Íslendingur - 27.05.1982, Síða 8
Lögfræðiþjónusta
BENEDIKT ÚLAFSSON HDL.
Hafnarstræti 99-101. Simi 25566
fRAFORKA HF.
GLERÁRGÖTU 32 Simar: 23257 og 21867
Raflagnir - viögeröarþjónusta
á raflögnum og
heimilistækjum.
Kaupangi Akureyri sími 21555
HVAÐ SEGJA EFSTU MENN LISTANNA UM KOSNINGAÚRSLITIN
OG MYNDUN MEIRIHLUTA í BÆJARSTJÓRN AKUREYRAR?
Vísbending um hvað menn hér vilja
Gísli Jónsson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins:
„Við hér á Akureyri erum
afskaplega ánægð með okkar
hlut. Aukning Sjálfstæðis-
manna hér er meiri en lands-
meðaltalsaukning flokksins.
Við bættum að vísu ekki við
okkur nema einum manni,
þótt atkvæðamagnið hefði
nægt okkur til þess að bæta við
okkur tveim fulltrúum. Við
vorum óheppnir með skipt-
ingu atkvæða milli keppinauta
okkar. Við teljum að Akureyr-
ingar hafí komið til móts við
okkur í þessum kosningum.
Þetta er traustsyfírlýsing þeirra
til okkar. Þeir vilja veita okkur
umboð til að þoka frá völdum
meirihluta vinstri manna. Úr-
slit kosninganna eru greinileg
vísbending um hvað menn hér
vilja.
Um meirihlutamyndun er
lítið vitað enn, en viðræður eru
í gangi á milli flokkanna. Við
Sjálfstæðismenn hófum þegar
hafíð viðræður við fulltrúa
kvennaframboðsins og teljum
eðlilegt að látið verði reyna á,
hvort þessir tveir aðilar, sem
eru hinir raunverulegu sigur-
vegarar þessara kosninga, geti
ekki fundið samstarfsgrund-
völl í bæjarstjórn. Þessir tveir
listar hafa á bak við sig 52%
atkvæða.“
Nú er komið að okkur að vanda valið
Valgerður Bjamadóttir, efsti
maður á lista kvennaframboðs-
ins:
„Við erum sallaánægðar og í
sjöunda himni hér hjá kvenna-
framboðinu. Þetta er mikill
sigur, ekki aðeins fyrir okkur,
heldur allar konur og jafn-
réttisbaráttuna í heild. Þessi
kosningaúrslit færa okkur
vissa lykilaðstöðu í samning-
um um meirihlutamyndun í
bæjarstjórr. - og þá aðstöðu
hyggjumst við nota okkur og
höfum reyndar þegar hafið
viðræður við hina flokkana um
þau stefnumál, sem við viljum
leggja sérstaka áherslu á í sam-
bandi við væntanlega meiri-
hlutamyndun. Segja má, að
biðlamir séu margir nú - og
prinsessan virðist vinsæl um
þessar mundir. Við sögðum við
kjósendur fyrir kosningar:
Vandið valið. Nú er komið að
okkur að vanda valið. Og það
munum við gera. Við munum
ræða við fulltrúa allra listanna
og á allra næstu dögum ætti að
koma í Ijós hvað út úr þessum
viðræðum kemur.“
Staða okkar sterk og bjart framundan
Sigurður ÓIi Brynjólfsson, efsti
maður á lista Framsóknar-
flokksins:
„Þó að við Framsóknar-
menn á Akureyri komum ekki
sem sigurvegarar út úr þessum
kosningum, má benda á, að við
hlutum 30% af þeim atkvæð-
um, sem hinir hefðbundnu
stjórnmálaflokkar fengu.
