Íslendingur - 21.02.1985, Qupperneq 4
4
Leiðarljós í
landbúnaði
Þau versnandi kjðr, sem þjóðin hefur orðið að búa við
siðastliðin ár, hafa orðið til þess að opinber afskipti af
landbúnaðinum hafa saett mikilli gagnrýni og verið endur-
metin. í kjölfar þeirrar endurskoðunar eru stjómmálaöflin i
landinu nú að viðra hugmyndir sínar um helstu þætti
landbúnaðarmálanna.
Á vegum stjómarflokkanna tveggja staifar nefnd, sem
hefur það hlutverk að endurskoða lög um Framleiðsluráð
landbúnaðaríns. Þótt sú nefnd hafi ekki enn lokið störfum,
hafa atríði, sem Sjálfstæðismenn hafa lagt áherslu á f
nefhdinni veríð litillega til umfjöllunar í Uöðum.
Þótt þessar almennu hugmyndir varpi nokkru Ijósi á þá
landbúnaðarstefnu, sem nú er í mótun hjá Sjálfstæðis-
flokknum, vantar um þær upplýsingar um nánari útfærslu,
og er þvf erfitt að meta giidi þeirra á þessu stigi málsins.
Stjómun landbúnaðarmála er viðkvæmt og vandmeð-
farið verkefni, sem snertir hagsmuni allra landsntanna bæði
til skemmri og lengri tíma. Það, sem hefur gert umræður
um landbúnaðarmál á Islandi erfiðar og sársaukafullar, er
sú staðreynd að ákveðin öfl í þéttbýli hafa rekið
hatramman og oft á tiðum ómaklegan áróður gegn
opinbenim afskiptum af landbúnaði.
Þvf fer víðs fjarri að þessi vandamál séu bundin Íslandi
einu. Um allan heim eru landbúnaðarmál með erfiðustu
viðfangsefnum samtfmans, þótt þau séu næsta ólfk eftir
heimshlutiun. Vanhæfni og getuieysí sovésks landbúnaðar
eru sérkafii f landbúnaðarsögunni, og svo er einnig um
landbúnað í mörgum hinna svonefndu ríkja þriðja heimsins.
f Vestur-Evrópu og í Bandaríkjunum er vandinn hins
vegar náskyldur okkar vandamálum. í þessum heimshluta
eru opinber afskipti af landbúnaði mikil. Ástæðan er fyrst
og fremst sú, að þar hefur reynslan, stundum ærið dýrkeypt,
sýnt fram á mikilvægi eigin landbúnaðar og matvælafram-
leiðslu. Þær þjóðir, sem þennan hluta heimsins byggja, hafa
allar sannfærst um, að það sé þeim verulega mikils virði að
sjá til þess að landbúnaður þrifist við jafhvægi og sé varínn
fyrir míklum sveiflum og áfóllum.
Það hefur ekki gengið áfailalaust að komast að þessari
niðurstöðu. Kreppuár og heimsstyrjaldir eru sú þymum
stráða leið, sem hefur opnað augu manna fyrir þvi að
landbúnaður er fjöregg, sem fara beri variega með. f
Bandarikjunum fyigdi mjög aukinn opihber stuðningur við
landbúnað í kjölfar kreppunnar miklu. Heimsstyijöldin
sfðari sannfærði Breta um míkilvægi innlends landbúnaðar,
sem hefur nú verið stórefldur.
Það ríkir því nokkuð almennt samkomulag um það í
hinum vestræna heimi, að hlúa þurfi að landbúnaði. Hins
vegar hefur það komið beiiega f Ijós, að ofvemd skaðar
landbúnaðinn og veldur ótrúlegum efnahagslegum og
stjómmálalegum vandræðum. Landbúnaður án tengsla við
markað og eftirspum hneigist til að fjariægjast raunvem-
leikann. Ofvemdin skapar faLskar forsendur og leiðir
bændur inn á vafasamar brautir í fjárfestingu og fram-
kvæmdum. Þegar stjómvöld vakna til Iffsins og raunvem-
leikans, hafa þau ekki aðeins reist sér minnisvarða í
offramieiðslu (8.5 milljónir tonna af mjólkurvömm i
Bandaríkjunum árið 1984), heldur standa þau einnig uppi
með mikið mannlegt vandamál, sem ckki hefur reynst
auðvelt að leysa.
