Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1956, Síða 2

Faxi - 01.03.1956, Síða 2
30 F A X I Fermingarbörn vorið 1956 Að þessu sinni verður tekin upp sú ný- breytni, varðandi fermingar í Keflavíkur- prestakalli, að fyrsta ferming verður um það bil mánuði fyrr en tíðkast befir hingað til, eða 22. apríl næstkomandi. Síðan verð- ur fermt í Keflavíkurkirkju tvo næstu sunnudaga á eftir, 29. apríl og 6. maí. I Innri-Njarðvík verður fermt á uppstign- ingardag, 10. maí. Vel má vera, að ekki líki öllum ný- breytni þessi, af ýmsum ástæðum. T. d. hefir verið bent á það, bversu óþa’gilegt þetta fyrirkomulag sé fyrir þá feður, sem sjóinn stunda, þar sem vertíðinni er ekki lokið. Bæði þetta sjónarmið og önnur, sem mæla á móti því, að fermt sé svo snemma, eru mjög vel skiljanleg. En sjaldan er hægt að gera svo öllum líki, og fleiri hygg ég að fagni nýbreytni þessarri. Auk þess er hér um knýjandi nauðsyn að ræða. Flest þau börn, sem fermast eiga, eru um þetta leyti að klífa erfiðasta klettinn í fjallgöngu skólanámsins, — þau eru með öðrum orð- um að þreyta vorprófið. Um það er alls ekki að ræða, frá mínu sjónarmiði séð, að bæta fermingunni ofan á prófin og ferma á sama tíma og þau standa yfir, enda gæti slíkt valdið óþægilegum truflunum bjá flestum börnunum, og jafnvel gæti það riðið sumum að fullu, þannig að þau næðu ekki prófi fyrir það eitt, að fermingin her- tók huga þeirra um of. Á hinn bóginn yrði fermingardagurinn mörgum börnun- um ekki jafn ánægjulegur og liátíðlegur eins og hann á að vera, ef þau væru stödd mitt í því hafróti af áhyggjum og kvíða, sem prófið veldur oft á tíðum. Það er því ekki nema um tvennt að gera, — annað hvort að ljúka öllum ferm- ingum fyrir próf eða geyma þær þangað til (trófum er lokið. Síðari leiðin virðist mér ófær, af þeirri einföldu- ástæðu, að nú er tala fermingarbarna hér nærfellt helmingi hærri heldur en nokkru sinni áður. Það mundi þýða, að fermingum yrði ekki lokið fyrr en um miðjan júní! — Að jaessu öllu athuguðu virðist mér enginn tími hentugri en sá, sem ákveðinn hefir verið. Vegna hins mikla fjcilda fermingar- barna, varð ekki hjá því komizt, að bæta við fermingarkyrtlana. Ákveðið var að fá 40 kyrtla til Keflavíkurkirkju í viðbót við þá sextíu, sem gefnir voru í fyrra. Kirkjan kaupir 30 þeirra, en Kvenfélag Njarðvík- urhrepps mun gefa 10. Auk þess hefir það þegar gefið 15 kyrtla til Innri-Njarðvíkur- kirkju. Mér er bæði ljúft og skylt að færa Kvenfélagi Njarðvíkurhrepps þakkir fyrir þessar rausnarlegu gjafir og fyrir hlýhug þeirra í kirkjunnar garð. — Ennfremur má geta þess, að formaður Kvenfélags Keflavikur, frú 'Guðný Asberg, befir ann- azt útvegun hinna nýju kyrtla, og á hún miklar þakkir skilið fyrir hjálpsemi sína. — Guð blessi alla þá, sem leggja fram krafta sína til stuðnings kirkjunni og starfsemi hennar. Eins og mörgum er kunnugt, þá vildi |rað slys til nú fyrir skömmu, að ein hinna væntanlegu fermingarstúlkna, Unnur Steinþórsdóttir, varð fyrir bifreið og fót- brotnaði og liggur hún nú á Sjúkrahúsi Keflavíkur. Fari svo, að hún verði ekki búin að ná sér það vel, að bún geti fermzt með síðasta hópnum, 6. maí, þá verður hún fermd strax og heilsa hennar leyfir, og hafa tvær vinkonur hennar, Eygló Sig- fúsdóttir og Sveindís Hansdóttir boðizt til að bíða eftir henni og fermast með henni, ef með þarf. Þessi ákvörðun stúlknanna tveggja er fagur