Faxi - 01.08.1977, Side 16
Hitaveitan gengur að óskum
Hitaveitu Suðurnesja hefur að mestu leyti
tekist að fylgja framkvæmdaáætluninni.
Heildarkostnaður framkvæmda miðað við 1.
maí, 1977, mun vera nálægt kr. 1.260.000.000.
Þar af eru um það bil 370.000.00, í virkjunar-
framkvæmdir við Svartsengi.
Nýlega hefur verið gengið frá fram-
kvæmdaláni í Bandaríkjunum að upphæð, kr.
1.440.000.000.
Staða verklegra framkvæmda miðað við 1.
maí 1977.
Grindavík:
1. og 2. áfanga dreifiveitu lokið.
Grindavíkuræð:
Fullfrágengin með einangrun og álkápu. Lok-
ið við að smíða 800m miðlunargeymi á
Grindavíkuræð.
Njarðvík:
1. áfanga dreifiveitu að mestu lokið og búið
að semja um lagningu annars áfanga.
Keflavík:
1. áfanga dreifiveitu að mestu lokið og samið
um annan áfanga. Hafin er lagning aðveitu-
æðar frá Svartsengi að Njarðvík. Sú æð er um
12 km. að lengd og 50 cm. í þvermál. Áætlað
verð hennar fullgerðrar er um 450 milljónir en
því verki á að ljúka á þessu ári. Ennfremur
hefir verið samið um og hafnar framkvæmdir
við stofnæð Njarðvík-Keflavík, en það er aðal
flutningsæð í gegnum Njarðvík og Keflavík til
Sandgerðis og Garðs. Þessi æð mun verða í
steinsteyptum stokk í gegnum byggð í Njarð-
vík og Keflavík.
Lokið er fyrsta hluta stöðvarhúss fyrir
varmaskiptastöð við Svartsengi, en það er um
430m að flatarmáli eða 3900m auk kjallara,
sem er um 1080m .
Framkvæmdaáætlun ársins 1977 gerir ráð
fyrir fjárfestingu upp á kr. 1775 millj., en þær
framkvæmdir sem þar eru fyrirhugaðar eru
helstar:
Grindavfk:
Lagt verði dreifikerfi í Þórkötlustaðahverfi.
Njarðvík:
Lokið við 2. áfanga dreifikerfis, en það er
svæðið austan Reykjanesbrautar og hafnar
framkvæmdir í Innri-Njarðvík síðari hluta
ársins.
Keflavík:
Lokið við 2. áfanga þ.e. svæöi milli Flugvall-
arvegar, Hringbrautar, Tjarnargötu og Hafn-
argötu. 3. áfanga lokið en það er svæðið
norðan Tjarnargötu og vestan Hringbrautar
og síðar á árinu verði hafnar framkvæmdir við
Vatnsnesið og svæðið norðan Tjarnargötu og
austan Hringbrautar. Tengingar munu hefjast
á þessu ári. Njarðvíkuræð verði lokið að
mestu (þ.e. aðveituæðin Svartsengi-Njarðvík.)
Stofnæð Njarðvík-Keflavík verði lokið frá
Fitjum í Njarðvík að Vesturgötu í Keflavík.
Helstu verktakar hjá Hitaveitu Suðurnesja í
þeim verkum, sem nú eru í framkvæmd eru:
1. Ástvaldur Gunnlaugsson, Reykjavík.
(Dreifikerfi í Njarðvík.)
2. Ellert og Svavar Skúlasynir, Njarðvík. (að-
veituæð Svartsengi-Njarðvík)
3. Halldór Guðmundsson, Hafnarfirði.
Dreifikerfi í Keflavík.
4. ístak, Reykjavík. Varmaskiptastöð í Svarts-
engi.
5. Sveinn Skaptason, Kópavogi. Stofnæð
Njarðvík-Keflavík.
6. Víkurverk h.f., Grindavík. Stofnæð Njarð-
vík-Keflavík.
Ráðgjafaverkfræðingar eru:
Fjarhitun h.f.
Verkfr.stofa Guðmundar og Kristjáns.
Orkustofnum, Rafteikning, Hnit h.f. o.fl.
Arkitektastofan s.f. annast hönnun allra bygg-
ingarframkvæmda.
1. maí voru alls tengdir 220 notendur í
Grindavík. Sala fer fram í gegnum hámarks-
rennslishemil og er þar fylgt dæmi flestra
staða utan Reykjavíkur, svo sem Sauðárkróks,
Ólafsfjarðar, Húsavíkur, Seltjarnarnes, Hvera-
gerðis og fleiri staða.
Kirkjukór Njarðvíkur,
fór í söngför til Skotlands, þann 27. maí og
söng þar við hátíðarguðþjónustu í Edinborg,
um hvítasunnuna. Einnig prédikaði þar sókn-
arpresturinn, síra Páll Þórðarson. Söngstjórar
kórsins voru þau Gróa Hreinsdóttir og Sigur-
óli Geirsson. Þrjátíu og fimm manns tóku þátt
í förinni og dvöldu í æfafornum kastala,
Carberry tower, sem er félagsmiðstöð skosku
kirkjunnar. Farstjóri var síra Páll Þórðason.
