Faxi

Árgangur

Faxi - 01.08.1977, Blaðsíða 12

Faxi - 01.08.1977, Blaðsíða 12
RÓÐUR Á OPNU SKIPI FRÁ HELLISSANDI eftir Karvel ögmundsson, útgerðarmann í Njarðvík. Flutt á Hellissandi á sjómannadaginn 1976. Þar var Karvel heiðraður með merki sjómannadagsins. Minninganna stólpar standa staðsettir, á brattri kleif, þar sem beittu orku og anda útvegsmenn, á áraskeið. Boðaföll til beggja handa brögnum vamar, sjóferð greið. Þeir leystu þennan, voðavanda og vömuðufrá, hungursneyð. Skorður undan skipum tóku, skutum lyftu,fram svo óku fleyjum þungum, flóðs að bungum. Kjalarvöm, af klettum neista kveikti, kvikufroðan sölt, um vanga sleikti. Yfir grúfir, morgunmyrkur, má ei greina handaskil. Trúin, mannsins meginstyrkur, megnar öllu að breyta t'vil. Uthafsbáran, œgisterka, inn að landi, hraðarfor, albúin, til voðaverka, veldur ólgu, i'þröngri vör. FAXI — 12 Þar sem stórir steinar eggja standa út úr hleðslum, varaveggja, búa grand, ef bátinn ber að grjóti, bragnar reyna, að hamla þvi'á móti. A Idan sogar, ytir, hrindir, skekur, öll skiþshöfnin, fast á móti tekur höndum bœði og blóðugum með bökum, byrðing hemja þeir, með föstum tökum. Sterkar árar, eru í keipum reistar, cegir kyrrist, stundin nálgast, lagið freistar. Formannskallið, kom frá afturstafni: „Knyjum skipið fram, ijesú nafni. “ Vel varytt, ogfast þá fram á legu fleyjum róið, brot á alla vegu. Ofan tekið,flutt var Faðir vorið, fyrsta þessa dags, var stigið, hœttusþorið. A Idanna rún, þeir rislu í klöpþ, er ruddu fram, skipum þungum, sœfarans biðu hugsuð höpþ hafs, út á reginbungum. Sigggróinn hönd, knúði áraönd utar, að fengsœlli miðum, með átök svo þönd, að oft brustu bönd og brakaði i byrðingaviðum. í Kolluálshalla var linan lögð, liður að dœgramótum, álorinn * œfður með handtök hörð hendir út öllum krókum. Frostgolan leikur um sjávarsvörð, menn sviður af kulda áfótum, losa um bróklindans gildu gjörð svo gœtu hellt sjó, úr brókum. Norðanbakka við Bjargtanga ber og bólstrar á Skorarfjöllum. Lifandi vindbára, um boða og sker byltist íhröðum föllum. Nú skellur á áhlaup, ef skjátlast mér eigi, skyrist það bráðum, þá lysir af degi. Svo ályktar formaður án þess að hika þvi uþþyfir Gilsfirði, er norðaustan blika. Lagt að dufli, dregin lóðin, dágóður afli fenginn i skut. Fimmtiu þorskum, framan við bjóðin, fleygt fram i barkarrúm, fjórum i hlut. í svo góðri veiði, er seglfesta fengin, formaður dregur inn, endabólsstrenginn. Þá skellur á ofsarok, auga á bragði, roksþildan skipið á hliðina lagði. Rennt fyrir stýri, sveifin sett á, seglbúið, dragreipi bundið á rá. Skautbandið fœrt að formanns hendi, átornum * réttur, dragreipis endi. Miðskipa auslurs til, trog tveggja mama, með stjaka, skalframjaðar seglsins spanna. 4 Hálsmaður vindbandi, bregður um röng, með aðgœzlu hafin er, siglingin ströng. Segl upp undið, sýður frá knör, svarrandi haflöður, einkum til hlés. Báturinn nötrandi œðir sem ör, beljandi stormur, ívoðina blés. Það brakar íviðum, rymur íröngum, reynir á byrðing, i átökum ströngum. Siglt fyrir brotsjói, sveigt upþ að vindi, voðanð hálsað, hjá öldunnar tindi. Nú kallar mitt skiþ, ég er komin iþrot og kann ekki afbera meira, álengdar hrynja brot við brot, berast þau hljóð mér að eyra, vægðu mér, vœgðu mér, veik er min súð, vægðu mér, vægðu mér, voðin er lúð, vægðu mér, vœgðu mér, bresti min bönd, byrðingur opnast svo gef ég upp önd, þá þarf ekki að fást um það fleira. Ölduföllin œgihá, œla bárulegi, vandi er þeim að varist fá. Vonin glœðist landi að ná, sú er allra þegna þrá, þessu á litla fleyi. Syngur i reipum, svignar rá, sýður á keipum, ólgan blá. N

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.