í þeim hugmyndum Sjálfstæðismanna um nýja land-
búnaðarstefnu, sem viðraðar hafa verið, er þess getið að
nýjar búgreinar verði að hafa arðsemi að leiðarijósi. I raun
er arðsemi markmið, sem allur landbúnaður verður að hafa
að leiðaríjósi, jafnt hefðbundinn sem nýr. Það er land-
búnaðinum jafh nauðsynlegt að búa við aðhald eftirspumar
og maikaðar og það er nauðsynlegt fyrir þjóðfélagið að
hlúa að landbúnaðí og veija hann fyrir sveiflum og áföllum.
Hann er eitt af fjöreggjum þjóðarinnar. Fömm því gætilega
með hann.
TIO
3<?lcudin0ur
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985
Jötcndinaur
Bnkaframtakið ríkjandi í tölvukennslu
segir Eiríkur K. Þorbjömson, skólastjórí Framsýnar
Tölvunotkun og tölvueign eykst
jafnt og þe'tt hér í bœ. Fyrirtœki
sem selja tölvur og þjónusta þœr
eru nokkur. Eitt það yngsta, enn
á fyrsta ári, er Tölvutœki, í eigu
bræðranna Unnars Þórs og Jóns
Ellerts Lárussona. Þeir hafa
komið sér fyrir í glœsilegu hás-
nœði í Gránufélagsgötu 4 á efri
hæð þar sem meðal annars er
kennslusalur með 7 tölvum.
Tölvutæki hefur efnt til nám-
skeiða í samvinnu við tölvuskól-
ann Framsýn í Reykjavík ná í
vetur og aðsókn vex stöðugt.
Nýlega efndu þeir til námskeiðs
fyrir bankamenn á Akureyri til
að kynna þeim notkun tölva í
bankastarfsemi og hvaða mögu-
leika þœr gefa. íslendingur
ræddi við Eirik Þorbjömsson,
skólastjóra Framsýnar, Unnar
Þór Lárusson, framkvœmda-
stjóra Tölvutœkja, og Guðjón
Steindórsson, skrifstofustjóra í
Iðnaðarbankanum.
Tölvuskólinn Framsýn í Reykjavík hefur í
samvinnu viö Tölvutæki hf. haldiö námskeið í
notkun tölva hér á Akureyri nú um nokkurt
skeið. Eiríkur K. Þorbjörnsson, skólastjóri var
tekinn tali og spurður fyrst um skólann.
Eiríkur K. Þorbjörnsson.
„Tölvuskólinn Framsýn í Reykjavík er
einkafyrirtæki og við erum þrír sem eigum
hann og tveir okkar starfa í fullri vinnu í
skólanum. Það er ein stúlka í starfi hjá okkur
og svo erum við með töluveit stóran hóp af
lausráðnum kennurum, 10 til 15. Þeir taka að
sér ákveðin verkefni, kenna á tiltekin kerfi. í
Reykjavík kennum við 5 daga vikunnar frá 9 á
morgnana til 11 á kvöldin og á laugardögum
frá hádegi og fram til 6 aö kvöldi. Námskeiðin
eru tvenns konar: almenn námskeið, sem við
höldum reglulega og svo ýmiskonar sémám-
skeið fyrir fyrirtæki. Á daginn eru fyrirtækin og
einstaklingamir á kvöldin. Hluti af því sem viö
höfum gert, er að fara út á land. Við höfum
ekki verið áð fara út á land á sumrin, heldur
höfum við farið á veturna, þegar fólk hefur
viljað að við kæmum. Við höfum tengiaðila um
allt land, sem hafa séð þörfma fyrir námskeið.
Þá hafa þeir .hringt í okkur og við höfum komið
og haldið helgamámskeið, vikunámskeið eða
annars konar námskeið, sem hefur hentað
hveiju sinni. Við erum núna búnir að fara á
mjög marga staði úti á landi, við höfum nánast
farið hringinn í kringum landið. Við erum að
vinna að því að fara á Austfirði en það er eina
svæðið, sem við eigum eftir að koma á.”
