Íslendingur - 27.03.1979, Blaðsíða 7
Mesti
leiksigur Þráins
Síðastliðinn föstudag frum-
sýndi Leikfélag Akureyrar
Sjálfstætt fólk eftir Halldór
Laxnes í leikgerð Baldvins
Halldórssonar, sem jafn-
framt er leikstjóri. Sjálf-
stætt fólk var talsvert um-
deild bók þegar hún kom
út, eins og reyndar fleiri
verk þessa höfundar frá
þeim tíma. En ekki fór þó
hjá því, að ýmsir þættust
þekkja sögupersónurnar og
töldu að skáldið væri að
Iýsa ákveðnu fólki og
fegraði það síður en svo í
þessari sögu. Þetta hafði þó
ekki við nein rök að styðj-
ast. En sagan er svo meist-
aralega gerð, að Bjartur í
Sumarhúsum þekkist hvar
sem er í heiminum ef vel er
að gáð.
Hann er ekki séreinkenni fyrir
íslenskan einyrkjabónda þó
skáldiö setji hann niður á heiða-
koti á íslandi.
í eftirmála að Sjálfstæðu fólki
segir höfundurinn m.a. - „ég hafð-
ist við á Austurlandi um nokkurra
mánaða skeið 1926 og var að for-
vitnast dálítið um ævikjör kot-
bænda í afdölum og til heiða, en
þeirra kjör hafa að vísu verið söm
við sig frá upphafi íslandsbyggð-
ar, og reyndar í aungvu höfuð-
atriði frábrugðin kjörum kot-
bænda annarsstaðar í heiminum,
og þetta er ein höfuðorsök þess að
Bjartur í Sumarhúsum skilst í öll-
um löndum heims, hann er al-
þjóða borgari íslands af því að
hann er alþjóða borgari heimsins.
Og það er ekki aðeins í strjálbýli
sveita sem þessi manngerð á
heima, hliðstæða hans og furðu
nákvæm líking er hver sá maður
er berst með svipaðan efnahag og
hugsunarhátt fyrir lífi sínu og síns
hyskis í stórborgum. Ég minnist
þess, að skömmu eftir að Sjálf-
stætt fólk kom á prent í Banda-
ríkjunum, vitjaði mín gáfaður
bandaríkjamaður, sem af háttunj
sínum að dæma var stórborgari,
og sagðist hafa staðnæmst á flug-
höfn hér milli ferða til að ræða við
mig um Bjart í Sumarhúsum,
hann sagði mér meðal annars þau
tíðindi, sem mörgum mönnum
mun þykja undarleg þó ekkert
væri fjær því að koma flatt uppá
mig. að í einni saman Newyork-
borg væru miljónir manna sem
lifðu í öllum aðalatriðum svona
hérumbil nákvæmlega eins og
Bjartur í Sumarhúsum og fjöl-
skylda hans, ekki aðcins viösömu
kjör efnalega, heldur sama liugs-
unarhátt og siðferðislögmál."
Höfundurinn var mörg ár að
undirbúa þetta vcrk. Hann byrj-
aði á ófullkomnum drögum 1929,
en honum verður fljótt ljós þekk-
ingarskortur á efninu og það er
ekki fyr en þremur árum síðar að
hann hefur heyjað sér til viðbótar
svo hann þorir að hefja verkið í
alvöru. Hann hafði ferðast um
sveitir landsins, kynnst reynslu
fjölda fólks og sérstaklega reynt
að setja á sig íslenskt alþýðumál
og eins og hann segir í áðurnefnd-
um eftirmála: - „í tungutaki þessa
fólks og ekki annarsstaðar stend-
ur akademia íslensk. Af þessu
fólki hef ég lika lært þá einu ís-
lensku sem einhvers er um vert."
En honum nægði ekki sú þekk-
ing sem hann hafði aflað sér hjá ís-
lensku bænda og alþýðufólki
heldur bregður hann sér til Rúss-
lands til þess að kynna sér stöðu
bænda í þjóðskipulaginu þar og
segir að þau kynni hafi í raun lok-
ið upp fyrir sér öllu vandamálinu
og gcrt sig hæfan að færast það í
fang í fullri birtu á þjóðfélagsleg-
um grunni.
Þegar svo á að færa þetta stór-
brotna verk í leikritsform hlýtur
manni að vera mikill vandi á
höndum, því alltaf verður það
matsatriði hverju á að sleppa og
hvað á að taka með.
