Íslendingur - 18.12.1981, Síða 15
Glæsilegasta verk
Skjaldborgar til þessa
SKÍÐAKAPPAR FYRR OG NÚ
skráð af Haraldi Sigurðssyni
Mikinn hval hefur nú rekið á fjörur
fræðimanna og áhugamanna um
íþróttir. Haraldur Sigurðsson
bankafulltrúi á Akureyri hefur sam-
ið geysimikið verk um sögu skíða-
íþróttarinnar erlendis og hérlendis,
en það er kunnugt þeim sem þekkja
Harald, að hann hefur safnað í
fróðleikssarpinn svo að um munar
og sárafáum mun þar vera til að
jafna.
Haraldur Sigurðsson.
Haraldur hefur ódrepandi og eld-
legan áhuga á íþróttum og er þar
öllum hnútum kunnugur af eigin
raun. Um það sérefni, er þessi bók
tekur til, er hann flestum fróðari,
enda átt sæti í stjórnum Skíðaráðs
Akureyrar og Skíðasambands ís-
lands.
Meðhöfundar að bók þessari
eru Einar B. Pálsson og Þorsteinn
Einarsson, svo og núverandi for-
maður Skíðasambandsins, Hregg-
viður Jónsson lögfræðingur.
í forspjalli Svavars Ottesen fram-
kvæmdastjóra í Skjaldborgarútgáf-
unni kemur fram, að hér er lang-
þráður draumur hans að rætast, allt
frá því að hann horfði með undrun
og aðdáun á kappa eins og Magga
Binna, Badda Jún. og Magnús
Guðmundsson.
Svavar treysti Haraldi Sigurðs-
syni best til þess stórvirkis sem hann
dreymdi um að gefa út, og nú hefur
draumurinn ræst. Til viðbótar því
efni, sem áður voru nefndirhöfund-
ar að, rifja 50 Islandsmeistarar og
Olympíufarar upp minningar sínar.
Allt verkið er unnið af þeirri
nákvæmni og alúð sem Haraldi er
lagin, og mætti hann meira að gera
að ausa til okkar nokkru af þeim
hafsjó kunnáttu og þekkingar sem
hann er orðinn. Hann hefur til þessa
verið alltof hlédrægur.
Að sínu leyti má Skjaldborg vel
við una. Hér skal ekki hikað við að
fullyrða að þetta sé að öllu saman-
lögðu glæsilegasta frumútgáfa
nokkurs verks, sem fyrirtækið hefur
staðið að. Bókin er öll prentuð á
myndapappír, enda sægur mynda
til stórmikillar bókarprýði. Þetta er
mikið framlag til íþróttasagnfræði,
og metnaður sá, sem lýsir sér í verk-
inu öllu, ætti að vera æskumönn-
um nútímans áleitin eggjun til af-
reka á skíðum og í öllum öðrum
greinum íþrótta. Fyrir allt þetta
erum við, sem reynum að stuðla að
heilbrigðu íþróttalífi og höfum leik-
yndi, höfundi bó’karinnar og útgef-
anda meira en lítið þakklátir.
Bókin Skíðakappar fyrr og nú er
nokkuð á fimmta hundrað blaðsíð-
ur, að öllu leyti unnin í Prent-
smiðju Björns Jónssonar á Akur-
eyri, fyrirtækinu til heiðurs og
sóma.
Gísli Jónsson.
Auglýsing um innheimtu
þinggjalda á Akureyri, Dal-
vík og í Eyjafjarðarsýslu.
Síðasti gjalddagi þinggjalda 1981 varhinn 1.
desember s.l. Er því hér með skorað á alla
gjaldendur þinggjalda á Akureyri, Dalvík og
í Eyjafjarðarsýslu, er enn hafa ekki gert full
skil, að greiða gjöldin nú þegartil embættis-
ins, svo komist verði hjá óþægindum,
kostnaði og frekari dráttarvöxtum, er af
vanskilum leiðir. Dráttarvextir eru nú 4,5%
fyrir hvern vanskilamánuð og verða næst
reiknaðir að kvöldi 15. desember n.k.
9. desember 1981
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
JÓLAGJAFAÚRVAL l
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
Jf
Rowenta
Krulluburstar
Krullujárn
Hárblásarar
Hársnyrtisett
Rowenfa
Rowenfa
Brauðristar
Kaffivélar
Djúpsteikingarpottar
Eggjasjóðarar
Minútugrill
Borðgrill
Vöfflujárn Gufustraujárn
Brauðhnífar Ryksugur
Straujárn
Electrolux ryksugur, 4 gerðir
★
*
*
*
*
*
Hrærivélar
Rafmagnspönnur
QLEnAnQÖTU 20 — 000 AKUREYM — SlMI 22233
-*★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★*■★★★★★★★★★★★★★★
Akureyringar - Norðlendingar
Forðist frekari hækkanir. - Tryggið yður nýjan bíl í tíma.
Eigum fyrirliggjandi á Akureyri:
GOLT
LANCER
GALANT
GALANT STATION
PALLBÍLA
SENDIBÍLA
HÖLDUR SF.
Tryggvabraut 12 - símar 21715 og 23515
COLT 1200 GL
Ráðfærist við sölumann vorn.
" Hringdu þá í okkur
fyrramálið eða næstu morgna
milli kl. 9-12 í síma 91-14340
Við borgum símtalið
Friðrik A.Jónsson hf.
Skipholti 7 ■ Box 362- I2I Reykjavik
ÍSLENDINGUR - 15
*★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★