Íslendingur - 06.05.1981, Síða 6
íþróttir
Umsjónarmenn:
RAGNAR ÞORVALDSSON
EINAR PÁLMI ÁRNASON
K.A. fslandsmeistari í handknattleik
Meistaraflokkur K.A. í hand-
knattleik er fslandsmeistari
1981. Þessi langþráði draumur
varð að veruleika á fímmtudags
kvöldið síðasta er liðið sigraði
H.K. í Laugardalshöllinni. Eins
og flesta rekur minni til urðu
þessi lið efst og jöfn í deildinni
og urðu því að leika aukaleik til
þess að fá úr því skorið hvort
þeirra hlyti nafnbótina íslands-
meistari 1981 í 2. deild.
Það var ljóst strax í byrjun að
KA-menn voru sterkari aðilinn.
Þeir fengu ekki á sig mark fyrsta
stundarfjórðunginn og því ljóst
hvert stefndi. Með þá Gauta í
markinu, Friðjón og Gunnar
Gíslason sem bestu menn hafði
liðið náð sex marka forustu er
flautað var til leikhlés. Þetta
forskot jókst jafnt og þétt er á
leikinn leið og er hánn varallur
stóðu KA-menn uppi semsigur-
vegarar, höfðu gert ^2 mörk á
móti 12 mörkum H.K. Flest
mörk KA-manna gerði Friðjón
eða 7 talsins.
Íþróttasíðan óskar öllum
KA-mönnum, þó sérstaklega
leikmönnum og þjálfara, til
hamingju með þennan glæsilega
árangur um leið og hún vonar
að stjórn deildarinnar sýni nú
samstillt átak um að fylgja vel á
eftir þessu glæsilega framtaki
sem markað hefur ti'mamót í
sögu félagsins.
Hcr má sjá tvo af máttarstólpum KA-liðsins í vetur, þá Gauta markvörð og
Þorleif, í leik gegn Þór á dögunum.
f-------- \
Valur í heímsókn
Annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, gefst knattspyrnu-
unnendum tækifæri á að sjá
fslandsmeistara Vals leika
hérna á Akureyri. Þórsarar
mæta Valsmönnum í æfíng-
arleik á Þórsvellinum og
V____________________________
hefst leikurinn kl. 20.00.
Fyrir skömmu léku þessi lið
æfíngarleik í Reykjavík og
sigraði þá Valur 1-0 og munu
Þórsarar örugglega leggja
kapp á að leggja Val að velli í
þetta sinn!
Leiðrétting frá formanni Þórs
Formaður Þors, Sigurður
Oddsson, kom að tali við
íþróttasíðuna og vildi koma
að leiðréttingu vegna skrifa
þeirra er birtust á síðunni ekki
alls fyrir löngu. Þar sagði, eftir
að Ijóst var að Þór hafði fallið
í þriðju deild, að heyrst hefði
að handknattleiksdeMd félags-
ins hefði í hyggju að leggja
niður meistaraflokkinn a.m.k.
næstu tvö árin.
Sagði formaðurinn að slíkt
tal hefði aldrei borið á góma
enda væri framtíð félagsins í
þessari grein mjög björt.
Það leiðréttist því hér með
að allt tal og öll skrif uni að
meistaraflokkur Þórs í hand-
knattleik karla leggi upp laup-
ana eiga ekki við nein rök að
styðjast.
DRENGJAMOT J.R.A.
Drengjamót í Judo á vegum
J.R.A. var haldið í íþróttahús-
inu í Glerárskóla sunnudaginn
26. apríl. Alls voru keppendur
átta og var keppt í þrem þyngd-
arflokkum.