Aflafréttir.
Sjóstangaveiðimót var haldið á vegum Sjó-
stangar í Keflavík s.l. laugardag. Þátttakendur
voru um 40, frá Akureyri, Reykjavík, Vest-
mannaeyjum og Keflavík. Lagt var af stað í
róðurinn kl. 7 og róið í Garðsjó og komið að
landi kl. 16, en veður var ekki sem bezt.
Heildaraflinn varð 2.3 tonn. Mestan afla
fékk Andri Páll Sveinsson frá Akureyri, 127
kíló, þá kom Ásgeir Nikulásson, Akureyri, og
fékk hann einnig flesta fiska eða 103. Keppt
var um sveitabikar, sem Híbýlaval í Keflavik
gaf en það er farandbikar sem vinnst til eignar
þeirri sveit, sem vinnur þrisvar í röð.
Vestmannaeyingar voru búnir að vinna
hann tvisvar í röð, en Akureyringar unnu
hann nú og fengu 365 kíló. Sveitina skipa
þeirú Andri Páll Sveinsson, Þorvaldur Nikul-
ásson, Ásgeir Nikulásson og Einar Einarsson.
Vestmannaeyingar voru í öðru sæti, þeir
fengu 345 kíló, þá sveit skipa þeir sömu og
búnir voru að vinna bikarinn tvisvar, þeir
Sveinn Jónsson, Bogi Sigurðsson, Sigurður
Sigurðsson og Halldór Pálsson. Sveit Kefla-
víkur varð síðan í þriðja sæti, en sjö fjögurra
manna sveitir kepptu um bikarinn.
Skipstjórabikarinn fékk Benedikt Guð-
mundsson, skipstjóri á Fram, en það var
aflasælasti báturinn. Kvennabikarinn hlaut
Margrét Helgadóttir, Keflavík. Stærsta fiskinn
veiddi Gréta Úlfsdóttir, Keflavík, og var það
þorskur sem vó 12,8 kíló. Stærsta ufsann og
stærstu ýsuna veiddi Amþór Sigurðsson, Vest-
mannaeyjum, stærsta karfann Sveinn Viðar
Jónsson, Reykjavík, og stærstu lúðuna Krist-
inn H. Jóhannsson, Akureyri.
Um kvöldið afhenti formaður Sjóstangar í
Keflavík, Jóhann Líndal, verðlaunin í hófi,
sem haldið var í félagsheimilinu Stapa.
FERMINGARBÖRN í
GRINDAVÍK 1977
Stúlkur:
Anna María Reynisdóttir, Ránargötu 3.
Anna María Sigurðardóttir, Steinum.
Ásgerður Jónsdóttir, Garði.
Bjarney Kristín Hlöðversdóttir, Leynisbraut 7.
Dagmar Jóna Elvarsdóttir, Hraunbraut 3.
Edda Björg Benónýsdóttir, Borgarhrauni 7.
Hanna Þóra Agnarsdóttir, Mánasundi 7.
Hugrún Jónsdóttir, Suðurvör 8.
Inga Fríða Gísladóttir, Mánasundi 4.
María Þóra Sigurðardóttir, Efstahrauni 7.
Rebekka Breiðfjörð Jórmundsdóttir, Suðurvör
5.
Sigríður Hildur Ingólfsdóttir, Mánasundi 8.
Sigrún Harpa Einarsdóttir, Heiðarhrauni 60.
Sigrún Þórarinsdóttir, Staðarhrauni 21.
Svanhildur Káradóttir, Túngötu 11.
Drengir:
Albert Sigjónsson, Suðurvör 12.
Almar Eiriksson, Heiðarhrauni 12.
Amar Daníelsson, Ránargötu 5.
Eiður Ágúst Jónsson, Leynisbraut 10.
Garðar Hallur Sigurðsson, Borgarhrauni 5.
Gestur Ólafsson, Túngötu 22.
Grétar Þorgeirsson, Marargata 1.
Guðjón Jónsson, Túngötu 14.
Gunnar Jóhannesson, Baðsvöllum 2.
Gústaf Adolf Þórarinsson, Suðurvör 10.
Haraldur Harðar Hjálmarsson, Staðarvör 5.
Hjálmar Sigurðsson, Hraunbraut 2.
Jóhann Ingi Ármannsson, Teigi.
Jón Ingiberg Kristjánsson, Víkurbraut 52.
Kristinn Ingi Jónsson. Hvassahrauni 5.
Óskar Jensson, Staðarhrauni 8.
Páll Árnason, Heiðarhrauni 48.
Pálmi Ásgeir Magnússon, Borgarhrauni 10.
Roland Buchholz, Staðarvör 4.
Sigurður Óli Hilmarsson, Amarhrauni 5.
Sigvard Anton Sigurðsson, Suðurvör 6.
Sæmundur Bjarni Elísson, Heiðarhrauni 14.
FAXI — 16