Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1954, Blaðsíða 9

Faxi - 01.03.1954, Blaðsíða 9
F A X I 21 Lengra er nú umliðið síðan Faxi kom út seinast en til var ætlazt. Veldur þar mestu um, að ákveðið var að draga útkomu hans, unz fréttir væri hægt að birta frá hinni ný- kjörnu bæjarstjóm. Mun þess vegna ýmislegt, sem á sínum tíma hefði komið hér, verða að sæta örlögum gleymskunnar. Aflabrögð og veiðiferðir munu enn sem fyrr helzta umræðuefnið. Faxi mun reyna að standa í ístaðinu og skýra frá því markverðasta af þeim slóðum. Afli hefur verið góður hjá línubátum, er á sjó hefur gefið. En tíð hefur verið mjög um- hleypingasöm og stormar tíðir. Línubátar hafa aflað mjög vel frá áramótum. Veiða þeir í Bugtinni. Netabátar hafa enn sem komið er fengið lítinn afla. Nota þeir þó flestir hin nýju nylonnet, sem eru talin mjög fisksæl og taka hinum eldri gerðum langt fram. En dýr eru þau. Nylon-netið kostar 634,00 kr., en hliðstæður úr hampi ekki nema 170—180,00 krónur. Afli hefur aðallega verið frystur í frystihúsum bæjarins. Nokk- uð hefur þó verið saltað. Skreiðarframleiðsl- an virðist í rénun, þar sem mjög lítið hefur farið af fiski í herzlu. Atvinna er mjög mikil í Keflavík sem annars stað- ar. Allar atvinnugreinar, að einni þó undan- skildri, hafa nóg störf. Vörubílstjórar hér hafa nú mjög takmarkaða atvinnu. Þeir fjölg- uðu mjög á stöðinni hjá sér, er vinna var sem mest á Flugvellinum, en nú er hún bregst, virðast vera helmingi fleiri bílar á stöð, en þarf til að anna þeim störfum, er falla. 4. marz veiddist fyrsta loðnan. Þeir m.b. Ver og m.b. Gullþór veiddu hér sunnanvert við Faxaflóa. Bátar þessir eru gerðir út frá Kefla- vik, en lögðu loðnuaflann upp í Grindavík. Þaðan var honum ekið í allar verstöðvar á Skaganum. Þeir fengu 170 og 150 tunnur, sem þeir öfluðu austan við Þrídranga. Undirbúningur var töluverður hjá bátum að geta beitt þá þegar um kvöldið og komizt strax út með nýja loðnu. Beitning hófst kl. 9 um kvöldið. Afli var látinn bíða aðgerðar, en allt kapp lagt á að komast út. Aðstoðarmcnn voru fengnir til að flýta fyrir. Þannig höfðu þeir á m.b. Ólafi Magnússyni 11 aukamenn við beitningu. Nokkrir bátanna komust ekki út á réttum róðrartíma en biðu loðnunnar. Þessi fyrsta loðnuveiðiferð mistókst að nokkru. Olli því veður. Samt hlutu sumir afbragðsafla, m.b. Hilmir, Kefla- vík, fékk t. d. mestan afla á vertíðinni, 18 lestir. Lifrin úr þessum róðri var 1700 lítrar og hrogn röskir 1100 lítrar. Nokkrir misstu línu í þessum fyrsta loðnuróðri. Síðan hefur mikil loðna veiðzt og óspart verið beitt. Guðfinnur s.f. í Keflavík hefur samið við skipasmíðastöð á Akranesi um smíði á nýjum bát. Var kjöl- ur að þessum 55 tonna mótorbát lagður fyrir skömmu. Frá Keflavík eru nú gerðir út 26 línubátar og 7 netabátar. Frá Sandgerði 14 línubátar í jan., en m.b. Þorsteinn, sem rak upp um mánaðarmót jan.