Eiríkur sagði að samstarfið við Tölvutæki sf.
hefði hafist á síðast ári. Það hefði verið komið
mikið af tölvum hingað í bæinn og þörf hefði
verið fyrir kennslu og mikill tölvuáhugi. Sam-
starfmu við Tölvutæki sf. væri þannig háttað
að það væri umboðsaðili Framsýnar á Akur-
eyri og sæi alfarið um námskeiðin. Það eina
sem þeir gerðu hjá Framsýn væri að koma með
hluta af búnaðinum og kennara. Að öðru leyti
sæi Tölvutæki um námskeiðin.
„Við höfum verið að skoða það,” sagði
Eiríkur, „hvort þetta samstarf ætti ekki að
ganga lengra. Við höfum kómið hingað á
eins mánaðar fresti síðan s.l. sumar
Nemendur okkar frá því að við byrjuöum eru
orðnir um 300. Bæði kemur fólk úr fyrirtækj-
um og sem einstaklingar. Okkur hefur tekist að
ná góðu sambandi viö fyrirtæki. Við viljum að
fólk sc ánægt og fái eitthvað út úr því sem það
er að læra. Við höfum því reynt að hafa ekki
einungis byijendanámskeið heldur boðið upp á
famhaldsnámskeið til að fólk geti lært meira en
undirstöðuatriðin.”
Eiríkur sagði að Tölvutæki hefði séð þörf á
ýmsum sérnámskeiðum, t.d. fyrir banka-
starfsmenn, en það námskeið stóo yfir, þegar
íslendingur ræddi við hann. Þeir hefðu haldið
námskeið fyrir bankastarfsmenn í Reykjavík og
héldu svipað námskeið nú fyrir bankastarfs-
menn á Akureyri frá ýmsum bönkum, Iðnaðar-
bankanum, Sparisjóði Glæsibæjarhrepps og
fleiri. Þetta námskeið væri grunnnámskeið fyrir
bankastarfsmenn. Farið væri yfir þá mögu-
leika, sem tölvur gæfu í bankastarfsemi, kennt
á ritvinnsluforrit og töflureikna, sem væru
mjög gagnlegir fyrir banka. Einnig væri tekið
fyrir gagnagrunnskerfí, þar sem sýnt væri
hvernig hægt væri að nota það til að vinna
með upplýsingar fyrir viðskiptamenn. Þetta
væri ekki kennsla á sérstakar gerðir tölva
heldur almennt námskeið um möguleika tölv-
ana.
Eirikur sagði að bankarnir í landinu væru að
taka tölvuna í sína þjónustu. Fyrir tveimur
árum hefði verið ákveðið að tölvuvæða bank-
ana og átti að standa sameiginlega að útboði á
tölvustýrðu afgreiðslukerfi, svokölluðu „on
line” kerfi, eða beinlínukerfi. Það þýðir að allir
bankar, sem eru í sambandi við kerfíð, eru
beint tengdir og það er hægt að gera hvað sem
er í þeim bönkum, sem maður er í sambandi
við, færa inn á reikning, taka út af honum,
millifæra eða hvað annað, sem manni dettur í
hug. f nefnd, sem bankamir skipuðu sína
fulltrúa í, og fjallaði um sameiginleg tölvuinn-
kaup bankanna, var tekin ákvörðun um að
kaupa kerfi frá Kingsley fyrirtækinu. En um
þetta varð ekki fullt samkomulag, því að
Iðnaðarbankinn var þegar kominn með kerfi
frá IBM og vildi halda sig við það fyrirtæki.
Iðnaðarbankinn er að sögn Eiríks kominn
einna lengst í tölvuvæðingu starfsemi sinnar af
íslenskum bönkum. En nú væri búiö að koma
þessu Kingsley kerfi fyrir í einu útibúa Lands-
bankans í Reykjavík og væri að byija að koma
reynsla á það þar.
„Aftur á móti hefur Iðnaðarbankinn staðið
framarlega í notkun tölva í bönkunum og verið
ósmeykur við að prófa hlutina,” sagði Eiríkur.
„Það, sem þeir eru nú að skoða, er að fá
einkatölvur í hvert útibú. Þær eru notaðar við
að vinna úr gögnum á hveijum stað, en einnig
er hægt að tengja þær við móðurtölvu bankans
til að flytja gögn á milli. Nú vilja menn því sjá
hvað hægt er að gera með einkatölvum.”
Verður mikill vinnusparnaður af notkun
tölva í bönkum?
