Faxi

Årgang

Faxi - 01.04.1953, Side 9

Faxi - 01.04.1953, Side 9
F A X I 49 Bamaheimili í Keflavík „Dagheimilið tekur til starfa 1. júní að öllu forfallalausu“ sagði frú Guðný As- berg er ég hitti hana að máli á hinu mynd- arlega heimili hennar við Hafnargötu. Ég, eins og svo margar aðrar mæður, hefi mikilla hagsmuna að gæta, þar sem barnaheimilið er annars vegar, — þess vegna rak hver spurningin aðra, sem frúin svaraði og af mestu lipurð. — „Nú erum við langt komnar með húsið okkar, sem er og okkar stolt, enda hafa konurnar sýnt það bæði í orði og verki, þær hafa sýnt svo mikinn dugnað og vilja að furðu sætir“. „Hvenær búizt þér við að það geti tekið til starfa?“ „Við vonumst til að geta flutt „hópinn“ í sumar, en þangað til verðum við í spítala- byggingunni, en hana hefir bærinn látið okkur í té ókeypis fyrir starfsemina“. „Hvernig er hibýlaskipunin á nýja „heimilinu“ ?“ „Ég vil nú minnst um það tala að sinni, en ég get sagt það, að þar verða stórar og bjartar stofur, fyrir blessuð börnin, en auðvitað höfum við hugsað okkur að nota húsnæðið til okkar þarfa líka, þ. e. a. s. fyrir fundi, saumanámskeið o. þ. h.“ „Segið mér frú Guðný, hvað langur tími er það, sem barnaheimilið starfar í einu r „Það hefir venjulega starfað í þrjá mán- uði, en eftir að húsið er komið upp, von- umst við til að geta starfað lengur“. „Hvað eru svo mörg börn, sem þið hafið yfir að segja á þessu tímabili ?“ „Það er nú með góðri samvizku hægt að segja, að það eru aðeins tvær manneskj- ur, sem passa „hópinn'1, sem er á milli 40—50 börn á aldrinum 214—-5 ára. Kon- urnar eru þær frú Dagmar Pálsdóttir og frú Margrét Jónsdóttir, sem hafa sýnt fádæma fórnfýsi og dugnað í öllu þeirra starfi, þær hinar sömu hafa verið öll 4 árin, sem dagheimilið hefir starfað, það hefir aldrei nokkurt óhapp komið fyrir, né heldur engin mæðranna kvartað, það her algjörlega að þakka frú Dagmar og Margréti. Börnin virðast una sér vel við hollan og góðan leik við þeirra hæfi. Frúrnar eru líka ötular að sinna þörfum þeirra". „Hvernig er það, koma þau með nesti með sér?“ „Já, þau koma öll með nesti og mjclk“. „Hvað er gjaldið fyrir mánuðinn?“ „Það hafa verið 100,00 kr. á mánuði. Það er ekki stór upphæð nú á dögum, þar sem öll húshjálp er svo dýr og er erfitt að fá hana, en þetta er mjög mikil hjálp fyrir húsmæðurnar, þar sem þessi rími dagsins er frá því kl. 1 e. h. til 6 e. h.“ „Hverjar eru fjáröflunarleiðir ykkar?“ „Þær eru nú ekki margar, en til að geta lokið við húsið okkar, höfum við hugsað okkur að fara með fjársöfnunarlista um bæinn nú um vertíðarlokin. Annars er það árleg hlutavelta og bazar. Við feng- um einnig góðan styrk, sem I. S. I. veitti okkar starfsemi, nam hann 37.600,00 kr. Einnig hafa bæði einstaklingar og félög gefið okkur háar upphæðir í peningum, t. d. Fiskimjöl h.f. og Olíufélagið h.f. hér á staðnum hafa gefið okkur sínar 10.000,(l0 kr. hvort“. „Hvar stendur húsið „í bænum“?“ „Það stendur við Tjarnargötu, á túni Einars Sigmundssonar, þar sem fullorðnir Keflvíkingar léku sér áður sem börn, svona er það, nú taka afkomendur sumra þeirra við, en við breyttar aðstæður“. „Ég hefi heyrt, að konurnar hafi sjálfar unnið að ýmsum verklegum framkvæmd- um í sambandi við smíði hússins?“ „Já, þær eru alltaf eins, samvinnan við þær alltaf sú sama, dugnaðurinn og fórn- fýsin svo mikil, þær unnu til skiptis við allt sem þær gátu gert, til gamans ætla ég að geta þess, að Jón Tómasson kvikmynd- aði konurnar við vinnu sína. Þau hjónin gáfu okkur svo filmuna". „Hvaða konur voru í þessari fram- kvæmdanefnd ?“ „Það voru þær frúrnar Vilborg Amunda- Bœkur til fermingargjafa o Falleg fermingarkort o Pelikan pennar og sett o Myndavélar og filmur o BÓKABÚÐ KEFLAVÍKUR f Enskur barnavagn | á háum hjólum, vel með farinn er til sölu á Vallagötu 20 SIMI 289. <><><><><><>0<><><><><><><><><><><><><><><><><><><< Sólíd jakkar Sólíd föt og frakkar I miklu úrvali. KAUPFÉLAG SUÐURNESJA Vefnaðarvara. C*><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><^^ dóttir forrn., Guðný Asberg, Vigdís Jakobsdóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir og Dagmar Pálsdóttir. Þessum konum ber að þakka þeirra góða og göfuga starf, en ég vil geta þess að allar konurnar, sem ein, hafa unnið að þessu nytsama verki". Ég bið frúna um mynd, — en hennar meðfædda lítillæti bannar það. Ég óska ykkur kvenfélagskonum til hamingju með allan dugnaðinn; ég veit að það verður dýrleg stund, þegar þið opnið dagheimilið ykkar í fyrsta sinni. — Við mæðurnar lítum björtum augum á þetta fyrirtæki ykkar, og óskum ykkur alls hins bezta í framtíðinni. Platína.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.