—febr., verður gerður út fró Keflavík eftirleiðis. Frá Grindavík 16 línubátar og 3 netabátar. Nýjar verzlanir virðast spretta upp í Keflavík. Kaupfélag- ið hefur opnað nýja mjólkursölu við Hring- braut. Aðalbúðin h.f. hefur verzlun við Hringbraut. Tízkuverzlunin við Hafnargötu. Sundmcnn okkar kepptu ó sundmóti Armanns sem fór fram í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudaginn 4. febrúar. Á móti þessu kepptu 12 Keflvíking- ar, 8 frá K.F.K. og 4 frá U. M. F. K. Vegna mikillar þátttöku í mótinu urðu allir Kefl- víkingar að synda í undanrásum, sem fóru fram daginn áður, en í þeim féllu þrír Kefl- víkinganna úr keppninni. Þessi mikla þátt- taka ber greinilega með sér, að áhuginn virð- ist ekki minnka, og er gott til þess að vita. Árangrar voru mjög góðir einkum þó í kvenna sundunum, þar sem Keflvíkingar áttu þrjár telpur í úrslitum í 50 m. bringusundi og allar sem voru í úrslitum í 100 m. bringu- sundi kvenna. Helztu úrslit Keflvíkinganna urðu sem hér segir: 200 m. bringusund karla: 4. Magnús Guðmundsson K.F.K. 3:02,8 mín. 50 m. bringusund telpna: 1. Inga Árnadóttir K.F.K......... 42,0 sek. 2. Vilborg Guðleifsdóttir K.F.K. .. 42,2 — 4. Jónína Gunnarsdóttir K.F.K.... 46,1 — í undanrásum náði Vilborg 41,7 sek. 100 m. baksund karla: 3. Sigurður Friðrikss. U.M.F.K... 1:25,1 mín. 4. Birgir Friðriksson U.M.F.K. . . 1:26,0 — FA V I Rhstjóri og ábyrgðar- I maður: Ólafur Skúla- son. Blaðstjórn: Hallgr. Th. Björnsson, Margeir Jónsson, Kristinn Pétursson. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Af- greiðslum.: Valtýr Guðjónsson. Aug- lýsingastj.: Gunnar Sveinsson. Verð blaðsins kr. 5,00. Alþýðuprentsmiðjan. 100 m. skriðsund drengja: 2. Steinþór Júlíusson K.F.K..... 1:06,6 mín. 4. Pétur Hansson K.F.K.......... 1:13,8 — I undanrásum náði Steinþór 1:05,8 mín. 100 m. bringusund kvenna: 1. Vilborg Guðleifsdóttir K.F.K. 1:30,7 mín. 2. Inga Árnadóttir K.F.K........ 1:32,4 — 3. Jónína Gunnarsdóttir K.F.K. .. 1:41,9 — 4. Jóna Margeirsdóttir K.F.K. .. i:43,0 — Vilborg er einungis 2 sek. frá gildandi Is- landsmenti. Vinningaskrá í Lcikfangahappdrætti U.M.F.K. 1953: 1. fólksbíll Nr. 4223 12. bifhjól Nr. 6195 2. — — 4233 13. — — 0055 3. — — 4268 14. — — 4224 4. — —• 6220 15. — — 2083 5. — — 6160 16. brúðurúm 2036 6. vörubíll — 6189 17. — — 2153 7. — — 4254 18. — — 0107 8. — — 4267 19. — — 6427 9. — — 6187 20. — — 4231 10. 11. bifhjól — 4218 — 6175 21. málverk — 2331 Vinninganna skal vitjað í Samkomuhús U. M. F. K. Rakarastofu hefur Hörður Guðmundsson rakari opnað. Er hann til húsa í hinni nýju Aðalstöðvar- byggingu. Stofan er vistleg og haganlega út- búin. Rakarinn sjálfur hinn snyrtilegasti. Fólksfjöldi er orðinn það mikill í Keflavík, að vel er trúlegt, að rakarastofur geti haft nóg að gera. Gagnfræðaskólanemar hafa hafið blaðaútgáfu. Kom fyrsta blaðið út skömmu eftir nýár. Lýsir sér mikill áhugi af hverri síðu. Væri áængjulegt, ef þessi blaðaútgáfa þeirra gæti haldið áfram. Ritstjóri er Ellert Eiríksson, 4. bekk. Dauðaslys. Það ihörmulega slys skeði í Sandgerði hinn 13. þ. m. að þriggja ára drengur féll í vök skammt fyrir norðan þorpið og drukknaði. Voru þeir tveir bræður að leika sér á sleða en féllu í vök. Eldri drengurinn komst upp úr en Jónas litli drukknaði. Jónas er sonur hjónanna Þorgerðar Magnúsdóttur og Ingv- ars Jónssonar, Tjöm við Sandgerði. ASalstöSin - Sími 515

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.