„Já það er enginn vafi á því. Sérstaklega
eykur það möguleika á betri þjónustu, Það er
hægt að gefa glöggar upplýsingar á svipstundu,
til dæmis um stöðu á reikningum, útreikninga
á afborgunum af lánum og fleiru. Viðskipta-
vinurinn verður því ánægðari með sinn hlut.
Afgreiðslukerfið sjálft er mjög tímasparandi.
Af hveiju hefur tölvukennsla verið að mestu
í höndum einkaaðila fram til þessa?
„Það má segja að einkaframtakið hafi verið
alls ráðandi í framleiðslu tölva. Það er framtak
einstaklingsins sem ræður því að tölvur eru
komnar víða. Og það kemur af sjálfu sér að
einkaframtakið er ríkjandi í kennslu á tölvur,
því aö ríkið er lengur að taka við sér. Þegar
tölvuskólinn Framsýn byijaði fyrir 3 árum, þá
byrjuðu einir 5 einkaskólar. Af þeim erum við
eini skólinn, sem enn starfar. Við teljum að það
stafi af því að við höfum lagt metnað okkar í
að gera þetta vel. I opinbera skólakerfmu þá
fóru Gagnfræðaskólinn og námsflokkamir hér
á Akureyri og í Reykjavík snemma af stað með
tölvukennslu og auðvitað vildu skólarnir fara
af stað með svona kennslu. Fyrst átti að ákveða
hvaða tölvur skyldu keyptar. En það gleymdist
hins vegar að mínu áliti, hver átti að vera
andi verða skólamir svo tölvuvæddir að nem-
endur fái innsýn í þessa hluti, og læri að
hagnýta sér tölvuna. Þá á ég ekki við að allir
verði forritarar. Það er útilokað. En þvi al-
mennari sem þekking á tölvum er, því betur
læmm við að umgangast þessi tæki á réttan
hátt. Ríkið þyrfti að hafa ákveðna forgöngu í
þessu, en því miður hefur svo ekki verið. Þess
vegna hafa einkaskólarnir komið til sögunnar.”
Telurðu æskilegt að þeir sjái um þessa
kennslu að minnsta kosti að einhveiju leyti?
„Já ég tel svo vera, fyrst og fremst vegna þess
að einkaskólarnir leggja þann metnað í þetta,
sem til þarf. Það á ekki að vera svo, eins og er
kannski tilhneiging hjá ríkinu, að gera þetta af
skyldurækni. Það gengur ekki.”
Er það líklegt að þau fyrirtæki í tölvu-
kennslu, sem nú þegar eru komin á legg, haldi
velli?
„Tvímælalaust. Fyrst og fremst vegna þess
að þó svo við sjáum fram á það að skólamir
verði komnir með tölvur innan fárra ára, þá er
stór hópur fyrir utan gmnnskólana og fram-
haldsskólana, sem ekki hefur möguleika til að
fara í þá. Þetta fólk þarf líka að eiga kost á slíku
námi. Ég tel það tvímælalaust að einkaskólam-
ir eigi eftir að vera við lýði. Annað i þessu
sambandi er að það þarf sérstaka skóla til að
annast ákveðna sérkennslu í tilteknum hug-
búnaði í tölvur. Ríkisskólarnir hafa ekki mögu-
leika á því.”
Hafið þið hjá Framsýn sinnt slíkri kennslu?
„Já, við höfum gert það með samningum við
fyrirtæki og stofnanir þar sem við sjáum alfarið
um námskeið fyrir þau. Það kemur kannski nýr
hugbúnaður til fyrirtækisins og þá hafa þau
sent hópa til okkar og við höfum tekið að
okkur að þjálfa fólkið upp í notkun á þessum
tilgangurinn með þessum kaupum. Mér hefur hugbúnaði. Þetta er alltaf að aukast hjá okkur
virst að það skorti nokkuð á að markmiðin með og meðal annars færst hingað til Akureyrar þar
slíkri kennslu væru skýr. En á allra síðustu sem við sjáum um sérkennslu fyrir fyrirtæki og
tímum hefur þetta verið að breytast. En von- stofnanir.”
