Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1956, Qupperneq 11

Faxi - 01.03.1956, Qupperneq 11
F A X I 39 Lúðrasveit Grein þessi, sem átti að birtast fyrr hér í blaðinu, varð að bíða vegna þrengsla. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á því. Rítstj. Eins og lesendur er kunnugt a£ fréttum blaða, var stofnuð hér lúðrasveit 15. janúar s. 1. Þeir, sem hrundið hafa þessari sveit af stað, eru 20 ungir og áhugasamir bæjar- búar. Þeir eru fast ákveðnir í því að gef- ast ekki upp, hversu erfiðlega sem kann að ganga. Þeir hafa líka gert sér það ljóst, að þetta verkefni mun ekki leika við þá, þvert á móti. Við mikla erfiðleika verður að stríða og þá fyrst fjárskort. Að stofna lúðrasveit er ekkert smáfyrirtæki, það þarf ekki nokkur hundruð krónur til þess að koma henni upp, heldur tugi þúsunda. En sé viljinn fyrir hendi má komast langt og þessir ungu menn treysta á skilning samhorgara sinna. Er ánægjulegt til þess að vita, hversu menningarlíf þessa unga bæjar fer ört vaxandi. Hvert félagið, er að listum lýtur, rís af öðru. Karlakórinn stofn- aður fyrir um tveimur árum, og hefur hann þegar veitt bæjarbúum marga ánægju- stundina. Hann liefur verið sómi þessa bæjar, þá er mikilmenni hafa heimsótt okkur og hlotið lof þeirra. Þá var einnig stofnað leikfélag nú í vetur. Við erum vart búin að lesa fréttir af stofnun eins menn- ingarfélags er annað rís upp. Eigum við ekki að gleðjast yfir þessum fram- förum og koma til móts við þessa dug- miklu frumherja. Það orð hefur hvílt á þessum bæ, að ekkert þýði fyrir listamenn að koma hingað, því hér kunni enginn að meta list. Er vonandi að við náum þeim leiðindarorðrómi af okkur og getum sýnt landsmönnum, að við séum ekki eftirbátar þeirra í neinu, er að listinni snýr og kunn- um eins vel að meta hana eins og hverjir aðrir. Við eigum nú þegar okkar eigin tónskáld, ljóðskáld, kór og leikfélag. Nú eygjum við þann möguleika að eignast okkar eigin lúðrasveit, er við þörfnumst svo mjög á öllum okkar útiskemmtunum. Það, sem hér er að framan talið, er allt það, sem einna mest prýðir hvert bæjar- félag. Undanfarið höfum við orðið að leita til nágrannabæjanna, er við þurfum á hornablæstri að halda. Nú er það aftur á móti ekki vonlaust að við fáum að heyra Keflavíkur í okkar eigin lúðrasveil á þessu ári. Bregð- umst við vel við, er sveitin leitar til okkar, getur svo orðið. Og ekki er að efa að Keflvíkingar munu taka þessu vel, allir munu leggja eitthvað af mörkum, svo þetta megi takast. Það er ekki aðalatriðið, að láta sem mest af mörkum, heldur að vera með. Almenn þátttaka mun hafa mest að segja. Fyrir það fé, sem tekst að safna saman, munu dýrustu hljóðfærin verða keypt, þau, er einstaklingar sveitarinnar ráða ekki við að kaupa sjálfir. Sveitin er undir forustu Guðmundar Guðjónssonar glerskurðarmanns. Guð- mund þarf ekki að kynna fyrir Keflvík- ingum. Allir vita, að þar er traustur maður á ferð. Hann hefur mikið starfað hér í félagsskap og var einn af okkar beztu leikurum, þá er leiklistin var hér á háu stigi og revíurnar skemmtu okkur sem bezt. Stjórnandi