Íslendingur - 26.08.1981, Side 2
Byggjum
hjúkrunar-
deild
við F.S.A.
Svo sem kynnt hefur verið í
íjölmiðlum er hafin allsherjar
ijársöfnun í því skyni að koma
upp hjúkrunardeild, með 18-20
sjúkrarúmum, við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Er
áætlað að sú framkvæmd kosti
allt að 2 millj. króna, og að hún
verði fjármögnuð með frjálsum
framlögum. Hjúkrunardeild er
eitt brýnasta verkefnið, sem
leysa þarf um þessar mundir, og
von okkar er sú, að fjársöfnun
gangi það vel að hægt verði að
taka þessa nýju hjúkrunardeild í
notkun um næstkomandi ára-
mót 1981-1982.
Eigi sú von að rætast þarf
mjög almenna samstöðu, og
að allir þeir sem til er leitað séu
reiðubúnir til að rétta HJÁLP-
ARHÖND. „MARGAR
HENDUR VINNA LÉTT
VERK“ og ef allir leggja sitt lóð
á vogarskálina ætti að takast að
leysa þetta knýjandi verkefni
með sóma, og svo sem að er
stefnt.
Því leyfum við okkur að leita
til þín, og þíns fyrirtækis um
nokkurt fjárframlag, í þessu
augnamiði, og væntum jákvæðr-
ar niðurstöðu við fyrstu hentug-
leika. Utanáskrift okkar er:
Hjúkrunardeild F.S.A. Pósthólf
340, 602 Akureyri.
Með fyrirfram þakklæti.
Framkvæmdanefndin.
Jón Kristinsson, forstöðumaður (sign.)
Ásgeir Höskuldsson, framkvæmdastjóri, (sign.)
Halldór Halldórsson, læknir (sign.)
Hulda Baldursdóttir, heimilishjúkrun (sign.)
Ólafur H. Oddsson, héraðslæknir (sign.)
Ólafur Sigurðsson, yfirlæknir (sign.)
Sjóstanga-
veiðimót
Akureyrar
laugar-
daginn
5. sept.
Sjóstangaveiðimót Akureyrar
verður haldið laugardaginn 5.
september n.k. Farið verður frá
Akureyri kl. 6 f.h. og frá
bryggju á Dalvík kl. 7 f.h. Ráð-
gert er síðan að koma að kl. 3
s.d.
Ekki er vitað enn hve margir
bátar taka þátt í þessu en afli
hefur verið mjög góður á firð-
inum að undanförnu. Þátttöku
ber að tilkynna fyrir 31. ágúst á
Bifreiðaverkstæðið Víking,
sími 21670, eða í síma 23583.
I fyrra veiddust á Akur-
eyrarmótinu 2300 fiskar og
flesta fiskana þá fékk Jóhann
Kristinsson eða eitt hundrað,
en þá var Andri Páll Sveins-
son aflahæstur með 128,5 kg.
Aflahæsta sveitin þá varð sveit
Matthíasar Einarssonar en
hana skipuðu auk hans þeir
Karl Jörundsson, Konráð
Árnason og Þorvaldur Niku-
lásson.
AKUREVRI
Sjálfstceðis
husio
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST.
Glæsilegur haustfagnaöur með
hljómsveitinni GLÆSIR
ÖRVAR KRISTJÁNSSON verður með
plötukynningu
BALDUR BRJÁNSSON með galdraprik
Nýtt stórkostlegt JUDO-atriði
BINGÓ
Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22970
Nú auðvitað verður DISKÓIÐ á sínum stað á 3ju
hæð með dundrandi diskólögum.
Opið til kl. 3 em.
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST.
Hljómsveit FINNS EYDAL, HELENA og ALLI í
síðasta skipti í bili a.m.k.
DISKÓTEK uppi í fullu fjöri
Opið til kl. 3 em.
Sjáumst
Til sölu er fasteignin
Skólastígur 5, sem er steinsteypt hús, tvær hæðir og
kjallari ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
í húsinu eru alls 11 herbergi, 4 snyrtingar, gott nýtt
eldhús og rúmgóður bílskúr, innbyggður, sem inn-
réttaður hefur verið til dvalar.
Húseignin er laus til afhendingar nú þegar.
Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Sigtryggsson á
skrifstofu Rauða krossins, í síma 24803.
Akureyrardeild Rauða kross íslands.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Laugardaginn 5. sept. n.k. kl. 14.00 verður selt á
nauðungaruppboði við lögreglustöðina á Akureyri,
ýmiskonar lausafé s.s. bifr: A-1139, A-7365, A-7113,
A-2852, A-5842, A-7141, A-4801, A-7708, A-3110, A-
4198, A-3820, A-3440, A-5891, A-6716, A-5888,
A-6081, A-2372.
Ford dráttarvél, Camro trésmíðavél, IBM og Vang
tölvur, 15 stk. Paff, Union special, Singer og Durkorp
saumavélar, Finlux og Sharp litasjónvörp, August
Faster og Rösler piano, OCE Ijósprentvélar, IBM
ritvél, Canon reiknivél, Kienzle bókhaldsvél, álsuðu-
trans, P-form steypumót 38m2, álstyttur og borð í
fiskiskip, 3ja og 2ja sæta sófar, hægindastóll, borð, 4
stólar, skenkur, 2 leðurstólar, sófaborð á stálfæti með
gerplötu, 5 málverk, rósir úr silki, útvörp, leikföng,
könnur, bolir, skór, model, hálsmen, armbönd,
hringir, nælur, eyrnalokkar o.fl.
Uppboðsskilmálar liggja frammi hjá undirrituðum.
f.h. Bæjarfógetans á Akureyri.
Erlingur Óskarsson.
ÚTBOÐ
1. áfangi Verkmenntaskólans á Akureyri
Tilboð óskast í byggingu 1. áfanga Verkmennta-
skólans á Akureyri. Áfanginn er 876 fm. að
grunnfleti, ein hæð og leiðslugangur.
Verktaki tekur við útgröfnum grunni og skal
skila húsinu tilbúnu undir innréttingar, lagnir
og málningu innan húss.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fulltrúa
bygginganefndar Verkmenntaskólans á Akur-
eyri, Kaupangi v/Mýrarveg, 2. hæð, frá 28. ágúst
n.k. gegn 3000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað 8. september
1981 kl. 16.00.
Byggingarnefnd Verkmenntaskólans á Akureyri
Einingarfélagar
Eyjafirði
Almennur félagsfundur verður haldinn í Alþýðuhús-
inu sunnudaginn 30. ágúst n.k.
Dagskrá:
1. Samningamálin og uppsögn samninga.
2. Onnur mál.
Stjórn Einingar.
Kaupum
hreinar
léreftstuskur.
SKJALDBORG HF.
Akureyri
Raðhús
til leigu
5 herb. raðhús til leigu.
íbúðin er ekki fullfrágengin.
Upplýsingar í síma 62306.
2 - ÍSLENDINGUR