hér er Sverrir að vinna við að rétta
Hér er\i þcir Jón Árnason og Helgi Hallsson að gera við grindina, sem s
Laxdalshúsið cins og það lítur út í dag. Verið er að steypa sökkul undir grind
grjóthleðslum, sem voru að mestu horfnar.
4 -ÍSLENDINGUR