Þegar íslendingur ræddi við Eirík K. Þor-
bjömsson, skólastjóra Framsýnar stóð yfir
námskeið fyrir starfsmenn Iðnaðarbankans. Til
að fræðast ögn um það námskeið gegnum við
niður í Iðnaðarbanka og ræddum við Guðjón
Steindórsson skrifstofustjóra.
„Við höfum verið að læra notkun einka-
tölva,” sagði Guðjón. „Við höfum farið yfir
uppbyggingu tölvunnar, vélbúnað, hugbúnað,
hvað er tölva, við höfum farið í gegn um
uppbyggingu á ritvinnslukerfi og hvemig við
getum hagnýtt okkur tölvureikni og notkun á
upplýsingaskrá.”
Kemur þetta ykkur til góða í starfi?
„Alveg ömgglega.”
Þið hafið tekið upp tölvur í mun meira mæli
en aðrir bankar. Hvemig hefur það komið út
fyrir bankann?
Tölvumarkaðurínn alltaf að stœkka
segir Unnar Þór Lárusson,framkvæmdastjóri Tölvutækja
Guðjón Steindórsson.
„Nú getum við farið að
snúast í kringum kúnnana”
segir Guðjón Steindórsson, skrifstofustjóri
„Þetta hefur aukið viðskiptin í bankanum
verulega eins og allar tölur sýna. Iðnaðarbank-
inn jók innlán sín næst mest af öllum bönkum
á árinu 1984 og hann jók þau mest af bönkum
á Akureyri.
Þessi tölvunotkun er fyrst og fremst til að
geta þjónað viðskiptavinunum betur. Nýjasti
liðurinn í þeirri þjónustu er tölvubankinn.
Margir hafa fengið sér spjöld til að nýta sér
hann.”
Heldurðu að þessi tölvunotkun muni aukast
mikið i framtíðinni?
„Já, ég held hún muni gera það.”
Er þá bráðnauðsynlegt fyrir alla bankastarfs-
menn aö fara á tölvunámskeið?
„Ég er alveg viss um það, enda em allir aðrir
bankar komnir styttra í tölvuvæðingunni en við
í Iðnaðarbankanum. Við höfum verið í bein-
línuviðskiptum í fimm ár og 1977 byrjuðum
við í gagnavinnslu, að skrásetja og senda til
Reiknistofu bankanna. Útibúið hér er fimm
ámm á eftir bankanum í Reykjavík og eitt, sem
komiö hefur í veg fyrir beinlínuafgreiðslu hér,
ef hve dýrt hefur verið að senda upplýsingar
eftir símalínum. En því var breytt nú um
áramótin og nú er þetta ekki svo dýrt. Nú gerist
allt á sama tíma hjá okkur og í aðalbankan-
um.”
Emð þið að bæta verulega við ykkur á þessu
námskeiði?
„Það sem við erurn að gera, er aö læra á
töflureikni, sem gerir okkur mögulegt að reikna
í einu vetfangi afborganir af láni og gefa
kúnnanum betri upplýsingar en við getum
núna. Markmiðið er að geta betur leyst úr
vandamálum viðskiptavinanna en áður. Ef þeir
þurfa að hitta okkur til að vega og meta hvar
hagstæðast er að geyma peninga eöa vilja selja
skuldabréf, þá höfum við betri tíma til að sinna
hveijum og einum. Við getum farið að snúast í
kringum kúnnana, sérstaklega þá sem leggja
inn.”
„Tölvutæki er sameignarfélag okkar bræðra,
Jóns Ellerts og mín,” sagði Unnar Þór Lárus-
son, þegar hann var spurður, hver ætti fyrir-
tækið. „Verkefni fyrirtækisins er tölvusalá og
alhliða tölvuþjónusta bæði á hugbúnaði og
vélbúnaði og hagnýtingu tölva. Þannig emm
við með námskeiðin frá Tölvuskólanum Fram-
sýn. Við bjóðum einnig þjónustu við val á
hugbúnaði og gangsetningu hans, sérstaklega
hvað varðar bókhald. Þannig ættu menn ekki
að þurfa að sækja allt, sem þessu við kemur,
suður.”
Hvað er fyrirtækið gamalt?
