Íslendingur - 27.03.1979, Side 6
.íþróttir...umsjón Einar Pálmi og Ragnar Þorvaldsson...xþróttir...íþróttir...íþróttir...íþróttir.
Þórs-
stelpumar
unnu F.H.
Þórsstúlkurnar sýndu það
og sönnuðu á laugardag
hvað í þeim býr er þær lögðu
stöllur sínar úr FH. að velli.
Þær sigruðu í leiknum með
18 mörkum gegn 15 eftir að
jafnt hafði verið í leikhléi 9-
9.
Fyrir leikinn var lið Þórs í
neðsta sæti deildarinnar en lið
F.H. var í fyrsta sæti. Það
bjuggust því flestir við F.H.
sigri. Þórsstúlkurnar voru þó á
öðru máli og léku nú sinn besta
leik í vetur með fyrrgreindum
afleiðingum. Eftir jjennan sigur
verður að teljast líklegt að
stelpunum takist að halda sér í
deildinni. Liðið á báða leiki
sína eftir gegn Breiðabliki, sem
af flestum er talið slakasta lið
deildarinnar. Auk leikjanna við
Breiðablik eiga stelpurnar eftir
að heimsækja lið Vals og F.H.
Þá Ieiki skal þó enginn bóka
tapaða, þar sem liðið er nú á
hraðri uppleið og ætiar sér
greinilega að halda sæti sínu í
fyrstu deild á næsta ári. Mörk
Þórs i leiknum gerðu þær
Hanna Rúna 7. Anna Gréta og
Magnea gerðu 3 hvor, tvö mörk
gerðu þær Guðrún og Harpa og
Aðalbjörg gerði 1.
e.p.á.
• •
r
1
NUERBARA AÐ
BÍÐA OG VONA
- KA-menn í biðstöðu eftir sigur í síðasta leik sínum
Á laugardag léku KA-menn sinn síöasta leik í annari deild Islands-
mótsins í handknattleik er þeir fengu lið Stjörnunnar í heimsókn.
Heimamenn sigruðu nokkuð öruggt með 25 mörkum gegn 22, sem í
raun þýðir möguleika á fyrstu deildar sæti næsta ár. Eins og staðan
er í dag geta leikmenn liðsins þó aðeins beðið og vonað þar sem
mörgum leikjum er enn ólokið og mörg lið um efstu sætin.
Það gekk lítið sem ekkert hjá KA
fyrstu mínútur leiksins. Sjö fyrstu
sóknarlotur liðsins runnu allar út í
sandinn og var staðan orðin 2-0
Stjörnunni í vil er Þorleifurskoraði
glæsilegt mark fyrir KA. Við þetta
breyttist allur leikur liðsins og rak
nú hvert markið annað. KA komst
fljótlega í 8-4 og í leikhléi leiddu
þeir með sex mörkum 13-7. Ef frá
eru taldar fyrstu 10 mínúturnar
lék KA-liðið mjög vel og virðist nú
sem liðið hafi loks náð tökum á
þeim hraða sem einkennt hefur leik
liðsins í vetur. Síðari hálfleikurinn
bar nokkurn keim af þeim fyrri
nema hvað Stjörnumenn heldur
sóttu í sig veðrið, en þrátt fyrir það
var sigur KA aldrei í neinni hættu.
KA-menn tóku það ráð að setja
mann til höfuðs Herði Hilmars-
syni leikinn út. Við það riðlaðist
leikur Stjörnunnar, enda Hörður
höfuðpaur í öllu spili liðsins. KA
með þá Jón Árna, Alfreð og Þor-
leif í broddi fylkingar náðu oft á tíð-
um að sýna góðan leik. Þessir þrír
menn gerðu 23 af 25 mörkum liðs-
ins enda eðlilegt þegar menn eins og
Gunnar Gíslason skjóta ekki á
markið í heilar 60 mínútur. En eins
og áður sagði er liðið nú í hálf-
gerðri biðstöðu með 18 stig, en tím-
inn einn getur skorið úr um hvort
þessi góði endasprettur liðsins á
mótinu hafi komið full seint.
Mörk liðsins gerðu þeir Jón Árni
11(5), Alfreð 7, Þorleifur 5 og þeir
Jóhann og Hermann gerðu sitt
markið hvor.
e.p.a.
Oldunga-
mót
blaki
Helgina 20 - 21. apríl verður
haldið öldungamót í blaki á
Akureyri. Þátttökurétt eiga þeir
karlmenn sem verða 30 ára á
árinu og konur sem verða 25
ára. Hins vegar eru þeir leik-
menn, sem leikið hafa í deildar-
keppninni á árinu ekki gjald-
gengir. Þátttökugjald er kr.
