Faxi

Árgangur

Faxi - 01.08.1977, Blaðsíða 8

Faxi - 01.08.1977, Blaðsíða 8
Mynd þessi er sennilega sú elzta, sem til er af skólabörnum í Keflavík og er að líkum tekin um svipað leyti og myndin af barnaskólanum í Njarð- vík, sem birtist í síðasta blaði. Mynda- smiðurinn er óefað sá sami, Stefán M. Bergmann, þá Ijósmyndari í Keflavík. Fyrsta röð f.v. (1) Gunnar Jónsson, sonur Jóns í Borg, kunnur hagyrðing- ur hér fyrr á árum. Bróðursonur Gunnars er Gunnar Jónsson, sveitar- stjóri í Vogum, Vatnsl.str. (2) Guðrún Eggertsdóttir, dóttir Eggerts Böðvars- sonar frá Hrúðurnesi í Leiru. (3) Lára Sigurðardóttir, móðir hennar var Kat- rín Jónsd. síðar kona Einars Sig- mundss., þau bjuggu að Aðalgötu 5. (4) Ólafur Gíslason. Móðir hans var Steinunn Jóhannsdóttir, móðir Jó- hanns Guðmundssonar, Hringbraut 97, Kvík. (5) Janus Guðmundsson, Hafnargötu 41, Kvík, þekktur sjó- maður og vélstjóri á vélbátum og lengi við frystihús ísfélagsins. Síðast umsjónarmaður við Tónlistarskólann í Keflavík. (6) Guðmundur Sigurðs- son, bróöir Gunnars Sigurðssonar, skipstjóra, lengst á m/b Sigurði Gunnarssyni, Keflavík. Þeir bræður eru báðir dánir. (7) Jón Valdimarsson. Dóttir hans er Júlíana Jónsdóttir, Garðavegi 11, Kvík, sem við Keflvík- ingar þekkjum vel undir nafninu: Lúlla í Bókabúðinni. önnur röð f.v. (8) Sólveig Gísladóttir, kom hingað frá Miðnesi. (9) Elín Sigurðardóttir, systir Eiríks Sigurðs- sonar, vélstjóra, Aðalgötu 12, Kvík. Bjó í Hafnarfirði, Gift Guðjóni Arn- grímssyni, trésmíðameistara þar. Þau eru bæði dáin. (11) Erlendur Jónsson, lengi útgerðarm. og skipstjóri í Kvík. Vinnur nú við afgreiðslu í Áhaldahúsi bæjarins. (12) Sigurgísli Guðjónsson, Dóttursonur hans er æskulýðsfulltrú- inn okkar, Vilhjálmur Ketilsson. (13) Einar Guðbergur Sigurðsson, skip- stjóri hér og útgerðarmaður um lang- an tíma. Hann drukknaði af báti sínum í lok febrúar 1947. Kona hans María Guðmundsdóttir dvelur nú hjá syni þeirra, Gunnari, að Sólvallagötu 12, Kvík. (14) Marín Jónsdóttir, kenn- ari, systir Erlendar (nr. 11), kona Ingibers Ólafssonar, skipstjóra og út- gerðarm. í Keflavík og móðir Ólafs Ingiberssonar og þeirra bræðra. FAXI — 8

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.