Miðað við landið í heild varð
útkoman fyrir Framsóknar-
flokkinn viðunandi. Á hinn
bóginn verður ekki fram hjá
því litið að glæsileg útkoma
• /ennalistans kemur til með
að skapa nokkra óvissu um
framhaldið næstu daga. Það er
ljóst að margir fyrrverandi
stuðningsmenn Framsóknar-
flokksins kusu nú kvennalist-
ann. Rangt tel ég að líta á
þennan hóp sem andstæðinga,
miklu frekar samherja, sem
vilja setja annan blæ á stjórn-
málin en verið hefur. Þar sem
við höldum stöðu okkar hér í
bænum, er ljóst að fjölmargir
nýir kjósendur komu tii liðs við
okkur. Því erstaðaokkarsterk
og bjart framundan.
Um myndun meirihluta nú
vil ég vera fáorður á þessu stigi.
Vissar þreyfmgar og viðræður
hafa farið fram og ég tel að það
ætti að vera auðvelt að ná sam-
stöðu um þá stefnu að gera
Akureyri að enn betri bæ.“
Afar óhress með árangur íhaldsins
Helgi Guðmundsson, efsti mað-
ur á lista Alþýðubandalagsins:
„Eg er að sjálfsögðu afar
óhress með árangur íhaldsins
og finnst þessi hægri sveifla,
sem fram kom í kosningunum,
alvörumál. Varðandi árangur
Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri vil ég segja það, að að-
stæður allar eru nú erfiðari í
bæjarstjórninni, þar sem við
höfum nú aðeins einn fulltrúa
í stað tveggja áður, en á hinn
bóginn er tap Alþýðubanda-
lagsins á Akureyri tiltölulega
lítið miðað við marga aðra
staði á Iandinu. Líta ber á, að
kvennaframboðið hlaut 16%
atkvæða og vitað var að fjöl-
margir vinstri sinnaðir menn
studdu kvennaframboðið.
Varðandi meirihlutamynd-
un í bæjarstjórninni er það að
segja, að við munum ekki skor-
ast undan að mynda meiri-
hluta ef þess gefst kos’tur. Mál-
efnalega tel ég rétt að kvenna-
framboðið gangi til samstarfs
við vinstri flokkana. Sjálfsagt
finnst mér þó, að kvenna-
framboð og Sjálfstæðisflokk-
ur, sem hafa nú meirihluta
bæjarfulltrúa og báru ekki
ábyrgð á síðasta meirihluta,
geri fyrst tilraun til meirihluta-
myndunar."
Almenn hægri sveifla virðist hafa orðið
Freyr Ófeigsson, efsti maður á
lista Alþýðuflokksins:
„Úrslitin eru okkur Alþýðu-
flokksmönnum mikil von-
brigði. Því verður ekki neitað.
Almenn hægri sveifla virðist
hafa orðið í landinu, en það
skýrir þó ekki að fullu okkar
fylgistap hér á Akureyri, sem
því miður var allmiklu meira
en á flestum öðrum stöðum á
landinu. Að sjálfsögðu á
kvennalistinn einhvern þátt i
þessu einnig. Engin einhlýt
skýring er að mínu mati fyrir
þessu, en við munum á næstu
vikum og mánuðum leita skýr-
inga á þessu og leiða til úrbóta.
Um meirihlutamyndun veit
ég ekki nokkurn skapaðan hlut
á þessari stundu. Það eru að
sjálfsögðu aðrir aðilar en við
sem hafa forgöngu um mynd-
un meirihluta, en við erum til
viðræðu ef eftir því verður
leitað. Við munum alls ekki
hafa neina forgöngu í þeim
efnum. Enn hefur ekki verið til
okkar leitað um viðræður af
þessu tagi. Eigum við ekki að
láta tímann leiða í ljós, hvað úr
verður?“
Islendingur
FASTEIGNASALA
Strandgötu 1
Sfman 24647
Sölumaður:
Sigurjón Egilsson
Heimasími: 25296
iheimilistæki, Þilofnar
™hitadunkar
©RúE
VERSUÐ,
HOA FAC-j
MANNI
NÝLAGKIR ,
VIDGERÐIR
VIDHALD
ATA 26-AKUREYRI - BOX 873-SIMI2 59 51 VERSLUN