Faxi - 01.04.1964, Side 9
Kcflavíkurvegur tilbúinn undir steypu
á 10 km kafla.
Lokið hefur nú verið við að undirbyggja
rúmlega 10 km af Keflavíkurveginum nýja og
hefur verið unnið látlaust að þessum fram-
kvæmdum í allan vetur.
Þá hefur einnig verið gerður samningur við
verktaka um áframhaldandi undirbyggingu
Keflavíkurvegarins.
Sá kafli, sem nú hefur verið undirbyggður,
nær úr Njarðvíkunum, yfir Vogastapa og
nokkuð norður í Strandaheiðina. Liggur veg-
urinn þar beint yfir hraunið, en þræðir ekki
ströndina eins og gamli vegurinn gerir.
Þessi 10 km kafli, sem lokið er við að und-
irbyggja, er nú tilbúinn til þess að steypt
verði ofan í hann, en steypuvinna er ekki
hafin ennþá og telur vegamálastjóri það enn
óákveðið hvenær hún hefst og eins það, hve
mikið verði steypt í sumar.
Er nú lokið við að undirbyggja 25 km
langan kafla hins nýja Keflavíkurvegar og
þar af er búið að steypa tæplega 15 km, frá
Engidal og suður að Kúagerði.
Þakkir færðar.
Faxi er beðinn að flytja Keflvíkingum og
Njarðvíkingum beztu þakkir fyrir hinar frá-
bæru undirtektir, er þeir sýndu í sambandi
við fjársöfnun þá, er fram fór til styrktar
barnmörgu fjölskyldunum tveimur, sem
misstu fyrirvinnu sína nú í vetur.
Guð blessi þá hina mörgu, er þar réttu
hjálparhönd.
Jónína Guðjónsdóttir, Sesselja Magnúsdóttir.
Hermann Eiríksson, Björn Jónsson.
Eldur laus í Keflavík.
Laugardaginn 4. apríl, klukkan 15,30, var
slökkviliðið í Keflavík kvatt að húsinu nr. 28
við Vallargötu í Keflavík. Þegar eldurinn varð
laus voru íbúar hússins fjarverandi. — Er
Útgerðarmenn!
Japönsk þorskanet,
garn 12,
fyrirliggjandi
Verzlun
Margeirs
Jónssonar
Hafnargötu 55. Keflavík. Sími 1130.
slökkviliðið kom á staðinn stóð eldurinn út
um glugga á suðurenda hússins og voru þá
báðar hæðir þess alelda, enda var hér um að
ræða gamalt tvílyft timburhús. Slökkviliðinu
tókst fljótlega að slökkva eldinn, en samt varð
mikið tjón, bæði af eldi og vatni. Eigandi húss-
ins, Sigurður Hannesson, missti þar allt sitt
innbú og þar á meðal gott og verðmætt bóka-
safn. Sama er að segja um fólkið, sem bjó á
efri hæðinni, það varð einnig fyrir tilfinnan-
legu tjóni, enda mun innbú á báðum hæðum
hafa verið lágt vátryggt. Okunnugt er um
eldsupptök.
Loftleiðir.
Eins og alþjóð er kunnugt, hafa Loftleiðir
ákveðið að flytja flugumferð sína til Kefla-
víkur vegna hinna stóru skrúfuþota, sem
félagið hefur fest kaup á.
Til hægðarauka fyrir þá farþega á Suður-
nesjum, sem kynnu að vilja notafæra sér
þessa breyttu aðstöðu, hefur félagið fengið
sér umboðsmann í Keflavík, Krisistján Guð-
laugsson, sem mun veita allar upplýsingar og
selja farseðla á öllum flugleiðum félagsins.
Er Kristján til viðtals alla virka daga á skrif-
stofu sinni við Víkurbraut (Shell-afgreiðsl-
an). Síminn er 1804.
Vísna-póstur.
Eftirfarandi vísur hafa blaðinu borizt frá
Sigurði Magnússyni, og er sú fyrsta í beinu
framhaldi af Þorravisu hans í síðasta Faxa:
Þorri ljúfur leið á burt,
lýði drjúgum gladdi.
Góa, frúin, kom með kurt.
Hvernig hún púi verður spurt.
Nú þarf ekki lengur um það að spyrja,
frúin reyndist sízt lakari en bóndinn. En þá
fær Sigurður nýtt yrkisefni, sem er Einmán-
uður:
Tifar áfram tímans hjól,
tíminn aldrei nemur staðar.
Færir okkur fagra sól
fyrsti dagur Einmánaðar.
Sigurður kann vel við sig á elliheimilinu
Hlévangi, en þar ræður húsum frú Sesselja
Magnúsdóttir, sem er gamla fólkinu góð og
nærgætin. Um það kveður Sigurður:
Nú skal gjarnan nefna það:
njótum gæða víst með réttu,
Gista hér á góðum stað
gömlu lömbin hennar Settu.
í eftirfarandi vísu lýsir Sigurður veru sinni
og starfsfólki á elliheimilinu:
Ásgeir Ásgeirsson
í forsefrakjöri
Forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson, hefur
nú tekið ákvörðun um að gefa kost á sér til
forsetakjörs, sem fram á að fara 28. júní
næstkomandi. Hann hefur nú verið forseti
lýðveldisins þrjú kjörtímabil, eða í 12 ár, og
ávallt sjálfkjörinn nema í fyrsta sinn. Hann
gefur því kost á sér f embættið í fjórða sinn.
Framboðsfrestur er útrunninn fimm vikum
fyrir kjördag, eða 23. maí. Ekki hefur heyrzt
að fleiri framboð séu í undirbúningi.
Birtast störfin býsna smá,
borða flest, sem mér er gefið.
Lýðum skal það iíka tjá:
ligg og sit og tek í nefið.
Áður en Sigurður fluttist á elliheimilið í
Keflavík, hafði hann um langan aldur búið
í Garði og eignast þar marga og góða vini,
enda er honum staðurinn kær og þar dvelur
hugurinn löngum. Hins vegar sárnar gamla
manninum, hve fáir af sveitungum hans úr
Garði heimsækja hann á elliheimilið. Þakk-
látum huga lætur hann þess getið, að Kven-
félagið í Garði hafi sýnt sér vinarhug og
höfðingsskap með peningagjöf nú fyrir jólin,
sem hann segist vel kunna að meta, þó sér
hefði komið betur að vináttan hefði komið
fram í heimsóknum og hlýjum handtökum,
því þess væri hann meira þurfandi en pen-
ingagjafa. Hann vill sem sé taka sér í munn
orð Gunnars á Hlíðarenda, er hann þakkaði
fornvini sínum, Njáli, höfðinglegar gjafir:
„Góðar þykja mér gjafir þínar, en meira er
mér verð vinátta þín.“ — Og til að árétta
þessi orð, sendir Sigurður Garðbúum eftir-
farandi stöku:
Letin þjáir lýð í Garði,
líta fáir inn til mín.
Kippa frá mér yndisarði.
Artar þráin hjá þeim dvín.
F A XI — 61