Faxi

Volume

Faxi - 01.03.1956, Page 3

Faxi - 01.03.1956, Page 3
F A X I 31 Dairy Queen mjólkurís er nú aftur fyrirligjandi í mörgum stærðum. KAUPFÉLAG SUÐURNESJA Matvörubúðin Hafnargötu 30 Ferming í Keflavík 6. maí. DRENGIR: Andrés Kristján Sæby Erlendsson, Vesturg. 7. Guðjón Helgason, Holtsgötu 30, Ytri-Njarðvík. Guðmundur Guðmundsson, Faxabraut 3. Hlöðver Hallgrímsson, Vesturgötu 15. Ingimar Rafn Guðnason, Birkiteig 18. Jón Edvard Reimarsson, Hátúni 14. Sævar Brynjólfsson, Sólvallagötu 24. Vilhjálmur Albert Skarphéðinsson, Vallart. 6. Vilhjálmur Heiðar Snorrason, Þórust. 15, Y.N. Þorbjörn Þór Þorsteinsson, Faxabraut 33. STÚLKUR: Bergljót Hulda Sigurvinsdóttir, Faxabraut 14. Bergþóra Hulda Ólafsdóttir, Hafnargötu 50. Drífa Sigurbjarnardóttir, Þórustíg 7, Y.N. Erla Guðmundsdóttir, Holtsgötu 25, Y.N. Eygló Sigfúsdóttir, Tjarnargötu 4. Guðrún Brynja Guðmundsdóttir, Suðurg. 40. Helga María Ástvaldsdóttir, Sóltúni 18. Helga Sigrún Helgadóttir, Hólagötu 39, Y.N. Helga Óskarsdóttir, Holtsgötu 32, Y.N. Júlía Sigríður Ólsen, Hólagötu 27, Y.N. Maren Halla Sigmundsdóttir, Faxabraut 15. Sigriður Kristinsdóttir, Holtsgötu 26, Y.N. Sólveig Þórunn Daníelsdóttir, Þórust. 20, Y.N. Svanhvit Þorsteinsdóttir, Faxabraut 33. Sveindís Rósa Hansdóttir, Hringbraut 92 A. Unnur Ingunn Steinþórsdóttir, Hafnargötu 49. Ferming í Innri-Njarðvík 10. maí. DRENGIR: Ólafur Gunnarsson, Stað, Ytri-Njarðvík. Sigurður Stefán Júlíusson, Móum, Innri-Njv. Stefán Sigurfinnur Bjarnas., Brekkust. 6, Y.N. STÚLKUR: Guðrún Bjarnadóttir, Brekkustig 6. Y.N. Kolbrún Inga Guðmundsdóttir, Hólag. 33, Y.N. Kristín Guðmundsdóttir, Borgarvegi 2, Y.N. Þórdís Skarphéðinsdóttir, Holtsgötu 28, Y.N. L íþróttabandaiag stofnað í Kefiavík Sunnudaginn 18. marz var stofnað í Keflavík íþróttabandalag Keflavíkur. A stofnfundinum voru mættir forseti I.S. I., Benedikt G. Waage; framkvæmdastjóri I. S. I., Hermann Guðmundsson; fulltrúar íþróttafélaganna í Keflavík, stjórnskipuð undirbúningsnefnd og aðrir áhugamenn fyrir íþróttamálum Keflvíkinga. Hermann Eiríksson skólastjóri, formað- ur undirbúningsnefndar, setti fundinn og stjórnaði honum. Eins og menn muna af fyrri fréttum, hefir þetta mál verið á döfinni síðan í haust, að félögin skipuðu nefnd til að annast undirbúning þessa máls og hafði það einnig verið rætt og samþykkt bæði af íþróttanefnd ríkisins og sambandsráði I. S. 1. og hefir því mál þetta verið all vel undirbúið og fengið í alla staði löglega málsmeðferð. A fundinum voru samþykkt lög fyrir bandalagið og kosinn formaður þess fyrir fyrsta starfsár þess. Kosningu hlaut Haf- steinn Guðmundsson, sundhallarstjóri. Aðrir stjórnarmenn sem tilnefndir vor.u af félögunum, voru: Heimir Stígsson, Páll Jónsson, Hörður Guðmundsson og Þór- hallur Guðjónsson. A fundinum ríkti mikill áhugi fyrir íþróttamálum Keflvíkinga, og var m. a. rætt urn nauðsyn þess að fullgera íþrótta- húsið hið allra fyrsta, þar sem Keflvíking- ar hafa eins og er enga aðstöðu til þess að iðka hinar ýmsu íþróttagreinar meginhluta ársins. Þá var og rætt um nauðsyn þess, að lagfæra íþróttavöllinn, svo að full not verði að honum nú í sumar, því reynsla síðasta sumars sýndi ljóslega, að völlurinn er al- gerlega ónothæfur, ef um vætutíð er að ræða. Ríkti áhugi fyrir því á fundinum, að bandalagsstjórnin hefði um þessi mál nána samvinnu við bæjarstjórn. A framhaldsfundi sem haldinn var viku seinna, skiluðu nefndir áliti og gerðu grein fyrir hinum ýmsu málum sem bandalagið kemur til með að fjalla um, m. a. að allar æfingar verði hér eftir sameiginlegar hjá báðum félögunum. Þar komu og fram hjá fjárhagsnefnd tillögur um skiptingu stvrks, er bærinn hefir þegar veitt bandalaginu, að upphæð kr. 20.000,00, og ýmsar tekju- Hafsteinn Guðmundsson, sundhallarstjóri. öflunarleiðir ræddar íþróttunum til styrkt- ar. Er fyllsta ástæða fyrir Keflvíkinga að fagna yfir hinu nýstofnaða íþrótta- bandalagi og vill 'Faxi taka undir lieilla- óskir forseta I.'S. I. og óska íþróttamönn- unum hér til hamingju með þetta myndar- lega framtak í von um að það megi í framtíðinni verða keflvískri æsku vermi- reitur, þar sem heilbrigði og sönn lífs- gleði þróist og dafni á komandi árum. Ritstj. RITA — Ný Rcgnbogabók. Regnbogaútgáfan í Reykjavík hefir nýlega sent frá sé nýja Regnbogabók, og nefnist hún Rita eftir Arlan Pram. Sagan segir frá ungri stúlku, sem lendir á villigötum og verður að standa fyrir lögreglurétti en hlýtur síðan samúð miðaldra lögfræðings, sem tekur hana að sér og beinir lífi hennar á farsælli brautir. Sagan er áhrifarík og spennandi og geðþekk um margt. Kaupfélögin. Hið árlega mót starfsmanna kaupfélaganna í Hafnarfirði og Keflavík var haldið í Kefla- vík nú fyrir skömmu. Eru þessi mót fastur liður í félagsmálastarfi kaupfélaganna, en þau halda þessi kynningar- og fræðsluhóf til skiptis í bæjunum og bjóða þangað erindreka Sambandsins, stjórnum félaganna og endur- skoðendum. Skemmtunin fór að vanda injög vel fram og var í alla staði hin ánægjulegasta.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.