Mér sýnist að Baldvin Hall-
dórsson hafi unnið þarna frábært
verk, hann hefur dregið upp heil-
steypta mynd af lífsbaráttu Bjarts
í Sumarhúsum svo að saga þessa
einyrkja bónda kemst nánast öll
til skila og sýningin verður svo
heilsteypt að maður verður þess
svo að segja ekki var, að hér sé
verið að sýna þætti úr stóru verki.
Þá er og leikstjórn Baldvins sér-
lega vönduð eins og vænta mátti
frá hans hendi.
Langmestur þungi þessarar
sýningar hvílir á herðum Þráins
Karlssonar, sem leikur Bjart í
Sumarhúsum. Mér er til efs að
hann hafi í annan tíma leikið bet-
ur. Hann skilur til fulls baráttu
einyrkjabóndans sem á I stöðugu
stríði við náttúruöflin, drauga, fá-
tækt, ástvinamissir og hverskyns
óáran, en stendur þó alltaf óbug-
aður í stormi lífsins. Þau orð sem
höfundurinn leggur þessari hetju í
munn þegar hann er í eftirleit í
stórhríð uppá reigin öræfum lýsa
Bjarti einkar vel. Þá kveður hann
Andrarímur á móti veðurofsan-
um. - „Hver hefur nokkru sinni
heyrt frá því sagt að Hárekur eða
Gaunguhrólfur eða Bernódus hafi
beðið ósigur í úrslitahríðinni? Á
sama hátt skal einginn hafa þá
sögu að segja, að Bjartur í Sum-
arhúsum hafi nokkru sinni beðið
lægra hlut í sinni heimsstyrjöld
við forynjur landsins hversu oft
sem hann kann að steypast fram
af heingjum eða kútveltast í gil-
skorningum, meðan ein vindsnýta
er eftir í nasablæstunum á mér
skal ég aldrei verða afvelta,
hvernig sem blæs.“
En þrátt fyrir hið hrjúfa yfir-
borð Bjarts í Sumarhúsum slær
þó undir þessari hörðu brynju
trútt og viðkvæmt hjarta, það
kemur berlega í Ijós þegar hann
heimsækir lífsblómið sitt í kaup-
staðnum. öll þau blæbrigði sem
þessi persóna býr yfir koma prýði-
lega vel til skila hjá Þráni Karls-
syni.
Ásta Sóllilja er leikin af Svan-
hildi Jóhannesdóttur. Það orkar
kannski tvímælis hvort hún er
ekki óþarflega heimóttarleg með-
an hún dvelst í kotinu hjá Bjarti,
og miklu betri þótti mér leikur
hennar þegar hún er farin að
hokra í kaupstaðnum, þrátt fyrir
það að hún kann sýnilega ekki að
þvo þvott á bretti, en það gerir
ekki svo mikið til, því fæstir
áhorfendur kunna það á þessari
þvottavélaöld. Ástu Sóllilju er
ekki lagt rnikið uppí hendurnar í
texta, en samt sem áður er hún
ekki svo lítill þáttur í þessari
mynd sem hér er dregin og Svan-
hildur kemst furðu vel frá þessu
hlutverki.
Rauðsmýrarmaddaman, dóttir
útvegsbónda úr Víkinni, lærð í
kvennaskóla, kona hreppstjór-
ans, er leikin af Þuríði Schiöth.
Vegna gáfna sinna og mennt-
unar telur maddaman sig þurfa að
vera með fingurinn á slagæð þessa
samfélags og lætur sér ekkert
óviðkomandi, hún er vönust því
að allir lúti boðum hennar og
bönnum. En það er Bjartur í
Sumarhúsum sem þorir að tala
tæpitungulaust við þessa konu,
þegar hún kemur til hans í kotið
með miður góðar fréttir. - „Nei,
heyrðu mig nú maddama góð, nú
er nóg komið, já, farí helvíti heyr-
irðu það, þú ert ekki hér í þinni
landareign, þú ert í mínu landi.“
Og maddaman bíður ósigur
fyrir kotbóndanum. Þuríður skil-
ar þessu hlutverki með virðug-
leika og stolti eins og vera ber.
Jón hreppstjóri er leikinn af
Heimi Ingimarssyni og fer hann
skemmtilega mcð hlutverkið.
