Íslendingur - 10.11.1983, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983 AKUREYRI
„Leiktækjamálið“ tekur óvænta stefnu:
Stjóm KA vill ekki
leiktækj aeinkaleyfi!
44. TBL. 68. ÁRG.
Músafár
í bænum
Óvenjumikið hefur verið um
mýs í húsum á Akureyri nú í
byrjun vetrar og hefur veiðin
verið „allbærileg“ í sumum
gömlu húsanna í bænum, eink-
um þó Innbænum.
Hjá KEA hal'a sjaldan selzt
jafnmargar músagildrur og á
þessu hausti ogsagði afgreiðslu-
maður þar um daginn, að hann
myndi ekki eftir annarri eins
sölu í þessari vöru.
íslendingur fregnaði, að í
einu tilviki hefði gömul kona
flutt að heiman um stunda-
sakir vegna músafársins á heim-
ilinu. Hún er hjartveik og átti
erfitt með að halda ró sinni
undir þessum kringumstæðum.
Alþýðusamband N.Iands:
Ráðstefna
á Akureyri
Dagana 11. og 12. nóvember
n.k. mun Alþýðusamband
Norðurlands halda ráðstefnu
um atvinnumál á Eyjafjarðar-
svæðinu. Ráðstefnan verður
haldin í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri og hefst á föstudeginum kl.
20.30 með franisöguræðu Helga
Cuðmundssonar um skýrslu
Iðnþróunarnefndar Eyjafjarð-
ar.
Þá mun Hafþór Helgason
llytja framsögu um þjónustu-
greinar. Að framsöguerindum
loknum verða hringborðsumræð-
ur, en þátttakendur i þeim verða
Helgi Guðmundsson, Hafþór
Helgason, Valdemar Bragason,
Finnbogi Jónsson og Jón Sig-
urðarson. Á laugardagsmorgni
mun umræðuhópar starfa og
munu þeir skila áliti eftir hádegi
og verða þá umræður um álit
þeirra. Þátttakcndur verða frá
vcrkalýðsfélögunum á Eyja-
fjarðarsvæðinu.
Megn óánægja
vegna mið-
stjórnárkjörs
Megn óánægja er á meðal
Sjálfstæðismanna af lands-
byggðinni vegna kosningar á
Landsfundi flokksins um síð-
ustu helgi um fulltrúa í mið-
stjórn. Aðeins tveir landsbyggð-
arfulltrúar náðu kjöri í mið-
stjórn, þeir Óðinn Sigþórsson af
Vesturlandi og Einar Kr. Guð-
fínnsson, Vestljörðuni.
Norðurlandskjördæmi eystra
á engan fulltrúa, en í fram-
boði var Sigurður J. Sigurðs-
son, bæjarfulltrúi, en Gísli
Jónsson, menntaskólakennari,
gaf ekki kost á sér.
Fimm þingmenn voru einnig
kjörnir í miðstjórnina og í þeim
hópi er aðeins einn fulltrúi utan
af landi, Matthías Bjarnason,
ráðherra og þingmaður Vest-
Ijarða.
Fulltrúi Norðurlands vestra
féll, einnig fulltrúi Austurlands,
Suðurlands og Norðurlands
eystra.
Stjórn Knattspyrnufélags Ak-
ureyrar hefur samþykkt mót-
atkvæðalaust að fylgja ekki
frekar eftir bráðabirgðaumsókn
félagsins um forgang þess og
Þórs um rekstur á leiktækja-
stofum á Akureyri. Þór hefur
ekki fjallað um málið sérstak-
lega eftir að afstaða KA-manna
lá fyrir, en búið var að boða til
stjórnarfundar, þegar íslend-
ingur ræddi við Sigurð Odds-
son, formann Þórs, um málið.
Hver svo sem niðurstaðan
verður af þeim fundi virðist
ljóst, að leiktækjamálið er nú
nánast komið í hring og vafa-
samt, að vilji meirihluta bæjar-
stjórnar um einokun íþrótta-
félaganna, verði að veruleika.
Sigurður Oddsson hjá Þór
kallaði breytta afstöðu K A ,,kú-
vendingu", en Stefán Gunn-
laugsson, formaður knatt-
spyrnudeildar KA, sagði að
niðurstaðan hjá þeim hefði
orðið þessi að vandlega íhuguðu
máli. Þeir væru m.a. á móti því
að einoka leiktækjareksturinn
og á móti því að reka þetta
alfarið sjálfir. Hins vegar hefði
stjórnin verið því meðmælt að
eigat.d. 2-3tækisjálfirogganga
með þau inn í reksturinn hjá
öðrum. „Við viljum ekki, að
KA sem slíkt sé að reka svona
stað,“ sagði Stefán Gunnlaugs-
son, en viljum hins vegar athuga
hlutarekstur með öðrum, og
höfum raunar fengið leyfi hjá
Bjarka Tryggvasyni að eiga 2-3
tæki í þeirri leiktækjastofu, sem
hann hefur í hyggju að opna við
Brekkugötu.
