Faxi - 01.10.1950, Side 7
F A X I
7
Hlutavelta.
Stjórn kvennadeildar Slysavarnafélags ís-
lands í Keflavík hyggst á næstunni að efna
til mikillar hlutaveltu. Heitir hún á alla góða
Keflvíkinga, félagskonur og aðra velunnara
deildarinnar að styrkja þetta málefni með
gjöfum á hlutaveltuna.
Eins ok kunnugt er, hefur kvennadeildin
á undanförnum árum unnið mikið og gott
starf í þágu slysavarna, en efst á baugi hjá
henni nú mun vera miðunarstöð á Garð-
skaga og er það mál vel á veg komið. Vio
köstum því ekki peningum okkar á glæ þó að
við styrkjum hlutaveltu kvennadeildarinnar.
Templarar í Kcflavík.
Nú fer vetur í hönd og félagsstörfin hefj-
ast á ný. Stúkan Vík skorar á alla félags-
menn sína, jafnt karla sem konur að starfa
af áhuga og dugnaði fyrir bindindismálið og
fjölsækja fundi stúkunnar.
Undir merkjum reglunr.ar skulum við berj-
ast samhent og minnug þess, að---------„Það
er eftir enn að vinna ótal marga seiga þraut.
Það er eftir enn að finna ýmsan góðan
förunaut. Eftir tvístruð öfl að tvinna, auka
skriðið, hirða skaut.” —
Æðsti templar.
Konur í st. Vík.
I kringum miðjan nóvember n. k. hyggst
stúkan að efna til basars í ágóðaskyni fyr-
ir sjómannaheimilissjóðinn. Er þess fastlega
vaenzt, að félagskonur bregðist fljótt og vel
við þessari málaleitun og hafi handbæra
muni, þegar til þeirra verður komið, svo
að basarinn beri tilætlaðan árangur.
Þakkir.
Innilega þakka ég öllum er glöddu mig
með gjöfum og heillaóskum á 70 ára afmæli
mínu. Sérstaklega þakka ég reglusystkinum
mínum í stúkunni Vík, fyrir höfðinglega gjöf
og hlýjar kveðjur.
Jensína Teitsdótíir
I sumarleyfinu
Bcejarglautnur, göturylýð
gleði nauma veitir mér.
En vatnaflaum og blómablikið
beztu draumar sýtia mér.
Bílahljóm og borgarkliði
bezt mun sóma að hverfa frá.
Fuglaróm og fossaniði,
fegri dóma legg ég á.
Upp t sveit til fríðra fjalla,
fegnn leitar hugur minn —
Blómareiti v'tðra valla
vermir heitur röðulinn.
Blómaangan ég mun finna
ef ég þangað fce að ná.
Inn í fangi fjalla minna,
friðarvanga þeirra hjá.
Þar er striði gott að gleyma.
göfgar prýðin sérhvern mann.
Opnar vtða hugarheima
hreina fríða náttúran.
Fjallablœrinn friðarmildi
frjáls og tœr, — ég girnist þig.
Mi\ið cerið er þitt gildi
endurncera sþalt þú mig —
/
Agúst L. Pétursson.
\
FAXI
Blaðstjórn skipa:
HALLGR. TH. BJÖRNSSON,
JÓN TÓMASSON,
VALTÝR GUÐJÓNSSON.
Blaðstjórn ber ábyrgð á blaðinu og
annast ritstjórn þess.
Gjaldkeri blaðsins:
GUÐNI MAGNÚSSON.
Afgreiðslumaður:
STEINDÓR PÉTURSSON.
Auglýsingastjóri:
BJÖRN PÉTURSSON.
Verð blaðsins í lausasölu kr. 2,00.
Faxi fæst í Bókabúð KRON, Reykja-
vík og verzlun Valdimars Long,
Hafnarfirði.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Leiðrétting:
Þau mistök urðu á dreifiblaði því, sem bor-
ið hefur verið um bæinn varðandi skulda-
bréfalánið, vegna barnaskólabyggingarinnar,
að í undirskriftunum liefur fallið niður nafn
Hallgríms Th. Björnssonar, kennara, en hann
er í fræðsluráði og hafði skrifað undir bréfið.
Leiðréttist þetta hér með.
R. G.
Fyrsta byggð í Keflavík
Verið er að leggja holræsi og vatnslögn
vestur að Dráttarbraut Keflavíkur, vestur
gamla Duus-túnið, og er farið í gegnum hól
eða tóftarbrot, sem sennilega eru bæjartætt-
ur, og þá ef til vill leyfar fyrstu byggðar
Keflavikur.
R.
Skuldabréfalánið
Skuldabréfalánið, sem boðið verður út á
laugardaginn, 21. þ. m. vegna byggingar barna-
skólans, er að upphæð kr. 500.000.00. Vextir
eru greiddir fyrirfram og verða þeir, ef öll
bréfin seljasl kr. 204.000.00. Handbært fé,
sem fyrir bréfin fæst, verður því kr. 295.000.00.
1000 bréf á kr. 100.00 og 800 bréf á kr. 500.00
Upphæð bréfanna er kr. 100.00 og 500.00 kr.
eða samtals 1800 bréf, það geta því ekki ekki
allir Keflvíkingar fengið eitt bréf, því íbúar
Keflavíkur eru nú um 2200.
o
S
s
Líftryggingar
Munið að líftryggja lijá „Andvöku”
Orgel
Gott orgel óskast til kaups.
Umboðsmenn í Kcflavi\
Ásgeir Einarsson verzlunarm.
Suðurgötu 29, sími 122 og
Hallgrímur Th. Björnsson kennari
Faxabraut 22, sími 114
<*X><><>OO<>2>0O<><^3*>3><><><><><><><><><><><><>O<SK><3>O<><><><>3>O<>0<><><><><3><>>>O<><3^^
Upplýsingar í síma 114
Keflavík