Íslendingur - 26.08.1981, Side 7
í vikunni. . . .
I
| Kirkja
I Akureyrarkirkja
j Messaö í Akureyrarkirkju kl. 11
■ fh. sunnudag Ólafur Jóhanns-
I son Stud.theal predikar. Sálm-
I ar: 23-164-189-317-355.
^amkomur
Hjálpræðisherinn.
Sunnudaginn n.k. kl. 16.00.
Útisamkoma á torginu (ef veð-
ur leyfir). kl. 20.30. Almenn
samkoma. Kafteinn Daníel
Óskarsson stjórnar og talar.
Allir velkomnir. Opið hús fyrir
börn á fimmtudögum kl. 17.00 i
Strandgötu 21. öll börn vel-
komin.
Ýmislegt
Vinningsnúmer í Happdrætti
Skautafélags Akureyrar.
2441, 1786,2177,2,2914,1108,
| 3025,1957,786,1351.
L__________________________
Gjafir
Systraselssöfnunin.
Áður birt kr. 140.875.70. Minning-
argjafir R.L. og K.S. kr. 1700. Inga
kr. 145. Heildv. Valgarðs Stefáns-
sonarkr. 1000. KnúturOttersted kr.
2500. Haukur Ottersted kr. 2500.
Blaðavagninn Pálmi Ólafsson kr.
500. Búvélaverkstæðiö Óseyri kr.
550. Fatahreinsun Vigfúsar & Árna
kr. 1000. Ljósgjafinn hf. kr. 500.
Mifa tónbönd kr. 300. Ofnasmiðja
Norðurlands hf. kr. 1000. Pedro-
myndir (áður komið 1000) kr. 1000.
Radíovinnustofan Kaupangi kr.
500. Teiknistofa Hauks Haralds-
sonar kr.' 500. Verslunin Skemm-
an kr. 1000. Hitaveita Akureyrar kr.
30000. Noröurmynd kr. 500. S.E.
kr. 340. Elín kr. 200. S.J. og G.J. kr.
1000.
Frá vistfólki og starfsfólki Dval-
arheimilinu Hlíð.
Júlíana Guðmundsdóttir kr. 500.
Sigurrós Þorleifsdóttir kr. 100.
Kristfinna Hansdóttir kr. 260. Sig-
ríður Jónsdóttir kr. 400. Helga
Sigurðardóttir kr. 500. Sigríður
Sigurðardóttir kr. 500. Sóley
Tryggvadóttir kr. 200. Sigurlína
Pétursdóttir kr. 300. Sigríður
Pétursdóttir kr. 130. Anna Árna-
dóttir kr. 500. Sigriður Kristjáns-
dóttir kr. 100. Ragnhildur Davíðs-
dóttir kr. 200. Stefán Hólm Krist-
jánsson kr. 150. Jón Þórðarson kr.
500. Snjólaug Hjörleifsdóttir kr.
110. Helga Jónsdóttir kr. 100.
Björgvin Bjarnason kr. 200. Sísí
Björgvinsdóttir kr. 500. Jón
Tryggvason kr. 200. Guðrún Jóns-
dóttir kr. 200. Anna Magnúsdóttir
kr. 100. Ingibjörg Sveinbjd. kr. 100.
Sigurlaug Pétursdóttir kr. 100.
Jóna Einarsdóttir kr. 500. Halldóra
Andrésdóttir kr. 50. Stefán Magnús
son kr. 500. S.G. kr. 500. Ása kr.
200. Lárus Björnsson kr. 990. Björn
Júlíusson kr. 150. Ragnh. O. Björns
son kr. 500. Jóna Gísladóttir kr.
500. Ásgeir Kristjánsson kr. 965.
Sigm. Guömundsson kr. 100. Þóra
Kristjánsdóttir kr. 250.
Lára og Bragi kr. 500. Margrét
Antonsdóttir kr. 500. Sigrún
Höskuldsdóttir kr. 130. Teiknistofa
Kristjáns Kristjánssonar kr. 1000.
