Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1950, Síða 1

Faxi - 01.10.1950, Síða 1
6. tbl. 10. ár. Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík Október 1950 Barnaskólinn nýi. Fyrir nútað og framtíð A vetrardaginn fyrsta, 21. þ. m. verður boðið út fyrsta skuldabréfalán bæjarsjóðs Keflavíkur og líklega fyr$ta skuldabréfa- lán, sem boðið er út frá Keflavík. Láninu á að verja til þess að fullgera barnaskólahúsið, sem nú er í smíðum. Bygging hússins var hafin vorið 1948 og cr nú komin á það stig, að segja má að húsið sé að verða fokhelt, og komið er vel á veg að múrhúða það að innan. Byggingin, sem er í smíðum er aðal- skólahúsið, það er um 50 m. langt og 10 m. breitt, tvær hæðir á kjallara. En þetta er aðeins hluti — að vísu aðalhluti allrar skólabyggingai'innar, því að eftir er að byggja leikfimishúsið, sem verður sérstök alma áföst aðalbyggingunni. Slíkar framkvæmdir sem þessar kosta mikið fé nú á tímum, þegar verðmæti pen- inganna er orðið jafn lítið og raun ber vitni. Það sem þegar er byggt kostar um kr. 800 þús., þar af hefur ríkissjóður lagt fram kr. 347.500.00, en bæjarsjóður um kr. 452.500.00. ■— Nýlega hefur sparisjóð- urinn í Keflavík lánað kr. 100.000.00 til byggingarinnar, og verður því fé varið til kaupa á borðum og stólum í nýja skólann og til þess að greiða upp í hitakerfi skól- ans. Aðrir lánsmöguleikar hjá lánastofn- unum eru ekki fyrir hendi, og þess vegna er sú lieið farin að reyna að fá féð að láni heima í héraði. Er þar treyst á skilning fólksins á þessu nauðsynjamáli, þó að vitað sé, að víða er fé af skornum skammti. En upphæð skuldabréfanna er svo í hóf stillt, að flestir geta keypt, að minnsta kosti eitt bréf. Með skuldabréfaútboði þessu er ekki verið að biðja um gjafir, því að hver sá, er kaupir bréfin, fær fé sitt aftur að fullu greitt, þegar bréfin verða innleyst, og þá með hærri vöxtum en bankar og spari- sjóðir greiða. Öll'u því fé, sem inn kemur fyrir skuldabréfin, verður varið til byggingar barnaskólans. Foreldrar, hvaða gjöf getið þið betri gefið börnum ykkar, en skulda- bréf þessi, því um leið og þið leggið féð á vöxtu handa börnum ykkar, þá eflið þið skilyrðin til betra uppeldis barna ykk- ar og komandi kynslóða. Ragnar Guðleijsson

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.