Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1953, Blaðsíða 7

Faxi - 01.04.1953, Blaðsíða 7
F A X I 47 <><><><><><><><><><><><><><><><>^^ KAU P vcrkanianna og kvenna í Kcflavík og Njarðvíkum í marz, apríl og maí 1953, samkv. samningi dags. 19. des. 1952. KAUP VERKAMANNA: Almenn vinna. (Grunnkaup 9,24. Vísitala 147 + 10 st.) Dagvinna ................. kr. 14,51 Eftirvinna ................. — 21,76 Nætur- og helgidagavinna .. — 29,02 Vinna við loftþrýstitæki og hrærivélar: (Grurmkaup 9,90. Visitala 147 + 5 stig). Dagvinna ................. kr. 15,05 Eftirvinna ................. — 22,57 Nætur- og helgidagavinna .. — 30,10 Stjórn á vélskóflum, ýtum og 7 tonna vörubifreiðum: (Grunnkaup 10,80. Vísitala 147 + 5 st.) Dagvinna ................. kr. 16,42 Eftirvinna ................. — 24,62 Nætur- og helgidagavinna .. — 32,84 Skipavinna o. fL Kolavinna, saltvinna, upp- og útskipun á scmcnti, hleðsla þcss í pakkhúsi og afhendi þcss: (Grunnkaup 9,90. Vísitala 147 + 5 stig). Dagvinna .................. kr. 15,05 Eftirvinna ................. — 22,57 Nætur- og helgidagavinna .. — 30,10 Öll önnur skipavinna, fiskaðgerð í salt og umsöltun á fiski: (Grunnkaup 9,45. Vísitala 147 + 5 stig). Dagvinna .................. kr. 14,51 Eftirvinna ................. — 21,76 Nætur- og helgidagavinna .. — 29,02 (Kaup þetta er lægra miðað við vísi- töluútreikninginn, en er hækkað upp samkv. samn.). KAUP VERKAKVENNA: Almenn vinna: (Grunnkaup 6,60. Vísitala 147 + 10 st.) Dagvinna ................. kr. 10,36 Eftirvinna ................. — 15,54 Nætur- og helgidagavinna .. — 20,72 Umsöltun og uppskipun á fiski: (Grunnkaup 6,90. Vísitala 147 + 10 st.) Dagvinna ................. kr. 10,83 Eftirvinna ................. — 16,25 Nætur- og helgidagavinna .. — 21,66 Önnur vinna: Flökun á bolfiski, vinna í frystiklefa, hreingerning á bátum og húsum: (Grunnkaup 9,24. Vísitala 147 + 10 st.) Dagvinna ................. kr. 14,51 Eftirvinna ................. — 21,76 Nætur- og helgidagavinna .. — 29,02 Keflavík, 1. marz 1953. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur. o<^e><><><x><x><x><><x><x><>w<>^<v<><^^ Adoms Ijóð án skáldastyrks: Blátt, hvítt, rautt. Snild, hvílík snild, það skilur það enginn, hvorki ég né þú. Mild, svo mild, og litirnir, blátt, hvítt, rautt. Vild, eftir vild, ég tauga hin töfrandi ljóð. Ég kom sem kúasmali með kúamykju í fötu að bjóða þér að blanda blómunum áburð í vor. Blátt, er blátt, og hafið, hver sem það byrjar að mála. Hvítt er hvítt en landið er allt of mikið hvítt. Rautt, er rautt og nú sé ég rautt yfir þessum línum. Ég kom sem kúasmali með kúamykju í fötu að bera á blóm, bera, of blátt, of hvítt, of rautt. Kaupandi Faxa. Agúst L. Pétursson kveður sér liljóðs: Hlífðarfötin hreinleik símun hljóta að glata. Þú hefur lítinn þegið bata, þúsund vatna Hafnargata. Slökkviliðið. í apríl mánuði var slökkvilið Keflavíkur kallað út þrisvar. Þann 13. kl. rúmlega 3 eftir miðnætti, varð elds vart í Hraðfrystistöð Keflavíkur. Slökkviliðið kom strax á bruna- stað, var þá eldur orðinn talsvert magnaður, búinn að læsa sig gegn um loft í miðstöðvar- herbergi og kominn í þekju hússins. Vindur var allhvass af norðri og því alvarlegar horf- ur um að ráða niðurlögum eldsins. Slökkvilið Keflavíkurflugvallar var fengið til aðstoðar og tókst slökkviliðunum sameiginlega að stöðva útbreiðslu eldsins og slökkva hann, er tók 2 klukkustundir. Skemmdir urðu miklar, bæði af eldi og vatni. Þann 22. var liðið kvatt út, vegna 'elds, er brotizt hafði út frá olíu- kyntri eldavél í mötuneyti Sameinaðra verk- taka í Ytri-Njarðvík. Var í fyrstu óljóst um brunastaðinn, því sá er bað um slökkviliðið upplýsti ekki, hvar eldurinn væri, aðeins að hann væri í húsakynnum fyrirtækisins, en þau eru, eins og mönnum er kunnugt, mörg og víða. Er nauðsynlegt, að sá, er kallar eftir slökkviliðinu, skýri greinilega frá brunastað. Skemmdir af eldi urðu ekki teljandi. Þann 27. apríl var slökkviliðið kvatt á Hafnargötu 58. Hafði kviknað í bensínflösku, er notuð var við uppkveikju. Er slíkt mikill óvitaskapur. Skemmdir urðu litlar. Guðjón Sigurður Magnússon, Valbraut í Garði, varð 75 ára 10. maí s. 1. Hann hefur lengi verið ötull útsölumaður Faxa og lætur hvorki austanrosa né útsynn- ingshryðjur aftra sér frá að koma blaðinu í hendur óþreyjufullra kaupenda, þrótt fyrh' háan aldur. Um leið og Faxi óskar Sigurði til hamingju með afmælið og þakkar honum fórnfúst starf, vonar blaðið, að hann megi lengi enn starfa að sölu og útbreiðslu þess. Hættir veiðum. Þorskanetjabátar hættu veiðum á tímabil- inu 5.—9. maí. Var afli þeirra, sem stunduðu veiðar frá Keflavfk, mjög tregur. Hæsti afli var 440 skipp., hinsvegar voru 3 bátar úr Ytri-Njarðvík, sem stimduðu veiðar frá Grindavík, með talsvert betri árangur. Má segja, að netjaveiðin nú hafi brugðizt, því afli báta er meir en helmingi minni en hann var á vertíðinni í fyrra. Hafa þvi margir orðið að gera upp með kauptryggingu. Barnaverndarfélag var stofnað hér í Keflavík, miðvikudaginn 15. apríl. Var fundurinn haldinn í barnaskól- anum. Dr. Matthías Jónasson sýndi við þetta tækifæri nokkrar kvikmyndir, er fjalla um geðheilsu- og geðvernd bama og unglinga. Ein myndin sýndi uppeldisheimili fyrir löm- uð börn. Var fundur þessi fjölsóttur af for- eldrum, er gerðu góðan róm að þessum merkilegu kvikmyndum og hinum sálfræði- legu skýringum doktorsins. Er gengið hafði verið frá stofnun félagsins, var því kosin stjórn, er þessir skipa: Formaður Rögnvaldur Sæmundsson, skólastj.. Gjaldkeri: Hermann Eiriksson, skólastj. Ritari: Sr. Björn Jónsson, sóknarprestur. Meðstjórnendur: Frú Ásdís Ágústsdóttir og frú Björg Sigurðardóttir. L

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.