Bókval kr. 1000. Huld sf. kr. 1000.
Bautinn hf. kr. 500. Öxndaela-
hreppur kr. 6000. Ingibjörg kr. 300.
Anna Kristjánsdóttir kr. 500. N.N.
kr. 1000. N.N. (gömul mynt) 11.50.
Systur Kristínar Kristjánsdóttur kr.
750. Inkomin framlög hjá Trygg-
ingarstofnun rík. kr. 1085.
Samtals 212.742.20.
Bautamótið
Bautamótið í kvennaknatt-
spyrnu verður haldið á Akur-
eyri um næstu helgi 29. og 30.
ágúst.
Alls hafa ellefu lið tilkynnt
þátttöku þar á meðal lið
Breiðabliks íslandsmeistarar
og Bikarmeistarar 1981.
Stefnt er að því að Bauta-
mótið verði árlegur knatt-
spyrnu viðburður í bænum.
Eins og nafnið gefur til
kynna hefur Bautinn h.f. gefið
vegleg verðlaun til keppninnar
auk þess að bjóða sigurvegur-
um til veglegrar matarveislu að
því loknu.
Keppt verður um farand-
bikar sem það lið hlýtur til
eignar er vinnur mót þetta þrjú
ár í röð eða fimm sinnum alls.
K.R.A. erframkvæmdaaðili
mótsins í samvinnu við K.S.I.
og hvetjum við alla sem áhuga
hafa á knattspyrnu að sjá öll
bestu lið landsins í ört vaxandi
kvennaknattspyrnu.
Knattspyrnuráð Akureyrar
Víða hefur ver-
ið unnið að
hreinsun
í sumar
Vegna bókunar Náttúruvernd-
arnefndar Akureyrar frá 24.
júní s.l., sem birt var í síðasta
tölublaði og hafði verið lögð
fyrir bæjarstjórnarfund 18.
ágúst s.l. hafði Valdimar
Brynjólfsson, heilbrigðisfull-
trúi, samband við blaðið.
Valdimar sagði að síðan
skýrsla þessi kom fram í vor
hefðu starfsmenn heilbrigðis-
eftirlitsins unnið að hreinsun
víðas vegar um bæinn og væri
ástandið því mun betra nú en
fram kemur í bókum náttúru
verndaráðs. Járnarusl og bíl-
hræ hafa verið fjarlægð auk
þess sem númerslausum bíl-
um hefur verið komið fyrir í
lokuðu porti. Drasl kringum
Grænhól hefur verið fjarlægt
og einnig af klöppum ofan
Krossaness auk þess sem
hreinsað hefði verið til sunn-
an Lónslækjar.
Þótt ástandið hafi batnað
taldi Valimar að enn mætti
betur gera og nefndi sérstak-
lega til ýmis smærri iðnfyrir-
tæki, þar sem girða þyrfti af
lóðir og athafnasvæði.
Irmilegar þakkir flytjum við hérmeð Kvenfélagasam-
bandi Suður-Þingeyinga og öllum þeim, er heiðruðu
minningu móöur okkar, Huldu skáldkonu, á 100 ára
afmæli hennar hinn 6. ágúst sliðastliöinn þegar
minnisvarði um hana var afhjúpaður í Huldulundi að
Auðnum i Laxárdal. Einnig þökkum við Kvenfélagi
Laxdæia fyrir höfðinglegar veitingar i ógleymanleg-
um mannfagnaði í Veiðihúsinu i Laxárdal. Forsjón-
inni þökkum við dýrlegan sólskinsdag i hinum fagra
Laxárdal.
SiGRÍÐUR S. BJARKLIND
JÓN BJARKLIND
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
FRÁ GRUNNSKÓLUNUM
Kennarafundir verða í skólunum (nema G.A.) þriðju-
daginn 1. sept. n.k. kl. 10 f.h.
Börn í 4.-6. bekkjum mæti í skólana mánudaginn 7.
sept. kl. 10 f.h. en börn í 1.-3. bekkjum kl. 1. e.h. sama
dag.
