Íslendingur - 10.02.1983, Side 3
jgj'Poland
Baldvin
Baraflokkurínn
Baraflokkurinn hefur vakið
mikla athygli síðustu þrjú árin.
Lék okkur mikil forvitni á að
kynnast flokknum og lögðum
því leið okkar í Rauða húsið þar
sem hann var á æfingu. Þegar
flokkurinn gerði hlé á leik1'
sínum leystu þeir félagar góð-
fúslega úr spurningum okkar
varðandi sögu hljómsveitarinn-
ar.
Hljómsveitin var stofnuð
1977 af átta strákum sem voru
að stíga sín fyrstu skref á
tónlistarbrautinni. Liðskipan
flokksins hefur verið nær
óbreytt síðan 1980, en hana
skipa nú Asgcir Jónsson, söng-
ur, Baldvin H. Sigurðsson,
bassi, Þór Freysson, gítar, Jón
Arnar Freysson. hljómborð og
Sigfús Örn Óttarsson sem tók
sæti Árna. Henrikssen við
trommurnar í febrúar 1982.
Veturinn 1980-1981 æfðum
við í Lóni og komum fyrst frarn
þann 7. mars 1981 í Nýja Bíói og
spiluðum þar með hljómsveit-
inni Tortímingu. Þetta var í
fyrsta skipti í fimm ár sem rokk-
hljómsveitir á Akureyri tóku sig
saman og héldu tónleika. Und-
irtektir áheyrenda voru mjög
góðar og við urðum reynslunni
ríkari. Eftir þessa tónleika tók-
um við okkur mánaðarhvíld.
Því næst spiluðunt við með
Utangarðsmönnum í Dynheim-
MYNDIR OG TEXTI:
Einar Einarss. og Einar Áskelss.
Sigfús
um, Sjálfstæðishúsinu og í Nýja
Bíói.
Skömmu síðar nánar tiltekið
í mars fórum við í Demo
upptöku í Stúdío Birnbó og
tókum uppsex lögsem við síðan
sendurn suður til Steinars Berg
(eiganda hljómplötufyrirtækis-
ins Steinars h.f.)
í maí 1981 héldum við í okkar
fyrstu tónleikaferð suður yfir
heiðar og lékum m.a. á Hótel
Borg. Daginn eftir þá tónleika
hittum við Steinar Berg að máli
og gerðurn við hann okkar
fyrsta og eina plötusamning.
í júní tókum við upp okkar
fyrstu plötu í Hljóðrita í Hafnar
firði undir stjórn Tómasar M.
Tómassonar. Platan kom á
markaðinn í ágúst og seldást vel,
miðað við sex laga plötur.
í byrjun vetrar þurftum við
að víkja úr æfingaplássi okk.ar í
Lundarskóla, og fluttum á
kvennaklósettið í Kjarnaskógi
og æfðum þar næstu þrjá
mánuði.
U m áramótin 1981-1982 feng-
um við inni í Eimskipalelags-
húsinu. En í mars 1982 var
okkur boðið að taka þátt í
starfsemi Rauða hússins, og
eftir að hafa lagfært efri hæð
hússins heilmikið fluttum við
þangað með pjönkur okkar og
höfum æft þar síðan.
Um þetta leyti vorum við
farnir að huga að útgáfu nýrrar
plötu. Um páskana fórum við
aftur suður og unnum plötuna í
Grettisgati, stúdíói Þursana. Og
aftur stjórnaði Tómas upptök-
unni. Platan sem bernafnið Lizt
kom á markaðinn í júlímánuði.
Síðan höfum við leikið á tón-
leikum vtðsvegar um landið
m.a. í Samkomuhúsinu hér í
bæ, sem við teljum einna eftir-
minnitegustu tónleika okkar.
Framtíðaráætlanir hljóm-
sveitarinnar eru að halda áfram
og í sumar munu upptökur hpfj-
ast á næstu plötu.
Við þökkum Baraflokknum
fyrir móttökurnar og óskum
þeim góðs gengis í framtíðinni.
Frá æfingu i Rauða húsinu
fSLENDINGUR - 3