Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1956, Qupperneq 5

Faxi - 01.03.1956, Qupperneq 5
F A X 1 33 Ragnar Guðleifsson: Kynnisför til Bandaríkjanna Framhald Knoxville er ekki stcSr borg, íbúar eru þar sennilega um 150—180 þús. eftir þeim upplýsingum, sem við gátum fengið. (I bókinni „Lönd og lýðir — Bandaríkin", er hún talin með 337 þús. íbúa, en þá er héraðið umhverfis borgina sennilega talið með). Borgin stendur á hæðadrögum heggja megin Tennessee-árinnar, en breið- ar og öflugar brýr tengja nú borgarhlutana saman. Aðalborgin, sem liggur vestan ár- innar er skipulega byggð á ameríska vísu, þannig að götur eru breiðar aðalbrautir, sem skerast hornrétt af þvergötum með nokkurn veginn jöfnu millibili. Séð úr lofti verður borgin lík taflborði, svo jafnir eru byggingarreitirnir. Ein aðalbrautin er breiðust og liggur í gegnum borgina. Við hana eru helztu verzlanir borgarinnar og umferð er þar mest. 'Hér eru göturnar með nöfnum en ekki tölusettar eins og víða í borgum Bandaríkjanna. Ein heitir t. d. Churcii- street (Kirkjustræti) og ber hún nafn með réttu, því við götuna standa kirkjur hinna ýmsu trúarflokka hlið við hlið. Þar eru kirkjur Babtista, Meþúdista, Lútherskra, Kaþólskra og hvað þeir nú allir heita trú- flokkarnir ,sem hér eiga heima. Flestar eru þessar kirkjur litlar, en snotrar og bera margar merki þess trúaráhuga, er svo mjög er áberandi víða i Bandaríkjunum. Byggingar eru hér ekki eins glæsilegar og í Washington, þó eru hér stórar bygg- ingar eins cjg t. d. Hótel Andrew Johnson, pósthúsið og dómhöllin, sem er glæsileg marmarabygging, byggð 1933—34, og bækistöðvar TVA. Tvennt er það einkum, sem gert hefur Knoxville nafnkennda. Annað er land- fræðileg lega borgarinnar, en um hana liggur leiðin í einn af hinum frægu þjóð- görðum Bandaríkjanna, Smoky Moun- tains. Hitt eru hinar frægu Tennessee- framkvæmdir, þar sem félagsleg þróun liefur náð lengst í Bandaríkjunum sam- fara verkfræðilegri tækni. Það sem fljótt vakti athygli mína, var ltve ólíkt er hér viðhorf hvítra manna til hinria blökku, því er við áttum að venjast í Washington. Hér voru að visu nær ein- göngu dökkir menn og konur við störf á hótelinu ,er við gistum. En hér sér maður ekki hvíta menn og dökka matast við sama borð í matsalnum eða sitja saman í strætis- vögnunum, og hér er það, sem annars staðar, að dökkir menn setjast aldrei í fremri sæti vagnsins, ef hann er einnig ætl- aður hvítum mönnum. Hið sama má segja um hvítu mennina, þeir eftirláta hinum dökku aftari sætin, annað gæti verið mis- skilið. Við höfðum ekki langa viðdvöl í hótel- inu, en vorum mættir eftir rúman klukku- tíma í bækistöðvum TVA. Þar var okkur vel tekið, og fengum við þar mikinn fróð- leik um þennan ríkisrekstur Bandaríkj- anna. Eins og áður segir voru lögin um TVA samþykki að tilhlutan Roosevelt forseta 1933. Voru lögin ein tilraun þeirrar stefnu forsetans að rétta við atvinnulíf Banda- ríkjanna, sem þá var í hinu mesta öng- þveiti og hér var það ríkið, sem hafði for- ustuna. Verkefnin, sem þessum lögum voru einkum ætluð, voru þrennskonar. 1 fyrsta lagi að hæta úr því neyðarástandi, sem ríkti á þessu svæði, með því að stífla árnar og stöðva flóðin, sem árlega gerðu hér usla. I öðru lagi að gera árnar skipgengar og bæta þannig samgöngur við þetta hérað og í þriðja lagi að framleiða rafmagn til heim- ilisnota og iðnaðar. Var nú hafizt handa o«r stíflurnar og orkuverin reist hvert af öðru. Fyrsta orku- verið, er reist var, er Norris Dam, sem er mikil verkjun og skammt frá Knoxville. Nú hefur TVA byggt 20 stíflur cjg rat- stöðvar. Hefur keypt 5 raforkuver af ein- staklingum og rekur auk þeirra 5 raf- orkuver, er einstaklingar eiga. Þannig rek- ur nú fyrirtækið 30 rafstöðvar knúnar vatnsafli og auk þess 8 gufuknúnar raf- stöðvar. Var okkur sagt, sem vakti at- hygli mína, að næstu framkvæmdir á þessu sviði væru gufuknúnar rafstöðvar. Væri þetta liagkvæmara, þar sem stofnkostnað- ur væri svo margfalt minni. Gufan er framleidd með kolum, og það nýjasta er, að þau eru fínmöluð og sallanum blásið inn á eldana. TVA kaupir nú árlega um 18 millj. smálesta af kolum. Þegar TVA hafði komið upp nokkrum rafstöðvum sínum, lækkaði það rafmagnið til muna. Þessu undu einkafyrirtækin illa, er kepptu við það um sölu rafmagns. Þau höfðuðu mál gegn ríkinu og kröfðust skaðabóta. Þau töpuðu málinu. Sum þeirra gáfust ttpp og TVA keypti raforkuverin eða tók að sér rekstur þeirra. Ymsir munu nú halda, að hér sé erfitt að bera saman einkarekstur og ríkisrekstur, þar sem ríkið borgi hallann, sem kann að verða á rekstrinum. En því er að svara, að hér er eigi um neinn halla að ræða. A tuttugu árum, t'rá 1933—1953 hefur fyrir- tækið selt orku fyrir 695 millj. dollara, en nettó tekjur þessi ár eru 235 millj. dollar- ar, áður en vextir eru dregnir frá. Arlega hefur það endurgreitt 4,1% af fjárframlög- um ríkisins og 30 millj. dollara hefur það greitt í skatta. Afskriftir eru reiknaðar 136 millj. dollara. Er þetta glæsilegur árangur, þegar þess er gætt, að TVA selur nú raf- orkuna helmingi lægra verði en meðalverð er annars staðar í Bandaríkjunum. Skipastigar voru byggðir og árnar gerð- Tilraunabú TVA í Tennessee, eitt af mörgum.

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.