Íslendingur - Ísafold - 03.04.1971, Qupperneq 12
12 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - LAUGARDAGUR 3. APRlL 1971.
ALLT (
Nýkomiö mikið úrval af KRYDDVÖRUM.
Alltaf citthvaö nýtt. - SENDUM HEIM.
Hafnarbúðin
PÁSKABAKSTURIIMIM
Sími 1-1094
'kipagötu 4.
Útibú Grænumýri 20.
7V
*
*
&
MHMMm JTOBÍ ■ ■■Ml
*%L~ ii H g aa.m *r*
i» ■! ® BijÍ ^
KOIMUR*
.. .. : ■ 3r?
Nú fer páskavikan í hönd,
en henni fylgir yfirleitt mikið
annríki hjá húsmóðurinni. Við
skulum því reyna að hagræða
vinnu okkar þannig, að einnig
húsmæðurnar geti notið páska
leyfisins, stundað fjallið, farið
í gönguferðir eða notið frí-
stundanna á annan heilbrigð-
an hátt, án þess þó að það
gangi um of út yfir matseid-
ina. Hér eru því nokkrar upp-
skriftir af mat, sem hægt er að
undirbúa með góðum fyfir-
vara. Hef ég til þess valið
kjúklinga, sem er hollur og
góður matur, en inniheldur þó
ekki allt of margar kaloriur.
2 pk. kjúldingabrjóst.
IV2 tsk. salt.
1 ds. grænar baunir.
1 pund sveppir (eða 1 ds.).
3 msk. smjör.
3 msk. hveiti.
1 msk. laukduft.
V2 msk. selery.
V2 msk. paprilra.
V2 msk. oregano.
V2 tsk. Worchesterhire-sósa.
V* tsk, tabasco (má sleppa).
V2 bolli hvítvín (má sleppa).
Rjómi.
Hrísgrjón.
Kjúklingarnir soðnir í 1;2
klst., sósan bökuð upp og
krydduð, kjúkl., sveppum og
rjóma bætt út í, borið fram
með hrísgrjónum og salati.
1 kjúldingur (sundurlimað-
ur) steiktur á pönnu og saltað-
ur. Settur í eldfast mót eða ofn
skúffuna. 1 ds. Camnell cream
of mushrooms hrærð upp
með rjóma og 2 msk. sherry
hellt yfir kjúklinginn og hitað
í ofni í 45 mín. Álpappír er
settur yfir. Borið fram með
hrísgrjónum og frönskum kart
öflum.
Kjúldingar framreiddir á þýzk-
an hátt:
Sundurlimaðir kjúklingar
soðnir í 45 mín., iengur eða
skemur eftir stærð. Velt upp
úr hveiti. Brúnaðir á pönnu í
smjöri og bornir fram með
cocktailsósu, salati og frönsk-
um kartöflum.
Cocktailsósa:
Mayonaise hrært upp mcð
þeyttum rjóma, kryddað með
tómatsósu og Worchesterhire-
sósu.
Fyrir þá, sem ekki eru gin-
keyptir fyrir kjúklinga, hef ég
valið nautageira.
Nautageirinn er þurrsteiktur
á pönnu, smjöri, tómatsósu og
sinnepi bætt út í, cognac hellt
yfir og kveikt í með eldspýtu
(ekki kveikjara), borið fram
með salati og frönskum kart-
öflum eða köldu kartöflusal-
ati.
Kalt kartöflusalat:
Mayonaise hrært út með
þeyttum rjóma, rifnum laulc
og rauðbeðum blandað saman
við. Skreytt með harðsoðnum
eggjum.
Sem eftirrétt er handhægt
að hafa eplalcöku, hana má út-
búa með góðum fyrirvarn, Tví
bökurasp er brúnað mcð sykri
í smjöri, kanel síráð yfir' Tví-
bökuraspið er síðan sett í skál,
bananar sko-nir í sneiðar og
raðað yfir raspið, gele bitum
dreift yfir, 0 ’ eplamauk smurt
yfir kökuna, þá e- sett annað
lag af raspi og skreytt með
miklum rjóma.
Dönsk eplakaka:
4 —5 dl tvíbökurasp.
1 dl sykur.
100 g smjör.
Kanel.
Bananar.
1 dós eplamauk.
Góð páskaterta:
Tertubotnar:
3 egg.
150 g sykur.
100 g valhnetukjarnar.
IV2 msk. kartöflumjöl.
1 tsk. lyftiduft.
Fylling:
2V2 dl rjómi.
Skreyting:
1 pk. linur möndlusykur —
(Blöd nougat).
2V2 dl rjómi.