20.000 á lið og sendist með
tilkynningu um þátttöku til
Guðmundar Péturssonar, Stór-
holti 4, Akureyri, sími 21469, og
og gegur hann allar nánari
upplýsingar.
Tryggvi
skoraði
sigur
markið
A þriðjudagskvöldið léku
Þórsarar við Armann í Skemm-
unni á Akureyri og var leikur-
inn liður í bikarkeppni HSI. Var
leikurinn jafn og úrslitin ekki
ráðin fyrr en á lokasekúndun-
um. Þegar um 5 sek. voru eftir af
leiknum varði Tryggvi skot
Péturs Armennings og sendi
boltann umsvifalaust yfir
endilangann völlin og í mark
Ármanns um leið og flauta
tímavarðar gall. Leikmenn og
áhorfendur voru nokkur
augnablik að átta sig á hvað
hafði gerst, en þegar það var
ljóst að Tryggvi hafði skorðað
sigurmark Þórs, þá urðu mikil
fagnaðarlæti og Tryggvi toller-
aður af félögum sínum. Sigur
Þórs var því staðreynd, 24 mörk
gegn 23, þótt Ármenningarnir
spiluðu að mörgu leyti betri
handbolta. Td. var kostulegt að
sjá hvernig þeir spiluðu sig inn
úr vinstra horninu hjá Þór í
hverri sóknarlotunni á fætur
annarri í seinni hálfleik, og
skoruðu eða fiskuðu víti. Með
Sigtryggur ógnar í leik Þórs og Ármanns.
þessum hætti náðu þeir 6
mörkum í röð án þess að
Þórsarar ættu nokkuð svar.
Sigurður Sigurðsson var bestur
hjá Þór og Sigtryggur átti einnig
ágætan leik í sókninni.
Akureyrarniót á skíðum
97.91
Akureyrarmót barna á aldrin-
um 7 til 12 ára fór fram í Hlíðar-
ljalli laugardagana þriðja og
tíunda mars, en fremur óhag-
stætt veður setti svip sinn á
mótið. Keppt var bæði ísvigi og
stórsvigi og urðu Akureyrar-
meistarar sem hér segir:
3. mars. STÓRSVIG.
7 ára stúlkur.
1. María Magnúsdóttir 71.8
2. Rakel Reynisdóttir 83.7
3. Sigríður Harðardóttir 85.1
7 ára drengir.
1. Vilhelm Már Þorsteinsson 68.t
2. Sverrir Ragnarsson 79.9
3. Magnús Teitsson 86.0
8 ára stúlkur.
1. Þorgerður Magnúsdóttir 77.0
2. Sólveig Gísladóttir 77.7
3. Bryndís Viðarsdóttir 85.7
8 ára drengir.
1. Jón Ingvi Árnason 65.9
2. Kristinn Svanbergsson 66.8
3. Jón Harðarson 69.9
6 - ÍSLENDINGUR
9 ára stúlkur.
1. Kristín Hilmarsdóttir 67.7
2. Laufey Þorsteinsdóttir 71.6
3. Kristín Jóhannsdóttir 72.3
9 ára drengir.
1. Jón M. Ragnarsson 68.2
2. Jón Halldór Harðarson 69.6
3. Jónas Einarsson 72.5
10 ára stúlkur.
1. Arna ívarsdóttir 111.5
2. Sigríður H. Sigurðard. 119.3
3. Erla Björnsdóttir 120.1
10 ára drengir.
1. Gunnar Reynisson 102.7
2. Vignir Bjartsson 103.1
3. Birgir Björnsson 106.7
11-12 ára stúlkur.
1. Guðrún M. Magnúsdóttir 98.9
2. Signa Viðarsdóttir 107.3
3. Anna María Malquist 110.0
11-12 ára drengir.
1. Guðmundur Sigurjónsson 94.5
2. Tryggvi Haraldsson 95.4
3. Ólafur Hilmarsson 96.8
10. mars. SVIG.
7 ára stúlkur.
1. María Magnúsdóttir 57.7
2. Eva Jónasdóttir 70.5
3. Sigríður Harðardóttir 73.2
7 ára drengir.
1. Vilhelm Þorsteinsson 56.1
2. Sverrir Ragnarsson 56.4
3. Sævar Guðmundsson 62.3
8 ára stúlkur.
1. Þorgerður Magnúsdóttir 61.1
2. Bryndís Viðarsdóttir 68.5
3. Sólveig Gísladóttir 70.5
8 ára drengir.
