Íslendingur - 21.02.1985, Page 1
7. TBL. 70. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 21. FEBRUAR 1985
AKUREYRI
Uppsagnir kennara:
Stefnir í
mikið óefni
Blaðinu hefur borist eftirfarandi
samþykkt frá samstarfsnefnd
framhaldsskóla á Norðurlandi:
„Fundur í samstarfsnefnd
framhaldsskólanna á Norður-
landi, haldinn á Akureyri 12.
febrúar 1985, tekur undir
ályktun Skólameistarafélags ís-
lands frá 8. þ.m. til ríkisstjómar
íslands. í mikið óefni stefnir í
skólum vegna uppsagna kenn-
ara. Margt bendir til þess að
framhaldsskólar landsins verði
óstarfhæfir á næstu mánuðum.
Vandi íslendinga í efnahags- og
atvinnumálum verður ekki leyst-
ur nema með bættri þekkingu
og menntun á öllum sviðum.
Það verður ekki nema með betri
skólum og öflugri menntun. Til
þess þarf hæfa og vel menntaða
kennara. Þeir fást ekki til fram-
búðar nema gegn sanngjömum
launum. Samstarfsnefnd fram-
haldsskólanna skorar því á
stjómvöld að bæta úr því
ófremdarástandi sem ríkir í
kjaramálum kennara í landinu.”
Útsvör lœkka í 10,4%
Eins og dropi í hafíð, segir Sigurður J. Sigurðsson
Meirihluti bæjarstjómar Akur-
eyrar hefur komið sér saman
um fjárhagsáætlun. Gengið var
frá henni sl. þriðjudag til fyrri
umræðu í bæjarstjórn. Hún var
lögð fyrir bæjarráð í gær og fer
fyrir bæjarstjóm nk. þriðjudag.
Helstu nýmælin í þessari fjár-
hagsáætlun em að álagningar-
prósenta útsvars er lækkuð úr
10,6% í 10,4%.
Það hefur gengið afar
brösulega að koma áætluninni
saman að sögn heimildar-
manna íslendings. Ágreiningur
var um ýmis áhersluatriði, en
sérstaklega snérist hann um út-
svarsprósentuna. Kvenna-
framboðið og Alþýðubanda-
lagið vildu hækka hana eða að
minnsta kosti halda henni
óbreyttri. En framsóknarmenn
fengu því framgengt að hún
var lækkuð um einn tíunda úr
prósenti. Þegar tekist var á um
þetta hrikti í samstarflnu, jafn-
vel svo að við lá að það brysti.
Þessi ágreiningur kom í veg
fyrir það lengi vel, að hægt
væri að taka ákvarðanir um
ýmsa útgjaldaliði.
„Þessi lækkun er eins og
dropi í hafið og vegur engan
veginn upp á móti þeirri
hækkun, sem varð á fasteigna-
gjöldum,” sagði Sigurður J.
Sigurðsson, bæjarfulltrúi.
Hann sagði að í fyrra hefðu
sjálfstæðismenn lagt til að
álagningarprósentan yrði
10,4%, svo að þessi tillaga væri
ekkert nýnæmi fyrir sig. Þetta
þýddi að bæjarsjóður tapaði
um það bil tveimur milljónum
í tekjum, sem skipti engu máli
til eða frá hvorki fyrir bæjar-
sjóð né gjaldendur. Þessi lækk-
un væri hrein sýndarmennska.
Hefúhundin öskudagsnuindering.
-jósm. ber
Wilhelm V. Steindórsson, hitaveitustjóri:
Niðurgreiðslur rafhitunar
grafa undan hitaveitum
Skekkja alla verðmyndun, segir iðnaðarráðherra
Eins og skýrt hefur verið frá hér
í blaðinu, hefur rafveitustjóri
Akureyrar skrifað iðnaðarráð-
herra bréf og farið þess á leit við
hann, að raforka til húshitunar á
Akureyri verði greidd niður á
sama hátt og á sölusvæði
RARIK. íslendingur sneri sér til
hitaveitustjóra og spurði hann,
hvaða áhrif það hefði á rekstur
Hitaveitu Akureyrar, ef iðnaðar-
ráðherra samþykkti beiðni raf-
veitustjóra.
