Faxi - 01.03.1954, Blaðsíða 13
F A X I
25
einni slíkri hátíð. Við erum hér stödd á
Þorrablóti, sem Kvenfélag Keflavíkur
heldur. Og í kvöld erum við, eins og for-
feður okkur, að fagna sigri ljóssins vfir
myrkrinu.
En er það ekki dálítið athyglisvert,
hvaða félagsskapur það er, sem í kvöld
heldur okkur þessa hátíð ? Þær spurnir
og þau kynni, sem ég hefi haft af þessu
félagi benda ótvírætt til þess, að þar sé
ljósþráin og ljóselskan ríkur þáttur. Það
hefir þegar komið mjög greinilega í ljós,
þó að enn sé aldurinn ekki hár. Alls stað-
ar, þar sem kvenfélagið hefur látið eitt-
hvað til sín taka, hafa framkvæmdir þess
miðað að því fyrst og fremst að bera birtu
inn á braut samborgarans. Það er hið
sanna baráttueðli forfeðra okkar, sem kem-
ur svo greinilega fram í öllum störfum
þeirra. Þær sækja sífellt fram til ljóssins,
— ekki með harki og hávaða, heldur í
hljóðlátri hógværð. Og sá, sem þannig
starfar, á sigurinn alltaf vísan.
Það er í raun og veru óþarfi, að fara á
nokkurn hátt að skýra frá störfum og
gjörðum Kvenfélags Keflavíkur, — það
væri í raun og veru nóg að segja, að alls
staðar, þar sem félagið hefir komið fram,
hafi það komið fram til góðs.
Þó get ég ekki látið hjá líða að geta
þriggja þátta, þar sem ég hefi sérstaklega
orðið þess var hvílíkir ljósgjafar kven-
félagskonurnar eru. I fyrsta lagi vil ég
nefna dagheimili barnanna, sem þær hafa
starfrækt nú undanfarin ár og munu
starfrækja nú næsta sumar í hinum nýju
og glæsilegu húsakynnum, sem þær hafa
sjálfar komið sér upp. En þeir, sem hafa
séð litlu börnin á dagheimilinu undanfar-
in sumur eru áreiðanlega meira en lítið
sjóndaprir, ef þeir hafa ekki veitt eftirtekt
gleðiljósunum, sem ljóma á andlitum
barnanna, þegar þau dveljast þar. 1 öðru
lagi vil ég svo nefna hina árlegu gamal-
mennaskemmtun, sem kvenfélagið heldur.
Yfir þeirri skemmtun ríkir sérkennilega
fögur birta. Og ég veit, að þar endurlifir
gamla fólkið fegursta stundir lífs síns. í
þriðja lagi er það svo hátíðin, sem við er-
um stödd á nú í kvöld. Hver getur neitað
því, að hér ríki heiðríkja og birta bæði hið
ytra og innra?
Ljóselsku konur! Eg óska ykkur lijart-
anlega til hamingju með allt það, sem
áunnizt hefir. Og ég veit, að á meðan ljós-
ið verður aflgjafinn í störfum ykkar, þá
verður engin hindrun svo stór, að hún
verði ekki yfirstigin. Lifið heilar!
<><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><^^ ^<>^<><><><><><><><><><><>0<><><><><><><>^
Rosótt damask
Lereft, einlitt og tvílitt
Dúnhelt lereft
Dúnn, kr. 59,00 pk.
Kaupfélag Suðurnesja
Vefnaðarvörudeild.
><><><><><><><><><><><><><><>x><x><><><><><><><><><><><><><><><>^^
Símanúmer
Kaupfélags Suðurnesja
Símanúmer vor verða eftirleiðis:
500 Skrifstofan, Hafnargötu 30
501 Vefnaðarvörudeild, Hafnargötu 30
502 Matvörubúð, Hafnargötu 30
503 Vörugeymsla, Hafnargötu 30
504 Matvörubúð, Hafnargötu 62
505 Járn og skipavörur, Hafnargötu 61
KÁUPFÉLAG SUÐURNESJA
KEFLAVIK
KLIPPIÐ OG GEYMIÐ
CK'O*X><>OC><xX>C><>O^><x><X>0<><>^><xX><xX><X><XxXxXxX><>e><><><><>^><xíxX>OC’<><