Þeytið egg og sykur ljóst og
létt. Saxið hnetukjarnana í
möndlukvörn, blandið kart-
öflumjöli og lyftidufti saman
við og blandið þessu varlega
saman við eggin. Smyrjið. og
stráið brauðmylsnu innan í
tertumót, ca. 24 cm í þver-
mál og bakið tvo tertubotna
úr deiginu við ca 200° C í
15 — 20 mín. Þegar botnarnir
eru kaldir, eru þeir lagðir sam
an með þeyttum rjóma.
Frá Garðyrkjufél. Akureyrar
Meðan náttúran er í vetrar-
hvíld, þráum við ákaft merki
vorsins og gróðursins. Ef við
eigum runna og tré í garðinum
okkar, getum við klippt af
þeim greinar og látið þær
springa út inni. Til þess að
hafa erindi sem erfiði, verðum
við að vita dálítið um líf
plantnanna, og þá ekki sízt
að vetrarlagi.
Tré og runnar hafa bæði
hvíldar- og dvalatíma (auk
vaxtartímans). Hvíldartíminn
orsakast af innra ástandi plönt
unnar. Dvalartíminn er afleið-
ing ytri aðstæðna eins og
kulda, frosti í jörðu o. fl.
Við leikmenn getum ekki
lífgað greinar af plöntu, sem er
í hvíld, en þegar hún er liðin,
er hlýja og raki allt, sem þörf
er á. Þegar við tökum inn
greinar, er það von okkar, að
þær lifni sem fyrst. Það er
ekki skemmitlegt að horfa vik
um saman á berar greinarnar.
í þurru stofuiofti geta brum-
hnapparnir visnað án þess að
opna sig, fái þeir ekki nægan
raka. Bezt er að setja nýklippt
ar greinarnar í 30° C vatns-
bað í 1 — 2 sólarhringa. Þá
þrútna brumhnapparnir og
greinarnar verða safaríkar. —
Það er líka hægt að koma
greinum í blóm með því að
úða þær nægilega, en það cr
samt mikið seinlegri aðferð.
Birta er ekki nauðsynlge
fyrr en brumhnapparnir
bresta. Bezt er að halda úðun-
inni áfram, þar til blómhnapp
arnir eru byrjaðir að sýna lit.
Úr því er betra að greinarnar
standi ekki í of miklum hita.
Nauðsynlegt er að láta þær á
kaldan stað yfir nóttina. Birta
eins mikil og unnt er.
Greinar af eplatré, sýrenum
og hegg er bezt að hafa mjög
langar, eða allt að 2 m og þá
veitir ekki af baðkarinu fyrir
volga vatnið. Síðan eru þær
settar í vatnsfötu og ísmelar
settir í hana daglega. Oðun er
nauðsynleg, en ekki þarf að
skipta á vatninu í fötunni. Þeg
ar greinarnar eru útsprungnar,
má ldippa þær að vild.
Frá nýári getum við tekið
inn birkigreinar. Lerki má taka
inn í marz, það er mjög þakk-
látt verk að koma því til. auk
þess er það einkar snoturí.
Skreyting:
Bræðið möndlusykurinn í
vatnsbaði og kæiið. Þeytið
rjómann, blandið möndlusykr-
inum saman við og þeytíð, þar
til þetta er jafnað saman. —
Smyrjið þessu ofan á kökuna
og skreytið með vaihnetu-
kjörnum.
Gísgja Ragnars.
Allar tegundir af víði og
topp er líka auðvelt að lifga.
Því fyrr að vetrinum sem við
tökum greinarnar inn, jreim
mun lengri tíma tekur ræktun
in. En eftir því sem vorið
nálgast meir, því skemmri tíma
þarf til að koma greinunum i
blóma.
Það er ómaksins vert að
skera ofan af rófu, gulrót eða
rauðrófu og setja á disk með
vatni. Brátt koma blöðin i ijós
og eru þau ennþá skemmci-
legri núna að vetrinum en að
sumrinu úti í garði. Góð birt.i
nauðsynleg.
Nokkrir venjulegir laukar á
fati geta líka orðið að failegri
plöntu, sem gaman er að hafa
í eldhúsglugganum hjá sér.
Matreíðslu
námsr,eið
Síðustu tveggja og þriggja
kvöld matreiðslunámskeið-
in hefjast um miðjan april.
Innritun og upplýsingar í
símum 1-11-99 og 1-10-12
frá kl. 12 — 14 dagiega.
Alifuglabúið
FJÖREG
Selur
Lifandl hænuunga
á mismunandi aldri
1
KJÖtkjúklinga
Grillkjúklinga
Alihænsn
Hótelkjúklinga
Kjúklingabringur
Kjúklingalæri
Egg
ALIFUGLABÚIÐ
FJÖREGG