„Það var stofnað í júní á síðasta ári og
reksturiniv hefur gengið mjög vél. Við erum
með samninga við Skrifstofuvélar í Reykjavík
og erum þeirra umboðsmenn. Þeir selja IBM
og Televideo tölvur sem mjög góð reynsla er af,
Star og Silver-Reed prentara, sem hafa verið
mjög vinsælir. Samningar eru í gangi við fleiri
aðila og Stefnan hjá okkur er að vera með
nokkrar vélategundir til sýnis hér og ráðgjög
um val.”
Er tölvueign orðin almenn hér í bænum?
Hafið þið selt mikið af tölvum til einstaklinga?
„Tölvunotkun er orðin nokkuð útbreidd í fyrir-
tækjum hér í bænum og við höfum selt fyrst og
fremst til þeirra. En einnig hafa nokkrir ein-
staklingar keypt hjá okkur tölvur. Samt erum
við um tveimur árum á eftir Reykjavík.”
Hafa bæjarbúar tekiö fyrirtækinu vel og
beint viðskiptum sínum til þín?
„Eftir að þeir hafa .frétt af okkur hafa þeir
beint viðskiptum sínum hingað. Mér virðist að
þeir séu ánægðir með að hafa aöila hér í
bænum til að skipta við. Það eru þægindi fyrir
þá að geta leitað til okkar og fengið okkur á
staðinn til að leiðbeina sér í sínum vandræðum
í stað þess að þurfa að ræða sín vandamál í
síma til Reykjavíkur.”
Heldurðu að það sé mikil framtíð fyrir
tölvukennslu og tölvusölu hér í bæ?
„Já, alveg tvímælalaust. Það er spá manna,
að tölvur muni lækka töluvert í verði og
tölvueign verði mun almennari en í dag.”
Hafið þið þjónað öðrum stöðum en Akur-
eyri?
„Við höfum þjónað Ólafsfirði. Bæjarskrif-
stofan þar keypti af okkur vél. Einnig höfum
við þjónað mönnum á Dalvík. Við höfum ekki
enn náð til Húsavíkur, en meiningin er að gera
það áður en langt um líður og víðar um
Þingeyjarsýslu.”
Hvenær byrjuðu þið með tölvunámskeið
með Framsýn?
„Fyrstu námskeiðin voru haldin í október á
síðasta ári. Síðan höfum við haldið þau á
mánaðarfresti að jafnaði. Nemendafjöldinn er
að nálgast 300 manns.”
Nú hefurðu hér rúmgóðan sal. Verður hann
notaður bæði til kennslu og sem sýningarsalur?
„Já. Stefnan er líka að halda fleiri námskeið
en tölvunámskeið. Við höfum til dæmis verið
að hugsa um námskeið, sem gengið hefur mjög
vel fyrir sunnan, og hefur verið haldið af
* Hagræðingu hf„ námskeið í sölusálfræði og
samskiptatæk’ni. Ég hef verið spenntur fyrir því
að kanna markaðinn fyrir þessu hér. Við getum
notað salinn í þessu skyni, þannig að hér verði
ekki einvörðungu tölvukennsla.”
Hefur fyrirtækið eflst mikið á þessum stutta
tíma, sem það hefur verið til?
„Já það er í stöðugri þróun og nú stöndum við í
samningum við Hewlett-Packard tölvufyrir-
tækið, um sölu á þeirra vörum hér. Þetta er
traust og gott fyrirtæki, sem selur mjög góða
vöru. Stórir aðilar hafa fest kaup á vörum frá
Hewlett-Packard, verkalýðsfélögin, lífeyrissjóð-
irnir og Teiknistofan sf. er að fá tölvukerfi frá
Eiríkur K. Þorbjömsson og Unnar Þ. Lámsson.
þeim. Það má búast við því að þeir verði
nokkuð stórir á þessum markaði hér.”
Áttu von á því að tölvunámskeiðin verði
tíðari í framtíðinni?
„Já, ég býst við því. Þetta er enn á fyrirtækja-
grunni. En þegar almenningur fer að sækja
þetta meira, verða námskeiðin tíðari. Við reikn-
um með að taka við þessum námskeiðum
sjálfir. En það gerum við í fullu samráði við
Framsýn, við byggjum kennsluna upp eins og
þeir og metum þeirra reynslu mikils. Þeir eru
stærstir og reyndastir á þessu sviði og reynsla
þeirra, sem hanna kennsluefni á þessu sviöi er
mjög mikilsverð.” GHF