Íslendingur - 07.08.1980, Blaðsíða 5
;iog
lum
íslendings
fa á mann-
1 vinna og
sum fylgja
Framkvœmdir
Um opinberar fram-
kvæmdir er það helst að
segja að nú eru að hefjast
framkvæmdir við plan á
hafnarbakka fyrir framan
Hraðfrystihús Ólafsfjarð-
ar en það verk var nú ný-
lega boðið út og er Tréver
hf. verktaki. Aðrar ný-
framkvæmdir eru ekki
miklar að öðru leyti en því
að unnið er að lóðafram-
kvæmdum við barnaskól-
ann og heilsugæslustöð-
ina.
Atvinnuástond
Vinna við fiskverkun hefur
verið með daufasta móti
undanfarið enda gripu
hraðfrystihúsin til þess
ráðs að gefa öllu starfs-
fólki sínu sumarleyfi í júlí-
mánuði og húsunum því
lokað enda mun birgða-
söfnun hafa átt þar drjúg-
an þátt í og húsin að stöðv-
ast af þeim sökum.
Hið slæma atvinnu-
ástand á þessum vettvangi
hefur einkum komið illa
við sumarvinnufólk t.d.
skólafólk sem hefur í fá
hús að venda í þessum
efnum.
Hraðfrystihús Ólafs-
fjarðar hóf aftur starf-
rækslu s.l. þriðjudag en
Hraðfrystihús Magnúsar
Gamalíelssonar á miðviku
dag enda er skuttogarinn
Sólberg nú kominn inn
með 210 lestir.
Strákar dorga við bryggju.
Af hinum togurunum
tveim er það að segja að
breytingar og viðgerðir
fara nú fram á Ólafi Bekk
en Sigurbjörg liggur biluð
við festar.
Bygginga-
framkvœmdir
Húsbyggingar einstakl-
inga eru talsverðar í bæn-
um og hefur verið hafin
bygging nokkurra húsa nú
í sumar auk þess sem leigu-
og söluíbúðir eru í bygg-
ingu á vegum sveitar-
félagsins.
Hótelrekstur
Togarar í sumarblíðu.
Svo sem áður hefur komið
fram hér í blaðinu var hluti
nýs hótels tekinn í notkun
nú fyrir skömmu. Að sögn
hótelstjórans, Trausta
Magnússonar, hefur gesta-
koma verið bærileg og
ágæt um helgar.
Auk Trausta starfa
fimm starfsmenn við
hótelið.
íþróttanámskeið
Hinn kunni íþróttakappi
Vilmundur Vilhjálmsson
hefur nú um nokkurt skeið
dvalið í Ólafsfirði við
kennslu og þjálfun í frjáls-
um íþróttum. Hefur verið
mannmargt í kringum Vil-
mund á æfingum og flestir
aldursflokkar unglinga
fundið eitthvað við sitt
hæfi.
ÍSLENDINGUR - 5