Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1956, Qupperneq 9

Faxi - 01.03.1956, Qupperneq 9
F A X I 37 Nætur- (>n hclgidaíralæknai' í Kcflavíkur- hcraði frá 7. apríl til 5. niaí 1956: 7. til 14. apr,l Björn Sigurðsson. 14. til 21. apríl Guðjón Klemenzson. 21. til 28. apríl Bjarni Sigurðsson. 28. apríl til 5. maí Guðjón Klemenzson. Samkvæint upplýsingum frá héraðslækni er hinn slæmi innflúenzu- faraldur, sem hér hefir gengið að undanförnu, nú mikið í rénun, hins vegar færist hann í vöxt víða annars staðar í héraðinu, t. d. í Grindavík, en þar leggjast nú fjölda margir í innflúenzu. Karlakór Kcflavíkur hefir í vetur æft af miklu kappi og hyggst nú á næstunni halda opinbera hljómleika fyrir Keflvíkinga og aðra Suðurnesjamenn. Hefir kórstjórnin beðið blaðið að koma því á framfæri, að allir, sem vilja gerast styrktar- félagar kórsins, og þar með öðlast rétt til fyrstu hljómleika hans, eigi þess enn kost og ættu þá sem fyrst að gefa sig fram við ein- hvern úr stjórninni, en hana skipa: Jón Tóm- asson, Stefán Hallsson og Sigurður Brynjólfs- son. Austurbæjarbúðin. Rétt fyrir páskana tók til starfa ný og glæsileg sölubúð hér í Keflavík og er hún til húsa á Hafnargötu 79, Tómasarhaga. Er þetta mat- og nýlenduvöruverzlun, en eig- endur hennar eru þeir Haukur Þórðarson og Ellert Eiríksson. Er verzlun þessi í nýjum og vistlegum húsakynnum og öllum vörum þar hreinlega og smekklega fyrir komið sam- kvæmt nútímakröfum um matvöruverzlanir. Togarinn Kcflvíkingur. A sínum tíma var hér í Keflavík, eins og reyndar víða annarsstaðar í landinu, mikill áhugi fyrir togaraútgerð. Reis þessi áhugi hæst á nýsköpunaröldinni, sællar minningar. En miðað við mjög slæma útkomu á rekstri togaranna, hefir áhuginn skiljanlega farið minnkandi, einkum þó þar, sem atvinnuskil- yrðin voru sæmileg í landi, t. d. hér í Kefla- vík, enda er nú búið að selja togarann Kefl- víking. Kaupandinn er útgerðarfélagið Aust- firðingur h.f. á Eskifirði. Togarinn kom til Keflavíkur 31. marz 1948 og var síðan gerður út af bæjarfélaginu fram á s. 1. ár, að honum var lagt og útgerðinni hætt, vegna stórfelldra tapa á rekstri skipsins, sem voru þó lang mest á árunum 1953—4, en þau ár tapaði skipið samtals röskum 3 milljónum króna. Fram til þess tíma námu töpin rúmlega 1V2 milljón, svo að ljóst má vera, að fyrirtækið hefir verið ærið þungur baggi á bæjarfélag- inu. Nýtt frystihús brcnnur á Kcflavíkurflugvclli. Þann 28. marz s. 1. kviknaði í frystihúsi á flugvellinum ,sem verið var að enda við að byggja. Þar sem húsið var byggt úr eldfimu efni, magnaðist eldurinn fljótt og gjöreyði- lagðist húsið á skömmum tíma. Þegar sýnt þótti, að húsinu yrði ekki bjargað, lagði slökkviliðið aðaláherzlu á að bjarga vélun- um, og munu þær vera alveg óskemmdar. Arshátíð barnastúkunnar Nýjársstjarnan. Fyrir skömmu hélt barnastúkan Nýjárs- stjarnan í Keflavík árshátíð sína, en hún hefir nú starfað hér, oftast af miklu fjöri í 52 ár, undir ágætri handleiðslu þeirra Fram- nessystra, Guðlaugar og Jónínu Guðjóns- dætra. Vegna fjölmennis varð að halda þenn- an mannfagnað i tvennu lagi og var þó Ung- mennafélagshúsið fullsetið bæði skiptin. Til skemmtunar voru ræðuhöld, upplestur, leik- þáttur, einleikur á harmoniku og dans. Skemmtu allir sér konunglega, bæði hinir ungu félagsmenn og gestir þeirra. M.b. Muninn, G.K. 343. Nýr bátur með þessu nafni hefir bætzt við skipaflota Sandgerðinga. Eigandi bátsins er Miðnes h.f. og er hann gerður þar út. Bátur- inn er 56 tonn, byggður úr eik, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar. Er hann smíðaður í skipasmíðastöð Gyllelai í Danmörk. Hann er með 300 hestafla Budda vél, simrraad dýptar- mælir með asdic útfærslu eru í skipinu og oliudrifið spil. Yfirbygging er úr aluminium, ganghraði 9—10 sjómílur. Skipið kom til landsins á gamlársdagsmorgun