Íslendingur - Ísafold - 10.12.1969, Blaðsíða 4
4 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 10. DES. 1969.
3Q Kannaði olíuhreinsun
Nýlega fór Jóhann Hafstein
iðnaðarmálaráðherra í stutta
ferð til Finnlands, en erindið
þangað var að kynnast rekstri
olíuhreinsunarstöðva. Iðnaðar-
málaráðuneytið hefur um al'l-
langt skeið athugað möguleika
á stofnun og rekstri slíkrar
stöðvar hér á iandi, og er þeim
athugunum haldið áfram. Var
ferð iðnaðarmálaráðherra liður
í viðleitni ráðuneytisins til að
koma málinu áleiðis. Ríkis-
stjórnin hefur og til athugunar
möguleika á frekari olíuiðnaði.
(Mbl. 2. 12.).
9G Fiðluball
Nemendur tveggja efstu
bekkja Menntaskólans í Reykja
vík minntust fullveldis íslands
með því að endurvekja gamía
skemmtun, fiðluball. Voru þar
allmargir mættir, stúlkurnar í
síðum kjólum og piltarnir í kjól
fötum og með pípuhatta. Dyra-
verðir voru skrautlega klæildir
að gömlum sið og kynntu þeir
dansgesti rækilega við komu
þeirra. Jan Moravék og hljóm-
sveit hans léku marzúka, menú-
etta og aðra gamla dansa, sem
menntskælingar hafa æft undan
farið.
(Mbl. 2. 12.).
9G Úthafsrækja fundin
Hafþór fann á þriðjudaginn
ný rækjumið skammt norðvest-
an við Kolbeinsey, sem er djúpt
út af Eyjafirði, á svipuðum slóð
um og grálúða veiddist í tals-
verðum mæli í sumar, en þá
varð rækjunnar vart þarna. —
Virðist vera um talsvert rækju
magn að ræða, en haldið verður
áfram að kanna rækjumiðin og
hvað þau ná langt til lands. Við
leitina er m.a. notað nýtt troll
með tveim pokum, annar er fyr
ir rækjuna, sá efri, hinn fyrir
fisk.
(Mbl. 3. 12.).
9G 40 milljónir fyrir jólin
Á miðvikudaginn, 10. des.,
verður dregið í 12. fl. Happ-
drættis Háskóla íslands. Út-
dregnir verða 6.500 vinningar
að fjárhæð kr. 39.860.000.00. Er
þetta langhæsta fjárupphæð,
sem dregin hefur verið út í
happdrætti hér á landi til þessa,
og munu margir fá glaðning
fyrir jólin.
(Mbl. 3. 12.).
00 Nýtt Stjórnarráðshús
Nú liggur fyrir, að unnt er
að hefja byggingu nýs stjórnar-
ráðshús þegar er Alþingi ákveð
ur og tryggt verður nægilegt fé
til þess. Teiknirigar af húsinu,
sem standa á við Lækjargötu,
milli Bankastrætis og Ámt-
mannsstígs, eru nær tilbúnar.
(Mbl. 4. 12.).
0G Línukarl til Kóreu
Á Þingeyri við Dýrafjörð er
framleidd sjálfvirk iínudráttar-
vél, sem nýtur mikilla vinsælda.
Uppfinningamaður og framleið
andi er Matthías Guðmundsson,
en sölu annast I. Pálmason hf.
Þetta apparat kal'last línukarl.
Nú er að hefjast útflutningur á
línukörlum til Kóreu, er fyrsta
sending þegar farin. Kaupin
fara fram í gegn um innkaupa-
deild FAO. Þá mun einnig vera
markaður fyrir línukarla í Al-
aska og víðar.
(Mbl. 4. 12.).
9G 14 íslenzkir málaliðar?
Á þriðjudaginn birtist í Morg
unblaðinu auglýsing, þar sem
óskað var eftir íslenzkum flug-
mönnum til starfa í flugher Von
Rosén í Biafra, sem myndaður
er af 20 smáflugvélum búnum
eldflaugum og sprengjum og
hefur reynzt skeinuhættur her
sambandsstjórnarinnar í Niger
íu. Áttu þeir, sem áhuga hefðu,
að senda skeyti á ákveðið hótel
í París. Fjórtán skeyti bárust
þangað, en enginn vitjaði
þeirra. Er ekki vitað frekar um
málið á þessu stigi.
(Mbl. 5. 12.).
30 76% með EFTA-aðild
Atkvæðagreiðsla hefur farið
fram innan Félags íslenzkra iðn
rekenda um afstöðu til aðildar
að EFTA. 75.1% atkvæðisrétt-
ar var notað. Með aðild nð
EFTA reyndust 76.3%, á móti
22.2%, en hlutflaus 1.5%.
(Mbl. 5. 12.).
90 Myndir Sölva Helgasonair
Sölva Helgason eða Sólon Is-
landus kannast flestir íslend-
ingar við, enda mikið verið um
hann ritað. Hann var m.a. mik-
ill hagleiksmaður, og nú hefur
þjóðminjavörður, Þór Magnús-
son, valið þrjár mynda hans til
eftirprentunar, og eru eftir-
prentanirnar komnar út. Er
upplag þeirra mjög takmarkað.
Hver eftirprentun kostar 350
krónur.
(Vísir 1. 12.).
0G Hvernig endar flóttinn?
Tveir lokaþættir í flótta
Kimbles læknis í sjónvarpinu
eru nú komnir til landsins og
eru næst á dagskrá í þessum
myndaflokki. Koma þeir nú
hver á fætur öðrum og ríkir að
sjálfsögðu mikil eftirvænting
að vita örlög læknisins. Loka-
þættirnir eru varðveittir hjá
sjónvarpinu sem hernaðarleynd
armál og því ekki unnt að
skýra frá efni þeirra!
(Vísir 2. 12.).
[90 Skíðaparadís við Lögberg
Á næstu dögum verður opn-
að nýtt skíðasvæði aðeins rúma
10 km frá Reykjavík, en ætlun-
in er að í framtíðinni verði þar
ein allsherjar skíðaparadís fyr-
ir íbúa Reykjavíkursvæðisins,
með tilbúnum snjó og alls koa-
ar útbúnaði. 1 vetur verður að-
eins um tilraunastarfsemi að
ræða. Þetta svæði er við Lög-
berg, í landi Kópavogs, og verð
ur sumardvalarheimili Kópa-
vogsbæjar fyrir börn, sem
þarna er rekið, notað sem mið-
stöð starfseminnar fyrst um
sinn.
(Vísir 4. 12.).
9G Ferð á heimssýningu
Ferðaskrifstofan Sunna hefur
skipulagt ferð á heimssýning-
una, sem verður í Japan næst,
og er búið að panta 10—12 sæti
nú þegar. Þessi ferð kostar að-
eins 88 þús. kr. á mann, sem er
lágt miðað við vegalengd, og
þar að auki er hægt að fá ferð-
ina með afborgunum, 8 þús. kr.
á mánuði. Þessi ferð verður far
in í september 1970 og mun
standa í 21 dag.
(Alþbl. 4. 12.).
3G Trúbrot í spilabann?
Meðlimir í hljómsveitinni
Trúbrot urðu nýlega uppvísir
að því að neyta fíknilyfja. —
Heyrzt hefur, að vinsælustu
skemmtistaðir unga fólksins
verði framvegis af þessum sök-
um lokaðir hljómsveitinni. __
(Alþbl. 4. 12.).