„Það er ljóst,” sagði Wilhelm
V. Steindórsson hitaveitustjóri,
„að ef af þessu verður, nær
Hitaveita Akureyrar ekki þeim
markaði, sem hún hefur stefnt
að að ná. Ef veitan nær ekki
þessum markaði, veröa færri
Akureyringar til að axla byrðar
Hitaveitunnar og orkuverð til
þeirra verður hærra.
Ég er þeirrar skoðunar, að
þessi niðurgreiðslustefna ríkis-
valdsins sé mjög slæm og hafi
skapað gífurleg vandamál. Við
skulum hafa í huga, að á íslandi
eru 35 hitaveitur, og sennilega
um 20 af þeim í miklum fjár-
hagsvanda. Hjá flestum þessum
veitum er vandinn m.a. af því,
að þær hafa ekki náð þeim
upphitunarmarkaði, sem
reiknað hafði verið með í frum-
áætlunum þeirra, og ástæðan er
að meginhluta til sú, að niður-
greiðslum hefur verið beitt til
þeirra aðila, sem nota rafhitun.
í upphaflegri áætlun H.A. var
gert ráð fyrir, að allur bærinn
tengdist veitunni og við það var
dreifikerfi hennar miðað. Fjár-
hagsáætlun miðast við, að Akur-
eyri væri hituð með hitaveitu. Á
grundvelli þessara áætlana
tengdist hitaveitunni stór hluti
þeirra íbúða, sem voru raf-
hitaðar, en talsverður hluti hefur
þó ekki enn tengst. Það hefur
skapað þann vanda, að tekjur
veitunnar hafa ekki orðið eins
miklar og upphaflega var gert
ráð fyrir. Af þeim ástæðum m.a.
hefur orðið að hækka gjöld
þeirra, sem tengst hafa veit-
unni.”
Einnig gat hitaveitustjóri þess,
að dreifikerfi Hitaveitunnar
hefði verið miðað við að öll hús í
bænum yrðu tengd. „Af þeim
sökum verður meiri kæling á
heita vatninu til notenda en ella,
og er þetta önnur aðalástæðan
fyrir hitafalli vatnsins.”
Sem dæmi má taka þriggja
íbúða hús, þarsem eigandi einn-
ar íbúðarinnar hefur lagt í
kostnað við að breyta ofnakerfi
og hefur tengst hitaveitu, en
aðrir íbúar hússins halda raf-
hitun. Heimæð viðkomandi húss
er miðuð við, að allar íbúðir þess
tengist Hitaveitunni, og er það
sjálfgefið að hitafall þessarar
heimæðar verður verulegt, þar
sem forsendur hafa brugðist. Að
sögn hitaveitustjóra má heim-
færa þetta dæmi nánast upp á
allt dreifikerfi bæjarins.
„Það er alveg ljóst, að ef
Gerðahverfi II kemur inn í
dæmið sem og önnur hverfi og
önnur rafhituð hús í bænum, þá
mun verð á heitu vatni til þeirra,
sem tengdir eru Hitaveitu Akur-
eyrar í dag verða töluvert lægra
en það er.
Hvað varðar Gerðahverfi II,
þá er það rétt, að í því hverfi
hafa ekki verið lagðar hitaveitu-
pípur. En allt aðliggjandi kerfi er
við það miðað, að hverfið noti
heitt vatn. Þannig er fyrirsjáan-
legt að framkvæmdakostnaður
við lagningu hitaveitu í þetta
hverfi verður hlutfallslega mjög
lágur.