vottur sannrar vináttu. Það er auðvelt að vera vinur á meðan sólin skín, en þegar skyggir að, þá kemur hið sanna hjartalag alltaf bezt í ljós. Að endingu aðeins þetta: Foreldrar, — vinnið einhuga að því, að fermingardag- urinn verði börnunum ykkar heilagur dagur. Fermingarbörn, — biðjið Guð að hjálpa ykkur til að játa fúsleika ykkar til fylgd- ar við Frelsarann, ekki aðeins með vörun- um, beldur einnig með hjartanu. Bj. J. Ferming i Kcflavík 22. apríl. DRENGIR: Eiivald Heimir Jóhannsson, Kirkjuvegi 39. Finar Björgvin Sigfússon, Miðtúni 7. Friðrik Hermann Friðriksson, Hafnargötu 54. Grétar Arnar Ellertsson, Hringbraut 66. Guðmundur Oli Bjarnason, Austurgötu 18. Gylfi Þór Ólafsson, Ásabraut 13. Ilörður Björn Finnsson, Túngötu 20. Jósep Valgeirsson, Gamla-Vatnsnesi. Karl Ingimundur Karlsson, Heiðarvegi 23. Magnús Pálsson Haraldsson, Ásabraut 7. Níels Hörður Jónasson, Heiðarvegi 25. Óskar Teitur Teitsson, Kirkjuvegi 39. Petter Anandus Táfjord, Hringbraut 92. Trausti Jósep Hólmberg Óskarsson, Faxabr. 10. Valur Símonarson, Kirkjuvegi 13. Þröstur Bergmann Einarsson, Suðurgötu 52. STÚLKUR: Auður Stefánsdóttir, Ásabraut 16. Ásdís Guðrún Þorsteinsdóttir, Suðurgötu 30. Ásta Málfríður Bergsteinsdóttir, Suðurgötu 37. Erla Sylvía Jóhannsdóttir, Kirkjuvegi 39. Fjóla Bragadóttir, Vallargötu 18. Halldóra Hafdís Ellertsdóttir, Hringbraut 66. Hulda Ólafsdóttir, Miðtúni 1. Ingibjörg Sigfúsdóttir, Brekkubraut 15. Kamilla Sveinsdóttir, Kirkjuteig 3. Kristin Stefanía Guðbrands., Borgarv. 10, Y.N. Lovísa Ólöf Guðmundsdóttir, Ásabraut 12. Margrét Guðrún Guðmundsdóttir, Hafnarg. 6. Margrét Margeirsdóttir, Suðurgötu 47. Margrét Stefánsdóttir, Ásabraut 16. Ólina Hróbjarts Guðmundsd. Ónnuhúsi, Y.N. Rakel Sigurbjörg Ólsen, Vallargötu 19. Sigurveig Guðjónsdóttir, Kirkjuvegi 32. Sveinbjörg Eygló Jensdóttir, Suðurgötu 51. Þorbjörg Hermannsdóttir, Hafnargötu 73. Þóra Anna Karlsdóttir, Sunnubraut 19. Ferming í Keflavík 29. apríl: DRENGIR: Árni Vigfús Árnason, Suðurgötu 32. Árni Baldur Pálsson, Kirkjuvegi 41. Birgir Kristjánsson, Landshafnarhúsi, Y. N. Eggert Valur Kristinsson, Sólvailagötu 14. Eiríkur Björn Ragnarsson, Litla-Hólmi, Leiru. Guðmundur Kristinn Þórðarson, Sólvallag. 35. Hilmar Bragi Jónsson, Hringbraut 69. Hrafn Sigurhansson, Suðurgötu 31. Hörður Karlsson, Vesturbraut 9. Lýður Ómar Steindórsson, Austurgötu 16. Róbert Lauridsen, Smáratúni 16. Sigurður Gíslason Ólafsson, Sunnubraut 12. Stefán Bergmann, Suðurgötu 10. Svavar Geir Tjörfason, Hringbraut 85. Vilhjálmur Grétar Árnason, Garðavegi 5. Þórður Kristjánsson, Smáratúni 14. Þráinn Sigurðsson, Garðavegi 8. STÚLKUR: Barbara Burgheim, Lind, Ytri-Njarðvík. Eva Oddgeirsdóttir, Garðavegi 13. Eygló Kristjánsdóttir, Höfða, Ytri-Njarðvík. Guðný Sigurlína Ásberg Björnsd., Hafnarg. 26. Guðný Kristín Þorleifsdóttir, Kirkjuvegi 34. Gunnþórunn Gunnarsdóttir, Suðurgötu 33. Helga Þórdís Þormóðsdóttir, Framnesvegi 10. Herdís Kristín Björnsdóttir, Faxabraut 18. Hrönn Kjartansdóttir, Túngötu 20. Jensína Kolbrún Ragnarsdóttir, Skólavegi 2. Jóhanna Þorbjörg Arnoddsdóttir, Vesturg. 25. Jóhanna Schmidt, Hólagötu 35, Ytri-Njarðvík. Jóna Guðríður Hjálmtýsdóttir, Baldursgötu 10. Margrét Birna Sigurðardóttir, Miðtúni 3 . María Ragnarsdóttir, Hafnargötu 44. Móeiður Romig, Kirkjuteig 7. Svanhildur Elintinusdóttir, Hafnargötu 82.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.