Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1956, Blaðsíða 14

Faxi - 01.03.1956, Blaðsíða 14
42 F A X I Fuglinn: H jónaklúbbskokkteill (Hristur og saman skekinn handa Hjónaklúbb Keflavíkur, 5 ára, 17. marz 1956) (Sungið í afmælishófi klúbbsins af ungfrú Jónu Margeirsdóttur.) 1 Allir vildu verða hjón I Víkinni okkar. O, þvílík sjón, allt þetta fyrirtaks fólk í lest að fá sér hringa og prest. Til þess að komast í klúbbinn með kollu í andlitið, skvetta sér upp og skjótast í skiptingu útávið . . . Happið, eftir Pál J. Árdal. Leikstjóri: Rógnvaldur Sæmundsson. Hallur: Sverrir Jóhannsson. Gerða: Þura Kristinsdóttir. Gunnar: Einar Ériendsson. Gríma: Jóna Mar- geirsdóttir. Helgi: Magnús Sigtryggsson. Kristín: Jana Ólafsdóttir. Sigga: Margrét Margeirsdóttir. 2 Kátir urðu kallar og kellur tóku í dans. Þeir rikktu þeim í Rúmbu og Ræl og Ólaskans. Og allir föðmuðu allar og enginn úr þorsta dó . . . 3 Dóminó, Dóminó? Þetta Dóminó kann eg víst ekki. Beggi-Skó, Beggi-Skó, viltu biðja um lag, sem eg þekki, ástarlag, sem sé eftir Bjarna G. . . . 4 ía Dúa Díalín, ía Dúa Díalín, eg er ein, sem elska rall eins og þetta hjónaball. Elska stundum Steindór P., stundum ekki Jóhann P., elska stundum herra Hess, sko, Helga S. Hann, sem fékk mér happadrátt, heila flösku um miðja nátt . . . 5 En karlinn minn drakk frá mér dráttinn og drýldinn í eftir-geim fór og dagaði uppi með Dorra og Hess í drynjandi ástríðukór . . . 6 Svo skotinn sem eg alltaf er í öllum með ekta hár og skósíð brjóstahöld, er kellan mín samt klárust af þeim öllum að koma mér á bak við rekkjutjöld og segja mér til synda daginn eftir og sýna, að hún hafi lyklavöld . . . 7 Til þín vil eg framvegis flýja, fíni klúbbur í okkar bý. Þökk sé öllum, konum og köllum. Með kveðju — ekki frá Gregorý. Aövörun til atvinnurekenda Allir atvinnurekendur eru skyldir lögum samkvæmt að halda eftir af kaupi starfsmanna sinna vissum hundraðs- hluta af kaupi upp í opinbr gjöld. Eru þeir ábyrgir fyrir því, að þessum ákvæðum sé fylgt. Munið því að draga reglu- lega af kaupi starfsmanna yðar til greiðslu opinberra gjalda, því að öðrum kosti má gera yður ábyrga fvrir ógreiddum gjöldum starfsmanna, jafnt og opinberum gjöldum, sem lögð hafa verið á atvinnurekendur sjálfa. Skrifstofa Keflavíkurbæjar TILKYNNING ji fró skrifstofu Keflavíkurbæjar ;j Samkvæmt útsvarslögum og samþykkt bæjarstjórnar ber gjaldendum að greiða bæjarsjóði Keflavíkur upp jj í útsvar 1956 50°/ af útsvörum þeirra 1955 með gjalddögum 1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní sem næst 12%% af útsvarinu 1955 hverju sinni, þó ij þannig, að hver greiðsla standi á heilum eða hálfum tug króna. Bœjargjaldkerinn 1____~______________________________

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.