Forsenda þess, að hitaveita
komi í Gerðahverfi II, er að allir
íbúar hverfisins noti hitaveitu-
hitun, eins og reglugerð H.A.
gerir raunar ráð fyrir að allir
Akureyringar geri.
Það er út af fyrir sig mjög
umdeilanlegt, hvort eðlilegt og
sjálfsagt sé að greiða niður raf-
orkuverð til húshitunar, en hitt
er óviðunandi, að með niður-
greiðslum á raforku sé verið að
grafa undan rekstri hitaveitna
um allt land, eins og nú tíðkast,”
sagði hitaveitustjóri að lokum.
„Ég er að vinna að því að kom-
ast út úr niðurgreiðslufargan-
inu,” sagði Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra í viðtali við fs-
lending. „Niðurgreiðslurnar
skekkja alla verðmyndun og eru
gjörsamlega óviðunandi. Ég tala
nú ekki um það, þegar rafveitur
sækja um niðurgreiðslur á svæð-
um, þar sem menn hafa með
gífurlegum kostnaði séð fyrir
heitu vatni. Slíkum beiðnum
hlýt ég að taka með mikilli var-
úð.
í þessu tilfelli var það notaö
sem rökstuðningur fyrir umsókn
um niðurgreiðslur að ekki væri
meira vatn fáanlegt hjá Hitaveit-
unni, og í öðru lagi snerti þetta
bæjarhluta, þar sem hitaveita
yrði ekki lögð. Hafi þær forsend-
ur breyst ber að taka tillit til
þess."
Ratsjármáiið:
Mikill hiti
í málinu
„Því er ekki að neita að það
skiptir nokkuð i tvö hom í þessu
máli,” sagði Björgvin Þórodds-
son, Garði, Þistilfirði, hrepps-
nefndarmaður í Svalbarðshreppi,
þegar hann var inntur eftir því
hvort skoðanir væm mjög skiptar
um byggingu radarstöðva á
Langanesi. „Það er ekki hægt að
segja að sú skipting sé algerlega
eftir pólitískum línum.”
Björgvin sagði að þessum und-
irskriflum gegn radarstöð-
inni hetði verið safnað með
mjög miklum þrýstingi og þess
vegna væri eklri hægt að taka
fullt mark á þeim. Til dæmis
hefðu oddvitar í Svalbarðs-
hreppi og Sauðaneshreppi geng-
ið á alla bæi til að safna undir-
skriftum. Hann sagði að gengið
hefði verið nokkuð fast eftir því
að skrifað væri undir. Þegar
hann sjálfur hefði neitað að
skrifa undir hefði hann strax
verið spurður: „Vilt þú heldur
að bömin þín farist í kjarnorku-
stríði en að þau komist inn á
umráðasvæði Rússa?” Hann
sagði það óviðkunnanlegt, þegar
menn væru krafðir svara við
svona spurningum að allri fjöl-
skyldunni áheyrandi.
„Það er mikill hiti í þessu á
báða bóga," sagði Björgvin.
„Þetta mál hefur valdið óánægju
og illdeilum innan heimila og
milli vina. Þetta er lítið samfélag
hér, þar sem allir þekkjast og
vita um pólitískar skoöanir hvers
annars. Svona deilur verða ill-
vígari hér en í þéttbýli.
Björgvin sagði að Sverrir
Haukur Gunnlaugsson, deildar-
stjóri vamarmáladeildar utan-
ríkisráðuneytisins, hefði haldið
fund með hreppsnefndarmönn-
um fyrir nokkru síðan og hefði
þá enginn hreyft mótmælum.
„Ég lít ekki á þessar stöðvar
sem aukningu á vígbúnaði í
heiminum. Þær eru fremur til að
draga úr vopnaskaki, því að þær
gera mögulegt friðsamlegt eftir-
lit. Það er því alrangt að hér sé
verið að bæta við vígbúnað í
heiminum,” sagði Björgvin.
GHF