sveitarinnar var ráðinn Guðmundur Norðdalli söngstjóri. Guð- mundur hefur þegar sýnt það með starfi sínu fyrir karlakórinn, að hann er mikill stjórnandi og áhugamaður fyrir tónlistar- málum. Jafnframt því er Guðmundur lærður clarenettleikari og hefur í mörg ár starfað með lúðrasveitum. Er óhætt að fullyrða, að stjórn sveitarinnar er í örugg- um höndum, þar sem nafnarnir leggja saman. Eg átti tal við Guðmund Norðdalh varðandi sveitina og hvernig honum litist á hina tilvonandi hljóðfæraleikara. Var Guð- Gjafir til sjúkrahússins Á árinu 1955 bárust sjúkrahúsinu gjafir sem hér segir: Frá Laufeyju Guðmundsdóttur og Arna Vilmundarsyni kr. 5.000,00 til minningar um Guðríði Vigfúsdóttur og Guðmund Guðmundsson. Peningunum skyldi varið til kaupa á fæðingarrúmi á fæðingarstofu sjúkrahússins. Frá Jennýu Einarsdóttur, Arna Þor- steinssyni og börnum kr. 1.000,00 til minn- ingar um Þorbjörgu Ágústu Árnadóttur. Peningunum skyldi varið upp í kostnað við hljóðeinangrun. mundur hinn bjartsýnasti og sagði, að allir væru áhugasamir, en það væri líka frum- skilyrði þess að koma upp lúðrasveit. Til að vinna upp lúðrasveit þarf fyrst og fremst þolinmæði, mikið þarf að æfa og mikið að læra. Sagði hann, að allmargir félag- anna væru hljóðfæraleikarar og létti það mikið undir. Er ég spurði Guðmund, hve- nær mætti vænta þess að heyra til lúðra- sveitarinnar, kom svar hans mér nokkuð á óvart. „Lúðrasveitin gæti leikið fyrir bæjarbúa 17. júní n. k., þ. e. a. s. ef hún hefði öll þau hljóðfæri nú, er hún þarf og gæti byrjað að æfa strax. Sveitin er skipuð 20 mönnum og 11 þeirra hafa feng- ið sér þau hljóðfæri, er þeir þurfa að nota, en það eru ódýrari hljóðfærin, svo sem trompetar, clarenett og básúnur. Hina vantar hljóðfæri, sem við ráðum ekki við að kaupa svo sem horn og túbur. Þetta eru það dýr hljóðfæri, að ekki ei það á færi einstaklinga að kaupa þau. Við höfum lauslega reiknað það út að þau hljóðfæri, er enn vantar kosta um 60 þúsund krónur. Var ákveðið að leita til bæjarfélagsins, fyrirtækja og einstaklinga til þess að afla þessa fjár. Er vonandi, að allir bregðist ve! við, er leitað verður til þeirra, svo lúðrasveitinni verði kleift að afla þess- ara hljóðfæra og æfingar geti hafizt sem fv'rst. Því fyrr, því betra“. Þannig mælti Guðmundur og er ekki að efa að margir ntunu rétta þessari ungu lúðrasveit hönd, svo hún megi sem fyrst þroskast og dafna öllum bæjarbúum til gleði og ánægju á komandi tímum. Ingvar Guðmundsson. Einnig kr. 300,00 frá Bjarnveigu Vig- íúsdóttur í sama tilefni. Frá Braga Halldórssyni og frú kr. 100,00 í bókasjóð. Frá Sigurbirni Eyjólfssyni og frú kr. 1000,00 til bókasafns sjúkrahússins. Einnig hefur sjúkrahúsinu borist að gjöf frá Kanada, lrá söfnuði séra Eiríks Bryn- jólfssonar, eitt ullarteppi á fæðingarrúm sjúkrahússins. Nú nýlega færði Kvenfélag Keflavíkur sjúkrahúsinu að gjöf 3 dúnsængur og 6 sængurver til notkunar á sængurkonustofu sjúkrahússins. Fyrir framangreindar gjafir færir sjúkra- húsið gefendum beztu þakkir. Sjúkrahús Keflavíkurhéraðs. L

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.