Sama er að segja um hlutverk séra
Guðmundar sem er í höndum Jó-
hanns ögmundssonar. Séra Guð-
mundur er ekki sérlega áfjáður í
að vinna embættisverk, frekar
en kollegi hans séra Jón prímus.
og tilsvör þessara tveggja sálu-
sorgara eru ekki að öllu leyti ólík.
Jóhann skapar parna sérlega
skemmtilega týpu og skilar hlut-
verkinu með ágætum. Komur
Bjartar eru leiknar af þeim Þór-
eyju Aðalsteinsdóttur og Nönnu
Jónsdóttur. Aðalsteinn Bergdal
leikur Þórð tengdaföður Bjarts að
fyrra hjónabandi og Gvend son
Bjartar. Theódór Júlíusson leikur
fjallkónginn og Ingólf Arnarson
Jónsson. Gestur E. Jónasson leik-
ur Þórir í Gilteigi og Ókunnan
mann. Viðar Eggertsson leikur
Einar í Undirhlíð og kennarann.
Kristjana Jónsdóttir, Hallberu.
tengdamóður Bjartar af síðara
hjónabandi. Þá eru þrjú börn leik-
in af Benedikt Helgasyni, Stefáni
Eiríkssyni og Hildigunni Þráins-
dóttur. öll eru þessi hlutverk i
góðum höndum og vel af hendi
leist, enda þótt þau séu ekki stór í
sniðum eru þau öll nauðsynleg
sem samtenging í heildarmynd-
inni.
Eitt hlutverk er þó ótalið enn
og er reyndar ekki skráð í leik-
skrá, en það er hún Títla, tíkin
hans Bjarts, leikin af tíkinni Tátu
sem ekki lætur sinn hlut eftir
liggja í þessari sýningu.
Leikmynd og leiktjaldamáln-
ingu hefur Gunnar Bjarnason frá
Þjóðleikhúsinu annast og bún-
ingar eru einnig fengnir frá Þjóð-
lcikhúsinu. Hallmundur Kristins-
son hcfur smiðað leiktjköld og
ljósameistari er Árni Valur Vigg-
ósson.
Á frumsýningu var hvert sæti
skipað í leikhúsinu og sýningunni
frábærlega vel tekið.
Guðmumdur Gunnarsson.
Bjartur (Þráinn Karlsson) og Hallbera (Sigurveig Jónsdóttir).
Hverja
vantar
vmnu
VÉLSMIÐJA STEINDÓRS
óskar eftir að ráða
járniðnaðarmenn
Upplýsingar í síma 24152.
VINNUSKÓLI AKUREYRAR
auglýsir eftir umsóknum um starf FORSTÖÐU-
MANNS í sumar.
Einnig vantar nokkra FLOKKSSTJÓRA.
Umsóknir berist til garðyrkjudeildar fyrir 6. apríl nk.
Upplýsingar gefnar í síma 24047 milli kl. 10 og 12.
SKRÚÐGARÐANEFND AKUREYRAR.
IBUÐIR
Til snlu 2ja og 3ja herbergja íbúðir í Smárahlíð 8-10-12.
Verða seldar tilbúnar undir tréverk; öll sameign
frágengin.
Góð staðsetning, rétt við væntanlega verslunarmiðstöð
í Glerárhverfi.
Lán Húsnæðismálastofnunar kr. 5.500.000 - væntanlegt
næsta ári.
Þeir kaupendur sem búnir voru að fastsetja sér íbúðir,
staðfesti pantanir sínar strax!
FURUVELLIR 5
AKUREYRI. ICELAND
P. O. BOX 209
SlMAR (96)21332 og 22333
LGEMM?
GGINGAVERKTAKAR
rAiítí
I páskabaksturinn
® Sendum heim.
Kostaboð vikulega.
Látið matarpeningana endast lengur.
I
i
I
I
I
PÁSKAEGG í þúsundatali.
Gefum 10% afs/átt þessa viku.
Grípið gæsina!
L.
Tilboðsverð á kaffi kr. 2.200 kg.
ÖLGERÐAREFNI.
G/æsi/egasta úrval utan Reykjavíkur.
SENDUM UM ALLAN BÆ.
Skipagötu 4
Sími24094
Vörumarkaðurinn
Skipagötu 6
Útibú grænumýri 20 - Kvöldsala, helgarsala
I
i
I
I
I
I
I
I
J
ÍSLENDINGUR - 7