Til úrslita í 50 kg. þyngdar-
flokki kepptu þeir Sigurður
Magnússon og Eggert Benja-
mínsson og leik þeirri viðureign
með sigri Sigurðar sem hlaut
2 ,,koka“. í 70 kg. flokki glímdu
til úrslita þeir Jósep Friðriks-
son og Magni Hauksson. Jósep
sigraði á „ippon“ sem er fulln-
aðarsigur. Þeir Árni Ingólfsson
og Atli Arngrímsson glímdu til
úrslita í 80 kg. þyngdarflokki og
var viðureign þeirra mjög jöfn
og tvísýn. Árni náði þó undir
lokin að knýja fra sigur. Jón
Hjaltason var mótsstjóri og
dómarar voru þeir Brynjar
Aðalsteinsson, Kristján Frið-
riksson og Þorsteinn Hjaltason.
Elías og Nanna signrvegarar
á Brunmótinu í Hlíðarfjalli
IJm helgina fór fram í Hlíðar-
fjalli síðasta mót vetrarins, svo-
nefnt Brunmót, sem flokkast
undir Akureyrarmót, auk þess
að vera punktamót í flokki full-
orðinna.
Úrslit mótsins urðu þessi:
Karlaflokkur:
1. Elías Bjarnason A 83.0
2. Tómas Leifsson A 83.2
3. Haukur Jóhannsson A 84.1
Kvennaflokkur:
1. Nanna Leifsdóttir A 86.9
2. Ásta Ásmundsdóttir A 92.5
3. Hrefna Magnúsdóttir A 92.9
15-16 ára flokkur drengja:
1. Bjarni Bjarnason A 82.9
2. Eggert Bragason Ó 86.0
(Eggert keppti sem gestur)
3. Ingi Valsson 86.4
13-15 ára stúlkur:
1. Guðrún J. Magnúsd. 96.9
2. Anna M. Malmquist 99.9
3. Guðrún Kristjánsd. 105.5
13-14 ára drengir: 1. Smári Kristinsson 92.5
2. Jón Björnsson 92.9
3. Árni Þ. Freysteinsson 94.2
Sumardekkin
komin
Aldrei meira úrval.
Nýjung: Hjólbarðar með
hvítum hring.
Opið alla daga - öllkvöld.
Látið jafnvægisstilla
hjólin um leið í hinni nýju
tölvustýrðu hjólastilling-
arvél okkar.
Hvítir hringir,
allar stærðir.
BÍLAÞJÓNUSTAN
TRYGGVABRAUT 14 - Símar 21715 - 23515
Bjami Sveinbjörnsson að skora annað mark sitt gegn Þrótti.
Þróttur og ÍBV fengu á baukinn!
Þróttarar úr Reykjavík komu
hingað norður um síðustu helgi
og léku tvo æfingarleiki gegn
Þór og urðu þeir að sætta sig við
töp í báðum. Fyrri leiknum
töpuðu þeir 2-l, þar sem Guð-
mundur Skarphéðinsson skor-
aði bæði mörk Þórsara, en í
þeim síðari var um markasúpu
að ræða, 7-1 fyrir Þór. Mörk
Þórsara seinni daginn skoruðu
Guðmundur aftur tvö, Jón Lár
tvö, Bjarni Sveinbjörnsson tvö
og Guðjón Guðmundsson eitt
Á sama tíma brugðu KA-
menn sér til Vestmannaeyja og
sigruðu heimaliðið 1-0 með
marki Elmars Geirssonar og
hefði sá sigur eins getað orðið
stærri eftir gangi leiksins.
Góður árangur
Akureyringa
Kári og Víkingur urðu
íslandsmeistarar
í kraftlyftingum
Á Kraftlyftingameistaramóti fs-
lands er haldið var í Reykjavík um
helgina stóðu lyftingamenn okkar
Akureyringa sig vel. Kári Elísson
varð fslandsmeistari í 67.5 kg.
flokki eftir að hafa lyft samtals
572.5 kg. og í flokki þyngstu manna
sigraði Víkingur Traustason „Heim
skautabangsinn“, setti fslandsniet f
hnébeygju og lyfti samtals 810 kg.
Alls tóku níu iyftingamenn frá
L.R.A. þátt í mótinu.
Kári Elísson varð fslandsmeistari í 67.5 kg. flokki.
6 - ÍSLENDINGUR