Faxi - 01.03.1956, Side 13
F A X I
41
Frú Grivers við borð alsett fegrunarvörum.
Verzlunin Edda
Verzlunin EDDA var stofnsett hér síð-
astlicSicS haust af frú Vigdísi Jakobsdóttur
og frú Þórunni Olafsdóttur. Þær létu
byggja upp fiskbúðina við suðurenda ls-
félagshúsanna og gerðu úr henni allra
snotrustu kvenfata- og snyrtivöruverzlun.
Það sem hingað til hefur vakið mesta
athygli á verzlun þessari, er vafalaust sýn-
ing og kennsla í notkun á snyrtivörum
Helenu Rubinstein, sem fram fór hér á
vegum Eddu.
Frú Grivers, fegrunarsérfræðingur og
sendifulltrúi firmans, var á ferð hér á landi
í vetur og hélt námskeið í Reykjavík í með-
ferð og notkun fegrunarvara Helenu Rub-
instein. Námskeið þetta sótti afgreiðslu-
konan í Eddu, frú Fjóla Benediktsdóttir.
En þar var þeim kennt að leiðbeina við-
skiptavinunum um notkun og val snyrti-
varanna.
Eigendur Eddu sýndu þá hugulsemi, að
gefa keflvískum konum kost á að njóta
leiðbeininga í fegrunarfræðum og fengu í
því skyni frú Grivers hingað og hélt hún
fyrirlestur og sýndi með raunhæfum að-
gerðum undirstöðuatriði í meðferð og
notkun H.R. fegrunarlyfjanna.
Keflvískar konur kunnu vel að meta
þessa snjöllu hugmynd þeirra frú Vigdísar
og frú Þórunnar og skipuðu hvert sæti í
Tjarnarlundi.
Að fyrirlestrinum loknum var borið
fram kaffi og kökur og lauk þessari ágætu
samkomu með veglegu kaffisamsæti.
Við kaffiborðið heyrði ég konurnar ræða
H.f. Eimskipafélag íslands
Aðalfundur
Aðalfundur lilutafélagsins Eimskipafélags Islantls verður haldinn í
fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 9. júní 1956
og hefst kl. 1.30 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfs-
ári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir
henni, og leggur fram til úrskurðar entlurskoðaða rekstursreikninga
til 31. desember 1955 og efnahagsreikning með athugasemdúm endur-
skoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endur-
skoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr
ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins vara-
endurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að
vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðs-
mönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 5.—7.
júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að
sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að
ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins
í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e.
eigi síðar en 30. maí 1956.
Reykjaví!{, 28. desember 1955.
STJÓRNIN.
margt um kvenlega fegurð og yndisþokka
og nauðsyn þess, að viðhalda þeim eigin-
leikum á meðan unnt er. Raunar er þessi
viðleitni ívaf sögu konunnar frá fyrstu tím-
um, með mismunandi meðölum, en tækn-
inni hefur fleygt fram í þessum efnum,
sem iiðrum — og því fagna konurnar og
jafnvel karlmennirnir líka. Hófleg og
skynsamleg ntokun fegurðarlyfja er jafn
sjálfsögð og ofnotkun þeirra er fráleit.
J. T.
FAXI
Enn er hægt að fá Faxa frá upphafi,
að undanskildum nokkrum tölublöðum,
sem eru uppseld. Þeim, sem áhuga
hafa fyrir þessu, er bent á, að hringja
í síma 114 eða tala við ritstjórann á
Brekkubraut 7, Keflavík. Þangað ber
einnig að koma greinum og öðru efni,
sem birtast á í blaðinu.