Sigurður Oddsson staðfesti,
að Þór byðist hið sama hjá
Bjarka.
Stefán Gunnlaugsson benti á,
að KA væri ekki reiðubúið að
afsala sér með öllu rétti á
rekstrinum, ef niðurstaðan yrði
sú, að einhver annar fengi einka-
leyfi, eins og t.d. Þór.
„Við erurn tilbúnir að falla
frá því, að fá þetta einkaleyfi að
því tilskildu, að enginn fái þetta
einkaleyfi," sagði Stefán. „Sjálf-
ur hafði ég persónulega aldrei
áhuga á því, að KA færi í svona
rekstur, en svo þróaðist þetta,
eins og fram kom í síðasta
Fógeti hefur ekki
fengið inn kæru
„Beint ljárhagslegt tjón mitt
vegna aðgerða að aðgerðaleysis
bæjarstjórnar er einhvers staðar
á bilinu á milli 800 þúsund og
einnar milljón króna,“ sagði
Magnús Kjartansson,sem rekur
leiktæki í Kaupangi v. Mýrar-
veg.
Tæpt hálft ár er liðið frá því
íslendingi, að bærinn hálfpart-
inn óskaði eða benti á, að við
skyldum senda inn þetta bréf
fyrir næsta dag.“
„Þetta kom mér mjögá óvart,
að KA skyldi taka svona á
málinu," sagði Sigurður Odds-
son, formaður Þórs.
Aðspurður um afstöðu hans
til rekstrar íþróttafélags á leik-
tækjastofu sagði Sigurður, að í
hjarta sínu væri hann á móti því
að fara í svona rekstur, hvort
sem það væri með einkaleyfi eða
á annan hátt, „en neyðin kennir
naktri konu að spinna,“ sagði
hann byrjaði að berjast við
bæjarkerfíð „og svörin, sem ég
fékk voru já, já, nei, nei, og nú
hálfu ári síðar stend ég í sömu
sporunum,“ sagði Magnús.
Bæjarstjóri sagði við mig á
sínum tíma, um mánaðamótin
september/október, að ef ég
opnaði stofuna, þá myndi hann
láta loka henni með „einfaldri
lögregluaðgerð."
Þrátt fyrir þessi orð bæjar-
stjóra og þá staðreynd, að
Þorsteinn
Pálsson
formaður
Þorsteinn Pálsson, alþingis-
maður, hefur verið kjörinn
formaður Sjálfstæðisflokksins
til næstu tveggja ára.
Þorsteinn hlaut mjög góða
kosningu, fékk rösklega helming
greiddra atkvæða í fyrstu um-
ferð. Friðrik Sophusson, al-
þingismaður og Birgir ísleifur
Gunnarsson hiutu mun færri
atkvæði.
Þegar úrslitin lágu fyrir til-
kynnti E'riðrik, að hann gæfí
kost á sér til varaformanns-
starfsins, en því hefur hann
gegnt s.l. 2 ár.
íslcndingur árnar hinum nýja
formanni Sjálfstæðisflokksins
heilla í nýju og vafalaust erils-
sömu starfi.
Sigurður. „íþróttafélögin eru
að drepast af peningaskorti og
eitthvað verður að ske. Ég geri
mér grein fyrir því hins vegar, að
við erum í peningasvelti og
okkur vantar stórar fúlgur,“
sagði Sigurður Oddsson.
Að öðru leyti vildi formaður
Þórs ekki ræða þessi leiktækja-
mál frekar fyrr en stjórnin hefði
fjallað um málið.
íslendingur hefur fengið það
staðfest, að fulltrúi í bæjar-
stjórnarmeirihiutanum hvatti
Þórsmenn til að senda inn um-
sóknina um einkaleyfið.
leiktækjastofan hefurveriðopin
í tæpar tvær vikur, hefur ekkert
gerz.t og hyggst Magnús því
halda áfram reksturinn, eins og
ekkert hafi í skorizt.
Elías I. Elíasson, bæjarfógeti,
sagði í samtali við íslending, að
engin kæra hefði borizt embætt-
inu vegna starfrækslu leiktækja
í Kaupangi frá bæjarstjóra eða
forseta bæjarstjórnar.
„Ef það kemur kæra, þá
verður henni sinnt að sjálf-
sögðu,“ sagði Elías I. Elíasson.
Magnús Kjartansson, eigandi leiktækja í Kaupangi:
Hef tapað nær
einni milljón