s. 1. og reynd- ist mjög vel í siglingunni, enda talið mjög vandað að allra dómi. Því miður hefir enn engin mynd verið tekin af bátnum, svo að ekki er hægt að birta hana hér að svo stöddu. Gagnfræðaskóli Keflavíkur hélt ársfagnað sinn í samkomuhúsi Njarð- víkur þann 26. marz s. 1. Fór mannfagnaður þessi hið bezta fram og var þar margt til skemmtunar, þar á meðal sýndu nemendur skólans þar sjónleikinn „Happið" við hinar beztu undirtektir áhorfenda. Leikstjóri var Rögnvaldur Sæmundsson skólastjóri. A öðr- um stað hér i blaðinu er mynd af leikendum í hlutverkum sínum. Nýjustu fréttir af sjálfvirku síinstöðinni í Keflavík. Eins og áður hefur verið sagt frá hér í blað- inu, var leitað til Alþingis um sérstaka fjár- veitingu til sjálfvirkrar símstöðvar í Kefla- vík árin 1954 og 1955. Þegar séð varð í des- ember s. 1., að ekki átti að svara, hvað þá heldur að taka undir við ákveðnar óskir bæj- arstjórnarinnar og póst- og símamálastjórn- arinnar um fjárveitingu til þessa nauðsynja- máls, var sérstök nefnd kosin til að vinna að málinu. Kosnir voru Alfreð Gíslason, Valtýr Guðjónsson og Jón Tómasson, og skyldu þeir leita fyrirgreiðslu þingmanns kjördæmisins, Ólafs Thors, forsætisráðherra, þegar í stað, ef takast mætti að koma málinu eitthvað á- leiðis á þessu þingi. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir, tókst þó ekki að fá fund með hlutað- eigandi fyrr en 16. jan. s. 1. Þá mætti nefndin á fundi með Póst- og símamálaráðherra Ingólfi Jónssyni, Eysteini Jónssyni, fjármála- ráðherra og formanni fjárveitinganefndar, Pétri Ottesen. Ekki töldu þeir nokkra leið til að koma fjárveitingu á stað á þessu þingi, enda afgreiðsla fjárlaga komin of langt til þess að svo gæti orðið. Hinsvegar lofuðu þeir allir að byrjunarfjárveiting til sjálfvirkrar stöðvar skyldi fást á næstu fjárlögum. Þessi loforð eru því fyrstu öruggu fyrirheitin um fjárhagshlið þessa umbótamáls, sem knýjandi þörf er að leysa svo fljótt sem verða má. Útrýming hcilsuspillandi íbúða. Með lögum um húsnæðismálastjórn frá 1955 var svo ákveðið, að ríkið veiti árlega bæjarfélögum aðstoð til þess að útrýma heilsuspillandi húsnæði. Er aðstoð þessi fólgin í því, að ríkið veitir bæjarfélögum hagkvæm lán gegn jöfnu framlagi þeirra sjálfra. Fram- lög ríkisins árlega eiga að vera kr. 3.000.000,00. Bæjarstjórn Keflavíkur hefur samþykkt að leita þessarar aðstoðar^ og hefur í því skyni sótt um kr. 500.000,00 lán. Mun vera áformað að kaupa nokkrar íbúðir í fjölbýlishúsinu við Faxabraut í þessu skyni. Skilyrði fyrir því, að bærinn geti notið þessarar aðstoðar, er, að jafnmargar íbúðir, sem að dómi heil- brigðisnefndar og héraðslæknis eru heilsu- spillandi, verði teknar úr notkun. Kjör á íbúðum, sem reistar eru þannig af bæ og ríki í sameiningu, eru mjög hafelld, enda eink- um ætlaðar efnaminna fólki. Hjónav.ígslur í Keflavíkurprestakalli. 28. janúar voru gefin saman í hjónaband ungfrú María Einarsdóttir og Ragnar Frið- björn Jósson, Holtsgötu 43, Ytri-Njarðvík. 28. janúar voru gefin saman í hjónaband ungfrú Kristrún Guðjónsdóttir Brekkustíg 13, Ytri-Njarðvík og Zack B. Chamberlain, Keflavíkurflugvelli. 4. febrúar voru gefin saman í hjónaband ungfrú Ása Sigurjónsdóttir og Axel Nikolaj- son, Bergi, Deiru. 29. marz voru gefin saman í hjónaband ung- frú Kristín Jónsdóttir og Einar Jósepsson, Túngötu 22, Keflavík. 29. marz voru gefin saman í hjónaband ungfrú Sveinsína Frimannsdóttir, Aðalgötu 10, Keflavík og Reynir H. Ólversson, Fram- nesvegi 10, Keflavík. 31. marz voru gefin saman í hjónaband ungfrú Magnea S. Þórarinsdóttir, Hringbraut 71, Keflavík og Roger C. Laber, Keflavíkur- flugvelli. 4. apríl voru gefin saman í hjónaband ung- frú Hulda Jónsdóttir, Faxabraut 30, Keflavík og Owen B. Lovvorn, Keflarvíkurflugvelli.

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.