Forskólakennslan hefst mánudaginn 14. sept. en
áður munu viðkomandi kennarar hafa samband við
heimili þeirra barna, sem innrituð hafa verið. For-
skólagjaldið er 150 kr. og greiðist í tvennu lagi
(október og febrúar).
Innritun þeirra barna, sem flust hafa í bæinn, eða milli
skólasvæða og erætlað að skipta um skóla, ferfram í
skólunum, miðvikud. 2. sept. kl. 10-12 f.h. Skóla-
svæði eru óbreytt miðað við sl. skólaár. Reiknað er
með, að unglingadeildir (7.-9. bekkir) taki til starfa 16.
sept. n.k.
Nánar auglýst síðar.
SKÓLASTJÓRARNIR.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Strætisvagnar Akureyrar
Bifreiðastjóri óskast við akstur skólabarna frá 1.
september n.k.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 24929 eða á
skrifstofunni að Draupnisgötu 3.
Strætisvagnar Akureyrar.
Þessar ungu stúlkur efndu til tombólu fyrir skömmu og létu ágóðann kr.
500 renna til „Systraselssöfnunarinnar“. Þær eru Alfa Björk Kristins-
dóttir, María Egilsdóttir, Guðrún Gísiadóttir og Lilja Björk Sólnes.
Þær eiga þakkir skilið fvrir dugnaðinn.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Orðsending frá
Hitaveitu Akureyrar
Hitaveita Akureyrar vill vekja athygli á því ákvæði
gjaldskrár hennar þar sem kveðið er á um að hitaveit-
an stilli hemil að ósk notanda og breyti stillingu ef
notandi fer fram á það.
Hæsta stilling hemils gildir eitt ár í senn miðað við 1.
september-31. ágúst ár hvert, þótt orkunotkun verði
minni hluta úr ári.
Þeim notendum hitaveitunnar sem hyggja á breytta
stillingu hemils næsta veturerbentáaðhagkvæmast
er að stilling fari fram 1. seþtember n.k. Hækkun á
stillingu hemils eftir þann tíma reiknast frá undan-
gengnum 1. september.
Umsóknir um lækkun ástillingu hemilssem ekki hafa
borist hitaveitunni fyrir 1. september n.k. leiða ekki til
lækkunar á orkugjaldi til viðkomandi notanda fyrr en
1. september næsta árs.
Sérstakar reglur gilda fyrsta árið eftir að tenging við
hitaveituna hefur farið fram.
Gjald fyrir að breyta stillingu hemils er sem
samsvarar gjaldi fyrir notkun 1 mínútulítra á mánuði.
Hitaveita Akureyrar
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST.
Fyrr má nú selja en uppselja. Það eru nú góðir mögu-
leikar á að ná miða í kvöld. En það sem aldrei hefur
komiö fyrir áður getur alltaf komið fyrir aftur.
Opið til kl. 1 em.
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST.
Þeir sem eru búnir að vinna allan daginn, redda hinu
og þessu, tala við menn og málleysingja og bla bla
bla ættu svo sannarlega að drifa sig í H-ið í kvöld.
Opið til kl. 1 em.
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST.
Þeir sem þurfa að vinna á morgun, hafa alltað vinna
og engu að tapa í kvöld. Nú hinir sem þurfa að vinna,
lita auðvitað við og sjá til.
Opið til kl. 3 em.
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST.
Hana NÚ sagði hænan og lagðist á bakið (en ég
meina til hvers?) f kvöld eins og svo oft áður spá
menn í hana eða vinkonu hennar.
Opið til kl. 3 em.
SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST.
Nú þýðir ekkert lundareykjadaiskjaftæði.
Opið til kl. 1 em.
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST.
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER.
Ef þið hafið ekki tekið eftir því, þá er farið að dimma á
kvöldin. Það held ég nú, já. já.
Opið til kl. 1 em.
Ú
* 0ifr-jp 10
£
3r
100
ÍSLENDINGUR - 7