Faxi - 01.03.1954, Qupperneq 10
22
F A X I
Stjórn og meðstjómendur Aðalstöðvarinnar.
Afgreiðsluhúsið og smurstöðin í smíðum.
Samheldni — Bjartsýni
Aðalstöðin h.f. opnar ný húsakynni.
Það voru ánægðir og kátir menn, sem
fögnuðu ritstjóra Faxa, er hann birtist til
þess að skoða hin glæsilegu húsakynni Að-
alstöðvarinnar h.f. Þeir voru kátir og áttu
það sannarlega skilið. Þeir höfðu sett
markið hátt og nú voru ávextir starfsins
og trúin á samheldnina að koma í ljós.
„Við hefðum aldrei getað framkvæmt
þetta, ef við hefðum ekki hvarvetna átt
að mæta lipurð og vinsemd. Og þetta ber
ekki að þakka neinum einum okkar, held-
ur voru það allir, sem lögðust á eitt og
með samhentu átaki tókst það“, sagði
Haukur Magnússon, hinn ötuli formað-
ur þeirra félaga. Húsakynni þessi eru
hin veglegustu. Ekkert virðist hafa verið
til sparað til þess að láta viðskiptavininum
falla móttökurnar í geð eða til að bílstjór-
arnir geti notið hvíldarinnar á milli öku-
ferða. Þarna eru m. a. s. 10 hengirúm, sem
þeir geta lagt sig í. Enda mun nú ætlunin,
að stöðin verði opin allan sólarhringinn.
Saga félagsins og byggingarinnar er á
þessa leið:
Það var árið 1948, að 12 bifreiðastjórar,
sem stunduðu leigubifreiðaakstur frá Bif-
reiðastöð Keflavíkur, réðust í að stofna
hlutafélag til þess að reka sjálfir bifreiða-
stöð. Félagið hlaut nafnið: Aðalstöðin h.f.
Strax var ráðist í að afla húsnæðis og fékk
félagið inni með rekstur sinn í gömlu raf-
tækjaverkstæði, og tveim dögum eftir að
félagið var stofnað var bifreiðastöðin opn-
Haukur Magnússon, formaður.
uð. Stöðin hefur verið til húsa á sama stað
allt til þess að hún flytur nú í hin stóru
og glæsilegu húsakynni, sem tekin eru til
notkunar í dag.
Jafnframt rekstri sjálfrar stöðvarinnar,
hefur félagið selt benzín og olíur, frá byrj-
un í umboði Olíufélagsins h.f. Þá hefur
það og annazt dekkjaviðgerðir og séð um
þvott á hifreiðum fyrir viðskiptamenn
sína. Fyrir tæpum tveim árum voru einn-
ig sett upp frumstæð smurtæki úti.
Forráðamönnum stöðvarinnar var í upp-
hafi ljóst að húsnæði það, sem stöðin hef-
ur verið í, væri ófullnægjandi til frambúð-
ar fyrir svo stóran hóp bifreiðastjóra, og
ætíð hefur einnig verið þröngt um hana
vegna umferðar. Það hefur því lengi vak-
að fyrir þeim, að ráðast í framkvæmdir til
úrbóta.
Það var svo s. 1. vor, að hafizt var handa
um byggingu hins nýja stöðvarhúss við
Hafnargötu 86, sem nú er verið að leggja
síðustu hönd á. Húsið er 166,8 m2, tvær
hæðir með valmaþaki, byggt úr stein-
steypu. Skyggni ca. 70 m2 er byggt út úr
framhlið hússins og yfir benzíndælur.
Neðri hæð hússins er fullgerð, og er að
mestu notuð fyrir stöðvarrekstur félagsins,
að undanskyldu einu herbergi, sem leigt
hefur verið fyrir rakarastofu. Afgreiðslu-
herbergi og biðstofa eru stór og rúmgóð
og öllu mjög haganlega fyrir komið.
Geymslur fyrir olíur o. fl. eru inn af af-
greiðslu. Bifreiðastjóraherbergi mjög stórt
og rúmgott, búið stálhúsgögnum, og inn
af því stór svefnskáli fyrir bifreiðastjóra
vegna næturaksturs. Skrifstofuherbergi er
einnig. Snyrtiherbergi eru bæði fvrir við-
skiptavini og bifreiðastjóra. Efri hæð er
óinnréttuð, en í framtíðinni er ætlunin að
liafa þar bifreiðavarahluta lager. Kjallari
er undir húsinu aðeins fyrir hitunartæki.
A miðju sumri hófst svo félagið einnig
handa um byggingu fullkominnar smur-