1. Jón Ingvi Árnason 52.0
2. Kristinn Svanbergsson 53.0
3. Jón Harðarson 56.9
9 ára stúlkur.
1. Kristín Hilmarsdóttir 59.5
2. Hulda Svanbergsdóttir 59.6
3. Þóra Víkingsdóttir 61.6
9 ára drengír.
1. Kári Ellertsson 56.9
2. Jón M. Ragnarsson 59.6
3. Jón H. Harðarson 62.1
10 ára stúlkur.
1. Árna ívarsdóttir 92.61
2. Erla Björnsdóttir 96.08
3. Sogríður H. Sigurðard.
10 ára drengir.
1. Vignir Bjartsson 89.58
2. Hilmir Valsson 89.88
3. Aðalsteinn Árnason 90.43
11-12 ára stúlkur.
1. Signe Viðarsdóttir 95.90
2. Guðrún Jóna Magnúsd. 100.67
3. Guðrún Kristjánsdóttir 100.92
11-12 ára drengir.
1. Guðmundur Sigurjónsson 86.73
2. Smári Kristinsson 90.74
3. Ólafur Hilmarsson 91.22
Tvö naum
töp Þórs
- og vonir í 2. deild-
inni og Bikarnum
urðu að engu
Á föstudagskvöldið léku Þórs-
arar gegn Þrótti í 2. deildinni í
handknattleik og var leikið í
Reykjavík. Eftir að Þór hafði
haft frumkvæðið í leiknum, leitt
í leikhléi 9-7 og náð þriggja
marka forustu 16-13 er níu
mínútur voru til leiksloka datt
allur botn úr leik Iiðsins og
Þróttarar sigruðu á síðustu
mínútunum 21-20. Þar með er
fyrstudeildar draumur Þórs úr
sögunni að þessu sinni, en liðið
hefur haft möguleika á einu af
efstu sætum deildarinnar fram
að þessu. Markahæstir Þórsara
voru Sigurður Sigurðsson 10,
og Arnar Guðlaugs með 5
mörk.
Á laugardaginn léku Þórsar-
ar gegn fyrstu deildar liði 1R í
átta liða úrslitum Bikarkeppn-
innar og töpuðu einnig naumt
23-22 eftir að Þór hafði leitt í
leikhléi 13-11. Þórsarar höfðu
lengst af yfirhöndina, náðu
góðri byrjun, og eftir sextán
mínútna leik stóð 5-2 fyrir Þór
og síðan 9-5, en eftir það tók
leikurinn að jafnast og sigu 1R-
ingar fram úr í síðari hluta
seinni hálfleiks og unnu eins og
fyrr segir 23-22. Markahæstir
Þórsara voru Sigurður 6, og
Gunnar, Sigtryggur og Guð-
mundur 3 mörk hver. e.p.á.
Slæmur
skellur
Þórs í
körfunni
- Töpuðu fyrir Val
með 78 stigum
gegn 143
Körfuknattleikslið Þórs hélt til
Reykjavíkur síðastliðið föstu-
dagskvöld til leiks við Val í úr-
valsdeildinni.
Valsmenn sýndu algjöra yfir-
burði og gjörsigruðu áhugalitla
Þórsara 143-78 eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 72-37 Val í
vil. Eins og tölurnar gefa til
kynna voru Valsmenn mörgum
gæðaflokkum betri og eru þeir
núefstirídeildinniásamt KRog
leika gegn þeim til úrslita um
íslandsmeistaratitilinn 1979.
Þórsarar segja nú skilið við
úrvalsdeildina að sinni eftir að
hafa hafnað í neðsta sæti.
Mörgum leikjum hafa þeir tap-
að naumt, en herslumuninn
vantaði, dýrmæt reynsla hefur
eflaust fengist sem á eftir að
skila sér, er þeir mæta til leiks
í 1. deild að ári.
Þriðji æfingaleikurin
KA vann nú 2-0
Akureyrarliðin í knattspyrnu
léku nú um helgina æfingaleik.
Þetta er þriðji æfingaleikurinn
milli félaganna og er gott til þess
að vita hversu mikil og góð
samvinna er að komast á milli
þessara gömlu erkifjanda. Það
skal þó tekið fram að leikir þess-
ir eru eingöngu æfing, þar sem
þjálfatar liðanna eru að prófa
menn, ef svo má að orði kom-
ast. Úrslit sjálfra leikjanna
skipta minnstu, þó svo að innst
inni þyki mönnum sigur alltaf
kærkominn, ekki síst ef tillit er
tekið til þess hvaða lið eiga í
hlut. Úrslit þessa leiks urðu
KA 2 Þór 0. e.p.á.